Dagblaðið - 22.03.1980, Page 5
Breytt skipan lögreglumála gæti sparað 80—100 milljónir árlega:
LÖGREGLA STÓR-REYKJAVÍK-
UR UNDIR EINA YFIRSTJÓRN
—tillögurnar liggja á borði ráðherra og hafa verið kynntar hagsmunafélögum lögreglumanna
,,Ég hef varla skoðað þessi inál
ennþá, en álitsgerð nefndar eða starfs-
hóps lá hér á borðuin er ég tók við
embætti dómsmálaráðherra 8. febrúar
sl„” sagði Friðjón Þórðarson dóms-
málaráðherra um breytta skipan lög-
gæzlumála á Stór-Reykjavikur-
svæðinu. Áætlun þar um gerir ráð fyrir
einni yfirstjórn allrar löggæzlu i
Reykjavik, Hafnarfirði, Kópavogi,
Seltjarnarnesi og i Mosfellssveit í stað
þriggja yfirstjórna eins og nú er.
I starfshópi dómsmálaráðuneytisins
sem kannaði þessi mál voru Eirikur
Tótnasson, fyrrutn aðstoðarmaður ráð-
herra, Hjalti Zóphóniasson deildar-
stjóri og Ólafur Walter Stefánsson,
skrifstofustjóri ráðuneytisins.
„Við skiluðum okkar áliti um þetta í
byrjun september,” sagði Eiríkur
Tómasson, ,,og mæltum eindregið með
þvi aðslik breyting yrði framkvæmd. í
áliti okkar kemur fram að við teljuin að
rikið eigi ekki að sitja uppi ineð alla
ókostina við margskiptingu stjórnar
þessara mála, en þessir ókostir eru
leifar þess að sveitarfélögin sáu áður
um löggæzluna hvert i sínu héraði.
Allir lögreglumenn eru starfsmenn
rikisins og þvi eðlilegt að reynt sé að
hagræða málutn svo að sein bezt nýting
liðsaflans náist og kostnaður við gæzl-
una jafnframt lækkaður með hagræð-
ingu mála,” sagði Eiríkur en kvaðst
hafa hætt afskiptum af þessum málum
sem öðrum hjá ráðuneytinu þá er
Ólafur Jóhannesson lét af einbætti
dórnsmálaráðherra.
80-100 milljón kr.
sparnaður á ári
,,Við teljum umtalsverðan sparnað
fólginn í þeirri skipulagsbreytingu sem
lögð er til i áliti starfshópsins,” sagði
Hjalti Zóphóníasson deildarstjóri. ,,í
álitinu eru ekki settar fram tölur þar
um, en ég tel að um sé að ræða 80—100
inilljón kr. sparnað á ári. Felst hann í
hagkvæmari nýtingu liðsafla og mjög
auknum sveigjanleik sem felst i þvi
skipulagi sem lagt er til.
Hjalti kvað búið að kynna málin
l'yrir félögum lögreglumanna á
svæðunum' sem i hlut eiga, þ.e. i
Hafnarfirði, Kópavogi og í Reykjavík.
Næst hefði átt að kynna sveitarfélög-
unum málið, en nefndarinenn hefðu
talið að slikt væri i verkahring yfir-
stjórnar ráðuneytisins.
Hjalti kvað lögreglumenn ekki hafa
séð „neitt slæmt” i nýja skipulaginu.
Lögreglumönnum sem starfað hafa i 10
ár eða meira hefði verið tjáð, að þeir
yrðu ekki flultir úr stað næstu árin, en
þó væri ekki unnt að tryggja þeim að
slikt yrði aldrei gert.
Helztu
breytingarnar
Helztu breytingar hins nýja kerfis
eru að frá lögreglustöð i Hafnarfirði
yrði Hafnarfirði og Garðabæ þjónað.
Eru uppi áform um nýja lögreglustöð
fyrir svæðið sem liggur nær Garðabæ
en núverandi stöð.
Breiðholti yrði þjónað fyrst um sinn
frá stöð í Kópavogi, en siðar keinur ný
fullkomin stöð neðst i Breiðholti, sem
þjóna mun Breiðholti og Kópavogi.
Reykjavik þjónar Seltjarnarnesi og
Mosfellssveit.
Þörf nýrrar stöðvar i Breiðholti telst
mjög brýn, en meðan hún er ekki risin
yrði fjölgað í liðinu í Kópavogi.
Allt lögreglulið á öllu svæðinu lyti
einni yfirstjórn sem réði yfir samstilltu
talstöðvarkerfi.
Hjalti sagði að nokkrar lagábreyt-
ingar væru nauðsynlegar til að nýja
skipulaginu yrði koinið á en þær væru
ekki ýkja miklar. -A.SI.
lón Baldvinsson sveitarstjóri, Mosfellssveit:
Þjónustan nær í Ar
bæ en í Hafnarfirði
„Það liggur i augum uppi að það
hlýtur að vera skynsamlegra að
Mosfellshreppur fái sina löggæzluþjón-
ustu frá stöð í Árbæ heldur en frá stöð i
Hafnarfirði,” sagði Jón Baldvinsson
sveitarstjóri hinnar ört vaxandi
byggðar i Mosfellssveit sem nú telur uin
2700 ibúa.
Hann kvaðst hins vegar aðeins hafa
óljósar hugmyndir um hugsanlegar
breytingar i þessum efnum og álit
starfshóps ráðuneytisins hefði ekki
verið kynnt Mosfellssveitarmönnum.
