Dagblaðið - 12.07.1980, Side 6

Dagblaðið - 12.07.1980, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1980. Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 — SÍmi 15105 Smiðir af Stór-Reykjavíkursvæðinu óskast, helzt samhentur flokkur eða flokkar. Um stórt verk er að ræða sem er í Breiðholti. Um uppmælingu er að ræða og verða góðar innborganir inn á verkið. Uppl. gefnar í síma 92-3966 kl. 10—12 alla virka daga og 92-3403 á kvöldin. Lánveiting Stjórn Lífeyrissjóðs verkafólks í Grindavík hefur ákveðið að veita lán úr sjóðnum til sjóðsfélaga. Skýrslur fyrir umsóknir verða afhentar hjá formanni líf- eyrissjóðsnefndar Júiíusi Daníelssyni á Víkurbraut 36, Grindavík. Umsóknir þurfi að hafa borist fyrir 1. ágúst nk. Gríndavík ll.júfí 1980. Stjórn Ufeyríssjóðs verkafólks i Gríndavík. „Hér hefur aldrei neitt gerzt” Færri fá en vilja — af nýjum leiguíbúðum sveitarfélagsins á Hellu Geysispennandi ný ensk litmynd um gullránið mikla í borg- inni Nice í Frakklandi fyrir fjórum árum. Ræningjarnir voru kallaðir „ræsisrotturnar”. Sýnd kl. 3,5,7,9 og 11. I steypuvinnu á Hvolsvelli: Hið nýja bilaplan kaupfélagsins steypl. Fyrstu leiguíbúðir sveitarfélagsins á Hellu hafa nýlega verið afhentar. Þar var um að ræða tvær íbúðir af fjórum sem byggðar hafa verið í fjórbýlishúsi. Hinar tvær verða afhentar núna á næstunni. Þegar DB-menn voru á leið um Hellu á dögunum var verið að leggja seinustu hönd á tvær fyrri ibúðirnar. Við hittum þar Arna Hann- esson og Vilhjálm Bjarnason smiði sem voru að ganga frá síðasta tréverkinu í íbúðunum. Þessar fjórar leiguíbúðir eru 2 her- bergi hver, ákaflega smekklegar og fallegar. Ibúðirnar eru afhentar full- búnar með skápum og teppum út I horn. Eldhús og bað eru dúklögð. Af þessum fjórum íbúðum eru tvær, mjög skemmtilegar, á efri hæð, undir súð sem er viðarklædd á ákaflega smekklegan hátt. Þeir Árni og Vil- hjálmur sögðu okkur að fólk væri lika ákaflega hrifið af þessum íbúðum og fengju þær færri en vildu. Mikill húsnæðisskortur er á Hellu eins og i mörgum öðrum plássum sem eru að byggjast upp. Mun fleiri vilja setjast þar að en komast i hús bæjarins. Þá er annaðhvort að byggja eða fá leigt. Bærinn hefur núna farið út í þessar framkvæmdir til þess að reyna að mæta þörfinni. Þessar nýju íbúðir verða síðan til sölu íbúunum á kaup- leigusamningi ef þeir vilja. -DS. gGNBoen s 19 OOO FRUMSÝNIR: GULLRÆS/Ð „Hér hefur aldrei neitt gerzt,” segir Jóhann brosandi við blaðamann DB. Guðmundur er þó ekki alveg á að það sé rétt. DB-mynd: Þorri — og jöfnum síöan afla þeirra togara sem fyrir eru milli þorpanna á Snæfellsnesi Féð betur komið í vegina en skuttogara ,,Af verkefnum hér í Stykkishólmi mætti fyrst nefna skólabygginguna,” sagði Sturla Böðvarsson sveitarstjóri í Stykkishólmi er DB ræddi við hann fyrir stuttu um verkefni sveitarfélags- ins. „Verið er að bjóða út næsta áfanga skólahússins og stefnt er að því að gera það fokhelt á næsta ári. Þá er verið að undirbúa hafnar- framkvæmdir fyrir vöruhöfn í Skipa- vík. Þar er geysigóð aðstaða frá' náttúrunnar hendi. í gömlu höfninni hafa verið vandræði vegna íss á vetrum. Gert er ráð fyrir að lagðar verði um 200 milljónir króna í nýju höfnina á þessu ári. Gamla hafskipa- bryggjan er orðin mjög léleg og raunar brjóta staurarnir öll náttúru- lögmál, því þeir ná ekki til botns. Fyrirhugað er að byggja sjö raðhús, leiguíbúðir á vegum sveitar- félagsins, og hafa þau verið boðin út. Þar er um að ræða framkvæmd upp á 200 