Dagblaðið - 27.06.1980, Blaðsíða 28
Viðræður BSRB og ríkisins:
„ALLT STENDUR FASTI
ÞESSUM VWRÆÐUM”
—en ekki rætt um launaþáttinn, segir Kristján Thorlacius
„Ríkisstjórnin hefur ekki enn
reynzt reiðubúin að ræða launaþátt,
vísitölumál, launaupphæð og samn-
ingstímabil,” sagði Kristján Thorla-
cius, formaður BSRB, i samtali við
DB í morgun uni stöðuna i samninga-
viðræðunum.
Kritsján kvað viðræður hafa verið
i undirnefndum síðustu daga og þeim
yrði haldið áfram i dag. Á mánudag
verður haldinn sáttafundur með
ríkissáttasemjara. Engar viðræður
verða um helgina.
Kristján Thorlacius kvaðst ekki
átta sig á þeim ummælum Ragnars
Arnalds fjármálaráðherra i Þjóðvilj-
anum í morgun að samningaviðræð-
urnar væru komnar á nýtt stig.
,,En nú á næstu dögum þarf að
reyna á hver framvindan verður.i
Ríkisstjórnin hefur ekki treyst sér til
að taka afstöðu en ef ummæli
Ragnars þýða að þar hafi orðið
breyting á fagna ég því,” sagði Krist-
ján.
„Annars er allt fast í þessum við-
ræðum. Það hefur þokazt áfram i
sambandi við réttindamál, en stórum
atriðum þar er enn ólokið. Eins hefur
sáralítið þokazt í sambandi við
kröfugerð hjá undirnefndum,” sagði
Kristján Thorlacius. -GM
DB-myndin SÞS og Bj.Bj.
Mikið jjölmcnni var á útifundi stuðningsmanna Alberts i glampandi sól og hita á Lœkjartorgi Igær.
Guðmundur J. á útif undi Alberts á Lækjartorgi:
„SVÖRUM DRENGSKAP ALBERTS MEÐ
ÞVÍ AÐ SÝNA HONUM DRENGSKAP”
—rúmar 10 milljónir söf nuðust í kosningasjóðinn
,,Af vilja til að vera heiðarlegur kýs
ég Albert Guðmundsson, hvað sem
flokksbræður minir segja. Þegar
Albert og Brynhildur setjast að á Bessa-
stöðum mun * sjálfstæði ríkja yfir
staðnum og allt ísland njóta þess.”
Þetta voru lokaorð Guðmundar J.
Guðmundssonar, formanns Verka-
mannasambandins, á útifundi
stuðningsmanna Alberts Guðmunds-
sonar á Lækjartorgi í gær. Talið var að
8—10 þúsund manns hafi sótt fundinn
og yfír 10 milljónir kr. söfnuðust i
kosningasjóð frambjóðandans.
Ræðumenn voru Gunnar Thorodd-
sen, Birgir ísl. Gunnarsson, Jóhanna
Sigurðardóttir alþm. og Jón A.
Jónasson, formaður fulltrúaráðs
Framsóknarféiaganna auk Guðmund-
ar J. Guðmundssonar. Óperusöngvarar
sungu, karlakór söng, Pálmi Gunnars-
son söng með hljómsveitinni Brimkló
og Lúðrasveit Kópavogs blés í lúðra
sina.
Allir lögðu ræðumenn áherzlu á
mikilvægi reynslu Alberts og rómuðu
starfsferil hans heima Sem erlendis.
Einnig töldu þeir hættulegan áróður
rekinn til að sveigja kjósendur til fylgis
við annan frambjóðanda, en það helzt
vill til að forða því að hinn þriðji
komizt að. Töldu þeir Albert hafa
mikla sigurmöguleika.
Orð Guðmundar J. vógu sterkt á
fundinum: „Enginn stendur Albert
snúning í alls konar fyrirgreiðslu fyrir
reykviskt verkafólk og þess vegna
stendur það í þakkarskuld við Albert.
Svarið nú drengskap Alberts með því
að veita honum drengskap.”
Brynhildur Jóhannsdóttir flutti á-
varp i bundnu máli og Albert lýsti
góðum móttökum á fundum um allt
land og skoraði á Reykvíkinga, sína
samborgara, að verða sterkur hlekkur i
þeirri baráttukeðju sem nú nær um allt
land. -A.St.
