Dagblaðið - 12.07.1980, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ1980.
5
Almennur borgaraf undur íbúa Rangárvallahrepps:
Hreppsábyrgðimar eru
hitamál íbúa á Hellu
—Hreppsnefndar-
menn deila um
upphæðir hrepps-
ábyrgða
Rangárvalla-
hreppsvegna
Helluprents hf.
Helluprent hf. á Hellu varð
aðalumræðuefni almenns borgara-
fundar þar í fyrrakvöld. Umræður
um fjárhagsstöðu og ábyrgðir Rang-
árvallahrepps urðu snarpar og menn
ekki á eitt sáttir. Dagblaðið greindi
frá þvi í síðasta mánuði, að hrepps-
nefnd Rangárvallahrepps hefði veitt
Helluprenti hf. hreppsábyrgð upp á
52,5 milljónir króna sl. haust og
áður samþykkt ábyrgð upp á 23
milljónir króna fyrir fyrirtækið.
Helluprent á í verulegum fjárhags-
örðugleikum og hafa menn jafnvel
óttazt gjaldþrot þess. I upphafi fund-
ar ræddi Jón Þorgilsson sveitarstjóri
reikninga hreppsins sl. ár og fjár-
hagsáætlun sí. árs. Síðan svaraði
hann og oddviti spurningum hrepps-
búa.
Hilmar Jónasson spurði hver væri
hlutafjáreign hreppsins i Helluprenti
hf. og Árni Arason spurði hverjar
væru stærstu ábyrgðir hreppsins.
Páll Björnsson oddviti svaraði því til,
að hlutafé hreppsins í Helluprenti
næmi 5 milljónum króna. Jón Þor-
gilsson sveitarstjóri sagði að engin
skrá væri til um ábyrgðir hreppsins,
en hreppurinn hefði gengið í ábyrgð
fyrir Helluprent vegna 8 milljóna kr.,
en hefði veð í húsi fyrirtækisins fyrir
ábyrgðinni.
Hreppsábyrgð-
irnar meiri
Jón Thorarensen hreppsnefndar-
maður sté síðar i pontu og taldi að
nokkuð hefði vantað á
upplýsingarnar hjá sveitarstjóra, þar
sem hreppurinn hefði tekið 20
millj. króna lán hjá Byggðasjóði og
endurlánað Helluprenti síðan 15
milljónir af þeirri upphæð.
Hreppurinn hefði því gengið í ábyrgð
fyrir 23 milljónum króna. Sveitar-
stjóri sagði það rétt vera að
hreppurinn hefði endurlánað Hellu-
prenti 15-milljónir króna og væri veð
fyrir því láni Þá hefði hreppurinn og
lánað Helluprenti 6 milljónir króna
til kaupa á offsetprentvél og ætti
hreppurinn veð í prentvélinni.
... og enn meiri
Bragi Jónsson hreppsnefndar-
maður taldi ábyrgðir hreppsins vegna
Helluprents enn vantaldar og minnti
á bréf frá Helluprenti frá sl. hausti
þar sem fyrirtækið fór fram á hrepps-
ábyrgð fyrir 52,5 milljónum króna.
Niðurstaðan hefði verið sú, að
samþykkt var í hreppsnefnd með 4
atkvæðum gegn 1 að veita þessa á-
byrgð. Annað mál væri síðan hvað
fyrirtækið hefði nýtt af ábyrgðinni,
en það væri undir stjórn
Helluprents hf. komið. Stjórn
Helluprents hlyti að hafa bréf upp á
þessa samþykkt hreppstjórnar.
Rangfærslur
og áróður
PáU Bjömsson oddviti svítrá^
þessu og sagði að Bjarni vildi Wrá
sem mest úr ábyrgðunum oa'tæri
frjálslega með staðreyndir. V;Ég vil
biðja Bjarna að nefna yffa menn
sem hafa þessar ábyrgðir fyrir
Helluprent,” sagði PálT. .,,Það voru
Nýbygging Helluprents hf.
sett skilyrði fyrir ábyrgðinni og það
skyldi þó aldrei vera að þau skilyrði
séu ekki fyrir hendi.” Oddvitinn
sagði að veð væri fyrir þeim á-
byrgðum, sem hreppurinn hefði veitt
og sagði siðan að þeir sem hefðu
komið af stað skrifum um máUð
hefðu orðið sér til skammar. Menn
skyldu spara sér áróður og rang-
færslur og að gera það tortryggUegt,
sem vel hefði verið gert i atvinnu-
málum I hreppnum.
