Dagblaðið - 19.09.1980, Blaðsíða 3
Messur
Sýningar
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR Í9. SEPTEMBER 1980.
Anders Tinsbo á sýningunni i Listmunahúsinu. (DB-mvnd Þorri).
USTIN Á AÐ VERfl UIÍF
— segir danski myndasmiðurinn Anders Tinsbo
„Landskabet er helt fantastisk,”
sagði danski myndhöggvarinn And-
ers Tinsbo um ferðalag sitt
umhverfis ísland, en þá ferð endaði
hann með sýningu á verkum sínum
og nokkurra danskra vefara í List-
munahúsinu sem opnar nú um
helgina.
„íslenzk birta á eftir aðgjörbreyta
skúlptúrum minum,” sagði Tinsbo
ennfremur. „Ég er þegar farinn að
sjá fyrir mér áhrif Ijóssins á þau.”
Hann er enginn nýgræðingur í list-
inni, á að baki 20 ára feril. ,,Ég hef
unnið talsvert af útiverkum og
opinberum skúiptúrum í Danmörku
og m.a. selt verk til Frakklands.
Hvort ég lifi á listinni? Tja, ég
skrimti á henni.” Hingað komin
kosta skúlptúrar Tinsbos eitthvað á
aðra milljón íslenzkra króna. Hvers
konar skúlptör er hann?
„Menn mega kalla mig
„konkret” myndsmið. Ég hef alltaf
haft dálæti á þeirri stefnu,” segir
hann. Hefur hann áhuga á list
annarra myndhöggvara í list-
heiminum? „Já, vissulega. En ég
kann bezt við það sem ég er sjálfur að
fást við.” Tinsbo glottir striðnislega
þar sem hann stendur í skærgrænum
fötum og fer höndum um einn skúlp-
túrinn. Eitt verkið er skærgult. Er
ekki hætta á að slíkur skúlptúr verði
aðsætsúpu?
„Ég hef ánægju af því að lita
skúlptúr og er ekkert hræddur við að
fara yfir mörkin stöku sinnum. List á
að vera ljúf og innileg og bera með
sér Ijóðrænt andrúmsloft. Þannig
gegnir hún bezt þjóðfélagslegu hlut-
verki sínu.”
Á sýningunni i Listmunahúsinu
eru átta verk eftir Anders Tinsbo,
steypt i brons og ál, auk vefnaðar
nokkurra kollega hans.
-AI.
Hvad er á seyöium helgina?
Knattspyrnan:
Veröa það Víking-
ar eða Skagamenn
— sem hreppa 3. sætið? í
Guðsþjónustur í Reykjavikurprófastsdæmi
sunnudaginn 21. september 1980.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guðsþjónusta i
safnaöarheimili Árbæjarsóknar kl. 11 árd. Sr. Guð
mundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Guðsþjónusta i
Breiðholtsskóla kl. 2 e.h. Athugið breyttan
messutíma. Sr. Lárus Halldórsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. II árd.
Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. ólafur
Skúlason.
DÓMKIRKJAN: Kl. II messa. Dómkórinn syngur,
organleikari Marteinn H. Friðriksson. Sr. Þórir
Stephensen.
FELLA Og HÓLAPRESTAKALL: Guðsþjónusta i
safnaðarheimilinu að Keilufelli 1 kl. II árd. Sr.
Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. II, altaris
ganga. Organleikari Jón G. Þórarinsson. Almenn sam-
koma nk. fimmtudag kl. 20.30. Haustfermingarbörn
hafi samband við sóknarprestinn. Sr. Halldór S.
Gröndal.
HALLGRlMSKlRKJA: Messa kl. ll.Sr. Karl Sigur
björnsson. Þriðjudagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30 árd. Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPlTALINN: Messa kl. 10 árd. Sr. Karl Sigur-
björnsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa kl. 11 að Norðurbrún I.
Sr. Grímur Grímsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organleikari Ulf
Prunner. Sr. Tómas Sveinsson.
BORGARSPlTALINN: Guðsþjónusta kl. 10. Organ-
leikari Jón G. Þórarinsson. Sr. TómasSveinsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Þor
bergur Kristjánsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL: Guðsþjónusta kl. 2.
