Dagblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980. « Útvarp 27 Sjónvarp » I erindi slnu I kvöld fjallar Hörður Bergmann um einkenm gööra skóla. Myndin er af útskrift stúdenta í Menntaskólanum i Kópavogi. HVERNIG ER GÓÐUR SKÓU? - útvarp í kvöld kl. 22,35: SKÓLASTARFK)í HNOTSKURN Annað erindi Harðar Bergmanns kennara um skóla er á dagskrá út- varpsins í kvöld. 1 fyrsta erindinu, sem flutt var síðastliðinn fimmtudag, fjallaði Hörður um einkenni skóla’, hvað það væri, sem einkenndi allt skólastarf. Erindi Harðar í kvöld nefnist Hvernig er góður skóli? Til að lýsa viðhorfi sínu til þeirrar spurningar leggur Hörður sjö þætti til grundvallar. Þessir sjö þættir eru: námsefnið eða inntak skólastarfsins, kennslu- aðferðirnar, timaskiptingin, náms- matið, samskiptin í skólanum, stjórnun og eftirlit með nemendum og loks hvernig skólar standa skil á starfi sínu. Þriðja og síðasta erindi Harðar Bergmanns um skóla verður flutt eftir viku. Það nefnist: Höfum við góða skóla? Þar mun Hörður lýsa rikjandi viðhorfum til skóians eins og þeim hefur verið lýst af ýmsum að undan- förnu, bæði af nemendum, kennara- nemum og kennurum. -GAJ. DAGLEGT MÁL - útvarp í kvöld kl. 19,35: SUMARVAKA - útvarp í kvöld kl. 19,40: Fremsta söngkona íslands — Sigríður Ella syngur íslenzk lög Meðaí efnis á Sumarvökunni í kvöld má nefna einsöng Sigríðar Ellu Magnúsdóttur við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar. Sigríður Ella hefur fyrir löngu áunnið sér mikla virðingu sem söngkona og er af mörgum talin okkar fremsta söngkona. Hún þykir nánast jafnvig sem Ijóða- og óperusöngkona, en slíkum hæfileikum eru ekki margar söngkonurgæddar. Sigríður Ella hefur unnið til margra verðlauna erlendis fyrir söng. Ólafur Vignir Albertsson leikur undirá pianó. Af öðrum þáttum Sumar- vökunnar má nefna þriðja erindi Vilhjálms Hjálmarssonar fyrrum níenntamálaráðherra um íshús og beitugeymslu og söguþátt séra Jóns Kr. ísfeld af manntjóninu mikla á Amarfirði 20. september 1900. -GAJ. I Ólafur Vignir Albertssonog Sigriður F.lla Magnúsdóttir. UM AMBOGUNA FLUGLEIDIR Meðal þess sem Þórhallur Gultormsson cand. mag. gerir að umtalsefni í útvarpsþættinum Dag- legu máli í kvöld er röng notkun falla og svokallaður eignarfallsfiótti þar með. Einnig mun Þórhallur ræða um, hvernig menn forðast góð og gild orð eins og orðið drykkfelldur og búa til einhver önnur i staðinn, sem kannski eiga að vera hæverskari. Flugleiðir hafa mikið verið i sviðsljósi að undanförnu og hefur í umræðum manna um fyirtækið oft komið í ljós, að orðið Flugleiðir er oft beygt ranglega. í samtali við blaðamann Dag- blaðsins kvaðst Þórhallur mundu gera amböguna Flugleiðir að umtals- efni og bera saman við aðrar beyging- ar og hliðstæður sem ekki eru nýjar af nálinni. -GAJ. Þórhallur Guttormsson cand. mag. LEIKRIT VIKUNNAR - útvarp kl. 21,40: Tólf punda tillitið í kvöld klukkan 21.40 verð- ur flutt Tólf punda tillitið, gam- anleikur eftir James M. Barrie. Þýðandi er Þorsteinn ö. Stephensen, en ieikstjóri Rúrik Haraldsson. í hlutverkum eru: Helgi Skúlason, Margrét Guðmundsdóttir og Brynja Benediktsdóttir. Flutningur leiksins tekur rúman hálftima. Tæknimaður er Georg Magnússon. Harry Sims á að hlotnast sá heiður að verða aðlaður eftir nokkra daga, og hann æfir athöfnina með konu sinni. Ekkert má fara úrskeiðis, því sá væntanlegi Sir Harry er hégóm- legur leiðindaskröggur. Kona sem vinnur við vélritun kemur I heim- sókn, og frú Sims finnst hún vita grunsamlega mikið um manninn hennar. Höfundurinn, James Matthew, Barrie, var sjálfur aðlaður á sinni tíð. Hann fæddist í Kirriemur i Skotlandi árið 1860 og stundaði nám í Edin- borg þar sem hann varð siðar háskólarektor. Barrie hóf rithöf- undarferil sinn með ljóðum og frá- sögnum úr heimahögunum. Kunn- astur er hann þó fyrir leikrit sin, sem stundum eru gáskafull og ævintýra- leg, stundum þrungin þjóðfélags- ádeilu sem þó verður aldrei leiðinleg Ævintýraleikurinn ,,Peter Pan” (1904) vakti mikla athygli. Af öðrum verkum má nefna ,,The Admirable Crichton” (1902), „What Every Rúrik Harmldsson leikstjórl. Woman Knows” (1908) og ,,A Kiss for Cinderella” (1916). Sjálfsævisaga Barries, „The Greenwood Hat” kom út 1937. Sama ár lézt hann í London. Útvarpið hefur áöur fiutt eftirtalin leikrit eftir Barrie: Erfðaskráin (1935), Ástarsaga prófessorsins (1964) og Engum er Crichton likur (1973). Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 - Sími 15105 — hlaðborð — kr. 1500? Hádegisverðurfrá kr. 3300.- Súpa kr. 975.- Síðdegiskaffi. Morgunverður og hádegisverður aðeins virka daga. Leigjum út fyrir hvers konar fundi og samkvæmi. Sfmi 13880 * •BANKASTRÆTI 11— Veitíngar frá kl. 20. HORNIÐ HAPNABSTRÆT115

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.