Dagblaðið - 19.09.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 19.09.1980, Blaðsíða 1
Sjónvarp Laugardagur 20. september 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Fred Flintstone í nýjum ævintýrum. Sautjándi og síðasti þáttur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.55 Enska knattspyrnan. Hlé. 20.00 Fréttirogveður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Shelley. Gamanþáttur. Þýð- andi Guðni Kolbeinsson. 21.00 Einu sinni var. . . Trad kompaníið leikur gamlan jass. Kompaníið skipa: Ágúst Elías- son, trompet; Helgi G. Kristjáns- son, gítar; Friðrik Theodórsson, bassi og söngur; Kristján Magnússon, píanó; Júlíus K. Yaldimarsson, klarínetta; Sveinn Óli Jónsson, trommur, og Þór Benediktsson, básúna. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 21.30 Mávurinn. Bresk bíómynd fráárinu 1968, byggð áeinhverju þekktasta leikriti Tjekovs. Leik- félag Reykjavíkur sýndi ieikritið árið 1971. Leikstjóri Sidney Lumet. Aðalhlutverk James Mason, Simone Signoret, Vanessa Redgrave og David Warner. Þýðandi Rannveig Tryggvadóttir. 23.45 Dagskrárlok. Sunnudagur 21. september 18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Ólafur Oddur Jónsson, prestur í Keflavík, flytur hugvekjuna. 18.10 Fyrirmyndarframkoma. Hégómagirnd. Þýðandi Kristín Mántyla. Sögumaður Tinna Gunnlaugsdóttir. 18.15 Óvæntur gestur. Áttundi þáttur. Þýðandi Jón Gunnars- son. 18.40 Frá Fidji-eyjum. Heimilda- mynd um lifið á Suðurhafseyj- um. Þýðandi Óskar Ingimars- son. Þulur Katrin Árnadóttir. 19.05 Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 ,,Við skulum til gleðinnar gá”. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð flytur íslensk tón- verk. Stjórnandi Þorgerður Ingólfsdóttir. Stjórn upptöku Andrés Indriðason. 21.00 Dýrin mín stór og smá. Sjöundi þáttur. Háll eins og áll. Efni sjötta þáttar: Tristan kynnist ungri stúlku, Júlíu Tavaener, dóttur milljóna- masrings. Siegfried þekkir föður hennar og líst ekki meira en svo á stúlkuna, en hvað skal gera þegar,,ástin grípur ungling- ana”? Óheppnin eltir James. Hann fer í vitjanir og verður of seinn til að fara með konu sinni í kirkju að hlusta á „Messías”, og veikur páfagaukur drepst í höndunum á honum. Honum tekst þó að bæta úr því með góðri hjálp ráðskonunnar. Astarumleitanir Tristans ganga hálfskrykkjótt, þangað til hann segir stúlkunni sannleikann: að hann sé fátækur námsmaður. En það sem á eftir fer verður jafnvel Tristan um megn, svo hann grípur fegins hendi fyrsta tæki- Beðið eftir hinu daglega brauði i Varsjá: oft er ekkert til þegar til kemur. SJÖ DAGAR í GDANSK — sjónvarp þriðjudag kl. 22,00: Hin ómögulegu verkföll — sem skóku máttarstoðir hins sósíalíska þjóðskipulags í Póllandi Þegar fram í sækir er líklegt, að fátt verði talið merkilegra en „hin ómögulegu verkföll” pólskra verka- manna. Tii þessa hefur verið talið óhugsandi, að verkamenn í kommún- istalöndunum fari i verkföll, en pólskir verkamenn sönnuðu það enn einu sinni, að þeir meta brauð í tóma maga sína meira en hugmyndafræði flokksins. Væntanlega eru flestir lesendur og sjónvarpsáhorfendur allvel kunnugir