Dagblaðið - 19.09.1980, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 19.09.1980, Blaðsíða 2
 14. - DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER1980. Sjónvaip næstaviku • •• Annar þáttur. Efni fyrsta þáttar: Sagan gerist í iðnaðarborginni Detroit og snýst einkum um fólk, sem starfar í bílaverksmiðju. Adam Trenton hefur áhuga á að kynna nýjan bil, sem hann telur að valda muni straumhvörfum i bílaiðn- aði, en keppinautar hans um æðstu stöður reyna að gera litið úr hugmyndum hans. Þýðandi Jón O. Edwald. 23.35 Dagskrárlok. Föstudagur 26. september 20.00 Fréttir og veflur. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Stjörnuprýdd knattspyrna. Vegur knattspyrnunnar fer hrað- vaxandi fyrir vestan haf, og. áköfustu fylgismenn hennar þar heita þvi, að Bandarikjamenn vinni heimsmeistarakeppnina, áður en langt um liður. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 21.05 Raufli keisarinn. Fimmti og siðasti þáttur. (1945—53 og eftir- leikurinn). Að heimsstyrjöldinni lokinni stóð Stalin á hátindi valda sinna. Hann drottnaði yfir Sovétríkjunum og ríkjum Aust- ur-Evrópu með harðri hendi og kæfði ailar vonir manna um lýð- ræðisþróun í þessum löndum. Stalín lést árið 1953. Innan þriggja ára höfðu arftakar hans rúið hann æru og orðstir, en þjóðskipulagið, sem hann studdi til sigurs, er enn við lýði. Þýð- andi og þulur Gylfi Pálsson. 21.50 Stalin. Umræðuþáttur um Stalinstímabilið og framvindu kommúnismans eftir daga hans. Ilollendingurinn Johan Cruyff, sem talinn er einn frem.sti knattspyrnumaður hcimsins, er i hópi þeirra knattspyrnusnillingasem keyptir hafa verið til Banda- rikjanna á siðustu árum. STJÖRNUMPRÝDD KNATTSPYRNA — sjónvarp föstudag kl. 20,40: Ómældum peninga- upphæðum varið til knattspyrnunnar — Bandaríkjamenn ætla sér heims- meistaratitilinn innan fárra ára Bandaríkjamenn hafa verið kunnir fyrir flest annað en mikla getu í knattspyrnu enda hefur sú íþrótt lengst af ekkert verið stunduð þar i landi. Á því hefur þó orðið mikil breyting á allra síðustu árum. Banda- rikjamenn hafa reynt að byggja knattspymuíþróttina upp með því að verja ómældum peningaupphæðum í þessa vinsælu íþrótt. Margir af fremstu knattspyrnumönnum heims hafa verið keyptir til Bandaríkjanna og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Aðsókn að knattspyrnuleikjum í Bandaríkjunum hefur vaxið jafnt og þétt enda hafa stórstjörnur eins og Pele, Cruyff, Beckenbauer og George Best allir leikið með þarlend- unt liðum. Þess má og geta til gamans að nokkrir ijlenzkir knattspyrnu- menn hafa leikið með bandariskum liðum. Þórólfur Beck varð fyrstur ís- lendinga til að leika þar í landi, Guð- geir Leifsson fetaði nokkrum árum síðar í fótspor hans og nú leikur fyrr- um fyrirliði íslenzka tandsliðsins Jó- hannes Eðvaldsson i Bandarikjunum við góðan orðstir. Hvergi í heiminum er eins vel búið að áhorfendum á knattspyrnuleikjum og einmitt i Bandaríkjunum. Knatt- spyrnuíþróttin hefur nú hafið innreið sína í skólana og þá verður þess lík- lega ekki langt að bíða að Banda- ríkjamenn eignist sjálfir stórstjörnur á knattspyrnuvöllunum og þurft ekki að flytja þær inn. Ýmsir forystumenn knattspyrnuíþróttarinnar i Banda- rikjunum hafa enda heitið því að Bandaríkjamenn verði heimsmeist- arar í þessari íþróttagrein innan fárra ára. -GAJ Stjórnandi Bogi Agústsson fréttamaður. 22.35 Alltaf (il í tuskið (A Fine Madness). Bandarísk gaman- mynd frá árinu 1966. Aðalhlut- verk Sean Connery, Joanne Woodward og Jean Seberg. Sam- son er ljóðskáld í fremur litlum metum. Hann er kvensamur, skuldum vafinn og ekki eins og fólk er flest, en hann á góða konu, sem stendur með honum í bliðu og stríðu. