Dagblaðið - 23.06.1980, Side 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ1980.
iþróttir
Iþróttir
Sþróttir
Iþróttir
íþrótt
Hauka-sigur
á elleftu
stundu
— Haukar-Ármann 2-1
í 2. deild
Haukar í Hafnarfirði unnu
þýðingarmikinn sigur á Ármanni i 2.
deild á föstudagskvöld á Kaplakrika-
velli, 2—I, og var sigurmarkið skorað
á síðustu mínútu leiksins. Haukar eru
meðal efstu liða í deildinni eftir sigur-
inn og möguleiki á sæti i 1. deild á ný er
fyrir hendi.
Það var lengstum jafnræði með
liðunum í leiknum i Hafnarfirði.
Ekkert mark skorað i fyrri hálfleik en
um miðjan síðari hálfleikinn kom
Þráinn Ásmundsson Ármenningum
yftr. Það stóð ekki lengi því marka-
kóngur Haukaliðsins Loftur Eyjólfs-
son jafnaði fljótt metin. Það virtist
stefna í jafntefli en Haukar voru á
annarri skoðun. Knötturinn barst inn
i vítateig Ármanns á lokaminútu
leiksing og eftir nokkurn darraðardans
þar tókst Lárusi Jónssyni að koma
knettinum í mark Ármanns.
Magnús Bergs
hyggst hætta
í knattspyrnu
,,Já, það er ýmislegt sem bendir til
þess. Ég hef sótt um vinnu erlendis og
ef hún ekki fæst mun ég væntanlega
fara i framhaldsnám,” segir knatt-
spyrnumaðurinn góðkunni, Magnús
Bergs, úr Val, aðspurður hvort
þetta sé síðasta árið sem hann leikur
knattspyrnu fyrir Val. Spurningin var
lögð fyrir hann í leikskrá Vals fyrir
leikinn gegn Akranesi í gærkvöldi.
Aðspurður hvort hann stefni að
þvi að leika knattspyrnu á erlendri
grund segir Magnús. ,,Nei, það er ekki
á áætlun hjá mér, ég ætla að einbeita
mér að vinnu eða námi.”
Ekki þarf að taka fram að mikill
sjónarsviptir verður að Magnúsi á
knattspyrnuvellinum, hætti hann
knattspyrnuiðkun. Magnús sem er
aðeins 23 ára gamall hefur verið einn af
máttarstólpum Valsliðsins undanfarin
ár og átt mikinn þátt í velgengni
liðsins.
-GAJ.
Mútuhneyksli
á Spáni
Spænska knattspyrnusambandið
dæmdi um helgina þjálfara knatl-
spyrnufélagsins Salamanca í tveggja
ára bann frá knattspyrnu fyrir að hafa
greitt 4,4 milljónir peseta til að fá fram
sigur gegn Malaga i april sl.
Þjáífarinn, Felipe Mesones, hafði
greitt tveimur leikmönnum Malaga
peningana. Voru leikmennirnir einnig
dæmdir i tveggja ára keppnisbann.
Knattspyrnusambandið mun fara fram
á það við aganefnd sína að forseti Sala-
mancafélagsins verði settur í ævilangt
bann.
ítalir sigruðu
í tugþraut
ítalir sigruðu i fjögurra landa
keppni i tugþraut sem fór fram í Kaup-
mannahöfn um helgina. ítalir hlutu
22.373 stig, Bretar urðu í 2. sæti
með 22.224 stig, Hollendlngar urðu
þriðju með 21.596 stig og Danir fjórðu
með 21.022 stig.
í keppni einstaklinga urðu efstir
McStravick, Bretlandi, og Brogini,
ttaliu, hlutu báðir 7.704 stig. Þriðji
varð Hubert Indra, ítaliu, með 7.589
stig. Bezti Hollendingurinn, Frans van
de Ham, hlaut 7.226 stig og hafnaði i 5.
sæti. Bezti Daninn, Erling Hansen,
hlaut 7.124 stig og hafnaði i 8. sæti.
