Dagblaðið - 23.06.1980, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1980.
GUÐLAUGS ÞORVALDSSONAR
VEIÐIVON
Þroskaleik-
föngin
eru nr. I f rá
Fisher Price
Landsins mesta
úrval
Póstsendum
um land
allt
Sími 14744.
Guðlaugur og Kristín verða á fundi að
HVOU, HVOLSVELU
þriðjudaginn 24. júní kl. 21.00.
Fundarsljóri: Séra Hannes Guðmundsson
Ávörp:
Albert Jóhannsson
Anna Margrót Jafetsdóttír
Fannar Jónasson
Magnús Finnbogason
Matthías Pótursson
Sveinn Runóifsson
Ljóðalestur: Guðrún Jónsdóttir
og Guðný Pálsdóttir.
Einsöngur: Rut L. Magnússon
Píanóleikari: Jónas Ingimundarson
Almennur söngur við undirleik
Önnu Magnúsdóttur
Húsiö opnað kl. 20:30
Jónas Ingimundarson leikur létt lög á píanó.
Stuðningsmenn.
Veiðihetjurnar með nokkra væna úr Laxá i Aðaldal. Frá vinstri eru Guðjón
Helgason og siðan bræðurnir Júlús og Þröstur Elliðasynir.
DB-mynd: J.E.
LAXÁ í AÐALDAL
LOFAR GÓDU
— dræmt í Norðurá
Það fer ekki á milli mála, að ein
mesta peria áa norðan heiða er Laxá i
Aðaldal. Þar hafa margir fræknir
veiðimenn byrjaðað renna.
Áin hefur upp á margt að bjóða —
veiðistaðir eru fjölmargir og land-
slagið fallegt. Veiðin það sem af er
þessa veiðitímabils hefur verið sæmi-
leg og ljóst að talsverður fiskur er
genginn í hana. Fyrstu laxarnir komu
um miðjan maí.
Nokkrir kunningjar Veiðihornsins
skruppu í ána fyrir skömmu. Lax
fengu þeir engan, en sautján sjó-
urriða, allt vænstu fiskar, en piltarnir
voru við veiðar á Nessvæðinu.
Tregt í
Norflurá
Frá NorðurátberasVþ'æpffeéÍTft-, áð
veiði sé tfelflur litií. Heimildarmenn
Veiðivonar eru nokkrir Reykvík-
ingar, sem voru í ánni nýlega. Þeir
fengu þrjá laxa á þremur dögum og
sögðu svipaðar sögur af öðrum veiði-
mönnum þar. Ekki hafa laxatorf-
urnar glapið fyrir þeim.
Menn rekur ef til vill minni til
frétta um að 1400 laxar hafi gengið
upp fyrir teljarann í Norðurá á
nokkrum dögum nýlega. Þótti
mörgum harla ótrúlegt, enda kom i
ljós skötnmu síðar, að teljarinn var
bilaður«Cg gat þvi allt eins munað
þúsund ‘fi?Hum eins og nokkur
hundruð.
-GB.
Kennarar mótmæla fjölþjóðlegu myndabókunum:
Tinni og Strumpamir
illlæsilegir og upp-
fullir af fordómum?
„Við viljum reyna að ýta aðeins
við fólki. Góðhjartaðir ættingjar
barna eyða milljónum í það að kaupa
handa þeim myndabækur án þess að
gera sér Ijósa þá hættu sem af þessu
getur stafað”, sagði Aðalbjörg
Sigurðardóttir. Hún ásamt 55
kennurum öðrum viðs vegar af
landinu hefur skrifað nafn sitt undir
beiðni til bókaútgefenda um að draga
úr framleiðslu á bókum sem kallaðar
eru fjölþjóðlegt samprent. Með þvi
orðalagi er átt við meðal annars
myndasögubækur til dæmis Tinna-
bækurnar og Strumpa-bækurnar.
Sagt er að margvisleg hætta geti.
stafað af þessum bókum vegna þess
að letur þeirra sé óaðgengilegt fyrir
börn sem eru að læra að lesa, orða-
forði sé fátæklegur, bækurnar
uppfullar af fordómum og
samfélagsmynd þeirra ólik því
samfélagi sem börnin eigi að venjast.
,,í þessum bókum er sagan sögð til
fullnustu í myndunum. Börnin þurfa
því ekkert að lesa heldur geta látið sér'
nægja að skoða myndirnar. Þetta
verður svo kannski til þess að þau
vilja ekkert læra að lesa, finnst nóg
að geta skoðað myndir.
Nokkrir kennarar hafa bannað
þessar bækur og skólabókasöfn líka.
Með þessu banni er átt við að úti um
land þar sem ekki eru skólabókasöfn
skiptast börnin á bókum heiman að
frá sér. Þessar bækur eru bannaðar i
slíkum skiptum. Sumum kennurum
finnst þetta bann skerðing á frjáls-
ræði en þeir eru margir sem telja
hættuna af þessum bókum það mikla
að hún réttlæti slikt bann.
Við viljum einnig með þessu bréfi
Ieggja áherzlu á hversu illa er búið að
íslenzkum barnabókum. Útgáfu
þeirra mætti auka á kostnað þessara
myndasögubóka,” sagði Aðalbjörg.
-DS.
^::rr
Sumarbústaðaeigendur, félagasamtök,
fj' landeigendur og umráðamenn lands.
önnumst ýmis konar girðingalagnir.
Gerum föst verðtilboð.
Vanir menn. Geymið auglýsinguna.
GIRÐINGARVERK
simi 91-81460 kl. 7-8 á kvöldin.