Dagblaðið - 18.09.1980, Page 2

Dagblaðið - 18.09.1980, Page 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980. eða mistök við nótuútskrift? Símon Símonnrson verkamaAur kom art máli við blartið: Hafði hann lekið bensin á O/íufélagið hf £ssö bensinstöð ESSO gegnt Klúbbnum. Var hann látinn greiða 10 þúsund kr. fyrir 10,2 litra og hafði hann nótu fyrir þessu. Hann uppgötvaði hins vegar ekki mistökin fyrr en nokkru seinna. Fór hann því aftur á bensín- stöðina, sýndi starfsmönnum nótuna en þar var honum neitað um leið- réttingu. Að sögn Simonar sneru af- greiðslumennirnir bara upp á sig og voru með kjaft. Hafði hann þá skotið því að afgreiðslumönnunum hvort hann mætti fá að skoða í skottið á bílum þeirra. Vildi Símon vara ökumenn við svona svindli því hann vissi um fleiri svipuðdæmi. DB bar þetla undir sölustjóra Olíufélagsins. Sagði hann að hér væri augsýnilega um mannjeg mistök afgreiðslumanns að ræða við nótuút- skrift og vill félagið að sjálfsögðu leiðrétta slíkt. Þátturinn „Áfangar” hefur notið mikilla vinsælda en á myndinni eru umsjónar- menn þáttarins, þeir Guðni Rúnar Agnarsson og Ásmundur Jónsson. DB-mynd: Ari. MAGN @ J f UPPHÆD Bensln Díselolla Steinolla Frostlögur Smurolla ,;-v. V .. . i •• ■ •| ..1 i j- /p .°cy • - 1(7.- PPC? Blaðaljósmyndarar: SYNK) AÐGAT 0G NÆRGÆTNI » 445607 Sigurrtur G. tlaraldsson skrifar: Máltækið „Aðgát skal höfð í nærveru sálar” mun vera komið úr kvæði eftir Einar Benediktsson. Eg nefni þetta vegna þess að nú upp á síðkastið hafa bæði síðdegisblöðin og Raddir lesenda £r sjónvarpið aö brjóta lög? — með því að sýna hnefaleika „Reirt mórtir" hringdi: Eg er nú orðin alveg orðlaus. Það virðist ekki vera lengur hægt að láta börnin sitja ein við sjónvarp. Og nú er það sjálfur íþróttaþátturinn sem gengur fram af manni. Núna tvo síðustu laugardaga hefur sjónvarpið verið að sýna okkur myndir frá hnefaleikum, þar sem menn hafa kýlt hvor annan miskunnarlaust og af mesta afli. Og þetta er sjónvarpið að hafa fyrir augum barna okkar. Þokkalegur kennslumiðill það! Þegar lög eru um bann gegn hnefaleikum á íslandi verður sjónvarpið að beygja sig undir það. Þó að verið sé að sýna myndir frá hnefaleikum í öðrum löndum, færir sjónvarpið þessa bönnuðu iþrótt inn á hvert heimili með þvi að sýna hana. Og með því að færa hnefaleika inn á hvert íslenzkt heimili er sjónvarpiö að brjóta lög um bann gegn hnefaleikum á íslandi. einnig útbreiddasta dagblaðið farið æ meira inn á þá neikvæðu braut að birta nokkuð nákvæmar myndir af óláni og ógæfu fólks, sem hefur orðið fótaskortur á sviði réttvísinnar eða misstigið sig í sambandi við vínið og Bakkus. Nú kemur mér ekki til hugar að réttlæta þær ólögmætu gerðir sem spretta af þessu tvennu en ég tel að það sé fólkinu sem í ólán og ógæfu ratar og aðstandendum þess nóg raun þó dagblöð geri það ekki að almenningseign með myndbirtingum. Og satt að segja efa ég að löggæzlu- menn sem í þessum tilvikum verða að vinna s'm störf, mismunandi skemmtileg eins og gengur, séu mjög hlynntir töku