Dagblaðið - 20.03.1980, Síða 16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980.
K
Tim Dwyer var tolleraður eftir sigurinn
og aldrei þessu vant tókst að ná mynd af
honum brosandi.
DB-mynd Bjarnleifur.
„Heyrðu, Tim, er ekki eitthvað skrifað á bikarinn?” Rikharður horfir dolfallinn á
grípinn, en Dwyer er vafalaust með hugann í Hollywood. DB-mynd Bjarnleifur.
Kvennalið Stúdentanna bætti upp vonbrigði karialiðsins með þvi að sigra IR i úrslitum bikarkeppni mfl. kvenna 45—35.
Dömurnar úr ÍS eru hér kampakátar á myndinni og á bak við þær stendur þjálfarí þeirra, Trent Smock.
DB-mynd Bjarnleifur.
fflSS
Helgina 29—30. marz gengst knattspyrnudeild
Fram fyrir firmakeppni í knattspyrnu í íþrótta-
húsi Alftamýrarskóla. Úrslit fara síðan fram mið-
vikudaginn 2. apríl. Þátttaka tilkynnist Ágústi
Guðmundssyni í síma 15330 milli kl. 9 og 6 til
26. marz. Leikjaniðurröðun afhendist fimmtu-
daginn 27. marz hjá Ágústi í verzluninni Þing-
holt Grundarstíg 2 Reykjavík. Mótsstjóri
Sigurður Friðriksson.
KNA TTSPYRNUDEILD FRAM
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Þrefalt hjá Valsmönnum!
—eftir sigur á Stúdentum, 92-82, í slökum bikarúrslitaleik í eærkvöld
svip. DB-mynd Bjarnleifur.
Valsmenn tryggðu sér þriðja titilinn í
körfuknattleiknum í vetur og þar með
„fullt hús” er þeir sigruðu Stúdenta
með 92 stigum gegn 82 i tilþrifalitlum
bikarúrslitaleik í Laugardalshöllinni í
gærkvöld. Bæði liðin — einkum þó
Valsmenn — voru mistæk og virtust
leikmenn vera taugaveiklaðir með af-
brigðum. Aldrei náðist nein stemmning
upp á meðal hinna 700 áhorfenda
vegna hinnar slöku frammistöðu en
hins vegar er fyllsta ástæða að óska
Valsmönnum innilega til hamingju með
glæsilegan árangur í vetur. Þeir hafa
tvimælalaust verið með bezta liðið og
uppskorið i fullu samræmi við það. I
hálfleik í gær varstaðan 44—44.
„Við stefndum reyndar bara á sigur i
íslandsmótinu í haust en hinir sigrarnir
koinu svona meira í framhjáhlaupi,”
sagði Torfi Magnússon er hann hand-
lék verðlaunagripinn eftir leikinn.
Margir höfðu spáð því að nú myndu
Valsmenn bíða lægri hlut og lengi vel
framan af virtist sá möguleiki ekki ólik-
legri en hvað annað. ÍS hafði nefnilega
undirtökin megnið af fyrri hálfleiknum
og framan af var leikur Valsmanna
hreint út sagt í molum. Ekkert jafn-
aðist þó á við vítahittnina sem var
vægast sagt hörinuleg og var alveg
sama hver átti i hlut. Meira að segja
Dwyer gerði sig sekan um slaka hittni i
vitunum.
Stúdentarnir léku heldur ekki vel en
betur en Valsmenn framan af og nutu
góðs af. Eftir 6 minútna leik leiddi ÍS
15—12 og eftir að fyrri hálfleikur var
rúmlega hálfnaður var munurinn^
kominn i 7 stig, 24—17. Ætluðu Vals-
menn að tapa gegn ÍS eftir að hafa
unnið þá í öllum 5 viðureignum vetrar-
ins? Flest benti til að svo yrði, en góður
sprettur Vals undir lok fyrri hálfleiks-
ins bjargaði miklu. Þegar nákvæinlega
ein inín. var til hálfleiks leiddi ÍS, 44—
38. Á þessari ininútu tókst Valsmönn-
um að jafna metin og minnstu tnunaði
reyndar að þeir næðu forystu.
Valsmenn gátu þvi vel við unað að
halda jöfnu jafnilla og þeir léku. Það
var sama hvar gripið var niður — flestir
leikmenn virtust vera fjarri sínu bezta.
Það var helzt að Kristján og Þórir
sýndu eðlilega getu en hittni Þóris var
þó engan veginn eins góð og gegn KR á
mánudag enda slikt fátítt.Stúdentarnir
léku heldur ekki vel og innáskiptingar
íþróttsr
Sigurður
Sverrisson
komu nokkuð spánskt fyrir sjónir á
köfum. T.d. lék Jón Héðinsson óeðli-
lega lítið með í leiknum. Smock virtist í
fýlu og hitti ekki vel þrátt fyrir 31 stig i
leiknum. Gunnar Thors byrjaði mjög
v^l en dalaði er á leið og varð að fara af
velli með 5 villur strax i upphafi síðari
hálfleiks.
Valsmenn komust loks yfir, 46—44, í
byrjun síðari hálfleiks og komust síðan
i 54—48. Bjuggust menn þá við þvi að
þar með væru Stúdenlar af baki dottn-
ir. En ekki aldeilis. Þeir komust i 56—
54 eftir
voru liðin hnifjöfn eftir 7 min. leik,
62—62 og allt virtist geta gerzt. En þá
hrundu Stúdentar.
Á 2 og hálfri mínútu — tæpri þó —
skoruðu Valsmenn 10 stig gegn aðeins 1
frá ÍS og koinust í 72—63. Þar ineð var
hornsteinninn að sigrinum lagður. Það
næsta sem ÍS komst því að jafna var
70—74 er 7 mín.voru til leiksloka.
Siðan sigu Valsmenn fram úr og sigur-
inn var aldrei í hættu. Var meira að
segja svo öruggur _að varamenn og
stuðningsmenn voru farnir aðTállast i
faðma þegar enn voru rúmar tvær
minútur eftir.
Valsinenn fögnuðu injög i leikslok en
i raun var synd hversu lítil stemmning
myndaðist i kringum leikinn. Það var
helzt að teppið hans Sigga stóra gerði
einhverja lukku.
Stig Vals: Tim Dwyer 26, Kristján
Ágúslsson 2i — bezti maður vallarins,
Þórir Magnússon 20, Torfi Magnússon
II, Ríkharður Hrafnkelsson 8, Jón
Steingríinsson 4 og Guðbrandur Lárus-
son 2.
Stig ÍS: Trent Smock 31, Steinn
Sveinsson 14, Jón Héðinsson II,
Bjarni Gunnar Sveinsson 9, Gunnar
Thors 7, Gísli Gíslason 4, Ingi Stefáns-
son 4 og Albert Guðmundsson 2.
Dóinarar voru Sigurður Valur Hall-
dórsson og Jón Otti Ólafsson og hafa
þeir báðirdæmt miklu betur en í gær.
Þeim urðu á óvenju mörg inistök en
ekki bitnaði það sjáanlega ineira á öðru
liðinu.
- SSv.