Dagblaðið - 23.06.1980, Qupperneq 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1980.
..................
29
EKKIFULLNÆGIANDINÆMNG
Gallerí Suðurgata 7 á Listahátíð
Það hefur verið hljótt um Gallerí
Suðurgötu 7 að undanförnu og jafn-
vel farið að bera á orðrómi um niður-
rif eða flutninga á húsinu sökum
þrýstings frá nokkrum lóðareig-
endum. Þó skilst mér að lítið verði
gert í þeim málum á þessu ári. Á
meðan láta aðstandendur ekki deigan
síga og hafa galvaskir bókað
sýningaraðstöðuna árið út.
Fyrir stuttu varð Galleríið þriggja
ára og heldur það óformlega upp á
afmælið með þátttöku í Listahátíð.
Framlag þess er sýning á verkum 5
aðstandenda, — Bjarna H. Þórarins-
skuli vera fulltrúar gallerisins á Lista-
hátíð, sérstaklega þar sem einn þátt-
takenda, Halldór, sýnir nú þarna i
fyrsta sinn.
Sjónrœnir
brandarar
og Ijóðrœn innsýn
Eins og sýningin er samansett gefur
hún engan vegin fullnægjandi mynd
af þeirri islensku nýlist sem sýnd
hefur verið á staðnum undanfarin
Friðrik Þór Friðriksson — Falling in love
r
listahAtíð
1980
AÐALSfEiNN
INGÖLFSSON
sonar, Friðriks Þórs Friðrikssonar,
Halldórs Ásgeirssonar, Margrétar
Jónsdóttur og Steingríms Eyfjörð
Kristmundssonar. Þetta er að vísu
harðsnúið lið, en samt er ég ekki
alveg klár á forsendum þess að
akkúrat þessir fimm en ekki aðrir
misseri, auk þess sem á henni eru
veikar hliðar. Veikir punktar eru
t.a,m. í verkum Bjama H. Þórarins-
sonar, sem sýnir ljósmyndir og teikn-
ingar. Hann er í senn helst til áhrifa-
gjarn (notar „spíral” Robert Smiths-
ons einu sinni enn. . . .) og ófær um
Verk eftir Margréti Jónsdóttur.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir
maímánuð 1980, hafi hann ekki verið
greiddur í síðast lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum
söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag
eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en
síðan eru viðurlögin 4^75% til viðbótar
fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaróðuneytið
20. júní 1980.
að greina á milli sjónrænna brandara
og ljóðrænnar innsýnar. Fiska-upp-
stiilingar hans í í undurfögrum litum
mundu flokkast undir brandara —
þær framkalla eitt bros, gleymast
svo. Hins vegar sýnir Bjarni lit í
skemmtilegri svarthvítri teikningu
(„Sneið lands”). Friðrik Þ. Friðriks-
son hefur frá upphafi beitt ljósmynd-
um til að koma hugmyndum sínum á
framfæri. Hann getur hins vegar
státað af ljóðrænni skaphöfnsember
ríkulegan ávöxt í myndunum. Fyrri
verk hans voru absúrd útleggingar á
orðatiltækjum og málsháttum
íslenskum og þótt enn eimi eftir af
fáránleikanum í uppstillingum hans,
þá eru þær nú gegnsýrðar meiri
skáldskap en áður. „Falling in love”
og „Nostalgia” eru sérstaklega
skondin myndljóð.
^ m
r f
L i
r i
r
f -i
.iiirfmfjsi
íslenskir
nytjafiskar
Ljósmyndir eru einnig á dagskrá
hjá Halldóri Ásgeirssyni sem ber
sundurskorinni bók við ýmsa nátt-
úru; eld, lauf, haf, himin. Vissulega
er skáldskapur í þessu, en hugmyndin
er ekki ný, auk þess sem ljósmynda-
vinnslan gæti verið betri.
Sérkennilegur myndheimur
Margrétar Jónsdóttur hefur vakið
athygli ófárra, þ.á m. undirritaðs.
Þótt ég treysti mér ekki til að segja
hvað hún er að fara í myndum sínum
þá er engan veginn hægt að afneita
því seiðmagni sem af þeim stafar.
Bjarni H. Þórarinsson — Sneið lands
Margrét virðist hafa lag á að stilla
saman ólíkustu fyrirbærum þannig
að þau vinni saman á einhvern óút-
skýranlegan hátt. Hér eru það
íslenskir nytjafiskar og einhvers
konar innpakkaðir hraukar sem eiga
samleið í myndum hennar.
Vantar
herslumuninn
Steingrímur Eyfjörð Kristmunds-
son heldur uppteknum hætti i sínum
verkum, þ.e. að setja fram í sérstöku
teiknimyndaformi ýmsar rannsóknir
sínar og annarra á þjóðfélagsháttum,
stjórnmálum og fjölmiðlun, — eða
öllu í senn. Myndirnar hafa talsverða
vinnu í för með sér fyrir sýningargest-
inn og ekki tókst mér að finna tíma
til rækilegrar skoðunar þeirra. Þó er
ég ekki frá því að óskipuleg mynd-
gerð Steingríms, spennandi sem hún
er fyrir augað, komi i veg fyrir að
boðskapurinn komist boðleiðina að
vitundinni, — sé miðlun boðskapar
markmið listamannsins.
Þótt hreinlegur og frísklegur blær
sé yfir þessari sýningu, vantar herslu-
muninn á að hún næri auga og huga
sem skyldi.
-AI.
ERUM FLUTTIR AÐ
GRENSÁSVEGI 8, REYKJAVÍK
SlMANtJMER ÓBREYTT
84^66 g. ÓLAFSSON HF
GRENSÁSVEG! 8
ISB0RG
Suðurlandsbraut 12. I
op®
23-3°
AV
uadaga
• ís — Shake.
• Bananasplit.
• Gamaldags ís
með rjóma
• ísfötur.
HEITf:
Kakó
Pylsur
NÆG Samlokur
BÍLASTÆÐI. Hamborgarar
<55 S
$
**» ~t_
§;
«3 <
■ s
5 -
'S