Dagblaðið - 22.03.1980, Page 1
6. ÁRG. — I.AUGARDAGUR 22. MARZ 1980 — 70. TBL. '
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG ^FGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11,—AÐALSÍMI 27022.
Skríf DB um ástand í fjölbýlishúsi íBreiðholti:
Málið tekið upp í fram-
haldi af skrifum DB
—segir Ammundur S. Backman, formaður Bamaverndarnefndar
,,Ef fréttin er rétt og ástandið er
eins slaemt og lýst er þá er Ijóst að
þarna er uin að ræða alvarlegt brot,”
sagði Arnmundur S. Backman lög-
fræðingur og formaður Barna-
verndarnefndar uin frásögn Dag-
blaðsins í gær af ástandi i fjölbýlis-
húsi einu i Breiðholti. Þar röktu
ibúar i nokkrum íbúðum sambúðar-
vandamál sem skapazt hafa undan-
farin ár vegna óreglu hjóna i einni
ibúðinni. íbúarnir gera kröfu um
vernd barna sinna og barna hjón-
anna. Einnig leikur þeim forvitni á að
vita um réttarstöðu sina gagnvart
fólkinu sem veldur þeim ónæði, svo
ekki sé kveðið fastar að orði.
,,Mér finnst bara fagnaðarefni að
taka svona mál upp. Þetta dæmi er
að minu áliti óvenju slæint en það
verður auðvitað tekið strax upp i
framhaldi af þessum skrifum,” sagði
ArnmundurS. Backman.
Arnmundur benti á i frainhaldi af
þessu að ef málið væri skoðað i
víðara samhengi sæist að miklu meiri
mannafla og fjármagn þyrfti til að
barnaverndarsviðið væri rækt nægi-
lega vcl.
„Átakanlegast er að ekki skuli vera
til staðar neyðarvakt á vegum Barna-
verndarnefndar um helgar, þegar
mest er þörf á sliku. Nefndin hefur
larið fram á það en ekki fengið
ennþá. Oft er leitað til formanns
nefndarinnar vegna rnála sem upp
koma. Full þörf er á neyðarþjónusl-
unni, það hefur margoft sýnt sig,"
sagði AmmundurS. Backntan.
- ARH
Kjalarnesið:
„Loforðin sí-
fellt svikin”
,,Það er búið að lofa okkur sjálf-
virkum siina svo oft að' við sjáum
enga ástæðu til þess að trúa þvi að
loforðið um síma á árinu standi
frekar en fyrri loforð,” sagði Páll
Ólafsson i Brautarholti á Kjalarnesi.
Páll var einn af þeim Kjalnesingum
’sein sóttu heim simstöðina á Varmá
er hún var opnuð. Meðferðis höfðu
þeir skjal þar sem símnotenduin var
óskað til hainingju með sjálfvirkan
síma én jafnframt voru yfirvöld hjá
Pósti og sima minnt á siendurtekin og
jafnoft svikin loforð um úrbætur
handa Kjalnesingum.
„Ástandiðer þannig að þau mörgu
fyrirtæki sein rekin eru hér á Kjalar-
nesi ná oft ekki simasambandi lang-
timum saman. Sainbandið við
Reykjavik er i gegnum skiptiborð og
er við höfuin hringt einu sinni náum
við oft ekki sambandi aftur því ekki
hefur verið athugað að taka linuna úr
sambandi. Við þurfum oft að hringja
til Reykjavíkur og jafnvel til útlanda
en með þessu er eins og reynl sé að
gcra okkur þaðókleift.
Algcngt er að nokkurra mínútna
saintal slitni og gildir þá einu hvort
verið er að tala við Reykjavík eða
næsla bæ. Þú heyrir sjálf skellina hér
á linunni þegar ýmsir eru að taka upp
sima til að hringja sjálfir og skella á
aftur.
Okkur var lofað sima i sumar sent
leið og sumum var lofað sima i jóla-
gjöf. Við biðum hins vegar cnn og
ekkert gengur en ný lol’orð cru
gefin,” sagði Páli.
