Dagblaðið - 20.03.1980, Síða 27
Leikfélag Akureyrar hefur sýnt heilmikið af leikritum. Hér eru þau Sigurveig Jónsdóttir og Þráinn Karisson í hlutverkum
sfnum f Sjálfstæðu fólki, sem sýnt var á sfðasta ári á Akureyri. Sigurveig fer með hlutverk frúarinnar f leikriti kvöldsins.
Bæði léku þau Sigurveig og Þráinn f sjónvarpsleikritinu Drottinn blessi heimilið.
Mynd: Ljósmyndastofa Páls, Akureyri.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980.
LEKRIT VIKUNNAR - útvarp kl. 21,15:
VANDAMÁUD KEMUR
UPP Á VERSTA TÍMA
—leikrit vikuniiar flutt af leikurum í Leikfélagi Akureyrar
og tekið upp á Akureyri
í kvöld kl. 21.15 verður flutt í út-
varpi leikritið Ofbeldisverk eftir
Bretann Graham Blackett. Hann er
einn af mörgum höfundum, sem
einkum skrifa fyrir brezka útvarpið.
íslenzka útvarpið hefur ekki áður
flutt leikrit eftir hann.
Söguþráður Ofbeldisverksins
segir frá skólastjóranum Simon
Metcalfe. Hann starfar við skóla i
enskum smábæ. Kona Simons er ekki
fullánægð með það. Hún vill að hann
taki við stærri og betri skóla en til
—
þess að það geti orðið verður að fara
krókaleið.
Frúin gefst ekki upp. Hún kriar út
heimboð hjá erkidjáknanum, for-
manni skólanefndar. Skömmu áður
en þau hjón leggja af stað i boðið
hringir simi þeirra. Og þá kemur upp
vandamálið, ein stúlkan i skóla
Simons hefur ekki komið heim á
tilsettum tíma. Hvað úr verður fáum
við síðan að heyra í leikritinu í kvöld.
Þýðinguna gerði Margrét Jóns-
dóttir. Leikstjóri er Gísli Halldórs-
son. Það vekur athygli aðleikrit þetta
er flutt af leikurum i Leikfélagi
Akureyrar og tekið upp á Akureyri.
Með hlutverkin fara Heimir
Ingimarsson, Sigurveig Jónsdóttir,
Aðalsteinn Bergdal, Þórey
Aðalsteinsdóttir, Marinó Þorsteins-
son, Jóhann Ögmundsson, Theódór
Júlíusson, Björg Baldvinsdóttir,
Kristjana Jónsdóttir og Stefán Eiríks-
son. Tæknimaður var Sigurður
ingólfsson.
-F.LA.
I stað myndaf lokksins Fólkið við lónið:
Leiðangur Charles Darwins
Nú er myndaflokkurinn um Fóikið
við lónið á enda. í hans stað kemur
brezkur myndaflokkur sem nefnist
Leiðangur Darwins. Við höfutn áður
skýrt frá þáttum þessutn, en þeir áttu að
vera á undan þáttunum um fólkið við
lónið.
Fyrsti þátturinn hefst þegar Darwin
er enn ungur að árum. Síðan fylgjumst
við með honum í 'fimm ára siglingu um
Suður-Amerikuhöf og til Ástralíu. Sú
ferð var farin fyrir 150árum.
Vísindamaðurinn Charles Darwin er
þekktastur fyrir kenningar sínar um
þróun tegundanna, þar á meðal að
maðurinn sé kominn af sama stofni og
apar. Olli þessi kenning miklu fjaðra-
foki á nítjándu öld. Kirkjunnar menn
fylltust ótta og ugg um að sköpunar-
sögunni væri þar ineð hafnað.
Myndaflokkurinn er í sjö þáttuin.
Þeir sem séð hafa þætti þessa segja þá
bæði skemmtilega og fróðlega.
-ELA.
STYRKLAUS
„ALVÖRU”LEIKRIT
Hápunktur sjónvarpskvöldsins i
gærkvöldi var tviinælalaust Vaka,
þar setn starfsemi Alþýðuleikhússins
var rakin og talað var við Ólöfu K.
Harðardóttur söngkonu. Jón Július-
• son, framkvæmdastjóri Alþýðuleik-
hússins, greindi frá starfsetni leik-
hússins frá upphafi og slefnu þess að
þjóna landsbyggðinni. Kotn frant hjá
Jóni að rekstrarfé leikhússins væri af
skornum skamtnti og opinberir
styrkir hrykkju skammt til rekstrar.
Það er undarlegt að stjórnvöld sjái
ekki sóma sinn i þvi að styrkja lcik-
hús, sem hefur á stefnuskrá sinni að
sýna „alvöru" leikrit úii á landi en
ekki létta „farsa" eins og hin tvö
Reykjavikurleikhúsin gera. Spjall
Jóns Ásgeirssonar viðólöfu Harðar-
dóttur var ákaflega létt og skcmmti-
legt og kom þar fram að Ólöf er í
hópi efnilegri söngkvenna á Norður-
löndum.
Á eftir Vöku kom svo fræðslu-
tnynd um tjáskipti barna og dagskrá-
in klykkti út með spönskum frain-
haldsþætti, sem ekki var við hæfi
barna. Undarlegt að tilkynna þurfi
um slíkl kl. tiu að kvöldi þegar öll
börn eiga að vera löngu sofnuð.
-jsh.
£ BÆJARINS
Friðriksson ■
og Ingólfur Dt4 I U
Hjörteifsson
■
Veiðiferðin
Sýningarstaður Austurbœjarbíó
Leikstjóm, handrít og klipping: Andrés Indríðason.
