Dagblaðið - 02.09.1980, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 02.09.1980, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1980. ElSalvador: Borgarstjóri og 19 aðrir drepnir — morðsveitir bæði vinstri og hægri manna að verki AUGLÝSING Samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 40 18. maí 1978 um tekjuskatt og eignarskatt með síðari breytingum, um að álagningu opinberra gjalda á árinu 1980 sé lokið í Reykjavík á þá lögaðila sem skattskyldir eru hér á landi samkvæmt 2. gr. greindra laga. Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að leggja á á árinu 1980 á þessa skattaðila hafa verið póstlagðar. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda sem þessum skattaðilum hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 1980 þurfa að hafa borist skattstjóra innan 30 daga frá og með dagsetningu þessarar aUglýSÍngar. Reykjavik3l.ágúst 1980 Skattstjórinn í Reykjavík Gestur Steinþórsson Myndin er frá vinnusvæðinu fyrir framan Kjötby-verzlunina í Osló, þar sem þjófar hafa látið greipar sópa undanfarin ár. Mikil alda morða gekk yfir Mið- Ameríkuríkið E1 Salvador, sem oftar á síðustu mánuðum. Alls voru tutt- ugu manns felldir, þar af einn borg- arstjóri, að sögn lögreglunnar. Borgarstjórinn, sem hét Noel Martel Vides, gegndi embætti sínu í borginni Jutiapa. Var hann skotinn á götu af óþekktum tilræðismanni sem komst undan. Lik fimm manns sem talin eru hafa orðið fórnardýr hægrisinnaðra morðsveita fundust í gærmorgun. Þrír félagar í hryðjuverkasveitum vinstri manna féllu í gær i átökum við öryggissveitir stjórnvalda. Að sögn féllu auk þess ellefu aðrir landsmenn í E1 Salvador fyrir byssu- kúlum bæði vinstri og hægri sinnaðra morðsveita. Ríkisstjórn hinna tiltölulega hófsömu herforingja sem situr í El Salvador virðist alfarið vera að missa tök á málum. Skæruliðar hægri og Stjórnin 77/ sölu Buick Le Sabre árg. 77 ekinn aðeins 18000 mílur, 8 cyl., sjálfskiptur. Uppl. í síma 14975 og 73517. vinstri sinna vaða uppi og morð eru daglegur viðburður. Ekki er ljóst hvernig úrbætur í landbúnaðarmálum sem herforingja- stjórnin beitti sér fyrir muni ganga. En samkvæmt þeim var miklu Iandi skipt á milli smábænda, sem síðan hafa margir stofnað samvinnufélög um búskapinn. Ekki er heldur ljóst hve vel sú samvinna muni ganga. Aðalfundur T.B.K. Aðalfundur Tafl- og bridgeklúbbsins verður haldinn þriðjudaginn 16. sept. kl. 8.30 í Domus Medica. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar og verðlaunaafhendingar. Vestur-Þýzkaland: Strauss talar um andbandanskan hatursáróður Jósep Strauss, kanslaraefni kristilegra demókrata í Vestur- Þýzkalandi, sakaði ýmsa fylgis- menn Helmut Schmidt kanslara um að taka þátt i því sem hann kallaði andbandaríska hatursher- ferð. Sagði Strauss í sjónvarps- ræðu að þarna væru ekki aðeins ungir sósialistar á ferðinni sem andstæðir væru Bandaríkjunum og vestrænni hernaðarsamvinnu. Eldri fylgismenn Jafnaðarmanna- flokks Schmidt væru einnig þarna að verki. Jafnaðarmenn stæðu einnig fyrir ofbeldisárásum á fundi og göngur kristilegra demó- krata. Kosningar til sambands- þingsins í Bonn verða í október- mánuði næstkomandi. Ostó: Milljóna kjötþjófa- hringur handtekinn —stálu kjöti úr stórmörkuðum og verzluðu með þýfi og smyglaðar vörur í stórum stíl Komið hefur verið upp um gríðar- mikinn kjötþjófafiring i Osló í Noregi. Einkum munu þjófarnir hafa einbeitt sér að kjötvörum frá stórri verzlunar- miðstöð sem heitir Kjötby, i eigu manns að nafni Jens Evensen. Er talið að þjófnaðurinn hafi staðið síðan árið 1978. Talið er að verðmæti þýfisins nemi tugum milljóna króna en málið er ekki fullrannsakað. Við rannsóknina hefur ennfremur komið í ljós að þjófahringurinn hefur einnig stundað kaup á alls konar þýfi og smyglvarningi. Hefur slíkt fundizt heima hjá nokkrum þeirra sem hand- teknir hafa verið í tengslum við málið. Upp komst um málið eftir að starfs- menn Kjötby höfðu tilkynnt lögregl- unni um að ljóst væri að vörur hefðu horfið úr verzluninni. Skömmu síðar voru tveir menn handteknir. Þar af annar starfsmaður verzlunarinnar en hinn var gripinn glóðvolgur með miklar birgðir kjötvara í bifreið sinni. Næstu daga voru fimm aðrir handteknir vegna máls þessa. Af þeim sjö sem þegar hafa verið handteknir vegna þessa þjófnaðarmáls eru tveir starfsmenn kjötverzlunar- innar. Er annar verkstjóri í birgða- geymslu en hinn starfsmaður þar. Hinir fimm eru ekki beint tengdir fyrir- tækinu. Komið hefur i ljós að alveg síðan árið 1978 hefur kjöti verið stolið úr verzluninni með því að hlaða einkabif- reiðir um hábjartan daginn og þeim síðan ekið á brott. Einnig er talið að bifreiðir verzlunarinnar hafi verið notaðir i þessu skyni. Meðal þeirra vörutegunda sem sér- stök áherzla hefur verið lögð á að stela er dýrar tegundir nautakjöts, pylsur og álegg. Allar vörurnar hafa verið í neytendapakkningum. Óljóst er enn hvert þjófarnir hafa selt þýfi sitt. Starfsfó/k óskast til lager- og verksmiðjustarfa. HARPA H/F Skúlagötu 42.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.