Dagblaðið - 12.07.1980, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1980.
„Fóðurbætisskatturinn er rothöggið”:
Kjúklingabændur gefast upp
fyrir miðaldavinnubrögðum
— segir formaður hagsmunasamtaka kjúklingabænda
„Við erum ákaflega svartsýnir á
fóðurbætisskattinn. Framleiðslu-
kostnaður hefur verið afar hár og
litið fyrir þetta að hafa. Skatturinn er
rothöggið. Bændur eru þegar að
gefast upp,” sagði Ásgeir Eiríksson
formaður hagsmunasamlaka
kjúklingabænda í samtali við DB i
gær.
,,Það er eins og við séum að hverfa
aftur á stríðstíma. Þessir
skömmtunarseðlar eða grænu kort,
eins og sumir nefna þetta fyrirbæri,
gera okkur afar erfitt fyrir. Fyrst og
fremst verðum við sjálfir, í eigin
persónu, að sækja þessa seðla og
síðan á að stimpla þá ársfjórðungs-
lega. Þetta er enginn smáaukakostn-
aður fyrir bændur utan af lands-
byggðinni að fara alla leið suður til
Reykjavikur til þess að sinna þessum
miðaldavinnubrögðum.”
Ásgeir sagði að vegha breyting-
anna á skattaskýrsluforminu væru
margir, sem enn ættu eftir að skila
skattaskýrslum.
,,Ég er þar á meðal,” sagði Ásgeir.
„Ég vona bara að þeir taki mark á
yfirlýsingu frá fóðurbætissala minum
um hve mikið ég hef keypt af fóður-
bæti.” -EVI.
Hver vill bónda á sjötugsaldri í vinnu?
„Kannski vilja þeir að
við f lytjum í Bændahöllina”
— segir Karl Þórarinsson kjúklingabóndi, sem hættir búskap vegna
fóðurbætisskattsins
Kjúklingabændur eru
þungorðir í garð landbúnaðar-
forystunnar í landinu vegna
fóðurbætisskattsins og hafa
sumir þegar ákveðið að bregða
búi istað þess að „halda uppi”
hinum hefðbundnu búgreinum.
Myndin er tekin í kjúklinga-
sláturhúsi á Hellu.
DB-mynd Sig. Þorri.
,,Ég sé ekki annað ráð en hælta
búskap. Aldurinn er að færast yfir
okkur hjónin og satt að segja hélt ég
að maður fengi að vera i friði með
þessar 3 þús. varphænur sínar. En ef
alifugla- og svínabændur eiga að fara
að halda lífinu í sauðkindinni og
kúnni þá er ekki gott í efni,” sagði
Karl Þórarinsson kjúklingabóndi á
Lindarbæ i Árnessýslu í samtali við ‘
DB í gær.
„Stjórnendur þessa lands vita
ekki hvað þeir eru að gera. Ég ætla
ekki að verða að öreiga með þessu
háttalagi þeirra. Eða kannski vilja
þeir að við tökum sæng okkar og
kodda og flytum inn í Bændahöllina.
Hún er okkar eign eins og annarra
bænda.”
Karl sagði að hann hefði þegar
leitað fyrir sér með vinnu. „Það vill
mig enginn. Hver heldurðu að vilji
bónda, sent er að verða 67 ára? Hann
kann ekkert og hefur auk þess
stjórnað sér sjálfur í öll þessi ár,”
sagði Karl.
Leikfélag Akureyrar biður um ríkisaðstoð til að
komast hjá gjaldþroti:
Enn engin tillaga frá
ráðuneytinu um úrbætur
— segir Birgir Thorlacius
„Þetta er bara spjall um erfitt
fjárhagsástand hjá Leikfélagi
Akureyrar og hvaða leiðir eru hugs-
anlegar til að bæta úr því,” sagði
Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri í
menntamálaráðuneytinu, í samtali
við DB í gær um viðræður
fulltrúa menntamála- og fjármála-
ráðuneytis við stjórnarmenn
Leikfélags Akureyrar. Kvað hann
slík samráð engin nýmæli enda sækti
leikfélagið um styrk á fjárlögum. Að
sinni væri af hálfu mennlamái.t-
ráðuneytisins engin tillaga unt
hvernig leysa mætti fjárhagsvand-
ræði LA.
Fram hefur komið i fréttum, að
stjórn LA telur félagið á barmi gjald-
þrots og hefur sagt upp öllu starfs-
fólki þess, um tíu manns, frá 1.
september nk. Telur stjórnin að án
aukinnar opinberrar aðstoðar sé ekki
unnt aðstarfrækja LA áfram.
-GM.
Fjársjóðsleitin íDagblaðsbíói
I Dagblaðsbíói verður klukkan með íslenzkum texta. Sýningarstaður
þrjú á morgun sýnd ævintýramyndin er Hafnarbíó.
Fjársjóðsleitin. Myndin er í litum og
Hreinsun f
Hólminum
Allir krakkar sem eru orðnir 12 ára, mega vinna í unglingavinnunni hér I
Stykkishólmi, sögðu þessar ungu dömur I Hólminum. Þær voru að snyrta og
snurfusa bæinn og notuðu til þess skóflur og kústa. Þær gáfu sér þó tima til að
lita upp frá sópunum og tylla sér á steinvegg við vegkantinn.
Við byrjum að vinna kl. 8 á morgnana og vinnum til kl. 5. Kaupið er 800 krónur
á tímann. Afraksturinn ætla þær að nota í sumar. Þegar þær vinna ekki við
götuhreinsun, eru þær að gróðursetja og á það vel við á ári trésins. Stöllurnar
heita Helena Bæringsdóttir, Halldóra Birna Jónsdóttir, Anna Lóa Sigurjóns-
dóttir og Inger Rigmor Rossen. Þær eru allar 12 ára gamlar.
-DB-mynd: JH.
Sandspyrna
verður haldin sunnudagínn 13. júlí
kl. 1.30 að Hrauni í Ölfusi (við ósa
Ölfusár).
Mörg ný sandspyrnutæki.
KVARTMÍL UKL ÚBBURINN