Dagblaðið - 19.09.1980, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 19.09.1980, Blaðsíða 6
Hvað er á seyðium helgina? Matreiðslumeistararnir á Hótel Holti og Þingholti, Ingvar Jakobsson og Sverrir Þorláksson, hafa sjálfir prófað sig áfram i matreióslunni á hinum óvenju- legu fisktegundum sem boðið er upp á i Hótel Holti. Fyrir utan islenzkar fisk- tegundir má einnig fá þar froskalappir, sem ættaðar eru frá Indónesiu. DB-mynd Ragnar Th. Veitingahús helgarinnar: ÓVENJULEGIR FISKRÉTTIR Á HÓTEL HOLTI Engin þjóð í heimi getur boðið upp á jafngóðan og ferskan fisk og Íslendingar. Samt hefur löngum borið við að á veitingahúsum hefur varla verið boðið upp á annað en annaðhvort djúp- eða pönnusteiktan fisk. Nú hefur orðið á breyting. Hótel Holt býður upp á fjölbreyttan fiskmatseðil, þar sem finna má alls kyns fisktegundir sem ekki hafa áður verið algengar á matseðlum. Nefna má ufsa, lýsu, löngu, keilu, steinbít, hlýra, grálúðu, ókæsta skötu, sólkola, sandkola og smokkfisk. Matreiðslumennirnir á Holti hafa sjálfir prófað sig áfram með upp- skriftirnar og er ekki hægt að segja annað en að þeim hafi tekizt alveg sérlega vel upp. Ekki má gleyma gratíneruðu gellunum, sem eru hreinasta lostæti. — Og hvað kostar svo óvenjuleg fisk- máltíð á Holti? Milli 4 og 5 þúsund krónur. -A.Bj. Aðalfundir Aðalfundur Prestafélags Suðurlands Prestafélag Suðurlands heldur aðalfund sinn dag ana 21. og 22. septcmber i Skálholti. Aðalfundur Skautafélags Reykjavtkur verður haldinn I félagsheimilinu Þróttheimum við Holtaveg (Sæviðarsund) I kvöld, föstudag 19. sept- ember, kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, kvikmýndasýning, Ishockey. Aðalfundur handknattleiks- deildar Hauka Handknattleiksdeild Hauka heldur aðalfund sinn i Haukahúsinu laugardaginn 20. septcmber kl. 14. Flóamarkaður Stjornmalafundir Fundur Félags framsóknar- kvenna í Reykjavík Félag framsóknarkvenna i Reykjavik heldur fund i kaffiteriunni aö Rauðarárstig 18 laugardaginn 20. september kl. 16. Rætt verður um vetrarstörfin og Ger3ur Steinþórsdóttir segir frá bók sinni Kvenlýs ingar i sex Reykjavikurskáldsögum. Félagskonur eru beðnar að athuga breyttan fund ardag. Tilkynningar Breiðabliksdagurinn á laugardag Hinn árlegi Breiðabliksdagur verður haldinn laugar- daginn 20. september á Kópavogsvelli og hefst hann kl. 13. Keppt verður i handknattleik, knattspyrnu,’ frjálsum Iþróttum og blaki. Hornaflokkur Kópavogs leikur undir stjórn Björns, Guðjónssonar kl. 14. Knattspyrnuleikur bæjarstjórnar Kópavogs gegn stjórn Breiöabliks kl. 14.15. Breiöablikskonur standa fyrir kaffisölu á Blika- stöðum frá kl. 15. Héraðsmót á Suðureyri Laugardaginn 20. september heldur Framsóknarfélag Súgandafjarðar sinn árlega haustfagnaö. Hefst hann í( félagsheimilinu Suðureyri kl. 21.00. Ávörp flytja: Steingrimur Hermannsson sjávarútvegs ráðherra og Magnús Reynir Guðmundsson. Jóhannes Kristjánsson fer með gamanmál. Guðmundur Hagalinsson syngur gamanvísur. Fyrir dansi leika Ásgeir Sigurðsson og félagar. Þróttarkvenna Okkar vinsæli flóamarkaður verður i félagsheimili Þróttar við Sæviöarsund kl. 14 laugardaginn 20. september. Frá Hvöt félagi sjálfstæðiskvenna Föstudaginn 19. setpember verður markaður meðalls konar muni og fatnaðá útimarkaðnum á Lækjartorgi. Þeir sem vilja láta eitthvaö af hendi rakna hafi sam band við skrifstofu félagsins í Valhöll, frá 15. sept. n.k. frákl. 