Dagblaðið - 18.09.1980, Side 28
Kennaramálið í Grindavík:
EKKIKVARTAÐ VEGNA
RAGNARSí FYRRA
— segir Gunnlaugur Dan skólastjóri
„Ragnar kenndi í 6 ára bekk í
fyrravetur. Þá bárust ekki kvartanir
frá foreldrum mér vitanlega. Hvort
kvartanir hafi borizt vegna Ragnars
áður veit ég ekki þar sem ég tók við
skólastjórn á sl. hausti,” sagði Gunn-
laugur Dan Ólafsson, skólastjóri í
Grindavík, í samtali við DB í morgun
vegna mótmæla foreldra barna í 4.
bekk A í skólanum. Foreldrarnir vilja
að Ragnar Ágústsson bekkjarkennari
viki og hafa ekki sent börn sín í tíma
hjá honum frá því skóli var settur.
Dagblaðið hefur reynt að fá það
upplýst hjá foreldrum sem skrifuðu
undir mótmælaskjal gegn Ragnari
Ágústssyni hver ástæða væri fyrir
óánægju með hann. Hafa foreldrar
sem rætt var við neitað að ræða
málið og vísað til sameiginlegrar sam-
þykktar þar að lútandi.
Björn Birgisson yfirkennari i
Grindavík og Ingibjörg Gunnlaugs-
dóttir eiga eitt barnið sem ekki hefur
komið í tíma hjá Ragnari. Björn
sagði aðspurður um ástæðu þessa:
„Ég hef ekki komið nálægt þessu
máli á nokkurn hátt. Stöðu minnar
vegna get ég heldur ekkert sagt.
Móðir barnsins skrifaði undir mót-
mælaskjalið og það er hennar
ákvörðun að senda barnið ekki i skól-
ann.”
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir kona
hans sagði það samantekin ráð for-
eldra að segja ekkert um málið, ,,en
ég vona auðvitað að málið leysist á
farsælan hátt.”
Gunnlaugur Dan skólastjóri hefur
lagt fram tillögur um lausn málsins
sem fela það m.a. i sér að Ragnar
kenni 4. bekk A að hluta til, en einn
eða fleiri kennarar taki kennslu á
móti honum í bekknum. Er boðaður
fundur í Grindavik með foreldrunum
á laugardaginn til að taka ákvörðun
til lausnar í deilunni. Eftir því sem
DB kemst næst munu foreldrar ekki
sáttir við þá tillögu og er þess vænzt
að skólastjórinn leggi fram nýja til-
lögu.
- ARH
„Luxemborgarar taka
vel í tillögur okkar^
— sagði samgönguráðherra eftir viðræðufund f morgun
,,Það má fullyrða að
Luxemborgarar taka vel í tillögur
íslenzku ríkisstjórnarinnar um lausn
á Atlantshafsfluginu. Útilokað hefði
verið að koma hingað án þess að hafa
þennan álitlega tillögupakka sem
samþykktur var í íslenzku ríkisstjórn-
inni og við lögðum hér fram,” sagði
Steingrímur Hermannsson eftir
viðræðufund sem stóð frá kl. 8—9 í
morgun í Luxemborg og fór fram i
samgönguráðuney tinu.
Steingrimur kvað Luxemborgara
hafa.i morgun spurt mikið út í okkar
tillögur, m.a. mjög um hvers vegna
íslenzku ríkisstjórninni þætti stórum
betra að halda fluginu áfram með
íslenzku félagi frekar en að stofnað
yrði nýtt félag. Þeir hafa lika spurt
mikið um horfurnar i markaðs-
málunum.
Steingrímur kvaðst álita að á
næstu einni til tveimur vikum yrði að
taka endanlega ákvörðun um hvort
íslendingar hygðust halda áfram
Atlantshafsflugi eða ekki.
Ríkisstjórn Luxemborgar finnst
mikið um það vert að rikisstjórn
íslands vill gripa inn í málið. 90
milljón franka stuðningurinn frá
Luxemborg við Atlantshafsflug
Flugleiða er kominn i tillöguformi
inn á fjárlög Luxemborgar fyrir
næsta ár, en samkvæmt lögum geta
þeir ekki veitt fyrirtæki skráðu i
öðru landi aðstoð til neins konar fjár-
festingar.
„Við getum að sjálfsögðu ekki
fyrirskipað neinu félagi að halda
uppi ákveðinni starfsemi eins og
Atiantshafsflugi. Máliðþarf sjálfsagt
umræðu á hluthafafundi — og það á -
eftir að skoða ofan í kjölinn þessi
stórkostlegu undirboð i flugfar-
gjöldum, eins og m.a. kemur fram í
hinu nýja tilboði British Airways til
ríkisstjórnar Luxemborgar,” sagði
Steingrimur.
Næsti viðræðufundur verður
haldinn kl. hálfþrjú í dag, en í fyrra-
málið er ákveðinn viðræðufundur
milli Steingríms Hermannssonar og
forsætisráðherra Luxemborgar.
-A.St.
