Dagblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980 - 213. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022. Luxemborg-London-New York? British Airways vill nú yfír- taka Luxemborgarfh&ð — hefur gert stjómvöldum í Luxemborg tilboð þar um Brezka ríkisflugfélagið British Air- ways hefur snúið sér til stjórnvalda i Luxemborg og boðizt til að yfirtaka flugleiðina milli Luxemborgar og New York, fari svo að Flugleiðir hætti að fljúga á þeirri leið eins og félagið hefur boðað. í frétt frá Reuterfréttastofunni segir að British Airways hafi lagt til við stjórnvöld að fargjald milli New York og Luxemborgar með félaginu verði 491 dollar, en áætlað er að millilenda í London. í Reutersfréttinni er frá því greint að Flugleiðir hafi orðið fyrir alvarleg- um skakkaföllum vegna fargjalda- striðsins á Norður-Adantshafsleið- innj og hafi tilkynnt að flugi milli Luxemborgar og New York með millilendingu á íslandi verði hætt í lok næsta mánaðar. Þá er þess getið að flug Flugleiða sé einu samgöngu- tengsl Lúxemborgara við Bandaríkin. Þá er og greint frá því að Stein- grímur Hermannsson samgönguráð- herra hafi komið í gær til Luxem- borgar til viðræðna við Joseph Barthel, samgönguráðherra Luxem- borgar. Heimildir Reuters í Luxem- borg greina að Barthel muni greina Steingrími frá því í viðræðunum í dag, að Luxemborgarar telji sér ekki fært að bæta fyrra tilboð sitt. Þeir muni áfram fella niður lendingar- gjöld í Luxemborg til þess að bæta stöðu Flugleiða og leggja fram þrjár Hausttitirnir leysa nú sem óóast grasgrœnuna af hólmi, fyrsta hausthretið er komið austur á iandi, veturinn nálgast. Ljósmyndara DB fannst þó einh vern veginn að enn vœri góður skammtur af sumri I andtitiþessarar virðulegu konu, sem var á gangi við verzlanamiðstöðina Miðbce við Háaleitisbraut. Það er ennþá hœgt að taka sumar- myndir, þó að september sé nú farinn að styttast I annan endann. DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson. Verkföll í prentsmiðjum Maða í næstu viku: Svara útgefendur með verkbömum? — prentsmiðju- eigendur ræða mótaðgerðir í dag „Hér er um að ræða mjög tak- markaðar aðgerðir í þeim tilgangi að knýja á um atriði, sem alls ekki snerta launakröfur heldur atvinnuör- yggi fyrst og fremst. Það væri því furðulegt ef þær framkölluðu verk- bönn yfir heilu línuna, einkum þegar haft er í huga að þeir hafa ekki svarað okkur einu eða neinu,” sagði Magnús Einar Sigurðsson, varafor- maður Hins islenzka prentarafélags í samtali við blaðamann DB í morgun.. Menn velta því nú fyrir sér hvort prentsmiðjueigendur muni svara vinnustöðvunum Bókbindarafélags Íslands, Grafiska sveinafélagsins og Hins íslenzka prentarafélags með verkbanni. Þessi félög hafa eins og komið hefur fram í fréttum boðað til vinnustöðvana hjá dagblaðsprent- smiðjunum dagana 25., 26. og 27. september og hjá öðrum prentsmiðj- um innan Félags íslenzka. prentiðn- aðarins og Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg dagana 28., 29. og 30. september. Haraldur Sveinsson, fram- kvæmdastjóir Árvakurs hf., útgáfu- félags Morgunblaðsins, sagði í sam-. tali við blaðamann DB í morgun að viðbrögð prentsmiðjueigenda yrðu mótuð á fundi þeirra í dag. Hann kvaðst ekkert vilja um það segja á þessu stigi hvort verkbönn yrðu þeirra mótaðgerðir. -GAJ milljónir dollara — eða liðlega hálfan milljarð íslenzkra króna — til félags- ins. - JH r .... Steingrímur Hermannsson samgönguráðherra: Margir um hituna - ráðherrann hefur rætt tilboð British Airways við stjórn- völd í Luxemborg „Það er Ijóst að ýmsir bera vi- urnar í þetta flug Flugleiða milli Luxemborgar og New York,” sagði Steingrímur Hermannsson i morgun er DB bar undir hann tilboð British Airways um að yfir- taka Atlantshafsflug Flugleiða. f tilboðinu bjóða þeir vetrarfar- gjöld fram og til baka fyrir 491 dollar með millilendingu i London. Steingrimur sagði að þessi möguleiki og fleiri hefðu verið ræddir á viðræðufundum íslend- inga og Luxemborgara. Kvaðst Steingrímur hafa það á tilfinningunni að mörg flugfélög vildu yfirtaka Atlantshafsllugið. Brosandi kvaðst hann hafa spurt Luxemborgarana að því af hverju þeir tækju ekki tilboði Aeroflot en þá hefðu þeir fórnað höndum. Skýrsla verður lögð fram á rikisstjórnarfundi Luxemborgar um viðræður um Flugleiöavanda- máliðáföstudaginn. Ólafur Ragnar og Vilmundur skrifa um Flugleiða- málið og bauna hvor á annan — s/á bls. 12 ogl3

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.