Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 02.09.1980, Qupperneq 11

Dagblaðið - 02.09.1980, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1980. Josef Pinkowski forsætisráðherra tók nýlega við af Edward Babiuch, sem varð að segja af sér vegna óróans meðal verkamanna. Josef Pinkowski hefur þó ekki leyst vandamál sín þrátt fyrir samkomulag stjórnvalda og verkfallsmanna. Erfið efnahags- staða Póllands batnar ekki við lof- orðin sem gefin voru verkamönnum um hærri iaun og meiri matvæli sem bæta siður en svo úr að öðrum ástæðum óbreyttum. Júgóslövum hefur gengið brösuglega að bæta úr óhagstæðum greiðslujöfnuði sínum gagnvart út- löndum. Vestur-þýzkir bankar hafa vegna erfiðrar skuldastöðu Júgóslava ákveðið að hætta að lána vegna við- skipta fyrirtækja þangað og láta slikt nú erlendum bönkum eftir. Banka- menn í Vestur-Þýzkalandi segja að ekkert fyrirtæki geti ætlazt til að neinir alvörubankar láni Júgóslövum um þessar mundir. Eina leið þeirra sé að leita eftir endurskoðun samninga um greiðslukjör. Vegna þessarar tregðu vestrænna banka til að lána Júgóslövum hafa þeir leitað á arabísk mið en einnig lent þar í erfiðleikum. Meðal annars ákváðu arabisku aðilarnir að minnka lánsupphæðina úr 800 milljónum dollara niður i 200 milljónir og líkur eru taldar á því að þeir vilji hækka vexti meira en 1 1/8 úr prósenti upp fyrir vexti í London en sú átti vaxta- greiðslan að vera samkvæmt upphaf- legum hugmyndum. Ekki er búizt við þvi að önnur riki í Austur-Evrópu á næstu árum muni lenda í sams konar greiðsluerfiðleik- um vegna vestrænna lána og Pólland og Júgóslavia eiga við að stríða um þessar mundir. Hins vegar telja vest- rænir bankamenn nauðsynlegt að gæta meiri varkárni við lánveitingar þangað en verið hefur á síðari árum. Bent er á að mörg Austur-Evrópu- ríkjanna kaupi nú olíuvörur í nokk- urn veginn sama hlutfalli frá Sovét- ríkjunum og á heimsmarkaði. Þar sem Sovétríkjunum muni ekki takast á næstu árum að halda í við hlutfalls- lega aukningu olíunotkunar heima fyrir né hjá viðskiptaríkjunum muni þessi ríki neyðast til að kaupa meira magn cn áður á frjálsum markaði og hærra verði og gegn greiðslu í frjáls- um gjaldeyri. Þtta muni valda mik- illi aukningu á innflutningi þeirra i frjálsum gjaldeyri á meðan ekki er hægt að búast við auknum útflutningi í sama mæli miðað við núverandi horfur og ríkj- andi samdráttareinkenni í efnahags- lífi heimsins. Þess vegna munu þessi Austur-Evrópuríki þarfnast aukins lánsfjár frá vestrænum ríkjum í framtíðinni. Þessi þróun gæti að sögn vest- rænna sérfræðinga einnig valdið þvi að austantjaldsríkin reyndu að auka viðskipti sín á sviði vöruskipta fremur en að leggja fram frjálsan gjaldeyri sem þau ættu þá af skornum skammti. Að mati vest- rænna kaupsýslumanna eru slíkar vörur oft á tiðum lélegar að gæðum og erfiðar í sölu. Vegna náinna viðskiptatengsla Vestur-Þýzkalands við austantjalds- ríkin og nálægðar í legu, þá eru stjórnvöld í Bonn ákveðin i að vinna að auknum og bættum tengslum við kommúnistaríkin þrátt fyrir innrás Sovéthersins inn í Afganistan. Þrátt fyrir að Helmut Schmidt kanslari hafi talið vestur-þýzka íþróttamenn á að hætta við þátttöku i ólympiuleik- unum í Moskvu þá hafa viðskipta- samskipti ríkjanna ekkert