Bjarni svaraði oddvitanum og
sagði að svo virtist sem skUyrðin fyrir
ábyrgðinni hefðu verið samþykkt,
þar sem sveitarstjóri hefði upplýst á
hreppsnefndarfundi að þinglýst hefði
verið skuld Helluprents í skjóU
hreppsábyrgðarinnar. Hann sagði að
andstaða sín gegnbreppsábyrgðunum
byggðist á því að sér þætti þetta allt
of mikið fyrir hreppinn. Fyrst hefði
átt að leita til hluthafa, en tillaga um
slíkt hefði verið felld. Það hefði síðan
DB-mynd Sig. Þorrl.
ekki verið fyrr en útlitið hefði verið
orðið svartara nú i júní.að boðað var
til hluthafafundar.
Sigurður Óskarsson sýslunefndar-
maður sagði að skrifin um
Helluprent væru þeim til skammar,
er hefðu farið á fund DB. Hann taldi
Helluprent mikilvægt atvinnufyrir-
tæki fyrir byggðarlagið, þegar Ula
horfði með atvinnutækifæri í fram-
tiðinni.
-JH.
Hvolsvegur endurbyggður
Gatan Hvolsvegur á Hvolsvelli hefur verið meira og minna sundurgrafin i alit
sumar. Er verið að skipta um jarðveg i götunni og um leið ýmsar leiðslur. Þetta er
ein elzta gatan á Hvolsvelli og því ýmislegt farið að gefa sig. Þegar búið verður að
ganga frá öllu saman á svo að oliumalarbera götuna en að sögn hreppstjórans
verður þaö varla fyrir haustið.
DS/DB-mynd Sig. Þorri.
Flugleiðir töpuðu
einum milljarði króna
—vegna þess að af köst f lugliðs Flugjeiða
eru aðeins 2/3 af því sem gerist hjá
samkeppnisaðilum
í frétt sem Flugleiðir hafa sent frá sér
segir að afkastageta flugliðs félagsins sé
mun minni en afkastageta flugliðs
þeirra flugfélaga sem Flugleiðir eigi í
samkeppni við í Norður-Atlantshafs-
flugi og hún sé einnig miklu minni en
hjá flugliði Air Bahama. Sé nýting
flugliðs Flugleiða aðeins tveir þriðju af
því sem gerist hjá samkeppnisaðilun-
um.
,,Að meginhluta er þessi vandi
heimatilbúinn, þ.e. samningar milli
flugliða og félagsins sem hafa orðið
Flugleiðum óhagkvæmir í sam-
keppninni,” segir orðrétt i fréttatil-
kynningunni.
Flugleiðir telja að ef miðað væri við
að sambærileg nýting hefði náðst hjá
flugáhöfnum Flugleiða og samkeppnis-
aðilum á árinu 1979 hefði það sparað
félaginu rösklega 2 milljónir dollara
eða um milljarð íslenzkra króna á nú-
verandigengi.
-GM.
GosiðíGjástykki:
r
NÆR ENGIN SKJALFTAVIRKNI
— hvorki fyrir né eftir að gos hófst
Þegar DB-menn komu frá gos-
stöðvunum i Gjástykki niður að
Reynihlíð á öðrum tímanum í fyrri-
nótt var þar fyrir Karl Grönvold iarð-
fræðingur, sem annaðist skjálfta-
vaktina þá stundina. Karl sagði að
skjálftavirknin hefði verið nær engin,
hvorki fyrir gosið né eftir að það
Mikil örtröð flugvéla var yfir eldstöðvunum, svo sem jafnan verður I gosum. M.a.
flaug Fokkerflugvél Flugleiða marga hringi yfir eldgosinu seint i fyrrakvöld.
DB-mynd Ragnar Th.
byrjaði, heldur hefði aðeins komið
fram órói á mælum. Landsig á svæð-
inu nam um hálfum metra.
,,Það getiir ekki haldið lengi áfram
svona,” sagði Karl, þegar DB spurði
hann um skýringu á því hvernig belj-
andi hraunfljótið gæti streymt aftur I
iður jarðar án þess að sýnilega væri
neitt lát á. Karl sagði að Htið væri
hægt að segja fyró-trm þróun mála
fyrr en svæðið hefði verið skoðað
betur í dag. Hann sagði að gosiö
hefði ekki getað komið á betri stað,
þar sem hraunrennslið kæmist raunar
hvorki til suðurs né norðurs.
Meðan DB ræddi við Karl voru
visindamenn að koma sérstökum
pípum til sýnatöku á gasi, til eld-
stöðvanna en lið vísindamanna var
þegar tekið til starfa við rannsóknir á
svæðinu.
Hraungosið í Gjástykki var enn i
gangi í gærkvöldi, þótt verulega
hefði dregið úr þvi frá því i fyrradag.
Gosið er hið mesta sem komið hefur í
umbrotahrinunni umhverfis Kröflu,
sem staðið hefur í hálfan áratug.
-JH/JR Reynihlíð