Dagblaðið - 23.06.1980, Síða 28
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1980.
Með nýstárlegum aðferðum má komast hjá áföllum:
Við eigum okkar ,vanúðardaga
í lífi hvers einstaklings eru þrir
tímataktar, sem allir hefjast samtímis
við fæðingu og renna sitt skeið hlið
við hlið alla æfi. Fyrst er að nefna
23ja daga takt: líkamstaktinn, þá 28
daga takt: tilfinningataktinn og 33ja
daga takt: hugarstarfstaktinn. Með
athugunum á ýmsum þáttum likama,
tilfinninga og hugarstarfs í lífi fjölda
fólks hefur þessi niðurstaða fengist.
Dr. Hermann Swoboda (1873—
1963), prófessor í sálarfræði við
háskólann i Vín benti einnig á þetta
sama nokkru seinna með athugunum
sínum á 23ja og 28 daga takti sár-
sauka og bólgu áf völdum skordýra-
bits, hitasóttar og hjartaáfalls.
Nafnið bíóryþmi þýðir lífstaktur,
eða með öðrum orðum stutt tímabil,
sem endurtaka sig í lífi hvers og eins.
Með statiskum rannsóknum
hefur komið i ljós að skipta má
hverjum takti (23, 28 og 33 daga)
niður í tvo hluta: Virkan eða
jákvæðan hluta, sem er fyrri hluti
taktsins, og óvirkan eða neikvæðan
hluta, sem er seinni hluti hans. Ætíð
þegar skiptir úr virkum yfir í óvirkan
hluta taktsins eða öfugt, þ.e. á
núllínu bíóryþmatöflunnar eru svo-
kallaðir varúðardagar, þar sem
mönnum er mest hætta á ýmsum
mistökum, slysahætta eykst o.s.frv.
Varúðardagarnir eru með ellefu og
hálfs, fjórtán og sextán og hálfs dags
millibili. Lífstakt hvers og eins má
reikna út eftir fæðingardegi og færa
upp í töflu en þá fyrir lengri tíma en
33 daga t.d. eitt ár.
Kúrfurnar þrjár, sem teiknaðar eru
eftir virkun lifstaktsins, skerast á
ýmsa vegu, þar sem taktarnir þrir eru
mislangir. Raunar verður staða kúrf-
anna hvorrar til annarrar ekki aftur
eins og á fæðingardaginn fyrr en að
liðnum 58 árum og 67 dögum. Auk
varúðardaganna á núllinunni eru
tveir aðrir dagar í hverjum takti, sem
rétt er að gæta að. Það eru hápunktar
og lágpunktar kúrfanna, en þá á
starfsorkan annars vegar að vera í
hámarki en hins vegar i lágmarki.
Dregið úr
slysum
Það var fyrst árið 1939, að Dr.
Hans Schwing, sem vann þá við sviss-
nesku tæknistofnunina, kom fram
með þá hugmynd að nota mætti bió-
Kjallarinn
Einar Þorsteinn
Ásgeirsson
ryþmann til hindrunar á slysum og
stórminnka þannig slysatíðni. Hann
rannsakaði tryggingarskýrslur 700
verkamanna, sem höfðu lent í
slysum, og ennfremur dauða annarra
300 verkamanna i Zúrich. Af 700
slysum höfðu 401 átt sér stað á
varúðardegi og af 300 dauðsföllum
höfðu 197 átt sér stað á slíkum
dögum. í framhaldi af þessum
rannsóknum urðu margir vísinda-
menn til þess að gera svipaðar rann-
sóknir og komust þeir að svipuðum
niðurstöðum.
Ýmsar skýringar eru til um orsakir
fyrir dagafjölda hvers takts bíó-
ryþmans. T.d. er bent á áhrif
hormóna en aðrir vilja benda á utan-
aðkomandi áhrif, eins og áhrif
tungslins á manninn. Hvað um það
þá sýnir reynslan, að sé nýtt eða fullt
tungl á varúðardögum, þá er enn-
fremur ástæða til að gæta varúðar i
daglegu starfi og mannlegum sam-
skiptum.
Öll þekkjum við dagana, sem alltaf
koma öðru hvoru, en á þeim er eins
og ekkert ætli að takast en allt gengur
á afturfótunum, hvað svo sem maður
reynir. Þessa daga væri best að taka
sér góða bók í hönd og hreyfa sig
ekki úr húsi. Oftar en ekki kemst
maður að því, að þetta eru einmitt
varúðardagar, stundum tvöfaldir
(tvær kúrfur skerast á núllínu).
