Dagblaðið - 12.07.1980, Síða 3

Dagblaðið - 12.07.1980, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1980. 3 \ Yfirgnæfandi meirihluti þorskur í dragnótinni Nokkrir úr Garðinum skrifa: Okkur langar til að fá að vita það hjá Hafrannsóknastofnuninni, og sjá það á prenti, hvernig afla- skiptingin í Faxaflóa hefur verið í dragnótum síðan hún var leyfð. Hvaða fiskur var veiddur og hvað mikiðaf hverjum? Einnig langar okkur til að vita hvort möskvastærðin sé ekki 170 mm eins og lög gera ráð fyrir, eftir þvi sem við komumst næst. Ef þeim lögum hefur verið breytt: I hverju er þá breytingin fólgin? Við ræddum við Guðná Þor- steinsson, fiskifræðing hjá Haf- rannsóknastofnun. Engar tölur eru enn um hvað mikið hefur veiðzt í ár. Veiðarnar voru leyfðar 1. júlí. Það er ljóst að í aflanum er yfirgnæfandi meirihluti af þorski. Ekki má veiða á stöðum þar sem meira en 15% af aflanum er þorskur. Aflaskiptingin i fyrra var þessi: Heildarafli tæp 493 tonn, þar af 92.4% skarkoli, 2.9% lúða, 2.2% ýsa, 2.5% þorskur. Möskvastærðin nú er 155 mm og var henni breytt í fyrra, þótt sumir veiddu þá i dragnót með 170 mm möskvastærð. Spurning dagsins Hvernig ætlarðu að verja helginni? Guflrún Bjarnadóttir: Ég ætla að fara með Ferðafélaginu í Landmanna- laugar, gista þar og ganga til Þórs- merkur. Lilja Jónsdóttir: Ég verð i bænum. Fer kannski á einhvern skemmtistaðinn. Allir ökumenn hægra megin Magnús Magnússon hringdi: Eg er mikill hjólreiðamaður. Um daginn lenti ég í allsnarpri deilu við konu á hjóli. Ég var líka á hjóli. Hún hjólaði á móti umferðinni og hélt því fram að það væri samkvæmt um- feröarreglunum. Ég sagði hins vegar að maður ætti að fara eftir sömu umferðarreglum og bílarnir. Nú langar mig til þess að fá úr því skorið hvað er rétt, því að þetta getur orðið til þess að skapa mikla slysahættu. Við ræddum við Sigurð Ágústsson hjáUmferðarráði. Allir ökumenn, meira að segja þeir sem aka hjólbörum, eiga að vera hægra megin og vikja til hægri. Það hefur skapazt iskyggilegt ástand und- anfarið út af þessum misskilningi fólks. Það er mikið um að lítil börn séu á ferðinni hjólandi á móti umferð. Hjólreiðamenn, og meira að segja þeir sem aka hjólbörum, eiga að aka hægra megin. Þeir eiga að fara eftir sömu umferðarlögum og bílar. DB-mynd Hörður. Vongóð gæti fengið vinning Ein vongóð spyr. Ég ligg hér með happdrættismiða á iþróttafélagið Gróttu, Seltjarnar- nesi og bíð spennt eftir að vinnings- númer verði birt, því ég veit að það Litasjónvarp er meðal ósóttra vinninga hjá iþróttafélaginu Gróttu, nr. 718. var dregið í þessu happdrætti 5. júni. Ég hef hins vegar ekki séð vinnings- númerin birt neins staðar og engin leið er að finna sima félagsins. Vona ég að forráðamenn þess verði við þessari beiðni minni og láti blaði ykkar vinningsnúmerin i té. Við hringdum á skrifstofu Seltjarnarneskaupstaðar og ræddum við Álfþór B. Jóhannsson bæjar- ritara. Vinningsnúmerin voru birt í Lög- birtingablaðinu og voru þessi: Lita- sjónvarp 718, ferðavinningur — Flórída 3411, sólarlandaferð 3013, flugfar til Kaupmannahafnar 4444, vöruúttekt — Nesval 1339 og fataút- tekt — Herrahúsið 1538. Búið er að sækja tvo siðasttöldu vinningana. Svo að vongóð hefur von. @s @ ii i§a fi |[l [□iPiraioip io s io ns io ff mmmpm Komið eða hringið og leitið upplýsinga. Hreyfilshúsinuv/Grensásveg S:82980 Atbjörn ÁsbjömMon: Ég fer til Blönduóss á morgun og verð þar i viku til hálfan mánuð. Um helgina ætla ég að spila fótbolta. Margrét Gunnarsdótlir: Eg fer í sumar- bústaö til vinafólks. Heigl BJamason: Ég fer til Vestmanna- eyja og verð þar um helgina. Samuel Daniel Glad: Ég verð i bænum um helgina. Ætii ég komi ekki við á samkomu filadeifiumanna i Laugardalnum.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.