Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 18.09.1980, Qupperneq 11

Dagblaðið - 18.09.1980, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980. II Foreldrar 16 barna í Gninnskólanum í Grindavík vilja að Ragnar Ágústsson kennari víki: „ Vil ekki ræða málið í blöðum" Ragnar Ágústsson kennarí I Gríndavfk. 24 böm i 4. bekk A I Grunnskólanum I Grindavfk mæta ekki f skólann og foreldrar þeirra krefjast þess að hann vfki. Myndin var tekin fyrir réttu ári. Þá lýsti hann stuðningi við Hjálmar Árnason þá- verandi skólastjóra f Grindavfk og Ragnar Arnalds þáverandi menntamálaráðherra I harðrí deilu sem stóð dögum saman um skipan ráðherrans f stöðu skólastjóra. DB-mynd: Ragnar Th. ^Eins og þess- ir menn telji sig í strídi” — segir Jón Ágústsson, sjómaður í Grindavík, en kveikt var í skúr þar sem hann geymdi svín sín í síðustu viku. Nú er þess krafizt að bróðir hans víki sem kennari „Það er eins og þe'ssir menn telji sig vera i einhverju stríði,” sagði Jón Ágústsson, sjómaður i Grindavík, í samtali við blaðamann DB. Eins og DB greindi frá í síðustu viku kveiktu tveir menn i svínaskúr í Grindavík þar sem Jón hafði fengið inni með svín sin til bráðabirgða. Nú hefur þess verið krafizt af foreldrum barna að einn kennaranna við Grunnskóla Grindavíkur viki úr starfi. Sá kennari, sem hér um ræðir er bróðir Jóns.Jón sagði það skrítið að annar þeirra manna, sem kveiktu í svínaskúrnum væri framarlega i hópi þeirra foreldra sem vilja að kennar- inn, Ragnar Ágústsson, hætti. Það væri eins og þessir menn teldu sig i stríði við þábræður. „Þetta eru alveg óskyld mál,” sagði einn foreldranna sem krefjast þess að Ragnar hætti. „Hér er ekki um að ræða persónulegar árásir.” Viðmælandi DB sagði að kveikt hefði verið í svínaskúrnum til að mótmæla seinagangi bæjarstjórnar- innar í því máli. Það hefði verið alveg óviðkomandi persónu Jón Ágústs- sonar. „Ragnar Ágústsson er góður kennari. Það segja allir. En hann skiptir sér ekki af, hvernig börnin haga sér. Það er agaleysið sem hann er gagnrýndur fyrir fyrst og fremst,” sagði viðmælandi DB. -GAJ. Þingfiokkur Sjálfstæðismanna hefur vítt „vim'ubrögð fulltrúa Alþýðubandalagsins” í Flugleiða- málinu „og telur að þau hafi valdið Flugleiðum h.f. miklu tjóni, stefnt í hættu atvinnu fjölda fólks sem að flug- málum vinnur og skaðað þjóðarhags- muni,” að því er segir í ályklun, sem samþykkt var á fundi þingflokksins í gær. Segir þar einnig, að þingflokkurinn telji einsýnt, að stjórnvöld geri ítrustu tilraunir til að tryggja fiugsamgöngur yfir Norður-Atlantshafið. Lýsir þing- fiokkurinn sig reiðubúinn til samstarfs í þeim efnum, „enda sé ekki stefnt í ríkisrekstur flugs og gagnslausar fjár- skuldbindingar skattgreiðenda,” eins og segir í ályktuninni. -ÓV. — segir Olína Ragnarsdóttir bæjarfulltrúi og varamaður í skólanefnd. Hún skrifaði undir mótmslaskjal og sendir ekki barn sitt í skólann „Foreldrar barnanna samþykktu að tala ekkert um málið í blöðum og ég vil því ekkert segja,” sagði Ólína Ragnars- dóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í Grindavík, þegar Dagblaðið spurði um ástæður þess að hún skrifaði nafn sitt á undirskriftalista gegn einum kennara Grunnskólans í bænum. Foreldrar 16 barna af alls 24sem eru i 4. bekk A í skólanum skrifuðu undir skjalið og afhentu það skólanefnd