dofnað. II Hvað telst til mann- réttinda á íslandi? Spurning, sem þessi vaknar i hugum margra þegar þeir heyra og lesa allt það mal og væl að vísu örfárra stjórn- málamanna, sem rutt hafa úr sér allskonar röngum fullyrðingum og villandi ummælum, um þann skort hinna helgustu mannréttinda, sem þeir telja Reykvikinga og Reyknesinga búa við, miðaðviðaðra landsmenn. Ég sagði hér á undan örfárra stjórn málamanna, og gleymdi þá einum verðandi Drottinsþjóninum, úr Hafnarfirði, sem hvað lengst allra hefur gengið i furðulegum skrifum varðandi þetta, og taldi það eitt rétt- læti líklega fyrir Guðs og manna augum að Vestfirðingar hefðu tvo þingmenn. Einnig er eins og mig minni að álika speki og réttlætiskennd hafi lekið úr pennum þeirra nafna Jónasar Dagblaðsritstjóra og Jónasar neytendapostula og B.H.M. manns.en síst er slik speki betri þó úr þeirri átt- inni komi. i Hver er ástœða þessara umbrota? Jú, þessir einlægu mannréttinda- postular að eigin mati, sem mest hafa látið i sér heyra og telja sig vera að berjast fyrir réttlætishugsjóninni hrópa um misvægi atkvæða eða ójafnan kosningarétt, sem þýði of mikil áhrif landsbyggðarinnar á Alþingi, og með þessu séu fótum troðin hin helgustu mannréttindi þeirra sunnanmanna og að aukyjíégi til þessa rekja að margskonar spilling hafi þróast í þjóðfélaginu. Auðvitað eru fullyrðingar sem þessar hrein fjarstæða, og furðulegt til þess að vita að menn, sem teljast eiga að vera með fullu viti. skuli láta sér slikt um munn fara eða eftir sigsjást á prenti. Þeir verða a.m.k. ekki taldir vandir að virðingu sinni. Raunveruleg ástæða þessara um- brota og upphlaups er sú að þeir stjórnmálamenn, sem mest hafa sig i frammi i þessu hvort sem þeir nú eru þingmenn eða ganga með hann í maganum, telja sig með þessu geta leyst bæði persónuleg vandamál sín innanflokks og þannig styrkt stöðu sína, og einnig mundi með þesssu leysast innanfiokksvandamál ýmis sem virðast hrjá æði ntarga á tiltekn- um svæðum. Varðandi hina, sem hamast hvað mest i þessu máli og ekki eru beint i stjórnmálabaráttu og ekki hafa þangað komist, gæti slík breyting plægt akurinn og orðið til þess að þeir hinir sömu, sem talið hafa sig afskekkta. gætu birtst á himni stjórn- málanna þósíðar verði. Eru Reykjavík og Reykjanes sett hjá vegna misvægi atkvæða? Nei. auðvitað er svo ekki. Það er auðvitað aúgljóst öllum. sem skoða vilja þetta af sanngirni hversu gifur- lega mikið vægi það hefur einmitt fyrir sunnanmenn að öll stjórnsýsla hverju nafni sem nefnist skuli vera staðsett svo að segja við þröskuld þeirra eigin dyra. Aðstaða þeirra einstaklinga, sem þar búa og sveitarfélaga á þessu svæði til að hafa áhrif á gang mála varðandi löggjafann og stjórnsýslu alla er svo margfalt meiri en ibúa dreifbýlisins og sveitarfélaga þar. Mér er nær að halda að þó að Reykjavik hefði engan þing- mann þá gæti hún eftir sem áður haft sist minni áhrif á gang mála á lög- gjafarsantk. og stjórnsýslusviðinu. en dreifbýliskjördæmi með 5—7 þing- menn. Þar ræðurauðvitaðsú 'sérstaða Reykjavíkur að geta látið sina embættismenn, hverju nafni sern nefnast, svo fáir sem þeir nú eru, róa á mið kerfismanna rikisins, sem allir eru einnig búsettir á þessu sama svæði og á þann hátt haft áhrif á gang og þróun mála sér