Dagblaðið - 12.07.1980, Side 24
Deilur bænda og LÍO um sumarhúsabyggingar í Breiðavíkurhreppi:
„Munum stöðva framkvæmdir
með öllum tiltækum ráðum”
segja bændur á Hellnum
„Við munum stöðva þessar fram-
kvæmdir með öllum tiltækum
ráðum,” sagði bóndi á Hellnum á
Snæfetlsnesi í samtali við DB. Mikið
deilumá! er nú komið upp milli
bænda þar á staðnum og Landssam-
bands islenzkra útvegsmanna vegna
jarðarkaupa hinna síðarnefndu í
Breiðavíkurhreppi. LÍÚ hyggst reisa
fimm sumarhús á jörðinni Skjaldar-
tröð, en bændur benda á að sá staður
sem hefur verið valinn fyrir húsin er
annar en leyfi var veitt fyrir. Telja
þeir því að framkvæmdir útvegs-
manna, sem hófust í miðri síðustu
viku, séu ólögmætar og ætla að leita
alira tiltækra ráða til að stöðva þær.
Hafa þeir í þvi skyni leitað sér
aðstoðar lögfræðings og er m.a. rætt
um lögbann.
Ágreiningsmál þetta á sér langa og
flókna sögu. Það hófst 1978 þegar
Breiðavíkurhreppur ákvað að afsala
sér forkaupsrétti á stórjörðinni
Skjaldartröð. Bændurt plássinu voru
andvígir sölu jarðarinnar til LÍÚ af
þvi að þeir óttast að fleiri jarðir fari í
eyði og núverandi búskapur verði
fyrir ónæði.
Deilan, sem nú er á suðupunkti,
snýst um það hvar á Skjaldartraðar-
jörðinni koma eigi sumarhúsum út-
vegsmanna fyrir. Meirihluti hrepps-
nefndar hafði í fyrra samþykkt að
leyfa byggingu þeirra í túni jarðar-
innar, en bændur vildu að byggt yrði
utan túns, ef á annað borð yrði af
framkvæmdum. Fengu þeir Land-
nám ríkisins og landbúnaðarráðu-
neyti til að fallast á það sjónarmið og
úthluta LÍÚ plássi utan túns. Útvegs-
menn hafa aftur á móti ekki fellt sig
við þá ákvörðun og á fundi með
bændum um mánaðamótin maí-júní
munu þeir hafa lýst því yfir að þeir
mundu byggja innan túns án leyfis.
Hófu þeir siðan framkvæmdir í vik-
unni.
Að sögn heimildarmanns DB
mættu íbúar á Hellnum á verkstað
sama dag og framkvæmdir hófust og
mótmæltu þeim í heyranda hljóði.
Fengu þeir síðan varabyggingarfull-
trúa og byggingarnefnd sýslunnar lil
að óska eftir að framkvæmdir yrðu
stöðvaðar.
Þvi var ekki sinnt, en full-
trúi sýslumanns fékk því til leiðar
komið að ekki er unnið á staðnum
yfir helgina. Á meðan ráða bændur
og búaliðá Hellnum ráðum sínum.
-GM.
Þunnfljótandi hraunið spýtist upp úr sprungunni að baki fréttamanns DB, Jóhannesar Reykdal.
DB-mynd Ragnar Th.
GOSIÐ ER ENNIGANGI
Páll Einarsson
jarðeðlisfræöingur:
„Gosið er í gangi ennþá og hefur
lítið breytzt i dag,” sagði Páll Einars-
son jarðeðlisfræðingur á skjálfta-
vaktinni í gærkvöldi. „Það dró
verulega úr því í morgun og hefur siðan
verið að mestu óbreytt. Nú gýs á
sprungu rétt austan við svonefndan
Snaga.
Það er ekki gott að segja um
framhaldið. Landris er búið við Kröflu
sem gæti bent til lítils kvikustreymis.
Skjálftavirknin verður sífeUt minni og
var raunar aldrei mikil í kringum þetta
gos. Það bendir því allt til þess að
verulega sé að draga úr gosvirkninni.
