Dagblaðið - 12.07.1980, Síða 1
6. ÁRG.— I.AUGARDAGUR 12. JÚl.Í 1980. — 156. TBI.. RITSTJÓRN StÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.—AÐALSÍMI 27022.
VESTMANNA-
EYINGARNIR
SEM FÓRUST
Sjómennirnir tveir, sem fórust með
Skuld VE í fyrradag, hétu Gísli Leifur
Skúlason, Brekastíg 31 i Eyjum, 35
ára gamall, ókvæntur, og Sigurvin Þor-
steinsson, Hásteinsvegi 33, þrítugur að
aldri og ókvæntur.
Þeir sem björguðust voru mágarnir
Ólafur Guðjónsson skipstjóri og Þor-
varður Hreiðarsson.
Komið hefur í ljós að áhöfn á Skuld
gaf upp staðarákvörðun til Tilkynning-
arskyldunnar um 20 minútum áður en
slysið varð. Á þessum árstíma er aðeins
einn tilkynningarskyldutími hjá
skipum. Af þessum ástæðum var ekki
tekið að óttast um Skuld.
-A.Sl.
Ekki linnirslysunum:
67 ára gam-
all maður
léztíum-
ferðarslysi
Enn eitt dauðaslysið varð í umferð-
inni í Reykjavik um þrjúleytið í gær.
Þá rákust saman á mótum Langholts-
vegar og Elliðavogs fólksbifreið og
sendibifreið. Slasaðist þrennt sem i
fólksbílnum var, tveir farþegar urðu
fyrir minni háttar meiðslum en öku-
maður, 67 ára gamall maður, lézt af
afleiðingum slyssins.
Fólksbifreiðinni var ekið norður
Langholtsveg og inn á Elliðavog við
bensínstöð Shell. í sömu mund kom
sendibifreiðin austan að og varð
árekstri ekki afstýrt.
Málið var á frumstigi rannsóknar í
gær.
-A.St.
Helluprent:
Hrepps-
ábyrgðirnar
eru hitamál
á Hellu
— hreppsnefndar-
menn deila um
upphæðirábyrgða
hreppsins fyrir iila
stattfyrirtæki
— sjábls.5
Þeir Bjarni Sveinsson (sem veifar Ijósmyndaranum á myndinni) og Ólafur Skagavfk fara svo geyst á Flugfisks-bátnum Ingu
02 að fólk sem hyggst sjá þá á ýmsum áfangaleiðum rallsins kemur of seint á góöa útsýnisstaði. Þá eru þeir farnir hjá. Þeir
hafa unnið alla áfanga rallsins nema frá Neskaupstað til Kópaskers sem Gustur vann. I gærkvöldi stefndu þeir félagar á
Strandir og tsafjörð er DB fór i prentun. DB-mynd R. Th. Sig.
Inga 02 siglirnú sem öruggur sigurvegari Sjóralls ’80:
„HRINCINN FERÉGÞÓRÓA
VERÐISÍÐASTA SPÖUNN”
—sagði Daði Hinriksson á Gusti 02 þegar vél bátsins reyndist
útkeyrð við Hrísey í gær
Inga 02 tók auðveldlega forystuna
þegar sjórallsbátarnir voru ræstir frá
Akureyri kl. 12.04 í gær. Beðið hafði
verið með rásmerkið eins og verða
mátti til að sú viðgerð sem framkvæmd_
var á Spörra í fyrrinótt fengi að harðna
sem mest. Þeir Bjami og Ólafur á Ingu
fóru geyst og stytztu leið út Eyjafjörð-
inn spegilsléttan. Þeir munu hafa farið
austan við Hrísey, vom við Siglunes kl.
13.14 og renndu inn á Siglufjarðarhöfn
kl. 13.30.-Enn einn siglingaáfanginn
var að baki með þeirra sigri.
Raunir þeirra Daöa og Einars Vals
virðast engan enda ætla að taka. Rétt
utan við Akureyrarhöfn stöðvuðu þeir
vélina og töldu ventaloftspakkningu
hafa brostið. Litlu síðar þutu þeir af
stað og vora vestan við Hrísey kl. 13.00
en þar stöðvaðist báturinn aftur. Litlu
siðar hökti Gustur inn til Dalvíkur. Þar
kom i ljós, þegar vélin var mæld upp,
að tveir stimplar vélarinnar voru farnir.
Viðgerð var útilokuð á staðnum. Ótal
FR-menn aðstoða Daða og Einar Val.
Allir bjuggust við að þá og þegar
myndu þeir lýsa yfir að þeir væru
hættir. En það var enginn uppgjafar-
tónn í Daða. „Ég á aðra vél í bátinn á
ísafirði og ég fæ hana senda. Hringinn
skal ég komast þó ég verði að róa
siðasta hlutann!”
Siðdegis var varavélin komin í flug-
vél á ísafirði og lenti sú vél á Akureyri
um sjöleytið. Meðan var eldri vélin
tekin úr bátnum. Þarna veita FR-menn
ómetanlega aðstoð.
Gáski og Spörri fóra samsíða út
Eyjafjörðinn og sýndu Hríseyjarbúum
sjósiglingu með því að fara vestan
eyjarinnar. Þeir komu til Siglufjarðar
svo til samtímis, Spörri þó 300 metrum
á undan, og hlaut stigin 10 en hinn 7 i
minni bátaflokknum.
Frá Sigluf irði
Klukkan 16.30 vora Gáski og Spörri
ræstir frá Siglufirði en Inga beið
frekari frétta af Gusti ef ske kynni að
takast mætti að gera við vélina og
báturinn kæmi aftur í leikinn strax.
Svo varð ekki, sem að framan greinir,
og Inga hélt úr höfn kl. 17.07.
Síðustu fréttir af bátunum bárust um
FR-stöð á Hrauni á Skaga kl. 19.40 i
gærkvöldi þá var Spörri kominn fyrir
Horn og Gáski var við Horn. Inga mun
þá hafa verið að nálgast Horn en síðast
tilkynnti hún sig kl. 18.40 NV af
Hrauni á Skaga.
Eftir legginn til Siglufjarðar hafði
Inga 02 hlotið 77 stig og væntanlega 87
stig á ísafirði í gærkvöldi en þangað
áttu bátarnir að koma eftir að DB fór í
prentun. Gustur hafði 50 stig á Akur-
eyri og þá 64 takist honum að ná til ísa-
fjarðar. Sigur Ingu í þessum flokki er
þvi öruggur.
Spörri hafði á Siglufirði 74 stig og
Gáski 62 stig.
Lára III varð endanlega úr leik á
Eskifirði. Varahlutir sem þar var beðið
eftir i gær bárust ekki og þvi tilgangs-
laust að bíða lengur. -A.St.
Á Akureyri notuðu allir sjórallskappar
fritima sinn að hluta til að dytta að
bátum sinum og yfirfara allt. Hér eru
þeir Sigfús og Kristján á Spörra að lag-
færa jafnvægisstýri Gusts. Kristján er í
froskmannsbúningi við verkið.
DB-mynd R. Th. Sig.
Enn gýs í
Gjástykki
— sjá baksíðu