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 00.15 Dagskrárlok. Laugardagur 27. september 16.30 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Að gæta bróður síns. Mynd um strák, sem þarf að gæta bróður síns meðan móðir hans vinnur úti og gelur ekki alltaf gert hvað sem hann vill. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nord- vision — Danska sjónvarpið) 18.50 Enska knattspyrnan. Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingarogdagskrá. 20.35 Sheliey. Lokaþáttur. Þýð- andi Guðni Kolbeinsson. 21.00 í minningu Peters Sellers. Viðtal, sem sjónvarpsmaðurinn Alan Whickers átti við hinn heimskunna gamanleikara, Peter Sellers, skömmu fyrir andlát hans. í þættinum eru einnig sýndir kaflar úr nokkrum mynda Sellers. Þýðandi Guðni Kolbeins- son. 21.25 Sammi á suðurleið (A Boy Ten Feet Tall). Bresk bíómynd fráárinu 1965. Aðalhlutverk Ed- ward G. Robinson og Fergus Mc- Clelland. Sammi er tíu ára gam- all. Foreldrar hans láta lífið í loftárás á Port Said í Egypta- landi, og drengurinn heldur af stað að finna frænku sína, sem búsett er í Suður-Afríku. Þýð- andi Ingi Karl Jóhannesson. 23.20 Dagskrárlok. Sunnudagur 28. september 18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Ólafur Oddur Jónsson, prestur í Keflavík, flytur hugvekjuna. 18.10 Fyrirmyndarframkoma. Ólund. Þýðandi Kristín Mántylá. Sögumaður Tinna Gunnlaugs- dóttir. 18.15 Óvæntur gestur. Níundi þáttur. Þýðandi Jón Gunnars- son. 18.40 Apar i Afríku. Norsk dýra- lífsmynd. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. (Nordvision — Norska sjónvarpið). 19.05 Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 ,,Ó, mín flaskan fríða”. Fyrri þáttur um drykkjusýki og drykkjusjúklinga. Rætt er við alkóhólista og aðstandendur þeirra, sérfræðinga á sviði áfeng- ismála og fólk á förnum vegi. Umsjónarmenn Helga Ágústs- dóttir félagsráðgjafi og Magnús Bjarnfreðsson. Stjórn upptöku Valdimar Leifsson. Siðari þáttur verður sýndur mánudagskvöldið 29. september kl. 21.10. 21.30 Dýrin mín stór og smá. Átt- undi þáttur. Stoltir eigendur. Efni sjöunda þáttar: Siegfried er í slæmu skapi. Það líður að greiðsludegi viðskiptavinanna, og þeir eru ekki allir lambið að leika sér við, þegar á að borga, Sérstaklega er Dennis Pratt af- leitur. Hingað til hefur enginn getað séð við honum, en nú skal hann ekki sleppa. James leitar til læknis í öðrum bæ, þegar gera þarf hættulegan uppskurð á tik einni. Honum kemur á óvart hve allt er fullkomið þarna, gerólíkt því sem hann á að venjast heima í Darrowby. Greiðsludagurinn rennur upp og Pratt er mættur, auðvitað ekki til að borga reikn- inga sína, því fer fjarri. Honum tekst ekki aðeins að snúa á Sieg- fried; Tristan og James verða líka að bíta í súrt epli. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 22.25 Stórborgin Róm. Rómaborg er eitt af höfuðbólum vestrænnar menningar, og fáar borgir eiga sér jafn-stórkostlega sögu. Það er Anthony Burgess, hinn kunni, breski rithöfundur, sem er leið- sögumaður okkar í Róm. Þýð- andi Dóra Hafsteinsdóttir. 23.15 Dagskrárlok. SK BÆJARINS Friðríksson nrCTI I oglngólfur BtLO I U Hjörleifsson Knipplingastúlkan Leikstjórí: Claude Goretta, •vbeneek/frönek 1977. Sýningarstaflun Háskólabió; mánudagsmynd. Svissnesk kvikmyndagerð hefur verið í miklum uppgangi síðustu ár. Þar hefur mest borið á myndum Claude Goretta og Alain Tanner. Hingað til lands hafa komið tvær myndir eftir Tanner og aðrar tvær eftir Goretta þ.e.a.s. Heimboðið, sýnd sem mánudagsmynd 1975; og Útlaginn, sýnd á kvikmyndahátið Listahátíðar. Knipp- lingastúlkan er af flestum talin bezta mynd Goretta en hún fjallar um samband ungrar stúlku af alþýðustétt við ungan menntamann. Stúlkan er mjög innhverf og pilturinn óttalegur klunni þannig að hún reynir aðeins að leysa vandamálin í eigin hugarheimi en hann kúgar hana ómeðvitað og gerir ekkert til þess að nálgast vandamá! hennar. Eftir stutta sambúð leysist sambandið upp. Hún verður innhverfari en nokkru sinni fyrr og lifir gersamlega í eigin hugar- heimi: Eftir nokkra daga er hún siðan sett á geðsjúkrahús. Þetta er feikilega sterk mynd sem enginn kvikmyndaunnandi má láta fram hjá sér fara. Norma Rae Nýja Bfó: Norma Rae. Leikstjórí: Martin Ritt. Handrít: Irving Ravethc og Harriet Frank, JR. 