Dagblaðið - 20.09.1980, Side 1

Dagblaðið - 20.09.1980, Side 1
? I 6. ÁRG. — LAUGARDAGIJR 20. SEPTEMBER 1980 — 215. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÍJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALStMI 27022. Enn hitnar í kolunum í Grindavík: HENTIROTTV FRAMAN í HEILBRIGDISFVLLTRÚANN — svínabóndinn hugðist hefna íkveikjunnar HeilbrigðisfuUtrúinn í Grindavík, Hjalti Magnússon, kom til lögregl- unnar á staðnum í fyrradag og kærði árás sem hann hafði orðiö fyrir þá um daginn af hendi Jóns Óskars Ágústssonar, sjómanns og svina- bónda. Hafði Jón ráðizt að honum eftir nokkur orðaskipti þeirra i milli i Kaupfélaginu og dengt rottu framan í hann þannig að sá á Hjalta. Lögreglan i Grindavík staðfesti i samtali við blaðamann DB í gær að þessi atburður hefði átt sér stað. Hef- ur rannsóknarlögreglan í Keflavík nú málið til meðferðar. DB reyndi ár- angurslaust að ná sambandi við þá Hjalta og Jón Óskar í gær vegna þessa máls. Eins og greint hefur verið frá í DB var í síðustu viku kveikt í svínakofa þar sem Jón Óskar hafði fengið inni með svín sín til bráðabirgða. Taldi Jón Óskar að heilbrigðisfulltrúinn Jiefði átt þar einhvern hlut að máli enda hefði hann heyrzt hóta íkveikju nokkrum dögum áður. ,,Við höfum ekki haft nokkurn frið fyrir þessum manni. Hann hefur jafnvel brúkað munn við dóttur okkar,” sagði Guðrún Kristinsdóttir, eiginkona Jóns Óskars í samtali við blaðamann DB í gær en kvaðst ekki vilja ræða málið frekar. Eins og komið hefur fram í DB er Jón Óskar bróðir Ragnars Ágústssonar kennara sem nú er krafizt að víki úr starfi sínu við skólann. Eitt foreldranna, sem nú láta börn sín sitja heima til að mótmæla störf- um Ragnars, sagði i samtali við blaðamann DB að engin tengsl væru ámilliþessaratveggjamála. -GAJ — sjánánarábis. S Sumarmynd DB '80: Sumar viö Heklu 1980 Dómnefnd Sumarmyndakeppni DB ’80 varð sammála um að Ijósmynd Gunnars Arnar Gunnarssonar, Sumar við Heklu 1980, vœri sú bezta, sem barst í keppnina á þessu ári. Hún var tekin stuttu eftir að Heklugosið hófst og þykir lýsa þeim atburði sem hœst bar á liðandi sumri. í öðru sœti varð mynd eftir Sigurð Stefán Jónsson og I þriðja sœti mynd eftir Kristján Glslason. Nánar er greint firú úrslitum Sumarmynda- keppninnar á bls. 13 i blaðinu I dag. . 9* 11. ij y~ /•— !'■pí. í—~ f** Flugleiðamenn koma heim frá Lux í gær. DB-mynd: Sig. Þorri. Josy Barthel samgönguráðherra Luxemborgar: „Sérdeild um Atíantshafsflugtö er nánast sama og nýtt flugfélag” — Luxemborgarar telja miklu ráða hverjir og hvernig nýju Atlantshafsflugi verði stjórnað ,,í samþykktum ríkisstjórnar Luxemborgar frá 27. júní var ákveðið að vinna að stofnun nýs flug- félags sem sæi um tengsl Luxemborg- ar við Ameríku. Viðræður okkar við samgönguráðherra íslands og hans menn í gær og í dag hafa gengið út á þetta. í samræmi við þetta er ákveðið að Atlantshafsflugið verði innan sérstaks og aðskilins ramma í rekstri Flugleiða. Luxair og við í ríkisstjórninni munum siðan halda á- fram okkar könnun á málinu og bera niðurstöður okkar saman við niður- stöður íslendinga.” Þetta voru orð Josy Barthel, sam- gönguráðherra Luxemborgar er íslenzku blaðamennirnir í Luxem- .borg stöðvuðu hann á gangi frá ríkis- stjórnarfundi í gær. „Atlantshafsflugið getur ekki haldið áfram eins og það hefur verið rekið,” sagði Barthel. „Nýtt fyrir- tæki, sem um þetta mál fjallaði, væri að mörgu leyti ákjósanlegt. Þetta er ekki aðeins spurning um stjórnendur fyrirtækisins heldur einnig flugvéla- tegundir og fyrirkomulag flugsins. Við Luxemborgarar teljum að það verði að koma til blandað farþega og flutningaflugfélag. Markaðskönnun verður nú að fara fram bæði í Banda- ríkjunum og í Luxemborg og ná- grenni.” Barthel lagði mikla áherzlu á, að það skipti miklu máli, hverjir og hvernig þessu nýja Atlantshafsflugi yrði stjórnað. Barthel kvað Flugleiðir nú þurfa að þróa hugmyndir, sem upp hefðu komið í viðræðunum. Slíkt hið sama mundu Luxemborgarar gera. Ríkis- stjórn Luxemborgar mundi mikið byggja á samanburði á þeim niður- stöðum. „Þær niðurstöður munu ráða framhaldinu eftir eilt ár, en Luxem- borgarar geta ekki lofað fjárhagslegri aðstoð við Atlantshafsflug erlends flugfélags nema til eins árs í senn. Við höfum mjög góða reynslu af íslenzku flugliði í 25 ár, en nú er Atlantshafs- flugið orðið spurning um peninga,” sagði Josy Barthel. ,,Ég er mjög hissa á, að ríkisstjórn íslands skuli ekki hafa vitað, hvernig málin höfðu þróazt innan Flugleiða fyrr en í júlí- eða ágústmánuði síðastliðnum. Það er því ekki hægt að skella skuldinni á okkur Luxem- borgara um seinagang í þessum málum,” sagði Josy Barthel, sam- gönguráðherra Luxemborgar. -A.St., Luxemborg.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.