Dagblaðið - 23.06.1980, Síða 32
frfálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ1980.
Forsetakjör ’80:
Talið eins og
í alþingis-
kosningum
„Talningu verður hátlað á sama
hátt og í alþingiskosningum, þ.e.a.s.
að talið verður í kjördæmunum átta,”
sagði Baldur Möller ráðuneytisstjóri i
dómsmálaráðuneytinu í samtali við DB
í morgun. „Verður talningin opinber á
sama hátt og við alþingiskosningar,
þ.e. að gefnar verða upp tölur á hverj-
um talningarstað,” sagði Baldur.
Menn hafa velt fyrir sér hvernig
talningu við forsetakosningarnar
verður háttað, hvort eiga megi von á að
hún verði með svipuðum hætti og í
alþingiskosningum eða með einhverj-
um öðrum hætti. Svo menn geta farið
að hlakka til spennandi kosninganætur
yfir rikisfjölmiðlum, útvarpi eða
sjónvarpi. -BH.
Viðræður BSRB og
ríkisins:
„Allt fast”
— segir Kristján
Thorlacius um launaliði
Það er allt fast varðandi launaliði,”
sagði Kristján ' Thorlacius, formaður
BSRB, i morgun. Fundur undirnefndar
um kjarakröfur bandalagsins hófst kl.
9 og síðdegis kemur aðalsamninga-
nefnd BSRB santan til fundar. Kvaðst
Kristján ekki eiga von á því að umræð-
an um launaliði breyttust fyrr en fjár-
málaráðherra kæmi heim í miðri
vikunni.
Vegna frásagnar um að samkomulag
væri að nást um ýmis réttindamál vildi
Kristján taka fram að enn vantaði
mikið á að svo væri, þótt þar hefði
náðst betri árangur en í kjaraþáttun-
um. -GM
Stálu bílum
í röðum
Piltar frá unglingaheimilinu i
Kópavogi voru nokkuð atkvæða-
miklir í bilaþjófnuðum aðfaranótt
Iaugardags. Þeir stálu bílum i
Reykjavik og Mosfellssveit og óku
víða um. Lögreglan í Kópavogi sagði
í morgun að piltarnir hefðu verið á
þremur bílum um nóttina og visuðu
auk þess á einn bil sem var ófundinn
frá 17. júní.
Á Hávegi í Kópavogi missti einn
piltanna stjórn á stolnum bil og fór
hann inn i innkeyrslu og skemmdi bíl
þar. Hinir bílarnir sem stolið var
voru einnig eitthvaðskemmdir. -JH.
— „Reisn og glæsileika Vigdísar er við brugðið,” sögðu stuðningsmenn
hennar m.a. á fundinum
„Reisn og glæsileika Vigdísar Finn-
bogadóttur er við brugðið. Hún er
verðugur fulltrúi okkar og sameining-
artákn,” sagði Sveinn Jónsson bóndi i
ávarpi á kosningafundi stuðnings-
manna Vigdisar Finnbogadóttur i
Íþróttaskemmunni á Akureyri sem
haldinn var um miðjan dag í gær. Á
fimmtánda hundrað manns sóltu
fundinn og rikti þar baráttustemmning.
Auk Sveins fluttu ávörp á fundinum
Jón Ríornsson félagsmálastjóri, Jón
Siguröat'ou ' erkfræðingur.Svanhildur
Björgvinsdóttir kennari og Valgerður
Sverrisdóttir húsfreyja. Um tónlist og
skemmtiatriði sá blásarasveit undir
stjórn Roars Kvam, Ingimar Eydal og
leikararnir Kjartan Ragnarsson,
Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigurður
Ragnarsson og Soffia Jakobsdóttir.
Fundarstjóri var Érlingur Sigurðarson.
í lok fundarins flutti forsetafram-
bjóðandinn Vigdís Finnbogadóttir
ræðu og fjallaði um sérkenni islenzkrar
menningar. ,,Við eigum hvorki kastala
né hallir til minningar um fortíð okkar,
aðeins landið og orðið,” sagði hún.
,,Ég á þá ósk heitasta að hið frjálsa orð
fái að lifa með þjóðinni.”
Ávörpin á fundinum voru jafnt i
bundnu sem óbundnu máli. Valgerður
Benediktsdóttir færði t.d. Vigdisi eftir-
farandi kveðskap Kristjáns Benedikts-
sonar á Akureyri:
Til að i vmka réttindi
og rilta gömlum fordómi
veljum landar Vigdisi
svo verði kona forseti.
Sumum Albert sýnist góður
ogsætt hjáPétriogGuðlaugi,
en viljirðu auka íslands hróður,
áttu að kjósa Vigdísi.