'Aðalhlutverk: Sally Field, Ron Leibman og Beau Brídges. Einhvers staðar hefur þvi verið fleygt að myndin Norma Rae sé fyrst og fremst verkalýðsmynd og því jafnvel bætt við að þessi mynd sé einna fremst í flokki á nýjum og betri timum bandariskra verkalýðsmynda. Fullyrðingum sem þessum verður nú að taka með nokkurri varúð. Myndin segir fyrst og fremst frá persónunni Normu Rae og þeim áhrifum sem kynni hennar af verkalýðsbarátt- unni hafa á hana sjálfa. Verkalýðsbaráttan og barátta fólksins sem heildar er alltaf númer tvö í myndinni. Norma Rae er þrátt fyrir þetta mjög góð mynd, með allra bestu melódrömum (sætsúra!) sem sést hefur síðustu ár, mikil upplifun. Hjálpast þar allt að, hug- myndarík jafnt sem fagmannleg kvikmyndataka, falleg tónlist og áfram má telja. Lang hæst ber þó afburðagóður leikur Sally Field í aðalhlutverkinu. Túikun hennar á þessari sterku alþýðukonu er jérstaklega minnisstæð. Þetta er mynd sem allir ættu að sjá. Frisco Kid Austurbaajarbló: Frísco Kid. Leikstjórí: Robert Aldrích. Handrit: Michael ESas og Frank Shaw. Aðatikitvark: Gene WHdar og Harrison Ford. Frisco Kid segir frá pólskum gyðingi, Avram Belinski, sem er ný- útskrifaður úr prestaskóla gyðinga einhvers staðar í Póllandi. Hann hefur hlotið næstlægstu einkunn á lokaprófinu og verður þvi úr að . ákveðið er að senda hann til San Francisco sem er á þessum tíma, 1850, aðeins lítið þorp. Hugsunin í þessu er sú að koma þessum manni sem Iengst í burtu. Og það er langt frá Póliandi til Frisco, sérstaklega þegar farið er yfir endilöng Bandarikin á tveimur jafn- fljótum jafnt sem á hestbaki. En myndin segir s.s. frá þessum hrak- förum pólska rabbians i villta vestrinu. Það sem gerir þessa mynd svo bráðskemmtilega er óborganleg túlkun Gene Wilders á hinum hægláta og friðsama en jafnframt ótrúlega þrjóska rabbia. Og ekki spillir fyrir að hafa gamalreyndan kappa eins og Robert Aldrich við ^týrið. Flóttinn f rá Alcatraz Sýningarstaflur Htekólabifl. LalksIJórf og framtalflandl: Don Slagal. Handrlt: Rlchard Tuggla, byggt é bók aftlr J. CampeH Bruca. Aflalilutvark: Cllnt Eaatwood, Patrlck McGoohan, Paul Banjamln. Út vil ek, stendur einhvers staðar og þau orð eiga vel við um mynd Don Siegels, Escape from Alcatraz, mjög nýleg mynd sem sýnderi Háskólabíói þessa dagana. Hún telst til svokallaðra flótta- mynda, í henni er notuð hugmynd sem margoft hefur sést áður á hvita tjaldinu. Myndin gerist árið 1960 þegar Frank nokkur Morris er fluttur til Alcatraz fangelsisins á San Fransiscoflóa, fangelsisins sem enginn fer frá aftur. En Morris er ekki sérlega hrifinn af því að sitja í læstum klefa og þá er bara að strjúka. Ekki svo flókinn efnis- þráður en það getur nú samt reynt nokkuð á hæfileika manns til að halda rétt á hlutunum. Siegel er hins vegar á heimaslóðum í þessum efnum, þær eru orðnar ófáar „spennumyndirnar” sem hann hefur leikstýrt, spennan kemur hér hægt og sígandi, hárnákvæmt upp- • byggð. Clint Eastwood er hér í sínu sígilda hlutverki, þögli maður- inn sem býöur yfirvöldunum byrginn og kemst upp með það. Góð hasarmynd sem svíkur ekki.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.