Fóöurbætisskatturinn
veröur endurgreiddur
—f ramleiðendum eggja, f ugla- og svínakjöts
„Fóðurbætisskatturinn verður laus. til að koma i veg fyrir offramleiðslu
endurgreiddur framleiðendum fugla- „í umfjöllun stuðningsmanna rik- mjólkurafurða,” sagði Óiafur.
og svinakjöts og eggja,” sagði Olafur isstjórnarinnar um fóðurbætisskatt- ‘„Honum er alls ekki ætlað að draga
Ragnar Grimsson, formaður þing- inn var alger samstaða um að hann úr framleiðslu á fugla-og svínakjöti.
flokks Alþýðubandalagsins, í morg- yrði endurgreiddur framleiðendum Ákvörðun um form og upphæð
un. Hann sagði aðótti þessara fram- fugla- og svinakjöts og eggja. endurgreiðslnanna verður brátt tck-
leiöenda við skattinn væri ástæðu- Skatturinn er fyrst og fremst ætlaður in.” -HH
frfálst, áháð dagbleð
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1980.
„Verið er að
misþyrma
reglum lýð-
ræðisins”
— sagði PéturJ.
Thorsteinsson á fjöl-
mennum kosningafundi
íHáskólabíóifgær
,,Ég tel dagana þangað til ég má
hætta að tala um sjálfan mig,” sagði
Pétur Thorsteinsson á mjög fjölmenn-
um kosningafundi stuðningsmanna
hans i Háskólabíói í gærkvöldi. „Mér
var ekki ljóst, hve störf mín voru lítið
þekkt með þjóðinni. Ég vissi ekki, að
ég þyrfti að vera fjölmiðlapersóna.
Ríkisfjölmiðlarnir brugðust, því kynn-
ing þeirra var lítil og léleg. Hver veit
nema staðan hefði verið önnur ef kynn-
ingin hefði verið meiri,” sagði Pétur
meðal annars.
Á fundinum kom fram mjög hörð
gagnrýni á þátt ríkisfjölmiðlanna i
kosningabaráttunni og þá einkum á
sjónvarpið. „Það er hneyksli sem seint
fyrnist yfir,” sagði Davíð Sch. Thor-
steinsson um þátt sjónvarpsins í kosn-
ingabaráttunni.
Einnig kom fram á fundinum mjög
hörð gagnrýni á þá aðila sem viður-
kenndu að Pétur væri hæfasti fram-
bjóðandinn en beittu sér nú fyrir kjöri
annars frambjóðenda til að koma í veg
fyrir kjör þess þriðja. Um það sagði
Pétur, að verið væri að misþyrma regl-
um lýðræðisins og i hópi þeirra sem
fyrir þvi stæðu væru ýmsir áhrifamenn
þjóðfélagsins. Hannibal Valdimarsson
fundarstjóri tók í sama streng: „Hver
sá sem ekki kýs þann er hann er sann-
færður um að sé hæfastur, hann bregzt
skyldum lýðræðisins.” „Við þurfum
gð sýna stórhug og kjósa okkar beztu
menn,” sagði Erna Ragnarsdóttir.
„Hvenær er meiri þörf á að velja
reyndan og vitran hæfileikamann en
nú?” sagði Matthías Bjarnason al-
þingismaður. Auk þeirra töluðu á
fundinum sr. Karl Sigurbjörnsson,
Jóhann G. Jóhannsson og frú Oddný
Thorsteinsson. Háskólabíó var fullt út
úr dyrum og urðu margir frá að hverfa
vegnaþrengslaá fundinum. -GAJ
Líkvélstjórans
áLaxáfundið
Lík Kristins Ásmundssonar, vél-
stjóra á Laxá, sem hvarf i Helsinki í
Finnlandi 23. maí sl„ fannst þar í
höfninni fyrir síðustu helgi. Voru það
félagar Kristins heitins af Laxá sem
fundu líkið þegar þeir gerðu ítarlega
leit í höfninni þar sem skipið lá þegar
Kristinn hvarf.
Áður höfðu yfirvöld í borginni gert
mjög rækilega leit, höfnin verið slædd
og kafarar leitað. Kristinn Ásmunds-
son var 52 ára og lætur eftir sig eigin-
konu og tvö börn. -EVI.
i.UKKUDAGAR:~
27. JÚNÍ: 2251
Philips vekjaraklukka m/útvarpi _
Vinningshafar hringi
í sfma 33622.