Þess má geta til samanburðar að
þrír íslendingar hafa náð yfir 7300
stigum i tugþraut i ár, þ.e. Stefán
Hallgrfmsson, UÍA, Elias Sveinsson,
FH og Þráinn Hafsteinsson, ÍR. Með
þeim árangri hefðu íslendingar unnið
bæði Hollendinga og Dani i þessari
keppni.
-GAJ.
Sigþór Ómarsson, bezti maður Akraness i leiknum gegn Val i gærkvöldi, skorar hér annað mark Skagamanna. Sigþór átti mjög góðan leik og lék vörn Vals oft grátt með
hraða sinum og dugnaði. DB-mynd Bjarnleifur.
Skagamenn eiga ennþá
möguleika á titlinum
Skagamenn komu heldur betur á
óvart á Fögruvöllum í Laugardal í gær-
kvöldi er þeir léku sér að Valsmönnum
og sigruðu þá með þremur mörkum
gegn engu. Var sá sigur sizt of stór
miðað við gang leiksins og meðal
annars misnotuðu Akurnesingar
vítaspyrnu. Það vareinkum fyrsta hálf-
tímann, sem Skagamenn léku eins og
þeir geta bezt gert, sannkallaða gullald-
arknattspyrnu og skoruðu þá öll
mörkin. Valsmenn voru gjörsamlega
heillum horfnir og virtist góður leikur
Skagamanna og mikil barátta koma
þeim í opna skjöldu. Þessi ósigur Vals
kemur i kjölfar tveggja stórsigra þeirra
og fyrirfram hafa líklega fæstir búizl
við miklu af liði Akraness, sem hafði
tapað fyrir FH og marið jafntefli gegn
KR í tveimur síðustu leikjum.
Strax í upphafi leiksins voru Skaga-
menn mun frískari og sköpuðu oft
mikinn usla í vörn Vals með löngum en
hnitmiðuðum sendingum. Þegar á 5.
mínútu leiksins átti Sigurður Lárusson
golt skot af löngu færi naumlega
framhjá. Rétt á eftir áttu Akurnesing-
ar stórhættulega sókn. Árni Sveinsson
komst þá alveg upp að endamörkum,
gaf fasta sendingu fyrir markið, sem
Ólafur Magnússon markvörður Vals
missti framhjá sér en Þorgrími tókst að
afstýra hættunni með því að bjarga i
horn. Á 15. mínútu kom svo markið
sem legið hafði i loftinu. Sigurður
Lárusson fékk þá knöttinn óvaldaður
inni i vítateig Vals eftir sendingu frá
Sigþóri Ómarssyni. Fékk Sigurður
ráðrúm til að leggja knöttinn vel fyrir
sig og skora síðan af öryggi, 1—0.
Markiö virkaði sem vitamínsprauta á
Akurnesinga sem hertu enn sókn sina
og réðu lögum og lofum á vallar-
miðjunni. Á 26. mínútu voru þeir
nærri því að bæta við öðru marki, Jón
Gunnlaugsson kastaði sér þá fram og
skallaði knöttinn af markteig en i
hliðarnetið. Á 28. minútu brauzt Július
Ingólfsson af harðfylgi i gegnum vörn
Vals en Ólafur markvörður varði skot
hansvel.
Á 30. mínútu kom annað markið.
Sigþór Ómarsson fékk þá glæsilega
fyrirgjöf frá Árna Sveinssyni inn i
vitateiginn. Hann tók hnöttinn á loft
og afgreiddi hann með þrumuskoti i
netmöskvana, sérlega vel að verki
staðið hjá Sigþóri.