í hag, eins og raunar alltaf er að gerast, því auðvitað er í þessu sem öðru nær skinniðen skyrtan. Er kosningarétturinn einu mannréttindin á íslandi? Það er athyglisvert að þeir. sem mest hrópa um misvægi atkvæða og forréttindi dreifbýlisfólks, að engu er likara en að |xiirra mati sé atkvæðis- rétturinn einu mannréttindin, sem til séu á íslandi og misvægi atkvæða sé þaðeina.sem leiðrétta þurfi. Ég held það væri rétt fyrir þetta stiffiibbalið að gera sér grein fyrir þvi að við dreifbýlisfólk fiokkum fleira undir mannréttindi en kosningarétt. Við teljum það til ntannréttinda. að við fáum búið við sömu búsetuskilyrði og þeir sunnanmenn, úl dæmis. Að við borgum sama i upphitunar kostnaðog þeir, en ekki 8—10 sinnum meira.einsognúer. Að við sitjum við sama borð kostnaðarlega séð hjá Pósti- og sima eins og sunnanmcnn, en ekki niiklu dýrara. eins og nú. Að við búum við jafnrétti varðandi verð á vöru og þjónustu á borð við Kjallarinn Karvel Pálmason sunnanmenn, cn ekki 30—50% dýraraeinsognú. Að við búum viðsambærileg skilyrði varðandi heilbrigðisþjónustu eins og þeir sunnanmenn. Að við búum við sambærilegar sam göngur eins og þeir sunnanmenn, svo- fátt citt sé nefnt. Yrði þvi misrétti og þeint niannrétt indaskorti. sem hér Itafa verið tilgreind ásamt raunar miklu fleiru, breytt og drcifbýlisfólk fengi þannig búið viö sömu mannréttindi og sunnanfólk hefur búið við i áratugi. þá fyrst, en fyrr ekki, fyndist flötur til umræðu á þvi misvægi atkvæða sem hvað mest fcr fyrir vit örfárra öfgamanna nú. Bolungarvik, 26. ágúst 1980 Karvel Pálmason. ————N /7 ISAMKOMULAGIBSRB 0G r Kjallarinn RIKISINS ERU VEIGAMIKL- IR 0G JÁKVÆÐIR ÞÆTTIR Undanfarna daga hafa i blöðunum átt sér stað miklar umræður um sam- komulag BSRB og ríkisins sem undir- ritað var 20. ágúst sl., og skiptist fólk nokkuð í tvo hópa. Annars vegar eru þeir, sem fátt gott sjá við samkomulagið. Vilja fella það. Einblina á krónutöluhækkun en horfa framhjá veigamiklum atriðum i samkomulaginu og vilja helst ekki vita af þeim veigamiklu félagslegu umbótum er í samkomulaginu felst. Hins vegar erum við sem metum samkomulagið í heild sinni. Sjáum ávinning í þeirri félagslegu löggjöf, sem boðið er upp á og óttumst afleið- ingar þess, að samkomulaginu verði hafnað. Fari svo er BSRB-fólk dæmt til þess að fara í harðvítugar verk- fallsaðgerðir með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir samtökin svo og annað fólk i þessu landi. Meginatriði samkomulagsins Áður en lengra er haldið þykir mér rétt að rifja upp meginatriði sam- komulagsins. Þau eru þessi: Samningstíminn er nú aðeins 13 mánuðir frá 1. ágúst 1980 til 31. ágúst 1981, og er það í samræmi við það samkomulag að samningstiminn verði framvegis samningsatriði, en hann er nú bundinn við 2 ár í lögum. I.aun hækka frá I. ágúst, mest hjá þeim sem lægst hafa launin. Hækk- unin nemur 14. þús. á mánuði i 5.