Dagblaðið - 23.06.1980, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1980.
DB á ne ytendamarkaði
Nýtt veggspjald um mánaðamótin
— Höldum áfram með heimilisbókhaldið
Þessa dagana er verið að leggja síð-
ustu hönd á veggspjald fyrir síðari
helming ársins 1980 og fyrri hluta
árins 1981. — Vonandi verður það
tilbúið í tæka tíð, þannig að hægt
verði að koma því til fastra áskrif-
enda Dagblaðsins og Vikunnar um
næstu mánaðamót.
Nýtt form
Forminu á veggspjaldinu hefui
verið breytt nokkuð frá hinum
tveimur fyrri sem áskrifendur okkai
hafa fengið í hendur. Línurnar fyrir
útgjöldin eru mun breiðari núna en
áður. Jafnframt er samantektardálk-
urfyrirhvernmánuðáspjaldinu. Þar
að auki verða þar ýmsar gagnlegar
upplýsingar sem not er fyrir í eld-
húsinu, svo sem eins og saman-
burðartafla á Fahrenheit og Celcius
hitastigi, ýmislegt um mál og vog
o.fl. Ætlazt er til aö fólk hengi
spjaldið upp á vegg, til þess að muna
frekar eftir því að skrifa á það út-
gjöld sin. En margir kæra sig ekki um
að láta aðra vera með nefið ofan i út-
gjöldum sínum og geyma spjaldiö
niðri i skúffu. — Getur vitanlega
hver og einn geymt spjaldið þar sem
hann_sjálfur kýs. Aðalatriðið er að
það sé notað til þess sem það er
ætlað, — að færð séu inn á það dag-
leg útgjöld heimilisins.
Þar að auki er þetta allra fallegasta
spjald, verður prentað í skærum
litum, og á því hinar fegurstu myndir
af suðrænum ávöxtum og girnilegu
grænmeti. Listamaðurinn sem
hannaði spjaldið er Miles Parnell hjá
auglýsingastofunni Gylmi hf.
-A.Bj.
Nýja veggspjaldið er enn á hönnunarstigi en við vonum að það verði tilbúið i tæka tið.
DB-mynd Ragnar Th.
iviargir purta að koma við sögu þegar verið er að hanna hluti eins og Veggspjaldið
sem DB sendir áskrifendum sinum og Vikunnar endurgjaldslaust. Þarna eru
starfsmenn Gylmis að vinna við spjaldið. T.v. er Sæmundur Stefánsson og Jens
Guðmundsson er t.h. á myndinni. DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson.
Gratíneraðar púrrur
Auk þess að nota púrrur eös
blaðlauk í ýmsa rétti er hægt að mat-
reiöa þær sem sjálfstæða rétti. Hér et
uppskrift af gratíneruðum púrrum.
Þær eru bornar fram með hræröu
smjöri, grófu brauðíeða kartöflum.
yfir. Þeytið eggin og mjólkina
saman, kryddið hræruna með
múskatlnu og pipar og hellið yfir
púrrumar í fatinu. Látið álpappírs-
4meöalstórar púrrur
4egg, 4dlmjólk,
salt, 1 msk. hveiti, pinulftiö múskat,
nýmalaður pipar, 3—4 tómatar og
150 gr rifinn ostur.
Hreinsið púrrurnar og skerið þær
í þunnar sneiðar. Látiö þær i smurt
eldfast fat, saltið og stráið hveitinu!
Uppskrift
dagsins
lok á fatið og bakið í 225°C heitum
ofni í um það bil 20 mín. Takið þá
fatið úr ofninum, skerið tómatana í
sneiðar, raðið jjeim ofan á fatið og
stráið rifna ostinum yfir. Látið þá
fatið aftur inn í ofninn en nú án
álpappírsins. Bakið réttinn nú áframi
í 10— 15 mín., eggin eiga að vera stíf,'
og osturinn bráðinn og ljósbrúnn.
Hráefniskostnaður reiknast okkur
að sé mjög nálægt 4.240 kr. eða um
1060 kr. á mann ef uppskriftin er
ætluð fyrir fjóra. Þá er reiknað bæði'
með brauði og smjöri.
-A.Bj.
Púrrur eru sérlega göðar til átu, hvort heldur þær eru hráar eða matreiddar, en gætið þess að hreinsa þær vel undir rennandi
vatni. Það vill oft leynast leirkenndur jarðvegur inn á milli blaðanna.
Bullsjóðið
ekki matinn -
látið pottana
passa vel
á hellumar
Hægt er að spara mikla orku með
því að sýna hagkvæmni í eldhúsinu
þegar maturinn er eldaður. Gætið’
jjess að nota potta sem passa vel ofan
á eldavélarhellurnar. Botninn á
pottunum á að vera sléttur og falla
þétt að hellunum. Ef þið eruð með
beyglaða potta skuluð þið fá ykkur
nýja potta með góðum botni.
Potturinn má aldrei vera minni
heldur en platan. Minna gerir til þótt
hann sé aðeins stærri. Bullsjóðið
aldrei matinn. Það eyðir miklu meiri
orku en nauðsynlegt er og þar að
auki verður maturinn mun síðri á
bragðið. Gætið þess að minnka
strauminn um leið og suðan er komin
upp.
Bökunarofninn er gríðarlegur
orkugleypir. Töluverð orka fer í að
hita ofninn upp. Reynið því að ná
sem lengstum notkunartíma með því
t.d. að baka mikið í einu.
-A.Bj.
„Rétt” verð á grenadininu 2.844 kr.
Kaupmaöur i borginni hafði sam-
band við Neytendasíðuna vegna,
verðs á grenadíni (Bols) sem sagt var
frá i DB á föstudag. Var þar haft eftir
umboðsmanni að sennilegt verð á
flöskunni væri 2.600 kr. út úr búð.
Kaupmaðurinn sagði að hann hefði
einmitt fengið sendingu af þessum
ávaxtasafa á föstudag og þá er „rétt”
verð 2.844 kr. út úr búð. Heildsölu-
verðið var 2.061. SS í Austurveri er
sennilega með „gamlar” birgðir af
grenadíni þvi þar var það til á 2.150
kr. i síðustu viku. -A.Bj.,