9-12 f.h.isima 82900. - Réttir Fyrstu réttir haustsins eru afstaðnar og nasstu daga verður réttað á eftirtöldum stöðum: 19. september: Rauðsgilsrétt i Hálsasveit, Borg. 19. og 20. september: Auðkúlurétt í Svinadal, A.-Hún. Undirfellsrétt í Vatnsdal, A-Hún. Víöidalstungurétt i Viöidal, V Hún. 21. september: Fossvallarétt við Lögberg (Rvik/Kóp). Gillastaðarétt i Laxárdal, Dal. Kaldárrétt við Hafnarfjörð Kirkjufellsrétt i Haukadal. Dal. Tungurétt í Svarfaöardal. Eyjaf. 22. september: Fellsendarétt i Miðdölum, Dal. Hafravatnsrétt í Mosfellssveit, Kjós. Húsmúlarétt við Kolviðarhól, Árn. Nesjavallarétt í Grafningi, Árn. Þingvallarétt i Þingvallasveit, Árn. Þórkötlustaðarétt viðGrindavik. 23. september: Arnarhólsrétt i Helgafellssveit. Snæf. Kjósarrétt i Kjós, Kjós. Kollafjaröarrétt i Kjalarneshr. Kjós. 24. september: Langþoltsrétt i Miklaholtshr., Snæf. Selflatarétt í Grafningi, Árn. Selvogsrétt i Selvogi, Árn. Skaftártungurétt í Skaftártungu, V-Skaft. Vatnsleysustrandarrétt. Vatnslstr., Gull. 25. september: ölfusrétt í ölfusi, Árn. ölkeldurétt i Staðarsveit, Snæf. Þá verða einnig stóðréttir í þessum mánuði og hefj- ast þær 27. september. Þá verður réttað i Undirfells- rétt i Vatnsdal, A Hún., Viðidalstungurétt í Viðidal V-Hún og Auðkúlurétt i Svinadal, A Hún. 12. október verða siðan stóðréttir i Laufskálarétt í Hjalta dal, Skag. Sammi er týndur Kötturinn Sammi fór á flakk á föstudaginn 5. septem 060 Hann er grábröndóttur með gula hálsól með spjaldi sem stendur á heimilisfang hans Urðarbraut 2 Smálöndum, simi 84059. Allir þeir sem geta gefið upp- lýsingar um Samma eru beðnir að hringja í sima 84059. Fjalakötturinn af stað á ný Þær breytingar hafa nú orðiðá högum klúbbsins að sýningarnar flytjast úr Tjarnarbiói og i aðalsal Regn bogans. Sýningar verða þrisvar í viku: fimmtudaga kl. 18.50 laugardaga kl. 13.00 og sunnudaga kl. 18.50 Klúbburinn mun í vetur fyrst og fremst sýna nýjar myndir frá áttunda áratugnum. Fyrsta sýningin verður á fimmtudag eins og áður segir. Þá verður sýnd myndin 1900 eftir Bernardo Bertolucci. Dómaranafnd HSÍ Námskeiö fyrir landsdómara hefst föstudaginn 26. september nk. kl. 14 að Hótel Loftleiðum. Leiðbein- andi veröur Carl E. Wang formaður dómaranefndar IHF. öllum þjálfurum deildarliða er einnig boðin þátt- taka og hvattir til að mæta. Útivera helgarinnar: HÁLFTÍMI í BIÐRÖÐ Tími: Laust eftir miðnætti, laugar- dagskvöld. Staður: Stéttin fyrir framan diskó- tekið Hollywood. Erindi: Að reyna að komast inn á staðinn, þar sem allir eru stjörnur. Veður: Skítkalt. Röðin er allbreið um sig. Á að gizka áttatiu til eitt hundrað manns standa fyrir utan dyr diskóteksins Hollywood. Allir vona