— 15. Ifl., og dregur svo úr henni upp í 19. Ifl., þar sem hækkunin verður engin (að því er varðar flokka 19—32 kemur hins vegar til sérstök bókun um að laun í þeim flokkum verði færð til samræmis við laun í samsvar- andi flokkum 3HM í þrem áföngunt á samningstímanum). Þeir sem hafa lægri laun en 345.000 fá umframhækkun í vísitölu, þ.e. sömu hækkun og þeir sem hafa þáupphæð í kaup 1. ágúst. Þá má nefna það að þriðja þrep launaflokks næst nú eftir 5 ár í stað 6 áður, starfsmaður skal nú ekki vera lengur en tvö ár i 5. lfl. og starfs- maður sem er grunnraðaö í 6. —10. Ifl. skal nú hækka um I Ifl. eftir 4 ár. Þá eru ýmis önnur nýmæli varðandi starfsaldur. Það má benda fólki á að kynna sér breyttar reglur varðandi desember- uppbót, útkallsvakt, orlof, ferða- kostnað og starfsþjálfun, svo eitt- hvaðsé nefnt. Varðandi áfanga í félagslegum efnum má nefna auk samningstimans sem áður er getið, atvinnulcysistrygg- ingar, atriði sem er einmitt þýðingar- miklið fyrir sjúkraliða, og umbætur i lifeyrissjóðsmálum (og er þá aðeins getið þriggja atriða af sjö). Þýðingarmikil atriði fyrir sjúkraliða Mitt mat er, að mjög þýðingar- mikið sé fyrir sjúkraliða að samning- ur þessi verði samþykktur. Kpmur þar margt til. Fyrsl er að nefna að sjúkraliðar þurfa nú að fá tækifæri til að gera sérsamning, en slíkt erekki mögulegt nema að undangengnum aðalkjara- samningi. Sjúkraliðar eru nú lægst launaða heilbrigðisstéttin hjá Reykja- víkurborg og að sjálfsögðu verður ekki unað við það til lang- frama. Leiðrétt ing á launaflokknum okkar og réttindum næst ekki nenta i gegnum sérkjarasantning. Nú eru liðin 3 ár frá siðasta sérkjarasanm- ingi og það er allt of langur tími. Annað er að atvinnuleysistrygging- ar höfum við ekki haft áður. Verði borgin skyldug til þess að greiða þær, þá verður sjúkraliðum siður sagl upp, þar sem borgin þarf þá samt sem áður að greiða þeim laun. Þriðja er að samkomulagið gerir ráð fyrir miklum hækkunum til líf- eyrisþega. Ungar konur þurfa aðgera sér grein fyrir þvi að þær eldast eins og aðrir dauðlegir menn og fyrr en siðar munu þær sjá að lifeyrissjóður- inn er þeim mikils virði. Samkomu- lagið gerir ráð fyrir miklum hækkun- um til lifeyrisþega og á ég þá ekki sist við það, að nú fáum við að greiða í lifeyrissjóð af vaktaálagi okkar og Ingibjörg Agnars því verður lífeyrir okkar þvi hærri, þcgar þar að kemur. Menn verða að horfa gifurlega fast framan í sjálfa sig áður en þeir vanmeta þennan mikilvæga þátt. Alls gerir santkomu- lagið ráð fyrir 15—16% hækkun til lífeyrisþega i 8. launaflokki. Lokaorð Við sjúkraliðar verðum að gera ok kur grein fyrir því, að lengra náum við ekki að þessu sinni i aðalkjara- samningi án harðvítugra verkfalls- aðgerða og sú hækkun sem við e.t.v. fengjum þannig, yrði í verðlausum krónum (blóðkrónum). Við eigum betri möguleika í sérkjarasamningi. Við skulum gera okkur grein lyrir því að sjúkrahúsin verða ekki rekin án sjúkraliða. Við erunt í mestri snert- ingu við sjúklinginn, gefum honum bæði andlega og líkamlega aðhlynn- ingu. Ef við felluin þetla samkomu- lag, þá getur það haft örlagarikar af- leiðingar fyrir samtök okkar, cinkum með það í huga að þá dregst enn á langinn með sérkjarasamningana. Hugsið um þetta, þcgar þið gangið til kosninga dagana 4. og 5. sepl. tú . Ingibjörg Agnars, fyrrv. formaður Sjúkraiiðafélags íslands. „... Samkomulagið gerir ráð fyrir miklum hækkunum til lifeyrisþega og á ég þá ekki síst við það, að nú fáum við að greiða I lífeyrissjóð af vaktaálagi okkár og því verður Iffeyrir okkar því hærri þegar þar að kemur...” V.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.