Dagblaðið - 12.07.1980, Side 4

Dagblaðið - 12.07.1980, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1980. í DB á ne ytendamarkaði HÆGT AÐ LEIGJA MYNDSEGULBÖND Nokkur fjölbýlishús, aðallega I Reykjavík, hafa komið upp myndsegulböndum til notkunar fyrir ibúa hússins. Hér sést ein af þessum heimasjónvarpsstöðvum. Sjálft myndsegulbandstaekið er á hillunni. Við það er kvikmyndatökuvél sem notuð er til þess að senda út dagskrá hússins og einn af ibúunum hefur séð af gamla, svarthvíta sjónvarpinu sinu til þess að stilla eftir myndina i tækinu. DB-mynd R.Th. Þótt menn séu yfirleitt á einu máli um að sjónvarpsdagskráin sé hund- leiðinleg eru margir á því að sjón- varpslausi mánuðurinn sé hund- leiðinlegasti mánuður ársins. Margir háfa ráðið bót á þessu með því að fá sér myndsegulbandstæki, eins og kunnugt er af blaðafréttum. Er það vel framkvæmanlegt í fjölbýlishúsum þar sem margir eru um að borga brúsann. Erfiðara er um vik fyrir einstaklinga sem búa þannig að þeir nota tækið aöeins einir eða fyrir fjöl- skylduna. Það er ekki á færi allra aö snara út fyrir myndsegulbandi sem kostar rúma eina og hálfa ntilljón kr. í dag. Þeir þurfa þó ekki að vera allsendis sjónvarpslausir þennan sjónvarps- lausa mánuö. Hægt er að leigja myndsegulbandstæki og spólur. f srnáauglýsingum DB má sjá aö minnsta kosti tvær auglýsingar þar sem slfk tæki eru boöin til leigu. Þetta er hins vegar nokkuð dýrt, á öðrum staðnum er leigan 15.000 kr. yfir sólarhringinn og er þá innifalin ein spóla með kvikmynd. Leiga fyrir aukaspólur er 3000 kr. Á hinum staðnum er leigan 13.000 kr. á sólar- hring en engin spóla fylgir í því verði. Þar er leigan fyrir spólur með kvik- mynd 2500 kr. Mikið að gera „Myndsegulbandinu er stungið i samband í venjulegan tengil en svo þarf smáloftnetsstubb á milli sjón- varpsins og tækisins,” segir Ægir Gíslason, Skúlagötu 64, sem leigir út myndsegulböndin á 13 þúsund kr. Hann sagði að mikil eftirspurn væri eftir tækjunum í júlímánuði og færðist í vöxt að einstaklingar leigi sér myndsegulbandstæki dag og dag. Einnig færist i vöxt að slík tæki séu leigð fyrir ráðstefnur og þing, þar sem verið er með ráðstefnuefni á myndsegulbandsspólum. Ægir sagöist einnig hafa myndatökuvél sem hann hyggst nota til þess að taka upp á myndsegulbönd, t.d. í afmælum eða öðrum fjölskyldu- hátíöum. Eins og áður segir er leigan hjá Ægi 13 þúsund kr. á sólarhring fyrir myndsegulbandið og 2500 kr. fyrir kvikmyndaspóluna. Hægt er að panta tæki í síma 23479. Hinn aðilinn sem leigir út mynd- segulbönd er Videóþjónustan Skóla- Mjólkurjurtin er mjög hávaxln og ákaflaga faHag. ( Skrúðgarðabókinni standur að jurtln sé sjaldgeaf I rasktun sam ar sannttaga orð að sönnu. Við minnumst þass akki að hafa séð þassa jurt annars staðar. í Grasagarðinum í Laugardal er að finna ótrúlega margar plöntu- tegundir. Þetta er unaðsreitur þar sem gróðurunnendur geta unað sér klukkustundum saman. Garðeig- endur, einkum þeir sem eru nýgræðingar í garðrækt, ættu að leggja leið sína þangað og skoða plönturnar. Þar er hægt að sjá hvernig plönturnar verða þegar þær eru fullvaxta þannig að hægt er að átta sig á hvernig þær taka sig út í vörðust. 13, sími 13115. Þar er leigan 15 þúsund kr. fyrir tækið á sólar- hring en innifalið er að tækið er sent, sótt og stillt á staðnum og auk þess' fylgir ein kvikmyndaspóla. 3000 kr. kostaraðleigjaaukaspólur. -A.Bj. eigin garði. Allar plönturnar í garðinum eru merktar með latnesku nafni og langflestar einnig með islenzku heiti. Þar er m.a.að finna plöntuna á meðfylgjandi mynd. Hún er af mjólkurjurtaætt, heitir á latinu euphorbiacea en á íslenzku vörtu- mjólk. í Skrúðgarðabókinni segir að þessi jurt geti hvorki státað af skraut- legum né fagurlega löguðum blómum. Samt er hér einhver fall- egasti og skrautlegasti fjölæringur sem hugsazt getur. Er það sannarlega orð að sönnu. Mjólkurjurtin er náskyld jólastjörnu og hefur mjólk í stönglinum. Þrífst bezt í fremur þurri en góðri ræktunarjörð, nær beztum þroska á sólbjörtum stað en þolir líka dálitinn skugga. I Grasa- garðinum er jurtin mjög hávaxin eins og sjá má á myndinni en skilyrði þar eru e.t.v. miklu betri en víðast hvar í venjulegum görðum. Mjólkurjurt- inni er skipt með skiptingu eða jafn- vel græðlingum í júlí-ágúst. í Skrúð- garðabókinni segir að þessi jurt sé allt of sjaldgæf i ræktun. -A.Bj. Heimilisbókhald viknna: tQ Mat- og drykk arvörur, hremlætisvarur ogþ.l i.: Sunnud Mánud Þridjud Midvikud FLmmtud Föstud Laugard SJALDGÆF EN BÆÐIÞAKKLÁT 0G AFAR FALLEG JURT — M jólkurjurtin er náskyld jólastjömunni Samt önnur Samt útgjöld Samt : Samt Samt Rnmt Samt Sunnud Mánud Þridjud Miövikud FLmmtud Föstud Laugard Samt Saznt Samt Saint Samt Sanrt Sarnt A •tðngulandunum am öramá óvomleg blöm, umkrlngd gulum bjðluiagi háblaðakranii Tl blöðin dökkna með aldri og þogar kamúr fram á hauat og kólna takur l vaon mnm m— - sig gula og rauða hauatStl. Tl þaaa að styrfcja þaaaa plðntu hafur varlð komið fyrtr bambua- stðngum inn á mM atðnglanna. þannig að tHaýndar sjáat þalr als akkL DB-myndk Bjamlalfur. V

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.