Dagblaðið - 23.06.1980, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1980.
13
Foreldrar dagheimilisbama stofna samtök:
Vilja auka áhrif foreldra á
stjóm dagvistunarmála
„Með þessum samtðkum viljum við
fyrst og fremst koma á betri tengslum
milli foreldra barna á dagheimilum og
leikskólum og hvetja foreldra barna á
fleiri slíkum stofnunum til þess að
stofna með sér félög,” sagði Elín Edda
Árnadóttir, ein þriggja kvenna, sem
sitja í framkvæmdanefnd nýstofnaðra
samtaka. Samtökin nefnast Foreldra-
samtök barna á dagheimilum og leik-
skólum í Reykjavík og sem stendur eru
í því foreldrar barna á 9 dagheimilum
og leikskólum.
Félagið hefur meðal annars sett sér
þau markmið að auka áhrif foreldra á
stjórn dagvistunarmála með sæti í dag-
vistunarnefnd, að bæta og fjölga dag-
heimilum og leikskólum og að meta
störf fóstra að verðleikum og stuðla að
betri kjörum þeirra. Samkvæmt félags
málasamþykkt Reykjavíkur eiga for-
eldrar rétt á sætí í dagvistunarnefnd.
Þegar stofnuð höfðu verið foreldra-
samtök við eitt dagheimili í borginni
var sótt um að fá þennan rétt. Því var
hins vegar synjað á þeirri forsendu að
aðeins væri um foreldra barna á einu
slíku heimili að ræða og því væri þetta
ekki tímabært. Nú hins vegar hyggjast
samtökin i heild sækja um þetta og eru
bjartsýn á árangur.
Eitt af þvi sem hin nýju samtök berjast fyrir eru dagvistunarheimili fyrir ÖLL börn, ekki bara einhverja forgangshópa. Inn-
fellda myndin er af Elinu Eddu Árnadóttur. DB-raynd: Sig. Þorri/ Magnús Hjörleifsson.
„Við ætlum þessum samtökum líka með ólíkar stjórnmálaskoðanir sem á eldrafélög barna í skólum. Við höfum
að verða upplýsingaaðili fyrir foreldra það sameiginlegt að eiga börn á þessum alls staðar mætt jákvæðu hugarfari og
um dagvistun. Við viljum sameina fólk stofnunum. Líkt og gert er með for- góðum vilja,” sagði Eiin Edda. -DS.
Hæfileikakeppni DB og hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar:
KEPPNIN HEFST
UM NÆSTB HELGI
Enn vantar dálitið á að fullbókað
sé i Hæfileikakeppnina 1980. Að
sögn Birgis Gunnlaugssonar stjórn-
anda hennar skortir áhuga fólks- þó
ekki frekar en fyrri daginn. Þeir, sem
enn eru að hugsa sig um, eru hvattir
til að herða upp hugann, því að
keppnin fer nú senn að hefjast.
Aðstandendur Hæfileika-
keppninnar eru Dagblaðið og
hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar.
Fyrst var efnt til keppni þessarar í
fyrrasumar. Árangur hennar varð
slíkur að ótækt þótti annað en að
efna aftur til keppni í sumar. Sem
fyrr fer hún fram á Hótel Sögu á
sunnudagskvöldum. Keppnin verður
þó opnuð á laugardegi, þann 28.
júni, því að ótækt þótti að hefja hana
á sama degi og forsetakosningarnar
fara fram.
f fyrra kom fram mikið af fólki,
sem hafði ótvíræða hæfileika.
Nokkrir gömlu keppendanna koma
fram á opnunarkvöldinu á laugar-
daginn. Þá verður haldið upp á eins
árs afmæli Hæfileikakeppninnar og
einnig verður poppóperan Evita
frumsýnd í Reykjavík. í henni kemur
fram hópur dansara úr Dansflokki
JSB og Jazzballettskóla Báru. Dans-
flokkurinn hefur mjög komið við
sögu Hæfileikakeppninninnar, því að
í fyrrasumar fumflutti hann einn eða
fleiri dansa á hverju sunnudags-
kvöldi á Hótel Sögu.
Hin eiginlega hæfileikakeppni
hefst síðan fyrsta sunnudag í júlí, er
fyrstu þrír þátttakendurnir koma
fram. Síðan verður keppt hvern
einasta sunnudag í júlí, ágúst og
september, nema daginn fyrir frídag
verzlunarmanna. Úrslitakvöldið
verður 20. september. Helgina þar á
eftir efna aðstandendurnir síðan tíl
— þá verður
poppóperan
Evíta
frumsýnd
í Reykjavík
skemmtikvölda í Sjálfstæðishúsinu á
Akureyri, þar sem hæfileikamesta
fólkið kemur fram.
Allir þeir sem orðnir eru átján ára
gamlir geta tekið þátt i Hæfileika-
keppninni. Þeir mega ekki vera at-
vinnumenn í þeirri grein sem þeir
keppa í. Svo til allt er gjaldgengt í
keppnina, svo framarlega, sem það
fer ekki yfir velsæmismörkin (hvar
sem þau eru).
Þeir sem hug hafa á að verða með
i sumar, geta látið skrá sig í síma
45665 milli klukkan sjö og niu á
kvöldin. -ÁT-
ÞJONUSTA
Flytjum bíla, báta
stóra gáma og þungavöru
allan sólarhringinn.
Opnum læsta bíla, ræsum
einnig rafmagnslausa bíla.
AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
sími73364 FR-5225
kvæma tillitssertii í
umferðinni.
IUMFERÐAR
"ráð
Óbðkuð
lifrarkæfa
KJÖTBÚÐ
SUÐURVERS
STIGAHLÍÐ - SÍMI35645
AUGlÝSINGASTOfiAN HF. |S
Gisii BBiomssonls
staðunnn
ALLSKONAR ÍS.GAMALDAGS ÍS, SHAKE OG BANANA-SPLIT. SÆLGÆTI, ÖL OGGOSDRYKKIR. 1 i !
Lækjargötu 8, Hraunbæ 102, Reykjavíkurvegi 72, Hf. . ■ _ _ —
-j