„Þess ber að geta að Hafnarfjarðar-
lögreglan hefur hugsað vel um okkur á
undanförnum árum. Þeir eru hér á
morgnana, miðjan daginn, kvöldin og
oft um nætur lika. Ég er ekki viss uin
að lögregluþjónar yrðu hér oftar á ferð
þó þjónustan væri frá stöð í Árbæ.
Hins vegar yrði það ibúuin hér til
hægðarauka að lögregluskýrslugerð
færi fram í Árbæ frekar en sækja þurfi
til Hafnarfjarðar. Auðvitað yrði svo
lögregla frá Árbæ fljótari á vettvangef
kallað væri. En ég ilreka að lögreglu-
mönnum hér á l'erð mundi varla fjölga
frá því sem nú er, nema liðsafli lögregl-
unnar á Stór-Reykjavikursvæðinu yrði
aukinn,” sagði .lón. „Og loks er það
spurningin um það hvort sýslutnanns-
embættið i Hafnarfirði yrði ekki
cndaniega að afgreiða öll mál vegna
skipanar lögsagnaumdæma.”
-A.St.
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri, Seltjarnarnesi:
r
LEIÐIR TIL BETRIÞJ0NUSTU
ATLI
STEINARSSON
Það liggja miklar breytingar á skipan löggæzlumála í luftinu. Þær heyra þó að
'nokkru aðeins framtiðinni til — m.a. þessari litlu stúlku með Ingrcglumannshúfuna.
DB-mynd R.Th.
0G ER JAFNFRAMT ÓDÝRARA
„Það hlýtur að stefna i þá átt að til
meira samstarfs komi á löggæzlusvið-
inu en nú er og má raunar benda á starf
Rannsóknarlögreglu rikisins sem for-
dæmi,” sagði Sigurgeir Sigurðsson,
bæjarstjóri Seltjarnarneskaupstaðar.
„Þetta er þjónusta við borgarana sem
ríkið greiðir og rikið hlýtur þvi að
skipuleggja þessa þjónustu eins hag-
kvæinlega og frekast er kostur.”
Sigurgeir kvaðsl ekki hafa séð álit
þeirra nefndar sem skoðaði löggæzlu-
málin á Stór-Reykjavíkursvæðinu ofan
i kjölinn. Taldi hann að búið væri að
kynna þetta að einhverju leyti i
félögum lögreglumanna i umdæmun-
um sem hlut eiga að máli en sveitar-
stjórnirnar hefðu ekki séð nefndar-
álitið. Gæti hann þvi ekki fellt dóin yfir
þvi.
„En þjónusla ætti að ininum dómi
að aukast i einsfökum hverfuin við það
að yfirstjórnin verður ein og starfið
siðan unnið út frá þeim stöðvum sem
fyrir eru. Við á Seltjarnarnesi búum við
sæmilega þjópustu nú þó lögreglu-
mennirnir séu aðeins tveir. En ef aukið
samstarf kæmist á yrðu fieiri menn hér
á stöðinni þvi hún er sæmilega tækjutn
búin þó hún mætti vera stærri. Þessi
stöð gæti þvi þjónað einhverjum hverf-
um i vesturbænum auk Seltjarnarness.
Ég tel það rétta stefnú að auka sam-
starfið og koma málunum undir eina
stjórn. Enginn gelur veriðá móti sliku
ef það leiðir til betri þjónustu og gæti
jafnframt orðið ódýrara fyrir rikið,”
sagði Sigurgeir.
-Á.St.
Ásgeir Pétursson bæjarfógeti, Kópavogi:
ERF1TT AÐ HUGSA SÉR STÆRSTA KAUP-
STAÐINN ÁN SJÁLFSTÆÐRAR LÖGGÆZLU
„Löggæzla er eitt helzta þjónustu-
atriði við íbúa hvers byggðarlags. Yfir-
völdum ber að tryggja öryggi þegnanna
og sjá fyrir nauðsynlegu eftirliti. Allt
fram til 1971 kostuðu kaupstaðir slikt
öryggiseftirlit sjálfir. Þó þeim kostnaði
hafi verið létt af kaupstöðunum og
sveitarfélögunum hljóta þegnarnir og
bæjarstjórnir, fulltrúar fólksins, að
hafa tillögurétt eða ákvörðunarrétt um
skipan þessara mála,” sagði Ásgeir
Pétursson bæjarfógeti i Kópavogi, yfir-
maður lögreglunnar þar, sem talað
hefur verið um að hyrfi undir sameigin-
lega yfirstjórn á Reykjavikursvæðinu.
Ásgeir kvaðst lítillega hafa kynnt sér
hugmyndina um breytt skipulag og
rætt hugmyndirnar við starfsmenn í
ráðuneytinu. Taldi hann málið frekar
vera til ihugunar en að koinið væri til
ákvörðunartöku.
„Ég tel að landfræðileg rök séu fyrir
því að Seltjamarnes og Mosfellssveit
verði lögð undir lögregluna í Reykja-
vik en varðandi Kópavog gegndi öðru
ináli. Hann er stærsti kaupstaður
landsins og erfitl er að hugsa sér sjálf-
stæðan kaupstað af slikri stærð sem
ekki hefði sjálfstæða löggæzlu. Að
sjalfsögðu þyrfti að huga að hugmynd-
um um sparnað, en vel yrði að kanna
hvort þeim sparnaði, sem inenn hefðu i
huga, yrði í reynd komið við.”
-A.St.
The
Shadow of
Chikara