Athugið breyttan messutíma. Organleikari Jón
Stefánsson. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson.
Sóknarnefndin.
LAUGARNESPRESTAKALL: Laugardagur 20.
sept.: Guðsþjónusta að Hátúni lOb niundu hæð kl. 11
árd. Sunnud. 21. sept.: Messa kl. II. Þriðjud. 23. sept.:
Bænaguösþjónusta kl. 18, altarisganga. Æskulýðs-
fundur kl. 20.30. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. II. Sr. Frank M.
Halldórsson.
FRÍKIRKJAN I REYKJAVlK: Fjölskyldu
guðsþjónusta kl. 2. Væntanleg fermingarbörn og fjöl
skyldur þeirra eru sérstaklega velkomin til guðs
þjónustunnar. Safnaðarstjórn.
FlLADELFlUKIRKJAN: Safnaðarguðsþjónusta kl.
14. Almenn guðsþjónusta kl. 20. Einar J. Gislason
safnaðarprestur.
NÝJA POSTULAKIRKJAN, Háaleitisbraut 58:.
Messa sunnudag kl. 11 og 17. Kaffi á eftir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fjölskylduguösþjón-
usta kl. 14 á sunnudag. Vænzt er þátttöku fermingar-
bama og forráðamanna þeirra. Sóknarprestur.
DÓMKIRKJA KRISTS KONUNGS, Landakoti:
Lágmessa kl. 8.30 árdegis. Hámessa kl. 10.30 árdegis.
Lágmessa kl. 14. Alla virka daga er lágmessa kl. 18,
nema laugardaga, þá kl. 14.
FELLAHELLIR: Káþólsk messa kl. 11 árdegis.
KAPELLA ST. JÓSPESSYSTRA, Hafnarfirði: Há
messakl. 14.
FlM-SALURINN, Laugarnesvegi 112: örn lngi,
málverk, teikningar. vatnslitir, pastel og skúlptúrar.
Lýkur sunnudagskvöld og er opin frá 16—22 alla
virka daga, 14—22 um helgar.
Handknattleikur:
Úrslit Reykjavíkur-
mótsins á sunnudag
Þá er handknattleiksvertíðin hafin
fyrir alvöru og á miðvikudagskvöld
hófst Reykjavíkurmótið. Það voru
stórliðin Valur og Víkingur, sem
stálu senunni á miðvikudagskvöld er
'fyrsta umferðin fór fram þvi þá
sigraði Valur Fylki 31—13 og
Víkingur vann Ármann 36—16.
Óvenjulega stór munur í Reykja-
víkurmóti.
En það eru ekki bara Víkingur og
Valur, sem berjast um sigurinn í mót-
inu. Nýbakaðir íslandsmeistarar
utanhúss, Fram, og sigurvegarar úr
Adidas-mótinu á Selfossi eru líklegir
til afreka í vetur. Þá eru KR-ingar í
vígahug undir stjórn landsliðsþjálfar-
ans, Hilmars Björnssonar.
I kvöld fara fram þrír leikir og
hefst prógrammið með leik Vals og
Þróttar kl. 19. Þá leika Fram og
Fylkir og lokaleikur kvöldsins er
viðureign ÍR og Ármanns. Loka-
umferðin i riðlakeppninni verður
síðan á morgun og hefst hún kl. 14
með leik Fylkis og Þróttar. Þá leika
Fram og Valur og má telja víst að þau
skipi tvö efstu sæti B-riðilsins.
Síðasti leikurinn á morgun er viður-
eign KR og Víkings, sem einnig má
telja víst að skipi tvö efstu sætin í A-
riðlinum.
Á sunnudagskvöld kl. 19 hefst svo
sjálf úrslitakeppnin og leika þar allir
við alla. Verður henni fram haldið á
þriðjudags- og fimmtudagskvöld. Á
sunnudag leika sigurvegarar A-riðils
i við lið nr. 2 i T-riðli og síðan sigur-
vegarar B-riði!s við lið nr. 2 úr A-
riðli. Úrslitalt kirnir ættu að geta
orðið góð ske nmtun, því öll liðin
hafa æft geysilega vel að undanförnu
þótt varla komist nokkrir í hálfkvisti
við Valsmenn serh æfa baki brotnu
alla daga undir sijórn nýja sovézka
þjálfarans. Allir í Höllina! -SSv.