gangi mála í Póllandi að undanförnu, þar sem verkamenn víðs vegar um landið — einkum þó í skipasmíða- stöðvum á Eystrasaltsströndinni — skóku máttarstoðir hins sósíalíska þjóðskipulags. Þeir knúðu fram — friðsamlega og með þrautskipu- lögðum aðgerðum — verulegar til- slakanir í frelsisátt, auk kjarabóta. Verkföllunum í Póllandi er ekki lokið. Efnahagslegar afleiðingar verkfallsaðgerðanna og samning- anna, sem tókust í kjölfar þeirra, eiga enn eftir að koma í ljós. Forystu- menn kommúnistaflokksins í landinu hafa lýst því yfir, að efnahagslífið þoli engan veginn þær launahækk- anir og aðrar kjarabætur, sem fallizt hefur verið á (og minnir það nokkuð á Sólstöðusamningana svokölluðu hérlendis fyrir fáum árum). Þá eru pólitiskar afleiðingar enn óljósari. Drottnarar landsins í Kreml hafa lýst megnri óánægju sinni með verkföllin og tilslakanir pólskra stjórnvalda og Rússar hafa til þessa ekki hikað við að beita sínum eigin ráðum til að halda ástandinu í skefjum, sbr. Ung- verjaland, Tékkóslóvakíu og Afgan- istan. Enn sem komið er þykir þó hæpið að herir Varsjárbandalagsins verði sendir inn í Pólland, enda má búast við að Pólverjar grípi til vopn- aðrar andspyrnu. En það á líka eftir að koma í ljós á hvern hátt pólsk stjórnvöld standa við gerða samn- inga. í brezku fréttamyndinni Sjö dagar í Gdansk, sem sýnd verður í sjón- varpinu á þriðjudagskvöldið, lýsa sjónvarpsfréttamenn atburðum í skipasmiðastöðvum í Gdansk og ræða við verkfallsmenn. Pólsk yfir- vöid meinuðu brezkum sjónvarps- mönnum að fylgjast með gangi verk- fallanna, en þeir fóru engu að síður á staðinn sem ferðamenn. Myndin er afrakstur þeirrar ferðar. . -ÓV færi til að sleppa. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 21.50 Heilablóðfall. (Explosions in the Mind). Heimildamynd frá BBC. Mannsheilinn er viðkvæm- ur, og jafnvel lítils háttar truflun getur valdið miklu tjóni. það kallast „slag”, þegar æðar j bresta, og leiðir oft til lömunar eða dauða. En heilinn reynir af sjálfsdáðum að rétta sig við eftir áfallið, og vísindamenn kapp- kosta að greiða fyrir endur- hæfingunni. Þýðandi og þulur Bogi Arnar Finnbogason. 22.40 Dagskrárlok. Mánudagur 22. september 20.00 Fréttirogveður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 ívar Gull. Sænsk teikni- mynd. ívar er einn af þessum ná- ungum, sem taka stórt upp í sig og verða að taka afleiðingunum. (Nordvision — Sænska sjón- varpið). 20.40 íþróttir. Umsjónarmaður Jón B. Stefánsson. 21.15 Styrjaldarbarn. Finnskt sjónvarpsleikrit, byggt á bók eftir Annu Edvardsen. Höfundur handrits og leikstjóri Eija-Elina Bergholm. Aðalhlutverk Ritva Vepsá, Mirka Markkula, Maria Kemmo og Marja-Sisko Aimon- en. Á stríðsárunum voru um 70.000 finnsk börn send til Sví- þjóðar. Að loknum ófriðnum sneru flest barnanna heim, en sum ílentust í Svíþjóð. Þetta er saga eins „styrjaldarbarnanna”, Önju Dahl. Þýðandi Kristín Mántylá. (Nordvision — Finnska sjonvarpið). 22.40 Hrun Bretaveldis (Decline and Fall). Bresk heimildamynd. Stefna sú, sem rikisstjórn Marga- ret Thatcher fylgir, er mjög i anda Nobelsverðlaunahafans Miltons Friedmans. Ýmsir hag- fræðingar telja nú, að hún muni leiða Breta út í miklar ógöngur og jafnvel efnahagslegt hrun. Þýðandi Sonja Diego. 