Dagblaðið - 23.06.1980, Blaðsíða 17
17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ1980.
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Sþróttir
Þróttur tók stig af slöku
Keflavíkurliði
— norðan rok og kuldi settu svip
á 1-1 jafnteflisleik liðanna
Norðan rok og kuldi setlu svip sinn á
leik ÍBK og Þróttar á grasvellinum i
Keflavík I gærkveldi. Leikmönnum
gekk illa að hemja knöttinn, svo fátt
var um fína drætti. Heimamenn voru
öllu meira I sókn og áttu fleiri tækifæri
en nýttu aðeins eitt þeirra. Það sama
gerðu Þróttarar, svo jafntcfli varð, 1 —
1. Þar með hafa Keflvíkingar nælt sér í
7 stig en Þróttur4.
Þrátt fyrir sterkan vind i bakið gekk
hvorki né rak hjá ÍBK i fyrri hálfleik.
Hver vitleysan rak aðra og liðið var
óvenju ósamstillt, sérstaklega framlin-
an. Reyndar léku Þróttarar mjög skyn-
samlega, hættu sér ekki um of í sókn-
ina og höfðu strangar gætur á skæð-
ustu sóknarmönnum ÍBK, þeim Ragn-
ari Margeirssyni, Ólafi Júlíussyni og
Steinari Jóhannssyni, svo að þeir
komust ekki upp með neinn moðreyk.
Þó var það bakvörðurinn Óskar Fær-
seth sem átti hættulegasta færið, þegar
hann lyfti knettinum rétt yfir þverslá
þegar nokkuð var liðið á fyrri hálfieik.
Ekki var út i hött að ætla að Þrótt-
arar tækju öll völd í seinni hálfieik, en
nokkuð óvænt brauzt Ragnar Mar-
geirsson fram með vinstri hliðarlínu,
lék á hvern Þróttarann af öðrum og
sendi knöttinn i netið, eftir heiðarlega
tilraun Jóns Þorbjörnssonar mark-
varðar við að koma höndum á knött-
inn. Heimamenn voru að vonum kátir
yfir þessu óvænta marki en gleðin stóð
ekki lengi. Örfáum minútum seinna
jafnar hinn knái Sigurkarl Aðaisteins-
son, eftir mikil varnarmistök ÍBK.
Vörnin hugðist leika sóknarmenn
Þróttar rangstæða með því að hlaupa
fram en knötturinn hafði verið sendur
áður, svo ekki var um rangstöðu að
ræða.
Ólafur Magnússon, einn bezti Þrótt-
arinn, komst i gott færi þegar langt var
liðið á leikinn og hefði sennilega gert út
um hann ef Jón örvar, sem átti góðan
leik í markinu, hefði ekki verið til
staðar á réttum tima og slegið knöttinn
yfir þverslá. Þá átti Ragnar Margeirs-
son gott skot af stuttu færi en knöttur-
inn smaug rétt utan við súlu Þróttar-
marksins.
í liði ÍBK átti Gisli Eyjólfsson einna
skástan leik, traustur i vörninni og skil-
aði knettinum vel frá sér, reyndi að ná
spili. Ragnar Margeirsson var að vanda
hættulegur, en fékk ekki margar send-
ingar til að vinna úr. Hilmar Hjálmars-
son barðist vel allan leikinn út.
Sigurkarl Aðalsteinsson var ÍBK-
vörninni þungur í skauti enda fijótur
og leikinn. Ólafur Magnússon er hon-
um litið siðri. Einnig voru þeir Ágúst
Hreiðarsson, Harry Hill og Oltó
Hreinsson góðir í leiknum.
Dómari var Kjarlan Ólafsson og
dæmdi \ el og röggsamlega. -emm
1»
Við fögnum nýrri flugvél
Boeíng727-200
til þjónusfu á Evrópuleióum
Stómm,aflmiklum og glæsileguni farkosti,
sem nú bætist í flugflota landsmanna.
FLUGLEIDIR
Oddur Sigurðsson KA er i stöðugri
framför og ekki er ósennilegt að hann
verði einn af keppendum Islands á
ólvmpiuleikunum í Moskvu.
UB-mynd Horður.
Góður árangur
Odds
í Finnlandi
Oddur Sigurðsson, spretthlauparinn
góðkunni úr KA, náði ágætum árangri
á alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í Finn-
landi um helgina. Hann sigraði í 200
metra hlaupi á 21,70 sek. og varð annar
í 400 m hlaupi á 47,26 sek., sem er bezti
timi sem hann hefur náð i þeirri grcin
miðað við rafmagnstímalöku. Sigur-
vegari í 400 m hlaupinu varð finnski
hlauparinn Mykrá, sem hljóp á 47,26,
sem er bezti lími sem finnskur hlaupari
hefur náð í 400 m hlaupi i ár. Oddur
mun næslu daga taka þátt i fleiri frjáls-
íþróttamótum í Finnlandi, Sviþjóð og
Noregi. - GAJ
Hilmir skor-
aði þrennu
— í 3-2 sigri Þróttar
yfir Völsungi
Þróttur frá Neskaupstað styrkti
stöðu sina allnokkuð í 2. deild er liðið
sótti 2 slig til Húsavikur þar sem
heimamenn urðu að lúta í lægra haidi
fyrir Þrótturum sem skoruðu 3 mörk
gegn 2. Heimamenn skoruðu fyrsta
markið og gerði það Helgi Benedikts-
son beint úr aukaspyrnu. Þróttarar
sóttu stift en reyndist erfitl að koma
knettinum i netið. Það var ekki fyrr en
á 44. minúlu að Hilmar Guðmumlssnn
jafnaði fyrir Þrótt af stuttu færi, I — 1.
Þegar u.þ.b. 12 mínútur voru liðnar af
siðari hálfleik var Hilmir aftur á
ferðinni, fylgdi hann vel á cftir skoti
frá samherja, sem Gunnar Straumland
hélt ekki, 2—1. Siðan jafnaði Helgi
Benediktsson aftur með góðu skoti af
stuttu færi, 2—2. Undir lok leiksins
urðu Völsungum á mikil mistök.
Misstu þeir knöttinn uppi við vítatdig
Þróttar og sneru Þróttarar vörn i sókn
og brunuðu upp. Endaði sóknin með
að Hilmir skoraði sitt þriðja mark af
öryggi. -G.Sv.
Sigurmarkeftir
109 mínútur
- í leik Víkings og Víðis
Víkingur, Ólafsvík, batt enda á
sigurgöngu Víðis i bikarkeppninni
Garðinum á föstudagskvöld. Að
loknum venjulegum leiktima var
staðan 0—0. Var þá framlengt og það
var ekki fyrr en á 109. mínútu að úrslil
fengust. Jónas Krístjánsson fékk
knöttínn á vítateigslinu, skaut
þrumuskoti undir þversiá, algjörlega
óverjandi. Þetta var raunverulega eina
skotið sem Víkingar hittu innan
rammans og var það súrt i broti fyrir
Víðismenn að tapa þar sem þeir áttu
7—8 dauðafæri sem ekki tókst að
nýta. Leikurinn fór fram í
norðanbeljanda, en var alls ekki svo
illa leikinn. Leikmenn reyndu að halda
knettinum niðri og leika saman.
-emm.