Dagblaðið - 23.06.1980, Side 18
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1980.
Iþróttir
Iþróttir Iþróttir Iþróttir
Víkingar og íslandsmeist-
arar ÍBV deildu stigunum
— Jafntefli 1-1 í sólinni á Fögruvöllum í Laugardalnum
Garpurinn i marki tBV, hinn 37 ára Páll Pálmason, grfpur knöttinn áöur en Hinrik Þórhallsson fær tækifxri til að skalla. Á
milli þeirra er varnarmaðurinn sterki Sighvatur Bjaranson. DB-mvnd Bjarnleifur.
Ævintýralegur enda-
sprettur á Nesinu
— er Björgvin sigraði í Johnny Walker keppninni
„Ég er ánægflur mefl hvafl Víkings-
liðifl barflist vel eftir að hafa fengið á
sig hið slysalega mark I byrjun leiksins
— en hins vegar er ég ekki ánægflur
með hve leikmenn liðsins misnotuðu
mörg góð tældfærí, sem þeir sköpuflu
sér I leiknum. Greinilegt er þó að liðið
er i framför,” sagði Yourí Sedov, hinn
sovézki þjálfari Vikings eftir afl lið
hans hafði gert jafntefli, 1—1, við
íslandsmeistara Vestmannaeyinga i sól-
inni á Fögruvöllum í Laugardal á
laugardag. Jafn leikur, þegar á heildina
er litið og jafntefli að mörgu leyti sann-
gjörn úrslit. Vikingar fengu fleiri tæki-
færí en Vestmannaeyingar léku oft
betur saman úti á vellinum — og tals-
verflur heppnisstimpill var á marki
þeirra.
Bæði lið voru án sterkra manna,
Róbert Agnarsson og Helgi Helgason
voru ekki með Víkingi og ÍBV án
Tómasar Pálssonar — en byrjun
leiksins var stórskemmtileg.
Knötturinn gekk markanna á milli og
tækifæri sköpuðust — en sólin og
hitinn mikli tók sinn toil. Það slaknaði
á hjá leikmönnum liðanna eftir því,
sem á leikinn Ieið.
Víkingar geystust í sókn um leið og
leikurinn hófst — fallegt upphlaup og
Gunnar Örn Kristjánsson, sem lék sinn
fyrsta leik i sumar með Vikingi, fékk
knöttinn við vítateiginn hjá ÍBV.
Hörkuskot hans rétt sleikli stöng
marksins að utanverðu.
Þá kom afl Vestmannaeyingum.
Óskar Valtýsson átti þrumufleyg af
löngu færi á mark Vikings. Diðrik
Ólafsson varfli vel — sló knöttinn yfir
þverslá. Hornspyrna á þriðju mínútu.
Ómar Jóhannsson lók spyrnuna — gaf
inn á markteig Víkings. Diflrík hafði
hendur á knettinum og engin hætta
virtist verar-BiT Diðrik missti knöttinn
fyrir fæturnar á Sveini Sveinssyni, sem
þakkaði gotl bofl og renndi knettinum i
markhornifl. Litlu munaði þá afl
Ragnar Gíslason bjargaði á marklínu.
,,Ég taldi öruggt að elnn varnar-
manna Víkings myndi skalla knöttinn
frá — hann haffli aila möguleika á þvi
— og ég var því engan veginn við þvi
búinn afl fá knöttinn í fangið. Það var
svo óvænt að knötturinn snerisl úr
höndum mér," sagfli Diðrik Ólafsson
um atvikið.
Minútu síðar komst Hinrik Þórhalls-
son í opiö færi við mar.k ÍBV en Páll
Pálmason, bezti maður Vestmanna-
eyinga, varði snilldarlega með fírlgH*,-
gómunum á marklínunni. Páll var
ákaflega vakandi i markinu og i ein
fimm skipti hirti hann knöttinn af tám
leikmanna Vikings aðeins i fyrri hálf-
leiknum — m.a. eftir að Lárus
Guðmundsson hafði leikið á tvo
varnarmenn ÍBV innan vítateigs. Lárus
náði knettinum aftur en spyrnti þá
framhjá.
