Dagblaðið - 23.06.1980, Blaðsíða 31
-<l
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1980.
8
Utvarp
Sjónvarp
i)
ÞETTA ER SJÓNVARP - sjónvarp kl. 21,15:
Þegar óvelkom-
inn gestur birtist
á skjánum
,,Þeim, sem finnsl gaman að vísinda- Leikritið segir frá manni, sem vinnur
skáidsögum, likar eflaust myndin,” í sjónvarpstækjaverksmiðju og
sagði Dóra Hafsteinsdóttir, en hún uppgötvar að hann gelur komið fram í
þýddi danska leikritið, sem sýnt er í sjónvarpsviðtækjum með því að ein-
sjónvarpi i kvöld. Það heitir Þetta er beita huganum. Mannræfillinn sætir
sjónvarpstæki ogerí léttum dúr. svo miklu aðkasti þegar hann fer að
stunda þá iðju að forstjórarnir reyna
hvað þeir geta til að fá hann ofan af
þessu hátterni sínu.
Leikritið er nýtt af nálinni og að sögn
þýðanda er það alveg þokkalega gert.
-SA.
KGB-MAÐUR LEYSIR FRÁ SKJÓDUNNI - sjónvarp kl. 22,05
NJÓSNIR RÚSSA
VÍDA UM LÖND
Síðast á dagskrá sjónvarps í kvöld
er brezk fréttamynd um háttsettan
starfsmann KGB, sem nýlega leitaði
hælis i Bretlandi. Hann ræðir m.a.
um þjálfun sína hjá leyniþjónust-
unni, KGB, athafnir hennar víða um
lönd og ólympíuleikana i Moskvu.
Þýðandi er Jón O. Edwald.
llya Dzhirkvelov, en svo heitir
starfsmaðurinn, barðist í Rauða
hernum í stríðinu og var m.a. i
árásarsveitum, er gerðu árásir á
Þjóðverja að baki víglínanna. Er
stríðinu lauk var hann i tvö ár i
þjálfunarskóla KGB t Moskvu en
hefur siðan unnið hin margvíslegustu
störf. Ilya vann t.d. við alþjóða heil-
brigðismálastofnunina í Genf, en
aðalstarf hans þar var njósnir í þágu
Sovétríkjanna. Ilya komst að því að
til stæði að kalia hann heim, og beið
þá ekki boðanna heldur hélt til Bret-
lands, þar sem hann dvelst nú.
Uppljóstranir hans hafa veitt
Bretum kærkomnar upplýsingar um
KGB, bæði skipulag leyniþjónust-
unnar og athafnir.
Ilya ræðir einnig um ólympiu-
leikana i Moskvu, en hann telur þá
hafa mikið áróðursgildi fyrir Sovét-
menn.
-SA.
«
Margir njósnarar hafa leilað hælis í
„föðurlandi” sínu, en sá frægasti er
sennilega Brelinn Philby sem flúði til
Sovétríkjanna fyrír hartnær 20 árum.
V0LÆÐI UM !
í AFRÍKU HELGINA j S í
Frekar fátt bitastætt var í
sjónvarpi um helgina. Að visu var
sjónvarpið með betra móti á föstudag
og bar þar af kvikmyndin sem var ein
sú albezta, sem rekið hefur á fjörur
sjónvarpsins i langan tíma. Hversu
sannsöguleg myndin er skal enginn
dómur lagður á. en hún dró upp
góða mynd af lífi fátækra í þurrka-
héruðum Afriku. Heldur var hún
ömurleg myndin og eymdin og vol-
æðið virtist engin takmörk eiga sér.
En Afríkubúarnir töpuðu aldrei
trúnni á sjálfa sig og héldu sinni lifs-
gleði, þótt ferðin til fyrirheitna
landsins sæktist hægt. Eftir mynd
sem þessa má velta fyrir sér hvort
nokkur Afríkubúi komist lifandi á
leiðarenda, því með sanni má segja
að við hvert fótmál hafi leynzt nýjar
hættur.
Pavarotti gladdi hug og hjörtu
áhorfenda í Laugardalshöll og hlust-
enda útvarps. Mikil er rödd
mannsins og enginn varð illa svikinn
af að hlusta á „gullna tenórinn” eina
kvöldstund. Sérstaklega þótti mér
gaman að heyra lýsingu frétta-
manns útvarps á hljómleikunum
daginn eftir. Sá lýsti hoppum og
skoppum og lófaklappi áhorfenda á
skemmtilegan hátt. Eflaust hefur það
verið hin ótrúlegasta sjón að sjá
helztu menningarfrömuði landsins
láta eins og smákrakka á þrjú-biói.
Forsetaframbjóðendurnir mættu
til leiks i útvarpi og sjónvarpi og var
ekki seinna vænna fyrir þá að koma
fram fyrir alþjóð. Án efa hafa margir
haft gagn af því að sjá fjór-
menningana saman svara
spurningum fréttamanna og ekki var
verra að heyra þá spyrja hverjir aðra.
Enginn fannst mér bera af öðrum og
betur má ef duga skal til að klófesta
atkvæði undirritaðs. Að þættinum
loknum veltu margir vöngum yfir því
hvers vegna frambjóðendur hefðu
ekki verið kynntir fyrr í rikis-
fjölmiðlunum. Nú hafa fjölmargir
greitt atkvæði utan kjörstaðar en vel
má vera að sum þau atkvæði hefðu
fallið á annan veg ef fram-
bjóðendurnir hefðu fyrr fengið að
koma fram í sjónvarpi eða úlvarpi.
Eitt heljarmikið ,,show” setti
svip á sjónvarpið í gærkvöldi, en þar
komu fram herskari þekktra leikara.
Skelfing fannst mér þó lítið koma til
skemmtiþáttarins og eitt andartak
fagnaði ég þvi að júnimánuður er
senn á enda. Myndin á eftir var mun
betri, og náði hún að rífa kvöldið upp
úrmikiili ládeyðu.
Ekki er timinn á þætti Óla H.
Þórðarsonar, Syrpu, alveg nógu
góður. Þetta er ágætisþáttur, en ég
held að hann fari fyrir ofan garð og
neðan hjá flestum meðan hann
verður að þola að vera siðastur á
dagsskrá sunnudagsins.
-SA.
Með einbeitni tekst söguhetju sjónvarpsmyndarínnar að koma fram i sjónvarpsvið-
tækjum, þótt sennilega geti hann ekki leikið listir kappans á myndinni eftir.
Kosningaútvarp
á stuttbylgju
Vegna kosninga til embættis
forseta íslands, sem fram eiga að fara
þann 29. júni nk. verður dagskrá
Rikisútvarpsins send út á stuttbylgju
frá kl. 18.30 að kvöldi kosningadags
til kl. 13.00 daginn eftir, eða þar til
talningu lýkur.
Utvarpað verður á eftirtöldum
bylgjulengdum.
13950 kHz eða21.50m
12175 kHzeða 24.64 m
9181 kHzeða 32.68 mog
7673 kHzeða 39.10 m ,SA.
EINNIGIOLÍULAMPASTÍL
NY SENDING
AF LEÐURLOMPUM
póstsendum
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJOS & ORKA
Suðurlandsbraut 1Z
sími 84488