Þetta er stærsta gosið í þessum
umbrotum, hins vegar var rúmmál
þeirrar kviku, sem nú hljóp, minna en í
mörgum fyrri kvikuhlaupum. Enn
liggur ekki fyrir hve hraunflóðið hefur
verið mikið eða hversu þykkt það er en
þetta skýrist í goslok.”
-JH.
ASI og vinnuveitendur fresta viðræðum til 18. júlí:
GUÐJON ER GENGINN
INN Á OKKAR LÍNU
—sagði Davíð Sch.
Thorsteinsson í
upphafi samn-
ingaf undar í gær
Eftir að menn úr þrengsta kjarna
samninganefndar ASÍ og VSÍ höfðu
skipzt á skoðunum í gærdag virtist
hafa liðkazt til í samningaviðræðum
þessara aðila. ASÍ menn afréðu að
fresta formannaráðstefnu sinni sem
ella var fyrirhuguð í næstu viku en
það eitt bendir til að samninga-
nefndarmenn álíti eitthvað vera um
að semja. Var ákveðið að samninga-
V I—..........
nefndir ASÍ og VSÍ hittust aftur að
viku liðinni.
Áður en samningafundur hófst hjá
ríkissáttasemjara hitti DB að máli
tvo samninganefndarmenn. Davíð
Scheving Thorsteinsson sagði
augljóst að Guðjón Jónsson væri á
sama máli og Vinnuveitendasam-
bandið, um leið og hann vitnaði til
viðtals við hann, en Guðjón hefur
lýst sig hlynntan hiutfallslegum verð-
bótum á laun, og þar með gengið í
berhögg við stefnu ASÍ.
Karl Steinar Guðnason, úr
samninganefnd ASf, var inntur eftir
því hvað væri til í þeirri skoðun Þor-
steins Pálssonar hjá VSÍ að launa-
kröfur ASÍ séu allt að fimmfalt hærri
fyrir hina hæst laúnuðu heldur en
fyrir þá lægst launuðu. Kvað Karl
Steinar stefnu ASÍ liggja alveg ljósa
fyrir, „hinsvegar eru kröfur ýmissa
sérsambanda hærri”.
Samninganefndir ASÍ og VSÍ hafa
nú ekki talazt við i hálfan mánuð og
er ijóst að báðir aðilar hafa slakað á
einhverjum ,,prinsipp”-atriðum og
afráðið að hefja samningaviðræður
fyrir „alvöru” á breiðum grundvelli.
-BH.
-
frjáJst, úháð daghlað
LAUGARDAGL'R 12. Jl'LÍ 1980.
*
Gæzluvarð-
hald sölu-
mannanna
tveggja
framlengt
um viku
Gæzluvarðhald sölumannanna
tveggja, sem nú eru t haldi
vegna umfangsmikilla viðskipta-
svika, var í gær framlengt um sjö
daga. Rannsókn sakargifta er
mjög umfangsmikil en kærendur
eru nokkrir dreifbýliskaupmenn.
Kaupmennirnir samþykktu
viðskiptavíxla en telja að
vanhöld hafi orðið mikil á af-
hendingu vöru, svo nemi tug-
milljónum króna.
Sölumennirnir tveir sem sitja í
haidi eru Edvard Lövdai og Örn
Ingólfsson. Þeir eru báðir liðlega
fertugiraðaldri.
-JH.
yjRKUDAGÁR:
12. júlí 15227
Sharp vasatölva CL 8145.
Vinningshafar hringi
í síma 33622. '
Krummi nokkur hefur nýverið
hreiðrað um sig — í bókstaflegri merk-
ingu — á turni Akureyrarkirkju. Þar
hefur hann gert sér myndarlega
hreiðurdyngju úr ýmsu tiltæku efni
sem hröfnum er títt að nota.
Blaðið Dagur á Akureyri skýrir frá
því að i bænum séu skiptar skoðanir
um tiltektir hrafnsins. Telji sumir hann
réttdræpan fyrir helgispjöll, en aðrir
kunni vel að meta framtak hans og
skoði hann jafnvel sem tákn um guð-
lega náð.
Hrafninn virðist láta þessi skoðana-
skipti Akureyringa sem vind um eyru
þjóta og situr með ró og spekt á eggjum
sínum í hreiðrinu. -GM.
KIRKJUSÆK-
INN KRUMMI
Á AKUREYRI