Vestmannaeyingar voru sterkari „í
loftinu” unnu flest skallaeinvígi eins og
svo oft áður síðan þeir byrjuðu að leika
í 1. deild — og á 17. min. náðu Vest-
mannaeyingar mjög góðu upphlaupi.
Knötturinn var gefinn fyrir Víkings-
markið — Sigurlás Þorleifsson stökk
hæst og skallaði snilldarlega á markið.
Maður beinlínis sá knöttinn í markinu
en á einhvern undraverðan hátt sveif
Diðrik upp undir þverslána og tókst að
slá knöltinn yftr. Mesta einstaklings-
afrekið i leiknum — markvarzla,
sem beztu markverðir heims hefðu
mátt vera stoltir af.
Eftir þessa skemmtilegu byrjun fóru
leikmenn verulega að gefa eftir — en
Víkingum tókst að jafna minútu fyrir
hálfleik. Diðrik átti langa mark-
spyrnu, vel inn á vallarhelming ÍBV.
Hinrik skallaði knöttinn yfir varnar-
menn ÍBV og Lárus Guðmundsson
nýtti vel hraða sinn. Skauzt inn fyrir
varnarmennina og sendi knöttinn
örugglega framhjá Páli, sem hljóp út
gegn honum. í hálfleiknum var Þórður
Hallgrímsson, ÍBV, bókaður.
Nokkrar breytingar voru gerðar á
liðunum í síðari hálfleik. Aðalsteinn
Aðalsteinsson kom inn strax eftir leik-
hléið fyrir Óskar Magnússon en
Jóhannes Bárðarson tók að sér að gæta
Björgvin Þorsleinsson komst aftur i
sviðsljósið i gær eftir margra mánaða
myrkur er hann sigraði í Johnny
Walker keppninni á Nesinu eftir ævin-
týralcgan endasprett. Björgvin leiddi i
keppninni eftir fyrri daginn — lék á 71
höggi, Hannes Eyvindsson var þá með
74 högg og þeir Óskar Sæmundsson og
Geir Svansson með 75. Eftir 27 holur
var Jóhann Ó. Guðmundsson skyndi-
lega kominn inn í myndina á 112 högg-
um en þeir Geir og Óskar áttu ekki
möguleika. Björgvin leiddi enn eftir 27
holur með 110 högg en Hannes var með
111. Lokaspretturinn var þvi æsispenn-
andi og aldeilis viflburðarikur.
Á 3. holunni í síðasta hringnum tókst
Jóhanni illa upp og missti þar með af
lestinni. Hannes og Björgvin börðust
áfram högg fyrir högg og að 3. holunni
lokinni voru þeir jafnir. Björgvin vann
eitt högg á Hannes á hverri af næstu
þremur holum. Hann var því með
þriggja högga forystu er þrjár holur
voru eftir og töldu flestir að sigurinn
væri i höfn. En ekki þó Hannes. Hann
gerði sér litiö fyrir og fór 7. brautina á
„eagle” á meðan Björgvin fór hana á
pari — 5 höggum. Er tvær holur voru
eftir munaði því aðeins einu höggi og
allt gat gerzt, og hvort það gerðist.
Upphafshögg Hannesar hafnaði á
„out of bounds” svæði þannig að hann
fékk víti og varð að slá aftur. Siðara
upphafshöggið tókst vel og hafnaði
boltinn á miðri braut. Ekki tókst hins
vegar svo vel til næst þvi boltinn tók sér
ferð á hendur niður i fjöruborðið. Alls
urðu högg Hannesar 8 á 8. brautinni og
þar með fór vonin um sigur. Björgvin
hélt sínu striki og sigraði á 149 högg-
um. Hannes lauk mótinu með 151 högg
i pokahorninu og Jóhann Ó. varð
þriðji á 153. í keppninni með forgjöf
sigraði Knútur Björnsson, GK, á 145
höggum nettó. Jón Árnason, NK, var á
147 og síðan urðu þeir Sigurður Haf-
steinsson, GR, Sigurður Pétursson,
GR, og Jóhann Ó. Guðmundsson jafn-
ir með 149 högg.