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að Ijúka byggingu þeirra 1. júlí á næsta ári. í sumar verður og bætt aðstaða við sundlaugina, sem rekin er af hreppnum. Stöðugt er unnið við gatnagerðina og nú er verið að undirbyggja veg upp að hótelinu. Auk þess er verið að ganga frá götum i Ás-Neshverfinu, en það er aðal byggingarsvæðið eins og er. Nóg er af lóðum í Stykkis- hólmi en húsnæði vantar ákaflega. Það vantar fólk til Stykkishólms og atvinna hefur verið næg. Skuttogari er ekki gerður út frá Stykkishólmi og er ekki fyrirhugað að fara út í slíkan rekstur. Við erum hálfragir við þessi skuttogaramál og höfum því fariö okkur hægt. En það kann þó að vera að það reki að því að við förum út á þá braut. Skelin hefur veitt okkur mikið atvinnu- öryggi, en bátarnir eru litlir sem eru á skelinni. Það er þvi erfitt að sækja á þeim á þorsk á vertíð. En það er ekki hlaupið að því að fá skuttogara. Ef hægt væri að fara aðra leið, teldi ég það skynsamlegra. Skuttogari kostar þrjá milljarða og ég vildi heldur nota þrjá milljarða króna til uppbyggingar á vegum milli þorpanna á Snæfellsnesi. Nota síðan skuttogarana sem fyrir em á Ólafsvík og Grundarfirði. Ölafsvíkingar ráða ekki við nýtingu afla af tveimur togurum og nýr skuttogari er að koma til Grundarfjarðar. Það ætti því að jafna afla togaranna niður á plássin. Hér í Stykkishólmi er hærra hlut- fall manna sem starfa í iðnaði en i sambærilegum sjávarplássum. Hérer skipasmiðastöð og þrjár tré- smiðjur. Það er því ekkert gort að hér sé blómlegt, en nú eru íbúar um 1200. Sjúkrahúsið og rekstur kaþólsku systranna hefur gefið Stykkishólmi nokkra sérstöðu. Núísumarer fyrir- huguð stækkun á sjúkrahúsinu. Sturla Böðvarsson sveitarstjóri: „Ekkert gort að hér sé blómlegt.” DB-mynd: Jónas Haraldsson Heilsugæzlustöð verður byggð af systrunum, ríkinu og hreppnum í sameiningu. Verið er að ganga frá samningum við ríkið vegna þessa, en undirbúningur þeirra hefur tekið mjög langan tíma. Flækzt hefur fyrir hvernig semja ætd við systurnar. Breytingar á skipan sveitarfólaga Ekki hefur bryddað á kaupstaðar- hugleiðingum hér í Stykkishólmi og málið ekki rætt í neinni alvöru. Hins vegar tel ég nauðsynlegt að gerðar verði róttækar breytingar á skipan sveitarfélaga. Nú eru of margar og smáar einingar. Það væri hægt að styrkja stöðu sveitarfélaganna gagn- vart ríkinu með stækkun þeirra. Brjóta þyrfti sýsíueiningarnar að hluta. Þá mætti jafnframt taka eitt- hvað af verkefnum ríkisins, sem eðli- legra er að séu hjá sveitarfélögun- um”. -JH. Hinar nýju leigulbúðir sveitarfélagsins á Hellu. DB-mynd Þorri. „Blessuð vertu, það hefur aldrei neitt gerzt hérna og það fer varla að gerast neitt úr þessu,” sagði Jóhann Baldursson þegar við hittum hann á Hvolsvelli. Jóhann var að fylla steypu á steypubíl við gamaldags steypustöð og ók síðan steypunni að nýju bílaplani sem kaupfélagið á staðnum var að búa sér til. Guðmundur Guðmundsson, sem einnig var að steypa, var ekki á því að plássið væri alveg svona líflaust. ,,Það eru bara allir að vinna upp við Hraun- eyjafoss núna,” sagði hann. Þeir höfðu að minnsta kosti nóg að gera í steypuvinnunni. Nýbúið var að steypa heilsugæzlustöð og elliheimili og töluvert er um byggingar einbýlishúsa. Á Hvolsvelli búa nefnilega allir i einbýlishúsum nema þeir sem búa í þeim örfáu raðhúsum sem bærinn hefur látið byggja og leigir út. -DS. Sturla Böðvarsson sveitarst jóri í Stykkishólmi: FREKAR VEGIEN SKUTT0GARA

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.