í viðtali sem DB átti við Kristján
Helgason umdæmisstjóra hjá Pósti
og siina í blaðinu á fimmtudag kom
fram að Kristján taidi orðum aukið
að ástandið í símamálum á Kjalarnesi
og i Kjós væri eins slæmt og af væri
látið. Eftir þvi sem Páll segir virðist
það þó heldur verra ef eitthvað er.
-I)S.
584 milljón kr.
hagnaður Hafskips
— eftir að eignir voru af skrifaðar
um 283 milljónir
A aðalfundi Hafskips hf. sem
haldinn var i gær var lýst góðri af-
komu skipafélagsins á liðnu ári.
Hagnaður félagsins nam rúmuin 584
milljónum kr. og höfðu þá verið
færðar á rekstrarreikning 283
milljónir i afskriftir og 37.5 milljónir
i opinber gjöld.
Rekstrartekjur félagsins námu
rútnum 4.6 milljörðum króna eða
tæplega 13 milljónum króna á dag
hvern dag ársins. Rekstrargjöld með
283 milljónum kr. í afskriftuin námu
4 milljörðum og 53 milljónum.
Á efnahagsreikningi félagsins eru
skip félagsins, vélar, áhöld, tæki og
fasteignir skráð til eigna á 2 milljarða
og 260 milljónir. Skammtimaskuldir
eru 1174 milljónir og langtímaskuldir
2724 milljónir. Eigið fé fyrirtækisins
er 819 milljónjr króna samkvæmt
efnahagsreikningum.
Þess er getið að reikningsskilaað-
ferð sé nú öðruvísi en áður, þar sem
almennar verðbreytingar eru reikn-
aðar út og færðar i reikninginn.
Með sömu aðferð og áður hefði
hagnaður nú numið 123 milljónum.
Afskriftir eru reiknaðar 8°/o af
verði skipa og búnaðar, 12% af
vélum og tækjum og 4% af vöru-
geyinsluhúsi.
-A.Sl.
Rúta í
reynslu-
ferð
fauk
útaf
veginum
— Tveir menn í bflnum
meiddust báöir
og bfllinn er
talinn ónýtur
Splunkuný 30 manna fólkstlutn-
ingabifreið sein verið var að prufu-
keyra eftir yfirbyggingu og aðeins
búið að aka 2—3 knt, fauk af Suður-
landsvegi við Ingólfsfjall i gær og er
lalin ónýt eftir. Tvcir eigendur bilsins
voru í honum. Er annar nú til rann-
sóknar i sjúkrahúsi Selfoss. Hinn
skarsl á höfði og var gert að sárum
hans í sjúkrahúsinu.
Billinn er eign Hópferða Guð-
numdar Tyrfingssonar sf. á Seifossi.
Eigendurnir tveir hafa unnið að yFtr-
byggingu bilsins i vetur en á sumrin
annast þcir hópferðir. Á prufukeyrsl-
unni höfðu þeir ekið frá Selfossi að
Kagaðarhóli, snúið við og voru við
heimrciðina að Þórustöðum er vind-
hviða scm kom af Ingólfsfjalli lyfti
bilnum, velti honum og fór hann
tvær veltur út af veginum. í fyrri velt-
unni kastaðist bilst jórinn út um
framrúðuna en Guðmundur Tyrf-
ingsson, sem var farþegi, var í bílnum
unz hann staðnæmdist. Meiðsli Guð-
mundar eru enn i rannsókn en bil-
stjórinn skarst á höfði.
Eftir veltuna voru 2 rúður heilar i
nýrri yfirbyggingu bílsins en hún ann-
ars meira og minna brotin. Eftir er að
athuga ástand undirvagns.
Hvasst var á Selfossi i gær, komst i
60 hnúta á jafnsléttu, en miklu hvass-
'ara var i vindhviðum undir Ingólfs-
fjalli þar sem slysið varð.
- A.SI.
Vorið er að koma og þótt enn sé hólfkalt er gott að njóta hlýju sólar.
DB-mynd: Hörður.