Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 18.09.1980, Qupperneq 6

Dagblaðið - 18.09.1980, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980. Saudi Arabía féllst á að hækka olíuverð sitt um tvo dollara fatið á lokafundi OPEC ríkjanna i Vin í gærkvöldi. Þangað til hafði virzt sem ekkert samkomulag mundi nást á fundinum. Önnur OPEC riki — helztu olíuútflutningsríki heims — hafa í staðinn lofað að hækka ekki sitt verð fyrr en þá í fyrsta lagi um næstu áramót. Saudi Arabía lofaði einnig að halda oliusölu sinni innan við 9,5 milljón fata markið fram að sama tíma. Verð Saudi Arabíu á olíufatinu verður þá 30dollarar. Meðalverð olíu frá OPEC rikjunum verður þá 32,70 fyrir hvort olíufat. Það var áður 32 dollarar. Saudi Arabar virðast því að nokkru hafa náð því marki sínu að koma i veg fyrir miklar olíuverð- hækkanir. I hvert skipti sem þeir hafa hækkað olíuverð sitt hafa önnur OPEC ríki hækkað enn meira. Saudi Arabia er langmesti oliuút- flytjandi heimsins. Olíuverð frá nokkrum OPEC ríkjanna er allt að 37 dollarar fyrir fatið. Saudi Arabar hafa reynt að halda olíuverði stöðugu með því að auka framboð sitt á olíu á heimsmarkaði. Hefur það valdið því að nú eiga ríki utan kommúnistarikjanna olíubirgðir sem mundu duga til 100 daga notkunar ef til olíusölustöðvunar kæmi. Er þvi talið að lítill grund- völlur sé fyrir að hækka oliuverðsvo einhverju nemi. Á OPFC' fundinum í Vín síðustu dagana hala fulltrúar Líbýu, írans og Alsír mjög lagt að Saudi Aröbum að draga úr olíusölu sinni og með því hækka verðið. Með fyrirhugaðir heimsókn sinni til Rómar vill Lech Walesa leggja áherzlu á náin tengsl sín og verka- lýðshreyfingarinnar pólsku við kaþólsku kirkjuna. Atvinnuleysi eykst stððttgt i Bretlandi. Eitt þf'irr.: fysw'hvkja sem h>eit M»r xíari.sttmi «swí er stáííðjnvtrið) Durham. Það haetti i síðustu viku og við það misstti þrjú þústtrtd aumag atvinnu sína. fóiksð t& bsster frá Bdtish Steeí, Iiln« nkisréfcttit t.iMfyHrta.'kí, settí á íðjuverið og getur þvt kmaizt af um hrlð. Um íramtíðina cr sSðar; 'Æ óvissara Tyrkland: Hershöfðingj- arnir sex taka formlega við völdum Hinir sex hershöfðingjar sem stóðu fyrir byltingu hersins í Tyrklandi um síðustu helgi munu taka formlega við æðstu völdum í dag. Þykir þetta benda til þess að nokkur dráttur verði á þvi að þeir hyggist láta völdin aftur í hendur borgaralegum aðilum. Lögregluforingi var skotinn til bana í Istanbúl í gær. Einnig féll maður sem grunaður var um að vera leiðtogi vinstrisinnaðs skæruliðahóps. Eru þetta talin fyrstu pólitísku morðin sem framin hafa verið í Tyrklandi síðan herinn tók þar völdin. Áður en það varð voru að meðaltali drepnir upp undir tuttugu manns á dag I Tyrklandi. OPEC ráðstefna olfuríkja: Saudi Arabía hækkar olíuna um 2 dollara — samkomulag náðist á síðustu stundu um að öðru leyti óbreytt verð og óbreytt sölumagn fram að áramótum Anastasio Somoza: faöirhans árið 1958 einn hinn síðasti af fyrrí tíðar Mið- og Suður-Ameríkueinræðis- herrunum fallinn aðeins 54 ára að aldri Anastasio Somoza, fyrrum ein- ræðisherra í Nicaragua, féll fyrir kúl- um úr vélbyssum sex árásarmanna á götu í höfuðborg Paraguay í gær. Þarlend yfirvöld hafa nú sakað tvo Argentínumenn um að hafa tekið þátt I morðinu. í fyrstu var talið að Nicaraguamenn ættu höfuðsök á morði einræðisherrans fyrrverandi en nú segjast stjórnvöld í Paraguay fremur hallast að að það hafi vcrið fyrir frumkvæði Argentínumanna. Mennirnir tveir sem sakaðir eru um þátttöku eru sagðir félagar í marxiskum samtökum, sem voru mjög virk í Argentínu um árið 1970. Framburður þeirra sem myrtu Somoza þykir einnig benda til þess að þar þafi Argentínumenn verið á ferðinni. Einnig var hús sem morðingjarnir notuðu tekið í nafni argentínskra rithöfunda. Þó svo óvfst sé enn hverjir stóðu fyrir moröinu á‘ Somoza lét al- menningu i Nicaragua ekkert aftra sér frá að fagna morðinu innilega. Mikil fagnaðarlæti urðu á götum höfuðborgarinnar í Managua og dansaði fólk þar af gleði yfir fregnunum af falli Anastasio Somoza. Fjórtán mánuðir eru síðan einræðisherrann flúði frá Nicaragua eftir að hann og þjóðvarðliðar hans höfðu beðið ósigur fyrir liði sandinista í borgarastyrjöld. Þar er talið að i það minnsta fimmtíu þúsund manns hafi fallið. Somoza fór fyrst til Miami á Flórida en þar sem hann óttaðist að Bandaríkja- stjórn framseldi hann í hendur hinna nýju valdhafa í Nicaragua dvaldi hann þar aðeins skamma hríð. Hélt hann þá til Paraguay og var þar síðan í skjóli Alfredo Stössner einræðisherra. Þegar Somoza flúði frá Nicaragua voru aðeins nokkrir mánuðir síðan hann hafði lýst því yfir að hann mundi berjast þar til yfir lyki. Sagðist hann verða að koma í veg fyrir að kommúnistaf næðu völdum í landi sinu. En þar hafði Somoza fjölskyld- an ráðið lögum og lofum síðan árið 1936. Þá gerði faðir hans uppreisn og tók völdin í landinu. Ríkti hann sem forseti eða æðsti maður þjóðvarð- liðsins þar til hann féll fyrir byssukúlu tilræðismanns árið 1958. Þá tók eldri bróðirjnn við, en hann lézt af hjartaslagi árið 1967. Anastasi Somoza var fæddur árið 1925. Hann hóf nám í bandarískum skólum sama ár og faöir hans náði völdum í Nicaragua. Lauk hann þar prófi frá herskóla. Frá 1967 réð hann öllu í Nicaragua. Gerði þjóðvarðliðið GERIÐ GOÐ BILAKAUP BiLALEiGA AKUREYRAR Til sölu nokkrar Lada Sport '79, Lada Sedan og Lada Station '79, Opel Ascona 1,6 '77 og Chevrolet Blazer '74 bifreiðar. Greiðsluskilmólar. Skeifan9 Simar 86915 - 31615 mjög öflugt og beitti þvi óspart gegn andstæðingum sínum. Árið 1977 gerðu sandinistar fyrstu tilraun sina til að hrekja hann frá völdum er þeir tóku fimmtán hundruð gisla i þing- húsinu í Managua. Síðan gekk allt á afturfótunum fyrir Somoza. Vinslit urðu við Bandaríkjamenn árið 1978, þegar upp komst að hann hafði stolið einni milljón dollara af fé sem þeir gáfu til styrktar fórnardýrum jarðskjálfta i Nicaragua.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.