Annað kvöld, þriðjudagskvöld,
efna stuðningsmenn Vigdísar
Finnbogadóttur siðan til kosningahá-
tiðar „Jónsmessugleði”, í Laugardals-
höll i Reykjavik.
-GM.
Mannleg viðbrögð kerfisins:
Eyddu hveitibrauðsdögunum
tvö saman í fangaklefanum
„Þetta var engin skrautsvíta, en
þar áttum við gleðidaga, þótt þeir
væru ekki skuggalausir og kæmu
nokkrum mánuðum eftir brúðkaup-
ið, sem var á annan í jólum,” sögðu
ung hjón sem eyddu hveitibrauðsdög-
unum í fangelsinu á Skólavörðustig
9. Þeir stóðu í sex vikur og lauk eftir
miðjasíðustu viku.
„Þessir samverudagar hafa styrkt
okkur í þeim ásetningi að verða nýtir
þjóðfélagsþegnar,” sagði brúð-
guminn, Tryggvi' Rúnar Leifsson.
Hann heldur áfram að afplána sinn
dóm á Litla-Hrauni. Þar hefur hann
reynzt mjög góður nemandi í iðn-
námi, sem hann stundar þar.
Félagar hans segja að hann hljóti
að teljast fyrirmyndarfangi og gæzlu-
menn sem DB hefur haft samband
við bera honum góða sögu.
Brúðurin varð á sínum tíma sek um
minni háttar afbrot á fjármálasviði,
sem þó varðaði fangelsi, eins og i
pottinn var búið. Þar kom i byrjun
maímánaðar að hún fékk kvaðningu
um að afplána fangelsisdóm sinn.
Eiginmaðurinn afplánar þyngri dóm
á Litla-Hrauni sem fyrr segir.
Kerftð brást nú svo mannlega við
að leyfa ungu hjónunum að afplána
samtímis í fangelsinu á Skólavörðu-
stíg 9 þær sex vikur sem konan varð
að taka út sinn dóm. Var þetta leyft
með tilliti til góðrar hegðunar og ann-
arra aðstæðna.
Samfangar, sem fréttamaður DB
hefur rætt við eða haft spurnir af,
samgleðjast hjónunum og þykir vita
á gott að kerfið hefur sýnt mannleg-
um ástæðum skilning af því tagi, sem
ekki er vitað um fordæmi fyrir. - BS
LUKKUDAGAR:
22. JÚNÍ 19805
Tesai ferðaútvarp.
23. JÚNÍ 247
Hljómplötur að cigin vali
frá Fálkanum, fyrir 10 þúsund kr.
Vinningshafar hringi
ísíma 33622.
Hávaðarok setti strik í reikninginn hjá kartöflubændum í Þykkvabæ:
JARÐVEGUR FAUK OF-
AN AF KARTÖFLUNUM
— „bjargast kannski ef ræturnar eru óskemmdar” segir kartöflubóndi
Kartöflubændur í Þykkvabænum
urðu fyrir alvarlegu áfalli um helgina
þegar gerði hávaðarok um hádegisbil
á laugardaginn sem stóð i meira en
sólarhring. Fauk ofan af kartöflum í
görðum nokkurra bænda og hlauzt
afmikiðtjón.
„Þetta er mikið áfall og slæmt,”
sagði Daníel Hafliðason bóndi i Búð í
Þykkvabæ í morgun. Bændur voru
þá að kanna ástandið í kartöflugörð-
unum.
,,Hér voru 8—9 vindstig í gærdag
og sá ekki út úr augum. Það er alveg
Ijóst að tjónið er mikið. Sérstaklega í
görðum þar sem mikill sandur er.
Grös sem komin voru upp eru stór-
skemmd eða ónýt og víða fauk allt
ofan af og ræturnar komu upp úr
jarðveginum. Við förum strax i að
reyna að bjarga þvi sem bjargað
verður. Það bjargast kannski ef ræt-
urnar eru í lagi en það er ómögulegt
að segja núna hvernig þetta fer.”
Miklir þurrkar hafa verið undan-
farnar vikur á Suðurlandi. Hættara
var því við skemmdum í kartöflu-
görðunum þegar hvessti.
- ARH
Eftir velheppnaóan kosningafund i Akurcyri hélt Vigdis Finnhoyadóttir flugleidis I dalshöll annað kvöld. Hér rœðir hún við Hjört Eldjirn Þðrarinsson hreppstjðra i
til Reykjavikur þar sem stuðninysmenn hennar efna til Jðnsmessuyleði i l.auyar- | Svarfaðardal. -DB-mynd: Raynar Th.
Kosningafundur Vigdísar Finnbogadóttur á Akureyri í gær :
„HIÐ FRJÁLSA ORD FÁIAÐ
LIFA MEÐ ÞJÓÐINNI”