23.10 Dagskrárlok. Þriðjudagur 23. september 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. .20,35 Fræið. Sýning Leikbrúðu- lands. Áður í Stundinni okkar 29. nóvember 1978. 20.40 Dýrðardagar kvikmynd- anna. Vitskertu vísindamenn- irnir. Þýðandi Jón O. Edwald. t21.15 Sýkn eða sekur? í heima- högum. Þýðandi Ellert Sigur- björnsson. 22.00 Sjö dagar í Gdansk (The Im- possible Strike). Bresk frétta- mynd. Pólsk yfirvöld meinuðu breskum sjónvarpsmönnum að fylgjast með gangi verkfallanna miklu, sem skóku sjálfar máttar- stoðir hins sósialíska þjóðskipu- lags. Þeir fóru engu að síður á vettvang sem skemmtiferða- menn, tóku kvikmyndir í skipa- smíðastöðunni í Gdansk og ræddu við verkfallsmenn. Þýð- andi Bogi Arnar Finnbogason. J22.30 Dagskrárlok. Miðvikudagur 24. september 20.00 Fréttir og veður. '20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Börnin, byggðin og snjórinn j s/h. Myndir af börnum og dýr- | um að leik í snjónum í Reykja- vík. Umsjónarmaður Hinrik | Bjarnason. Myndin var áður sýnd árið 1968. (21.00 Djúpköfun (Divers Do It Deeper). Bresk heimildamynd um framfarir í djúpköfun. Með- al annars er fylgst með köfurum sem vinna erfitt og hættulegt starf við oliuborun í hafdjúpinu fyrir norðan Hjaltland. Þýðandi Björn Baldursson. 22.00 Hjól. Bandarískur fram- haldsmyndafiokkur, byggður á skáldsögu eftir Arthur Hailey. f Annar þéttur framhaldsmyndaflokksln. HJdl ar á dagskrá á mlflvikudagakv&idlð kl. 22. Þnttirnir eru byggflér á ekáldsögu hins vinsnla bandarfska rithöfundar Arthurs Hailey. HRUN BRETAVELDIS — sjónvarp mánudag kl. 22,40: UODIR THATCHER BRETA ÚT í EFNAHAGSLEGT HRUN? helming. Eru atvinnuleysingjar nú rúmlega tvær milljónir i landinu. Auk þess eiga flestir atvinnuvegir Bretlands við mikla erfiðleika að stríða. Brezkar vörur eru ekki lengur samkeppnisfærar á erlendum mörk- uðum og innfluttar vörur eru tiltölu- lega ódýrari en þær sem eru framleiddar heima fyrir. Að mörgu leyti er þessi stefna ríkis- stjórnar Margaretar Thatcher í anda kenninga hagfræðingsins og nóbels- verðlaunahafans Miltons Friedmans. f sjónvarpinu á mánudagskvöld kl. 22.40 verður sýnd brezk heim- ildarmynd um stefnu rikisstjórnar Margaretar Thatcher sem nefnist Hrun Bretaveldis eða Decline and Fal! og er þýðandi Sonja Diego. -ELA / ÓG Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Breta, er ákveðin kona, sem fylgir stefnu sinni eftir til hins ýtr- asta. í efnahagsmálum telur hún að halda megi niðri verðbólgunni með sérstökum og ákveðnum aðgerðum í peningamálum. Þessar aðgerðir byggjast m.a. á háum vöxtum og verulegum samdrætti í lánafyrir- greiðslu banka. Auk þess hefur ríkis- stjórn Thatcher aukið mjög sparnað í opinberum rekstri. Þrátt fyrir þessar aðgerðir gegn verðbólgunni i Bretlandi hefur sama sem ekkert dregið úr henni. Auk þess hefur atvinnuleysi aukizt um allan Margaret Thatcher forsætisráðhcrra Bretlands er ákveðin kona og fylgir stefnu sinni eftir til hins ýtrasta.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.