í kvennakeppninni sigraði Ásgerður
Sverrisdóttir, NK, á 87 höggum. Guð-
finna Sigurþórsdóttir, GS, kom inn á
89 höggum, Steinunn Sæmundsdóttir,
GR, og Kristín Þorvaldsdóttir, NK, á
93 höggum.
í kvennakeppninni með forgjöf sigr-
aði Kristine Eide, NK, á 76 höggum.
önnur varð Lóa Sigurbjörnsdóttir,
GK, á 76 höggum einnig en Kristine
sigraði i bráðabana. Aðalheiður
Jörgensen Nolan varð svo í 3. sæti með
79 högg netló.
Björgvin Þorstcinsson komst aftur I
sviflsljósifl í gær.
Sigurlásar. Þá kom Jóhann Þorvarðar-
son í stað Gunnars Arnar hjá Víking —
Óskar Óskarsson í stað Þórðar
Hallgrímssonar, sem bað um skiptingu,
og átta min. fyrir leikslok var Sigurlás
tekinn út af. Samúel Grytvík kom í
hans stað en skiptingin var ólöglega
framkvæmd. Það þýddi að Samúel var
bókaður um leið og hann kom inn á.
Litið var um marktækifæri í síðari
hálfleiknum — en Víkingar voru þó
klaufar að ná ekki forustu á 69. mín.
Lárus lék snilldarlega á varnarmenn
ÍBV og algjör panik varð í vörninni.
Markið blasti við opið en ekki tókst
Vikingum að koma knettinum rétta
boðleið. Páll varði að lokum i horn.
Rétt siðar lék Ragnar Gislason upp að
vítateig ÍBV, þegar illa var brotið á
honum. Aukaspyrna og Lárus
Guðmundsson sendi knöttinn beint i
mark ÍBV. En markið var dæmt af.
Dómarinn Guðmundur Sigurbjörnsson
hafði dæmt óbeina aukaspyrnu —
nokkuð skrítinn dómur það. Ragnar
meiddist það illa í þessum átökum að
nokkru fyrir leikslok varð hann að yfir-
gefa völlinn. Víkingar léku því tíu
síðustu minúturnar, þar sem báðir
varamennirnir höfðu verið notaðir.
Það kom ekki að sök — og það næsta,
sem Vestmannaeyingar komust í að
skora var hörkuskot frá Óskari, sem
rétt smaug yfir þverslá Víkingsmarks-
ins. .
í heild var þetta einn bezti leikur
Vikings á íslandsmótinu. Lárus
Guðmundsson bezti maður liðsins og
þessi 18 ára piltur hlýtur að eiga heima í
íslenzka landsliðshópnum. Frábærlega
leikinn og fljótur. Gunnar Gunnars-
son, annar kornungur piltur, einn af
íslandsmeisturum Víkings í handknatt-
leiknum, var sterkur miðvörður i sínum
fyrsta leik „úti á velli” í sumar. Var
markvörður flesta leikina á Reykja-
víkurmótinu. Þáátti Magnús Þorvalds-
son prýðilegan leik sem bakvörður.
Traustur og fljótur og Jóhannes
Bárðarson stendur vel fyrir sinu. Bezti
maður i isl. knattspyrnu til að taka að
sér ákveðinn mótherja. í framlinunni
var samvinna Lárusar og Hinriks oft
góð og Ómar Torfason er stöðugl vax-
andi leikmaður.
Hjá ÍBV átti Páll snilldarleik í marki
— Sighvatur Bjarnason sterkur varnar-
maður, svo og Gústaf Baldvinsson.
Óskar Valtýsson sivinnandi og hvetj-
andi félaga sína. Sterkur leikmaður.
Snorri Rútsson og Viðar Elíasson
traustir leikmenn. Hins vegar náðu
framlinumenn ÍBV sér ekki á strik i
IbHnuuu — Sigurlás óvenji: daufur svo
og Ómar JofrarmsfiQn.
-hsim.