mynda í svona tilvikum. í litlu samfélagi eins og því íslenzka, raunar dvergsamfélagi, hlýtur fólki sem eitthvað verður á að veitast erfiðara að ná sér á strik aftur en í milljónasamfélögum og það sem hér hefur verið gert að umtalsefni gerir fólki ekki auðveldara fyrir. Ég þykist þess viss að hér sé um hugsunarleysi eða eitthvað slíkt að ræða hjá viðkomandi Ijós- myndurum, en alls engan ásetning. Ég horfi á þessi mál sem hlutlaus blaðalesandi og vil beina þeirri ósk til þeirra, sem blaðamyndir taka að fara nærfærnum höndum um þessi efni og hugsa til þeirra sem í hlut éiga og setja sig í þeirra spor. Enginn getur þvi miður vitað hvenær ógæfan ber að hans eigin dyrum. Og enginn má skilja orð mín svo að ég sé á móti fjölbreytni og hugvitssemi í myndum, aðeins að gleyma ekki tillitssemi og aðgát. ER ALÞYÐUTONLIST- IN ÓMERKUR SORI? — Það virðist vera álit tónlistardeildar Gunnar Jónsson og Bjarni Sverrisson skrifa: Lengi hafa útvarpshlustcndur mátt búa við skilningsleysi tónlistar- deildar ríkisútvarpsins í garð popptónlistar. Er skemmst að minnast skoðanakannana um það efni. Nú keyrir þó fyrst um þverbak þegar tónlistarstjóri leggur til að vönduðustu þættir þessarar tegundar tónlistar — Áfangar, Misræmur og Hlöðuball — skulu lagðir niður. Þessi tillaga sýnir Ijóst að stjórn tónlistardeildarinnar metur ekki hlutlægt þá tónlist sem flutt er i út- varpinu. Alþýðutónlistin er álitin ómerkur sori sem skipti tónlistar- deildina engu máli. Hvernig má á annan hátt skýta væntanlega uppsögn stjórnenda áðurgreindra tónlistarþátta, sem allir hafa sýnt í verki kunnáttu, þekkingu og brenn- andi áhuga á þvi sem þeir bjóða hlustendum? Hvað vill tónlistarstjóri i staðinn — Jón Múla, Svavar Gests og Jónas Jónasson? Ágæta menn á sína vísu. Hins vegar tilheyra þeir ekki þeirri kynslóð sem getur miðlað af lifandi þátttöku i þeim byltingar- kenndu hræringum er orðið hafa í popptónlist á síðastliðnum 15 árum. Ef áðurgreindir þættir víkja er út- varpið að stíga mörg ár til baka í flutningi léttrar tónlistar. Popptónlist fær enga verðuga umfjöllun — allt er lagt að jöfnu. Vekur þetta þá spurningu hvort tónlistardeildin — opinber stofnun — hafi nokkurn siðferðilegan rétt til að kæfa niður viðleitni li skapandi umfjöllunar og flutnings á þeirri tónlist, sem vinsælust er meðal þjóðarinnar. Hvar er hjólið, hans Óla? Of lítið bensín? Ólafur Eliasson í Krummahólum 4 varð fyrir því óláni í síðustu viku, að nýlegu hjóli var stolið frá honum og hefur það ekki sézt siðan. Hjólið stóð fyrir utan blokkina heima hjá honum, þegar það hvarf. Einhverjir hljóta að hafalséð hjólið síðan, for- eldrar, eða jafnaldrar Óla, og eru þeir beðnir að koma því aftur á sinn stað og láta vita heima hjá Óla, I íbúð 5-E. Myndin er af Óla á hjólinu meðan allt lék í lyndi. Þaö er gult með stállitum brettum og gulum bögglabera. Aflmikið hðggið hefur hitt andstæðinginn sem fellur rotaður I gólfið. óláni og ógæfu fólks...” DB-mynd: Hrtrður. »

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.