Aðeins tveimur minútum siðar var
Sigþór aftur á ferðinni. Hann fékk þá
langsendingu fram völlinn, lék á
varnarmann Vals og negldi aftur í
netið, 3—0. Allan fyrri hálfleikinn
voru það Akurnesingar, sem sóttu og
sköpuðu sér marktækifærin. Valsmenn
áttu ekki hættulegt marktækifæri fyrr
en á42. mínútu að fyrirliði Vals, lands-
liðsmaðurinn Guðmundur Þorbjörns-
son, skaut miklu þrumuskoti af u.þ.b.
20 metra færi sem hafnaði á
innanverðri stöng marks Skagamanna.
Þegar komið var fram yfir venjulegan
leiktíma fyrri hálfleiks skoruðu Vals-
menn en markið var dæmt af. Vals
menn gerðu þá harða hríð að marki
Akraness, boltanum var lyft yfir Bjama
Sigurðsson markvörð, sem kominn var
anzi framarlega, en honum tókst með
miklum tilþrifum að kasta sér á eftir
knettinum en missti hann fyrir fætur
Matthíasar sem renndi honum í netið.
Eysteinn Guðmundsson, ágætur
dómari þessa leiks, dæmdi markið
ógilt þar sem brotið hefði verið á
Bjarna markverði. Voru menn ekki á
eitt sáttir um þann dóm.
I síðari hálfleik jafnaðist leikurinn
talsvert en Valsmenn virtust aldrei
liklegir til að ógna forystu Skaga-
manna. Á 50. mínútu skaut Sigþór
naumlega framhjá úr góðu færi eftir
sendingu frá Júlíusi og á 69. mínútu
fengu Skagamenn vitaspyrnu eftir að
einn varnarmanna Vals hafði handleik-
ið knöttinn inni í vitateig. Ólafur
Magnússon markvörður Vals varði
spyrnu Árna Sveinssonar glæsilega.
Tveimur mínútum siðar átti Magni
Pétursson ágætt skot af löngu færi á
mark Akraness en Bjarni varði af
öryggi. Á 77. mínútu höfðu Valsmenn
næstum gert sjálfsmark en Óttar skall-
aði í siá eigin marks mjög aðþrengdur.
Óvæntur en sanngjarn sigur Skaga-
manna var i höfn og lokaminúturnar
liðu án þess að umtalsverð marktæki-
færi sköpuðnst. Valsmenn voru ekki
sjálfum sér likir i þessum leik og ekki er
hægt að segja að neinn leikmanna liðs-
ins hafi átt góðan leik.
Framlína Skagamanna hefur þótt
heldur bitlaus fram að þessu i vor en nú
áttu framherjar liðsins skinandi góðan
leik. Bezti maður liðsins var Sigþór
Ómarsson, sem var sifellt ógnandi og
baráttuglaður. Annars lék liðið vel sem
heild og flestir leikmanna liðsins áttu
góðan leik. Með sama áframhaldi
verða Skagamenn með i baráttunni um
Islandsmeistaratitilinn í ár.
-GAJ.
Vestur-Þjóðverjar Evrópumeistarar í knattspyrnu:
Sigurmarkið skorað
2 mín. fyrir leikslokin
Hamborgar-leikmaðurinn Horst
Hrubesch var hetja Vestur-Þýzkalands,
péptr-^jóðverjar sigruðu öðru sinni i
Evrópukeppni l'ándsliðá i gær — sigr-
uðu Belga í úrslitaleiknum i Róm með
2—1. Sanngjöm úrslit þvi þý}:ka liðið
hafði umtalsverða yfirburði i léiknum.
Markvörður Belgíu, Jean-Marie Pfaff,
var bezti maður belgiska liðsíns og
varði oft með miklum tilþrifuni. Það
kom mikilli spennu i leikinn og það var
ekki fyrr en tveimur mínútum fyrir
leikslok að Hrubesch skoraði sigur-
markið. Hann náði einnig forustu fyrir
þýzka liðið i leiknum. Skoraði á tíundu
min. en 18 min. fyrir leikslok jöfnuðu
Belgar úr vítaspyrnu.
