Dagblaðið - 23.06.1980, Side 1
i
I
6. ÁRG. — MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1980 — 139. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVKRHOl.TI 1 l.-AÐAl SÍMI 27022.
í
Kúvending í landbúnaðarstefnu
Bráðabirgðalög um
200% fóðurbætisskatt
— tílað draga úr framleiðslu mjólkurafurða
Bráðabirgðalög um mikla stefnubreytingu í landbúnaðarmálum eru í uppsiglingu Ríkisstjórnin ætlar með bráðabirgðalögunum að afla sér heimildar til að leggja á allt að 200 prósent fóðurbætisskatt á innflutta kjarnfóðrið. Lögunum verður stefnt gegn of- framleiðslu mjólkurafurða. Verðið á innflutta kjarnfóðrinu þrefaldast ef farið verður í 200% skatt, en-skattur- inn verður kannski eitthvað minni i fyrstu. Afleiðingin ætti að verða mikill samdráttur i mjólkurfram- leiðslu. Stjórnvöld eru efins um að fyrir- hugað kvótakerfi verði jafnnýtilegt og ætlað var. 1 bráðabirgðalögunum verður sennilega reynt að þurrka út nokkra „hnökra” á kvótakerfinu, en ekki verður hætt við það. Heimildarmenn DB töldu i gær að vænta mætti bráðabirgðalaganna allra næstu daga. DB náði tali af Pálma Jónssyni landbúnaðarráðherra i morgun. Hann vildi ekkert segja um málið. -HH.
I
i
í
i
Hér má sjá er tveimur hátsverjum er bjargað i gúmbát Itigreglumanna. Annar
mannanna hefur nád taki á gúmbátnum er róið er að öðrum. Nœst sést Seltirningur-
inn sem tvivegis synti út á Fossvoginn og veitti lögreglunni ómetanlega aðstoð við
björgunarstörfin. Á innfelldu myndinni eru lögreglumenn að hjálpa einum piltanna
upp bryggjuna eftir hjörgunina.
DB-myndir: Sv. Þorm.
18 ára piltur drukkn-
aði í Nauthólsvík
fjórir komust lífs
af er skektu
hvolfdi með fimm
mönnum í fyrrinótt
Átján ára gamall maður drukknaði i
Fossvogi skammt undan þeim hinum
fræga heita læk sem fellur í Nauthóls-
vik. Slysið varð aðfaranótt sunnudags
eftir að fimm piltar höfðu tekið bát á
voginum traustataki og róið á voginum
unz bát þeirra hvolfdi og þeir fóru allir
í sjóinn. Fjórum var bjargað og voru
þeir allir aðframkomnir af þreytu og
mátti ekki tæpara standa að þarna yrði
meiri harmleikuten raun varð á.
Lögreglurmi var gert aðvart um hvað
var að gerast um klukkan 5 á sunnu-
dagsnóttina. Er hún kom á vettvang
hafði bát piltanna, sem þeir höfðu
tekið ófrjálsri hendi, hvolft. Eftir
mikið brask tókst lögreglunni með
hjálp viðstaddra að ná fjórum piltanna
úr sjónum, en hinn fimmti hafði þá ör-
magnazt og fannst lík hans nokkru
síðar skammt frá þeim stað er bátnum
hvolfdi.
Drykklöng stund leið frá þvi lögregl-
una bar að þar til tekizt hafði að bjarga
fjórum piltanna sem i sjóinn fóru.
Reyndist gúmbátur lögreglunnar illa
gangfær og var fenginn annar bátur til
björgunarinnar. Maður sem staddur
var við lækinn veitti lögreglunni aðstoð
við björgunarstörfin. Synti hann tvi-
vegis út á fjörðinn til aðstoðar við lög-
reglumennina i gúmbátnum. -A.St.
sjá einnig á bls. 14
Skrefatalning
kemur ekki á
þessuári
— sjá b/s. 7
við séum ekki
Sumir tala um
lögreglumanninn
— sjá Fó/k á b/s. 20
•
Skagamenn eiga
ennþá möguleika á
titlinum.
— sjá íþróttir, b/s. 15,
16, 17, 18 og 19.
Því ekki að reyna
sjá DB á neytenda-
markaði b/s. 4
Sanjay, sonur
Indiru Gandhi,
fórst í gær
i
Ástralíu
— sjá erl. fréttír
b/s. 8 og 9