Nú má ekki misskilja bíóryþmann
þannig, að eitthvað hljóti að koma
fyrir mann á varúðardögum, alls
ekki. Sem dæmi um, hvernig hann
kemur helst að gagni má t.d. benda
á það, að skurðlæknar, sem notast
við bíóryþmann, skera ekki sjúkling
á varúðardegi hans. íþróttaþjálfarar
velja ekki þá leikmenn i kappleik sem
fellur á varúðardag þeirra. Einstakl-
ingur velur sér t.d. þá daga, sem
hann á von á miklu álagi, þannig að
þeir falli ekki á varúðardaga. Hann
undirbýr sig þannig á varúðar-
dögunum, að hann hafi i hendi sér
hvað gerist. Komið getur fyrir, að
fólk hætti að verða vart við erfiða
daga, eftir að það fer að fylgjast með
bíóryþma stnum og efast því að hann
eigi við sig. En það er þá vegna þess
að það undirbýr sig svo vel undir
varúðardagana, að ekkert óvænt
hendir það einmitt þá daga.
Ýmsar þjóðir nota bíóryþmann
meira, aðrar minna. f Evrópu er
hann töluvert notaður, einkum á
sviði íþrótta. I Japan er notkun hans
hvað víðtækust og eru frægustu
dæmin þaðan um fækkun umferðar-
slysa hjá stofnunum og fyrirtækjum
með aðstoð bíóryþmanns.
En það eru ekki bara fyrrnefndir
fjórir dagar í hverjum takti, þar sem
bíóryðþminn getur komið að notum.
Virku og óvirku hlutar hans segja
einnig sína sögu. Margir falla í þá
gryfju að telja þann fyrrnefnda
algóðan og þann síðarnefnda al-
slæman. Þetta er engan veginn rétt.
Hins vegar gefa þessir tveir hlutar tií
kynna hvernig maður getur best not-
fært sér þá báða. — Sem dæmi má
nefna, að sé einhver að eðlis-
fari ofspenntur og vinnur þess vegna
afar hratt, þá er óvirka tímabilið
betur til þess fallið fyrir hann að
vinna að vandasömu verki en virka
tímabilið.
Gott er að hafa í huga hvernig
lengd taktanna var upphaflega
fundin út, þ.e. með statistískum
mælingum. Það þýðir að lengd takt-
anna þriggja, eða 23, 28 og 33 dagar
eru meðaltalstölur eða dagafjöldi,
sem passar fyrir meirihluta fólks.
Reynslan hefur sýnt að sumt fólk
gengur nákvæmlega eins og klukkur
eftir þessum tímalengdum. Hjá
öðrum eru hins vegar frávik þó mis-
munandi löng, en um 80% fólks eru
innan tveggja daga fráviks i báðar
áttir frá bíóryþmalínuriti, sem byggir
á fæðingardegi þeirra.
Á þessari vitneskju er nauðsynlegt
að byggja notkun bíóryþmans.
Maður skráir inn þá dag, sem manni
virðast góðir eða slæmir til að sjá
hvernig þeir tengjast útreiknaða línu-
ritinu. T.d. er gott að merkja þrjá
plúsa fyrir frábæran dag, tvo ef hann
var þokkalegur og einn plús ef hann
var nokkurn veginn í lagi. Ef dagur-
inn var ekkert sérstakur þá þýðir það
einn mínus, tvo ef hann var slæmur
og þrír minusar þýða, að maður er
með þunglyndiskast.
Hér á eftir fer almennt yfirlit yfir
þýðingu taktanna þriggja:
Líkams-
takturinn
Þýðingarmikill fyrir íþróttamenn,
verkamenn og sjúklinga.
Virki hlutinn: Nægilegur viðnáms-
þróttur. Gott fyrir ferðalög, kapp-
leiki, iþróttir og aðrar líkamsbyggj-
andi æfingar eða líkamlega vinnu.
Einnig góður tími fyrir skurðað-
gerðir.
Varúðardagurinn: Óstöðugt
ástand likamans. Hér geta átt sér
stað slys, sjúkdómsástand versnað,
eða sjúkdómar eins og kvef,
höfuðverkir, ofnæmi eða hjarta-
slag náð valdi á líkamanum.
Óvirki hlutinn: Ónógur líkams-
þróttur Góður tími fyrir venjuleg
viðfangsefni og mikla hvíld. Ekki
gott að eyða of miklum krafti og
forðast yfirvinnu.
Tilfinninga-
takturinn
Þýðingarmikill fyrir listamenn, at-
vinnuíþróttamenn og fólk sem á í
viðskiptum.
Virki hlutinn: Nægilegt úthald.
Gott fyrir samkeppnir, próf, fyrir-
lestrahald, upptroðslur, stefnumót
eða að biðja sér konu. Einnig góður
timi til að taka þátt i hópefli.
Varúðardagurinn: Óstöðugar til-
finningar. Hér er mönnum hætt við
að segja ýmislegt, sem betur væri
ósagt látið, eða lenda í ryskingum eða
slysum. Líkindi til að hjartaáföll,
niðurfallssýki og versnandi sjúk-
dómseinkenni eigi sér stað á þessum
tíma.