Svartsýni gætir í
Luxemborg um lausn
Hugleiðamálslns:
Steingrímur
ánægður —
öðrum þótti
lítið miða
— eftir fyrsta við-
ræðufundinn í
Luxemborg í gær
Lítillar bjartsýni gætir i
Luxemborg um það að lausn fmnist á
vandræðum sem upp hafa komið i
Atlantshafsflugi Flugleiða. Sá eini
sem einhverja bjartsýni lét í Ijós var
Steingrímur Hermannsson er hann
sagði að afloknum fundi: „Eins og
við mátti búast kom það strax i ljós í
viðræðunum viö samgönguráðherra
og aðra Luxemborgara um flugmálin
að þeir eru reiðubúnir til að ganga
lengra til stuðnings við stofnun nýs
flugfélags, sem staðsett yrði og skráð
í Luxemborg, en tæki við Atlants-
hafsflugi Flugleiða, heldur cn að
styðja og styrkja Flugleiði' uláfram-
haldandi Atlantshafsflugs.”
„Vissir þættir i þeirra tillögum eru
þó ekki bundnir við stofnun nýs flug-
félags,” sagði ráðherrann. Hann
kvað of snemmt að láta fjölmiðlum í
té sundurliðaða þætti tillagna
íslenzku ríkisstjórnarinnar til lausnar
vanda Flugleiða.
„Okkur og okkar málstað var vel
tekið og ég kalla þennan fyrsta fund
góðan fund.” sagði Steingrímur.
„Luxemborgarar eru með ýmsar
sömu niðurstöður og við eftir úr-
vinnslu á fyrri tillögum sínunt. Þeir
• kýrðu okkur frá bvnð beir hefðu
aðhafzl i máliuu.
Það er hins vcgar of snemmt
að segja nokkuö um hvort þessar
viðræður við Luxemborgara leiöa til
niðurstöðu sent leysir vandræði
Flugleiða né heldur i hverju þær
Jausnir kunna að felast ef þær
finnast.” -A.St., I.uxemborg.
Þriggja metra hákarl og selkópur þykja lltill happafengur I þorskanet. Þetta mátti þó einn af netabátunum sem rœrfrá
Reykjavlk þola fyrr I vikunni. Netin voru lögó I Faxaflóabugtinni — norðan við hraunið — en þar munuflestir netabátamir
halda sig um þessar mundir. Selkópurinn litli mun vafalaust hafa gert lítinn usla I netunum en hákarlinn vafði aftur á móti
mörgum netum um sig og reifþau og tœtti. Myndin er tekin þar sem þessi tvö börn hafsins lágu á einni verbúðarbryggjunni
niðriá Granda. DB-mynd Sveinn Þorm.
iijálst, áháð dagblað
FIMMTUDAGUR 18. SEPT. 1980.
Jámin vitlaust sett í
steyptan stiga í
fjölbýlishúsi á Seifossi:
Stiginn
hrundi og
smiður
slasaðist
Trésmiður slasaðist og var fluttur á
Borgarspítalann í síðustu viku, er
steyptur stigi í nýbyggðu fjölbýlishúsi á
Selfossi hrundi. Maðurinn féll á milli
þriðju og annarrar hæðar, en húsið er
þriggja hæða.
öryggiseftirlit ríkisins kannaði vett-
vang eftir að slysið varð, og sagði
Hjalti I. Þórðarson, tæknifræðingur
hjá öryggiseftirlitinu, í gær að hér
hefði verið um forsteyptan stiga úr
steinsteypu að ræða, en þeir eru
nokkuð algengir í húsum. Það hefði
hins vegar komið í Ijós að í stiganum
milli annarrar og þriðju hæðar hefðu
járnin verið rangt sett í stigann og því
hefði verið svo sem ekkert járn hefði
verið í stiganum.
Smiðurinn hefði síðan verið að hossa
sér i stiganum og hefði.hann þá hrunið
á milli hæða. Hjalti sagði að komið
hefði í ljós að gat hefði verið í eftirliti
byggingarfulltrúa á Selfossi, hann
hefði látið hjá líða að athuga hvort
járnin væru rétt sett i, en það væri í
hans verkahring. Að öðru ieyti væri
ekkert athugavert við þessa gerð stiga
frá öryggissjónarmiði.
- JH
Snurða hljóp á þráð í
samningum við málm-
iðnaðarmenn í gær:
Strandaði
á „túlkun-
arvanda-
málum”
Samningafundir Málm- og skipa-
smiðasambandsins og atvinnurekenda
stóðu allan daginn í gær og var
árangurslaust reynt að sættast á röðun
starfsheita i launaflokka. Strandaði á
„einhverjum túlkunarvandamálum”
eins og það var orðað. Áfram verður
reynt að semja í dag við málmiðnaðar-
menn.
Þá lögðu matreiðslumenn fram hug-
myndir sínar um launaflokkaröðun hjá
sáttasemjara í gær. Er boðaður
fundur þeirra og viðsemjendanna kl.
14 í dag.
Samband byggingamanna og
Vinnuveitendasambandið eru langt
komin aðsemja um launaflokkaröðun.
Er búizt við að smiðshöggið á
samninga þeirra verði rekið í dag.
14 manna nefnd ASÍ hittist á fundi í
dag og sömuleiðis samninganefnd VSÍ.
Viðræður um kauptölur, vísitölu og
félagsleg réttindi hefjast ekki fyrr en
lokið er samningum um launaflokka-
röðun við öll aðildarsambönd ASÍ.
-ARH.
LUKKUDAGAH:
18. SEPTEMBER 511
Vöruúttekt að eigin vali frá
Liverpool.
Vinningshafar hringi
ísima 33622.