Dagblaðið - 20.03.1980, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980.
9
Vafasamur spamaður ríkisins við löggæzluna:
Lögreglustöðvar lokaðar um
nætur og eftiiiit mjög skert
— Löggæzlan víða um land talin undir sæmandi mörkum
Lögreglumenn kallaöir til vegna stuldar úr gámum á hafnarsvæði Reykjavíkur.
Gámar og verðmæti eru geymd á hafnarsvæðum víða um landið.
DB-mynd Sv. Þ.
Núgegnir
hannöðru
hlutverki
Þessi forláta brunabíll, er eitt sinn
þjónaði vel sínum tilgangi hjá
slökkviliðinu, hefur nú fengið annað
hlutverk. Nú auglýsir hann og annar
til bílasölu Guðfinns, sem nýflutt er i
nýtt húsnæði. Bíllinn er Ford, ár-
gerð 1947. Að sögn Hilmars Elís-
sonar, sölumanns hjá bílasölu
Guðfinns, er bíllinn ekki til sölu.
„Hanneri l'inu lagi, sírenur virka og
hægt er að blikka Ijósunum. En það
máekki nota,” sagði Hilmar.
-EI.A/DB-mynd Sveinn Þorm.
Víða um land er megn óánægja
ríkjandi vegna breytts vaktafyrir-
komulags hjá lögreglumönnum.
Finnst bæði lögreglumönnum og al-
menningi að teflt sé á tæpasta vað i
öryggismálum á ýmsum stöðum
vegna fámennis í lögregluliði, og þess
vaktafyrirkomulags sem stjórnvöld
hafa fyrirskipað. Ákváðu stjórnvöld
í vor að draga mjög úr aukavöktum
lögreglumanna í sparnaðarskyni, en
afleiðingin er að lögreglustöðvar eru
lokaðar stóra hluta úr sólar-
hringnum, og þegar opið er þurfa
lögreglumenn oft að loka stöðvun-
um, þegar útkall kemur úr fjarlægum
hreppum vegna slysa eða óhappa.
Svo dæmi sé tekið eru nú fjórir
lögreglumenn á Sauðárkróki.
Umdæmi þeirra er öll Skagafjarðar-
sýsla með 4400 ibúum. Um helgar er
þar nú aðeins vakt á lögreglustöð á
laugardagskvöldutn. Aðra tíma helg-
arinnar og allar nætur er lög-
reglustöðin lokuð og lögreglumenn
aðeins á bakvakt. Á vöktum eru svo
fáir að komi útkall þarf oft að Ioka
stöðinni.
í Vestmannaeyjum, þar sem lög-
reglustöð hefur verið opin allan
sólarhringinn árum saman, var
ákveðið að loka um miðja nótt til kl.
9árdegis.
Á Snæfellsnesi var hætt að hafa
lögreglumann í Grundarfirði en hann
færður á lögreglustöð í Ólafsvík og
hvenær setn Grundarfjörður og ná-
grenni þarf á lögregluaðstoð að halda
verður maður að koma frá Ólafsvík.
Á Húsavík er fastur dagvaktar-
maður af stöð settur á vaktir með
þeim afleiðingum að loka verður
stöðinni i sumum tilvikum er útköll
koma.
Niðurskurður aukavinnu hefur
víða leitt til þess, að lögreglutnenn
eru einir á eftirlitsferðum og rýrir það
mjög eftirlit með ýmsum laga-
brotum, t.d. ölvunarakstri.
Á ýmsum stöðum, m.a. ofan-
tölduin, eru mikil verðmæti í húfi
l.d. i höfnum. Árum saman hafa lög-
reglumenn hafl auga með og eftirlit
að næturlagi með umferð um
hafnirnar og forðað miklu tjóni oft á
tíðutn, t.d. er bátar hafa slitnað frá,
eldur orðið laus o.s.frv. Nú eru þessir
viðkvæmu staðir eftirlitslausir lang-
tiinum saman, enda þess þegar dæmi
að skemmdarverk hafi verið unnin.
Sparnaður ríkisins af niðurskurði
aukavinnu löggæzlumanna eða
viðbótarráðningum hefur þvi orðið
vafasainur og litið má út af bregða
svo að stórtjón hljótist ekki af.
-A.SI.
Forsetim:
Guðlaugur
efstur hjá
Skýrslu-
vélum
69 menn af 84 tóku þátt í
skoðanakönnun uin forsetaval
hjá Skýrsluvélum rikisins og
Reykjavíkurborgar. Atkvæði
féllu þannig um þá, sem þegar
hafa tilkynnt framboð: Albert 11,
16%, Guðlaugur 36, 52.2%;
Pétur 3, 4.3%; Rögnvaldur O;
Vigdís 18, 26.1%; einn skilaði
auðu.
Starfsmenn eru alls 84. Þátl-
taka var82%, sem fyrr segir.
-BS.
Vigdís
marði það
íFisk-
vinnslu-
skólanum
Kosningabærir nemendur i
Fiskvinnsluskólanum höfðu
skoðanakönnun um fylgi forseta-
frambjóðenda. Atkvæði féllu
þ^nnig: Albert 6, Guðlaugur 4,
Pétur 1, RögnvaldurO, Vigdís 7.
-BS.
Háskólabolir — ný sending,
stœrðir 14 og 16
Sœngurgjafir í miklu úrvali.
Verzlunin
Opiðá
laugardögum
kl 9-12
Glœsibœ, Álfheimum 74.
Sími 33830.
BMW 320 árg. 1979
BMW 316 árg. 1978
BMW 2800 árg. 1969
BMW 528 árg. 1976
BMW 525 Autom. árg. 1977
BMW 520 árg. 1978
Renault 20 TL árg. 1978
Renault 16 TL árg. 1975
Renault 16 TL árg. 1973
Renault VAN árg. 1975
Renault 14 TL árg.1978
Renault 12 TL árg. 1978
Renault 12 TL árg. 1977
Renault 12 L árg. 1976
Renault 12 station árg. 1975
Renault 12 station árg. 1971
Renault12TL árg. 1971
Renault 6 TL árg. 1972
Renault 5 GTL árg. 1978
Renault 4 VAN F6 árg. 1980
Renault 4 VAN F6 árg.1979
Renault 4 VAN F6 árg. 1978
Renault 4 VAN F4 árg. 1979
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
Aðalfundur
Verzlunarmannafélags Reykjavfkur
verður haldinn að Hótel Sögu, Súlnasal, fimmtu-
daginn 27. marz 1980 kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
FX-502-
Prógrameruð vasatö/va með
256 skrefum og 22 minnum.
STÁLTÆKISF
BANKASTRÆT/ 5 - S/M/27510