og skólastjóranum. Vilja þeir að Ragnar Ágústsson kennari víki og í mótmæla- skyni hefur ekkert barn í bekknum mætt í skólann. Texti undirskrifta- sk jalsins er svohljóðandi: „Við undirrituð foreldrar barna sem verða í 4. bekk A í Grunnskóla Grindavíkur á komandi vetri höfum frétt að kennari þeirra verði Ragnar Ágústsson. Vegna fenginnar reynslu og fjölda annarra foreldra af starfi hans óskum við eftir því að annar kennari komi i hans stað. Ef ekki munum við foreldrar halda börnum okkar heima.” Ólína Ragnarsdóttir, sem er vara- fulltrúi i skólanefnd í Grindavík, neitaði alfarið að ræða málið eins og áðursegir. Gunnlaugur Dan Ólafsson skóla- stjóri í Grindavik sagðist vonast til að málið leystist um helgina. Þá yrði hald- inn fundur þar sem hann hygðist leggja fram ákveðna tillögu til lausnar. Um efni tillögunnar vildi hann ekkert segja. Skólastjóri, skólanefnd, Helgi Jónasson fræðslustjóri í Reykjanesum- dæmi og foreldrarnir sem neita að senda börn í skólann sátu fund um mál- ið á mánudagskvöldið. Þeir sem voru á fundinum vörðust allra frétta þegar Dagblaðið leitaði eftir þeim. Fyrir tæpu ári síðan var Grunn- skólinn í Grindavík mjög í fréttaljósi fjölmiðlanna vegna þeirrar ákvörðunar Ragnars Arnalds, þáverandi mennta- málaráðherra, að skipa Hjálmar Árna- son í stöðu skólastjóra í Grindavík. Urðu mikil átök um þá ákvörðun ráðherrans þar sem ýmsir töldu að Bogi Hallgrimsson yfirkennari hefði verið betur kominn að stöðunni, m.a. vegna þess að hann hafði full réttindi í starf- ið. Ragnar Ágústsson kennari lýsti þá yfir stuðningi við Hjálmar Árnason og málsmeðferð menntamálaráðherrans í samtali við Dagblaðið, 4. október. f lok viðtalsins sagði Ragnar: „Ég er sammála því grundvallar- atriði kennara að halda rétti sinum. 1 þessu ákveðna máli hefði hver réttsýnn maður gert hið sama og Ragnar Arnalds. Það er svo sjálfsagt að ekki þarf að þakka ráðherranum.” Nú er það sem sagt Ragnar Ágústs- son sjálfur sem er miðdepill atburða- rásarinnar í Grindavík. Illa gengur að fá fram hvað það er sem foreldrar hafa út á hann að setja sem kennara. Gunnlaugur Dan skólastjóri sagði að foreldrarnir „treystu Ragnari ekki til að kenna börnum sínum nægilega vel.” -ARH. ATLI RUNAR HALLDORSSON n V % SKIPAÚTGCRÐ RIKISINS Ms. Coaster Emmy fer frá Revkjavík 23. þ.m. vestur um land til Akureyrar og snýr þar við. Ms. Baldur fer frá Reykjavik 23. þ.m. til Pat- reksfjarðar, Þingeyrar og Breiða- fjarðarhafna. Ms. Hekla fer frá Reykjavik 25. þ.m. til Aust- fjarðahafna og snýr við á Vopna- firði. Ms. Esja fer frá Reykjavik 26. þ.m. vestur um land i hringferð. Viðkomur samkvæmt áætlun. Talstöóvar ísérflokki úrval af ftnetum Igihlutum. mgóða stu. RafeindatækJ Stigahlið 45-47 Sími 91-31315 Fulltrúar Al- þýðubandalags- ins hafa skaðað þjóðarhagsmuni — segir í ályktun þingflokks Sjálfstædisflokksins um Flugleiðamálið v^tttun er haf/ Innritunarsímar: wWM W’ 84750 kl. 10—7. _ W 84750 kl. 10—7. 29505 kl. 10—7. 53158 kl. 1—6. Kenndir verða: Barnadansar, yngst 3ja ára. Hjóna- og Diskódansar einstaklingsflokkar Jazz-dans Rock Stepp Konu beat 20 ára Samkvæmisdansar og eldri. Takið eftir: Nýjung frá Þýskalandi Fjörua og skemmtileg spor i Rocki. DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS OÓO

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.