"■■"
Víkingar og Skagamenn kljást i tslandsmótinu i knattspyrnu i sumar. Þeir leiða
satnan hesta sina á ný i kvöld.
DB-mvnd: Bj. Bj.
Einn af mikilvægustu leikjum
sumarsins í knattspyrnunni fer fram í
kvöld á Laugardalsvellinum, en þá
leika Víkingur og Akranes um þriðja
sætið í I. deild. Það lið sem sigrar
hreppir sætið og þar með réttinn til
að leika í UEFA-keppninni næsta ár.
UEFA-keppnin er af sumum talin
sterkari en Evrópukeppni meistara-
liða, og vist er að hart verður barizt á
Laugardalsvelli í kvöld kl. 18. Skaga-
menn sýndu hvers þeir eru megnugir í
fyrri hálfleik á móti Köln á þriðju-
dag, en Víkingar hafa einnig fullan
hug á að næla í sætið, sem gekk þeim
úr höndum er þeir töpuðu 1—3 fyrir
Val í síðasta leik sinum í íslands-
mótinu. SA.
Jónas Guövaróarson heldur sýningu I Norrsna hús-
inu, sem opnar um helgina.
KJARVALSSTAÐIR: Austursalur: Septem 80, Þor-
valdur Skúlason, Sigurjón Ólafsson, Jóhannes Jó-
hannésson, Kristján Daviðsson, Guðmunda Andrés-
dóttir, Valtýr Pétursson. Lýkur sunnudagskvöld 21..
sept. Vestursalur: Vilhjálmur Bergsson, „Ljtjs og
viddir". Lýkursunnudagskvöld.
NORRÆNA HCSIÐ: Jónas Guðvarðarson. ný verk-
Opnar laugardag. Anddyri: Una Dóra Copley, mál-'
verk, klippimyndir og vatnslitir.
LISTASAFN ÍSLANDS: Málverk, höggmyndir,
grafík og teikningar eftir innlenda og erlenda lista-
menn. Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnud.
frá 13.30—16.
ÞJÖÐMINJASAFNIÐ: Opið þriðjud., fimmtud.,
laugard. ogsunnud frá 13.30—16.
r*
Sigurður Örlygsson sýnir I fyrsta sinn um langan tima
I Hamraborg 7, Kópavogi. Hér er mynd af siðustu sýn-
ingu hans að Kjarvalsstððum.
ÁSMUNDARSALUR: Kristján Jón Guðnason,
vatnslitamyndir, opnar iaugard. kl. 14. Opið til 28.
scpt. kl. 16—22 virka daga, 14—22 um helgar.
SAFN EINARS JÓNSSONAR, Skólavörðuholti:
Opið miðvikud. og sunnud. frá kl. 13.30—16. Ibúð
Einars Jónssonar á efri hæö opin almenningi.
DJUPIÐ, Hafnarstræti (Horniðh Sjöfn Haraldsdótt
ir, keramíkverk. Lýkur sunnudagskvöld. Opið 11 —
23.30 alla daga.
ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaðastræti 74: Sýning á vcrk
um Ásgríms Jónssonar. Opið þriðjud., fimmtud. og
laugard.Jrá 13.30—16.
LISTASAFN ALÞÝÐU, Grensásvegi 16: Sýning á
listaverkaeign safnsins. Opið virka daga frá 14—18,
T4—22 úm helgar.
GALLERt SUÐURGATA 7: Ilkka Juhani. Verk með
blandaðri tækni. Opið 16—18 virka daga, 16—22 um
helgar.
LISTMUNAHUSIÐ, Lækjargötu 2: Þrir vefarar og
einn myndhöggvari frá Danmörku: Anette Holden-
sen, Kim Naver, Margarete Agger og Anders Tinsbo.
Opnar laugardag kl. 14. Opið 10—18 virkadaga, 14—
18 um helgar.
Vilhjálmur BtrgKon sýnlr ný verk a« Kjarvalsslöó-
um.
Örn Ingi sltur glaðbeittur undir lágmynd i sýningu
sinni 1 FlM-salnum, en henni lýkur á sunnudag.sk völd-
ið.
Listasötn