Óvirki hlutinn: Ónógt úthald.
Varúð i samskiptum við annað fólk.
Best að byrja ekki á neinu nýju en
sinna daglegum störfum.
Hugarstarfs-
takturinn
Þýðingarmikill fyrir stúdenta,
námsmenn, vísindamenn, stjórn-
málamenn og stjórnendur.
Virki hlutinn: Skarpskyggni.
Góður tími til að byrja á einhverju
nýju, skipuleggja, vinna að tilraun-
um, ræða eða framkvæma pólitísk
markmið eða byrja á verkefnum á
nýjum sviðum.
Varúðardagurinn: Hugarstarfsemi
óstöðug. Minni slævist, hugljómun
dregst saman. Gleymni og hjáræna
taka við og hætt er við mistökum.
Óvirki hlutinn: Hugarstarfsemi i
lægð. Best að fást við gagnasöfnun
eða álíka. Ekki leggja of mikið á
minnið.
Bíóþyþma má einnig nota til þess
að velja saman fólk til ýmissa starfa
eða áætla, hvemig fólk reynist í
sambúð. Þá eru bornir saman taktar
viðkomandi fólks, hver fyrir sig.
Hvernig hefur
bíóryþminn verið
notaður?
Eins og áður segir hefur
bíóryþminn einna mest verið notaður
í Japan. Sá maður, sem einna mest
hefur talað máli hans þar og notað
hann í samræmi við það, er prófessor
Kichinosuke Tatai við Landbúnaðar-
háskóla Tokyo. Á alþjóðavettvangi
hefur hann mest starfað fyrir þjóð
sína á sviði sjálfsmorðsvarna, en sér-
fræðisvið hans eru sálrænt orsakaðir
sjúkdómar og hegðunarvísindi. Hann
hefur um árabil unnið virkt að
ráðgjöf um notkun bíóryþma í fyrir-
tækjum og stofnunum.
Árið 1967 gerði prófessor Tatai
bíóryþmaprógramm í því skyni að
stuðla að fækkum umferðarslysa í
Japan. Nokkur flutningafyrirtæki og
opinberir aðilar tóku það fljótlega í
notkun með þeim árangri að
umferðarslys á þeirra vegum
minnkuðu frá þriðjungi upp í 75%. 1
dag er þetta prógramm notað af
öllum raforkufyrirtækjum Japan og
sömuleiðis af japanska hernum.
Meginuppistaðan í þessu
prógrammi var að upplýsa alla
bílstjórana um eðli bíóryþmans og
gera töflur þeirra. Á varúðardögum
unnu þeir ekki, ef álitið var hætta á
slysum af þeirra völdum.
Almennt ráðleggur Tatai bíl-
stjórum að gæta mjög vel að sér í
umferðinni á varúðardögum, einkum
vegna tregari likamsviðbragða. Sér-
staklega bendir hann þeim á að láta
vera að taka fram úr bifreiðum á
tilfinningalegum varúðardögum eða
gera annað það, sem getur valdið
æsingi meðan þeir sitja undir stýri. Á
hugarstarfslegum varúðardögum á
að taka vel eftir umferðarmerkjum
og gangandi fólki, þar sem athyglin
er ekki eins vakandi á slikum dögum.
Annað helsta, sem bíóryþminn
hefur verið notaður við, er þetta: í
íþróttum til þess að velja saman
hæfasta liðið á ákveðnum dögum,
eða vara íþróttamenn við slysum í
keppni. — Þá hefur hann einnig verið
notaður til þess að velja hæfileg
verkefni fyrir skólabörn og aðra
nemendur.
Hvernig bezt er
að nota bíó-
ryþmatöfluna
Þegar maður hefur fengið
bíóryþmatöflu næsta árs i hendurnar
en þær er hægt að fá- gerðar (nánari
upplýsingar hjá höfundi þessarar
greinar) hér á landi, er best að setja
sig inní töfluna með því að merkja
alla varúðardaga með svörtum
hringjum.
Einar Þorsteinn Ásgeirsson,
hönnuður.
Kefíavík— Suðurnes
Kynningarfundur
Pétars J.
Thorsteinssonar
forsetaframbjóðanda
verður haldinn í Félagsbíói Keflavík þriðju-
daginn 24. júní og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
Ræða Póturs J. Thorsteinssonar
Á vörp f/ytfa:
Oddný Thorsteinsson
Eriingur Björnsson
Eria Stefánsdóttir,
Sigríöur Einarsdóttir,
Vattýr Guðjónsson
Fundarstjóri: Arnbjörn Ólafsson, læknir
Komió og kynnizt
Oddnfju og Pétri J. Thorsteinssyni.
SNOGGUR
RASFASTUR
TÖGGURHF.
SAAB. Hinn sérstæói bíll frá Svíþjóó umboI®
í Japan hefur tekizt að draga úr slysa-
hættu með þessum aðferðum.