Kvikmyndataka: Gísli Gestsson.
Tónlist Magnús Kjartansson.
AÖalhlutverk: Sigurður Karlsson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Guömundur Klemenzson,
Krístin Björgvinsdóttir og Yrsa Björt Löve.
Þessa dagana er verið að sýna hverja af annarri þær kvikmyndir
sem teknar voru á síðastliðnu ..kvikmyndasumri". Eru þetta því
sannarlega óvenjulegir timar i íslenskri kvikmyndahúsamenningu.
Veiðiferðin segir frá þvi þegar hópur fólks heldur til Þingvalla einn
sólrikan sumardag til að eyða þar fridegi. Fólk þetta er af misjöfnu
sauðahúsi eins og gengur og gerist og hafa ekki allir komið til Þing-
valla i þeim tilgangi að hafa það gott. Miðpunkturinn i myndinni er
fjölskylda og eru það börnin þar sem leika aðalhlutverkin. og verður
ekki annaðsagt en þau skili þvi með miklum sóma. Myndin er hugsuð
sem fjölskyldumynd og er ekki að efa að margir eiga eftir að skemmta
sér vel i Austurbæjarbíói þrátt fyrir vissa galla i meðferð söguþráðar.
Meðseki félaginn
(The Silent Partner)
Sýningarvtaöur Tónabéó.
Leikstjórí: Daryl Duke.
Byggð á sögu eftk Anderm Bodeisen (Taenk pá et talL
Aöaihlutvark: Elliott Gould, Christopher Plummer og Susannah York.
Gerö árið 1978, kanadisk.
Jólin eru að fara í hönd í Kanada. Í risastórri verslunarmiðstöð er
jólasveinn að lífga upp á umhverfíð og safna peningum fyrir bág-
stadda. Hann gerir skyndilega hlé á þessari iðju sinni, röltir inn i
næsta banka með byssu í vasanum og rænir hann. „Jólasveinninn"
kemst á brott með fenginn, en, hann er nú samt svolítið óheppinn.
Þannig er nefnilega mál með vexti að gjaldkeri bankans er þá nýbúinn
að tæma kassann á ólikt kyrrlátari hátt. Ut frá þessari frumlegu byrj-
un á The Silent Partner er spunnin ansi spennandi frásögn, engu siðri
í óvæntum uppákomum og skemmtilegum augnablikum. Elliott
Gould fer á kostum eins og hans er vani. Góður „þriller", vel þess
virði að sjá.
Butch og Sundance, Yngri árin
Sýningarstaður: Nýja Bíó.
Leikstjórí: Richard Loster.
Handrit: Alian Bums, byggt á hugmynd William Goldman.
Aðalhlutverk: Wiiliam Katt og Tom Berenger.
Flestir muna liklega eftir þeim Robert Redford og Paul Newman í
mynd Walter Hill, Butch Cassidy and the Sundance Kid sem lauk
með dauða útlaganna tveggja. Það útilokaði framhaldsmynd að þeir
voru fylltir af blýi einhversstaðar í S-Ameriku. En Kaninn gefst ekki
svo auðveldlega upp þegar peningalyktin er á sveimi og þvi sneru þeir
einfaldlega hlutunum við og getum viðséðafraksturinn i Nýja Biói,
Yngri árin. Tom Berengerog William Katt gefa nokkuðsannfærandi
mynd af hinum kostulegu útlögum á sínum yngri árum i leit að frægð
og frama. 1 handritinu er að finna heldur mikið af endurtekningum
frá fyrirmyndinni og er það langt frá þvi að standast samanburð við
handrit William Goldman. En hugmyndaflugiðog fagleg vinnuhrögð
skortir ekki hjá leikstjóranum. Richard Lester og hann gerir úr þessu
þokkalega afþreyingu meðdrjúgum skammti af sæmilegasta húmor.
Örvæntingin (Despair)
Sýningarstaður Laugarásbíó.
Leikstjórí: Rainer Wemer Fassbinder.
Handrit: Tom Stoppard, byggt á sögu eftir Vladimir Nabokov.
Aöalhlutverk: Dirk Bogardo, Andrea Ferreol og Klaus Löwitch.
Nú er komin til landsins nýleg mynd eftir Fassbinder hinn þýska
og er hún fyrsta enskumælandi mynd hans. Örvæntingin (Despairl
segir frá rússneskum innflytjanda í Þýskalandi á árunum upp úr 1930
sem gerst hefur súkkulaðiframleiðandi og vegnað vel. En hið pólitíska
og efnahagslega umrót sem nú á sér stað í heiminum kippir stoðunum
undan hans fyrri tilveru. Hann hefur hvergi fast undir fótum, sættir
sig ekki við tilbreytingarlausa tilveru sína. Hann tekur því þá á-
kvörðun að skipta um nafn og persónuleika og fremja með því hinn
fullkomna glæp. Inn i þessa persónuleikarýni fellir Fassbinder
lýsingu á þjóðfélagsástandinu í Þýskalandi og tekst sú samflétta með
ágætum. Þrátt fyrir ýmis óljós atriði er þessi mynd ágætt innlegg i
heldur dapurlega kvikmyndamenningu hér.
Lesendur eru hvattir til að senda kvik-
myndadálki DB líríu, hafi þeir áhuga á eip-
hverri vitneskju um kvikmyndir og kvik-
myndaiðnaðinn. Heimilisfangið er: Kvik-
myndir, Dagblaðið, Síðumúla 12, Rvk.