Dagblaðið - 23.06.1980, Síða 2
2
t
Þingmannslaunin:
FJARSVIK VID
RÍKISSJÓD
Crundvyr skrifar:
Það ællar ekki af Alþingi
Islendinga að ganga. Auk þess sem
það hefur verið álitið leikhús um ára-
bil fremur en löggjafarsamkunda,
verður það nú uppvíst að áætluðum
fjársvikum við hinn sameiginlega
sjóð landsmanna allra, rikiskassann.
Þingmenn eru þeir, sem hæst hafa
fordæmt aðrar þjóðir fyrir að þær
séu gróðrarstía svika og pretta. Þeir
hafa iðulega bent á menn eins og
Glistrup hinn danska og varaö við
því, að slíkur málsstaður sem hans
fengi hljómgrunn hér á landi. En
„glæpur” Glistrups var þó einungis
sá, að hann vildi láta afnema alla
skatta!
Einnig hafa þingmenn hneykslazl
á hinu svokallaða Watergatemáli i
Bandaríkjunum, sem þó var ekkert
annað en kosninganjósnir og kom i
raun engum við nema Bandaríkja-
mönnum sjálfum. Veit ég ekki betur
;n slíkar kosninganjósnir séu og
stundaðar hér — og ekkert við það að
athuga.
Nú standa islenzkir alþingismenn
berstrípaðir og afhjúpaðir að mesta
svindli, sem um getur í sögu Alþingis.
Að slík geti gerzt i löggjafarsam-
kundu þjóðarinnar er ekki hægt að
rekja til neinnar annarrar staðreynd-
ar en þeirrar, að alþingismenn séu
upp til hópa kjánar, og það meira að
segja hættulegir kjánar.
Menn, sem hafa úthrópað
Glistrup-hættu og Watergate-
hneyksli, en standa svo að tilraun til
fjárdráttar, sem ekki á að ræða
opinberlega verða að vikja tafarlaust.
Það er þjóðarnauðsyn.
"
Enn einu sinni minna lesenda-
dálkar DB alla þá, er hyggjast
senda þœttinum Itnu, að láta fytgja
fullt nafn, heimilisfang, slmanúmer
<ef um það er að rœða) og nafn-
númer. Þetta er lltil fyrirhöfn fyrir
! bréfritara okkar' og til mikilla
1 þœginda fyrir DB.
\ Lesendur eru jafnframt minntir
á að bréf eiga að vera stutt og
skýr. Áskilinn er fullur réttur til að
stytta bréf og umorða til að spara
rúm og koma efni betur til skila.
Bréf œttu helzt ekki að vera lengri
en 200—300 orð.
Slmatlmi lesendadálka DB er
milli kl. 13 og 15 frá mánudögum
tilfbstudaga.
J
KOSMNGAH&ITÐ
stuöningsmanna
Guölaugs borvaldssonar
i LAUGARDALSHÖLL mánudag 23. júni kl. 21
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur á sviði frá kl. 20.30. Stjómandi Eyjólfur Melsted.
DAGSKRÁ:
Kl. 21.00 Hátfðin sett: Jón Sigurbjömsson.
Ávörp: Ásgeir Pétursson, bæjarfógeti.
Auður Auðuns, fv. alþingismaður.
Eiður Guðnason, alþingismaður.
Eysteinn Jónsson, fv. ráðherra.
Margrét Margeirsdóttir, félagsráðgjafi.
Ólafur H. Jónsson, handknattleiksmaður.
Séra Ólafur Skúlason, dómprófastur.
Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjómar.
Steinunn Sigurðardóttir, bankamaður.
Guðlaugur Þorvaldsson og Kristín Kristinsdóttir.
Einsöngur: Guðrún Tómasdóttir
Undirieikari: Ólafur Vignir Albertsson
Kvartett: Elfn Sigurvinsdóttir, Friðbjöm G. Jónsson,
Halldór Vilhelmsson og Ruth Magnúsdóttir.
Undirleikari: Ólafur Vignir Albertsson
Kariakór Reykjavíkur, stjómandi Páll P. Pálsson.
18 manna hljómsveit „BIG BAND“ leikur: Stjómandi
Reynir Sigurðsson.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1980.
Bréfritari vill benda á glæsilegan starfsferil Guðlaugs. DB-mynd Ragnar.
Guðlaugur:
Áhrifamaður
um þriggja
áratuga skeið
Baldur Kristjánsson, Safamýri 49,
skrifar:
Ég tel Guðlaug Þorvaldsson lang-
hæfastan frambjóðenda til þess að
gegna embætti forseta íslands. Vil ég
benda á glæsilegan starfsferil
Guðlaugs. Hann hefur verið
ráðuneytisstjóri, prófessor, háskóla-
rektor og sáttasemjari og öllum
þessum störfum gegnt með hvílikum
ágætum, að til þess hefur verið
tekið.
Auk þess er Guðlaugur með al-
þýðlegustu mönnum og ber
framganga hans þess ljósan vott, að
veraldarframi hans hefur hvergi
stigið honum til höfuðs.
Guðlaugur hefur verið áhrifa-
maður i íslenzku þjóðfélagi um
þriggja áratuga skeið. Sem forseti
mundi hann hafa heilladrjúg áhrif á
framvindu íslenzks þjóðfélags og
íslenzks þjóðlífs.
VÍGAFERLI0G
V0PNASKAK
— einkennandi fyrir íslendinga
Víga Sturla skrifar:
Einkennilegt er þjóðlíf okkar
íslendinga og á sér fá hliðstæð dæmi.
— Hér áður fyrri þegar aðrar þjóðir
herjuðu hver á aðra eins og þær gera
raunar enn, suntar, þá herjuðum við
hverjir á aðra innbyrðis.
Þjóðin stóð i vigaferlunt og
vopnaskaki milli landshlula og
jafnvel milli bæja. Enginn var
óhultur. Stóryrði og móðganir gálu
leilt til þess, að sverði var brugðið og
hausinn af bolnum með það sama.
Það er fátitt að ein þjóð, fámenn í
þokkabót, hafi staðið i slikum
illdeilum innbyrðis sem fyrri saga
okkar hermir. Flestar þjóðir áttu það
sameiginlegt að standa saman t.d.
gegn einhverri annarri.
Hér hefur þessu ávallt verið öðru
visi farið alll fram á þennan dag. Hér
eru vigaferli að vísu liðin tið að
mestu, þó þarf ekki mikið til að
hnífur eða byssa sé talin hið
hentugasta læki til að sýna í tvo
heimana, enda talsvert um morð og
limlestingar hér miðað við það, hve
fámenn við erum.
Og í engu máli næst samstaða hér,
ekki einu sinni í baráttu fyrir sjálf-
stæði þjóðarinnar, hvorki á sjó né
landi.
í komandi forsetakosningum eru
fjölmiðlar á sérstöku varðbergi, til
þess að ekki sjóði upp úr með
heiftúðlegar árásir stuðningsmanna
hinna einstöku frambjóðenda á ntót-
frambjóðendur! Enda finnst fólki
þetta hafa verið fremur „dauf”
kosningabarátta þaðsemafer.
Ég legg þvi til að landsmenn fái
að sýna sitt innsta eðli og þrá nteð
þvi að hleypa ventillokinu af fjöl-
miðlunum og leyfa „þjóðinni” að
blása út um frambjóðendur til for-
setaframboðs, á þann hátt sem
henni er „tamast” með offorsi og
svívirðingum, það kann þjóðin vel að
meta!
Raddir
lesenda
Verið velkomin
STUÐNINGSMENN
BOLLI
HEÐINSSON