Úrslitaleikurinn var háður á
ólympiuleikvanginum i Róm. öll veð-
mál voru þýzka liðinu í hag — það álit-
ið nokkuð öruggur sigurvegari eins og i
Evrópukeppninni 1972. Enginn hafði
reiknað með Belgiu i úrslit en belgíska
liðið stóð vel fyrir sinu í úrslitakeppn-
inni, þótt það ætti svo við ofjarl að etja
í úrslitaleiknum.
Vestur-þýzka liðið hafði algjöra yfir-
burði í fyrri hálfleik með Bernd
Schiister sem aðalmann. Strax á 10.
min. náði það forustu eftir fallega sókn
Schiister og Klaus Allofs, sem gaf
knöttinn til Hrubesch. Hann skoraði
með föstu skoti af 18 metra færi, sem
Pfaff átti ekki möguleika að verja.
Hins vegar varði hann mjög vel nokkru
siðar frá Schiister — kom knettinum
með fingurgómunum yfir þverslána.
Varði einnig á svipaðan hátt frá Allofs.
Þá átti Schiister þrumufleyg af 35 m
færi rétt yfir þversiá. Belgíska liðið átti
fá upphlaup í f.h. og Jan Ceulemans
var oft eini maðurinn í framlínunni.
Van der Elst átti þó hættulegt skot min-
útu eftir að Hrubesch hafði skorað.
Lyfti knettinum yfir Harald Schu-
macher en lika þverslána.
í siðari hálfleiknum lögðu Belgir allt
i að reyna að jafna og van der Elst var
þá þýzku vörninni erfiður. Á 72. mín.
komst hann í gegn og átti aðeins mark-
vörðinn eftir, þegar UIi Stielike felldi
hann aftan frá. Rúmenski dómarinn
Nicolae Rainea dæmdi samstundis vita-
spyrnu þrátt fyrir mikil mótmæli þýzku
leikmannanna. Van der Eycken
skoraði örugglega úr vitaspyrnunni.
Mikil harka var í leiknum og fjórir leik-
menn bókaðir — þrír Belgar, Luc
Millecamps, Eycken og van Moer en
Karl Heinz Föster hjá Þjóðverjum.
Karl-Heinz Rummenigge, sá snjalli
leikmaður, fékk tækifæri til að koma
Þjóðverjum yfir en spyrnti framhjá
marki frir af 15 metra færi. Fjórum
min. fyrir leikslok varði Pfaff vel frá
Schiister og allt virtist stefna i fram-
iengingu. En Þjóðverjar fengu horn-
spyrnu á 88. mín. Rummenigge gaf vel
fyrir ntarkið — Hrubesch stökk hæst
og skallaði í mark við geysilegan fögn-
uð áhorfenda, sem voru 45 þúsund.
Verðskuldaður sigur Þjóðverja í höfn.
Liðin voru þannig skipuð. V-Þýzka-
iand: Schumacher, Bernard Dietz,
Manfred Kaltz, Hans-Peter Brigel
(Bernhard Cúllman 55. mín.), Stielike,
Föster, Schilster, Hansi Múller, Hru-
besch, Allofs og Rumenigge. Belgia:
Pfaff, Eric Gerets, Millecamps, Walter
Meeuws, Michel Renquin, Julien
Cools, van der Eycken, van Moer, Ray-
mond Monnens, van der Elst, Ceule-
mans.
Eftir leikinn sagðist þýzki landsliðs-
þjálfarinn, Jupp Derwall, vera stoltur
af leikmönnum sínum og á hvern hátt
þeir hefðu unnið leikinn eftir að Belgar
jöfnuðu. „Þaðan sem ég sat gat ég ekki
séð hvort um viti var að ræða en sjón-
varpsmyndir sýna, að brotið átti sér
stað metra fyrir utan vítateiginn,”
sagði Derwall um vítaspyrnu Belga.
Landsliðsþjálfari Belga, Guy Thys,
sagði að leikmenn hans hefðu leikið vel
en Þjóöverjar þó verðskuldað sigur
sinn. -hsím.