það sama: að dyrnar fari bráðum að opnast og að sem flestum verði nú hleypt inn. Kuldinn næðir um hvert bein og ber- fættar konur i götóttum skóm reyna að hlifa tánum með því að færa ann- an fótinn yfir hinn. Bersýnilegt er að skólar eru nýbyrjaðir, því að fólk kallast á yfir þvera og endilanga bið- röðina, falast eftir sjúss af kunningj- anum eða spyr almæltra tíðinda. Fyrir aftan mig ræða tvær stúlkur um, að þær skiiji ekkert i vitleysunni i sjálfum sér að koma í Hollywood helgi eftir helgi og lenda alltaf í bið- röð. Heilsan hljóti bara að fara að bila af þessari útiveru. „Helvítið hann Óli ætti að vera hérna i biðröðinni öðru hverju i stað- inn fyrir að fara alltaf inn bakdyra- megin,” segja þær um eiganda diskó- teksins. Það hvarflar bersýnilega ekki að þeim, að ef þær væru hálf- tíma fyrr á ferðinni gætu þær gengið rakleitt inn. Öðru hvoru opnast dyr diskóteks- ins og fólk skýzt út. Hitastrauminn leggur af því. Það er greinilega heitt í kolunum innan dyra. Úr útihátölur- unum glymur diskótónlistin og á milli laga röfiar einhver á útlenzku. — Loksins er eins og dyraverðirnir uppgötvi norpandi hópinn fyrir framan dyrnar og væn slumma fær að skjótast innfyrir. Við þokumst framar. Öðruhvoru kemur fólk aðvífandi, sem engum biðröðum sinnir. Fyrir nokkrum minútum skunduðu til dæmis nokkrar sýningarstúlkur af eldri kynslóðinni framhjá. Þær sýna tízkuföt i Hollywood á sunnudögum í félagsskapnum Model ’79. Þærbiðu í fimm mínútur til hliðar við biðröðina og var siðan hleypt inn á undan sauð- svörtum almúganum. Þær eru varla komnar inn í hlýjuna, þegar kvenna- hópur úr öðrum tizkufiokki kemur á fullri fart. Einnig þeim er hleypt inn án nokkurra málalenginga. Það er bölvað og pípt í óánægjutóni víða í röðinni. Tízkusýningastúlkur hljóta að hiksta mikið á föstudögum og laugardögum ef það er satt að illt umtal valdi krampa í þindinni. „Við skulum bara fara fremst og þykjast vera úr einhverjum sýningar- flokknum,” segir stúlkan fyrir aftan mig. „Noj, það þýðir ekkert. Við erum ekki nógu fallegar,” svarar vinkona hennar. Áfram þokast mínúturnar og þeir, sem hafa þolinmæði að bíða, þokast einnig áfram upp tröppurnar. Ein af fegurðardrottningum þjóðarinnar kemur nú stormandi í fylgd með hátt- settum starfsmanni hjá Flugleiðum. Þau virðast ekki vera i náðinni, því að þó að þau gangi beint að dyrunum er þeim ekki hleypt inn strax. „Sjáiði greyið, hvað henni er kalt,” segir einhver fyrir aftan mig. „Henni er nær,” er svarað. „Hún ætti kannski að gera sér grein fyrir því að það er ekki alltaf hægt að trana sér fremst.” Hálftimi er liðinn. Loksins sýna dyraverðir diskóteksins vinsæla ein- hverja miskunn. Ég kemst alveg upp að húsveggnum, áður en skellt er í lás. Eftir nokkrar mínútur verður opnað aftur og þá kemst ég alla leið inn.- Plötusnúðurinn spilar Another Brick In The Wall. -ÁT Klukkan tifar og áfram sniglast biðröðin unz langþráðum áfanga er náð. (Myndin er ekki tekin utan viðHollywood). DB-mynd: Björgvin.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.