Dagblaðið - 20.09.1980, Side 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980.
3
ARKITEKTAINN
A BARNAHEIMIU
— hús farin að leka áður en nótkun hefst
ENGIN
KRÆKI-
BER?
Sólveig JóhannsdóKir spyr:
Er hvergi hægt að fá krækiber i
Reykjavik?
Svar:
Blómaskálinn v/Nýbýlaveg og
Blómaval v/Sigtún hafa selt kræki-
ber í sumar en öll ber eru búin í
báðum verzlununum og ekki væntan-
leg meiri. Hafi einhver krækiber til
sölu ntá hann hafa samband við DB.
TE
FYRIR
TVO
Jens Kristinssun (4917-0602) hringdi:
Mig langar að benda á verðmismun
sem cr á Torfunni og Kránni við
Hlemmtorg. Te fyrir tvo og þrjár rist-
aðar brauðsneiðar með kosta á Torf-
unni 4100 kr. en á Kránni 2300 kr.
Að vísu er borið á borð í Torfunni en
þjónustan á Kránni er ekki siðri.
Hefurðu farifl í fjall-
göngu nýlega?
Páll Kristjánsson bílstjóri: Ég fór i
sumar upp á eitthvert fjall í Kjós, búinn
að gleyma nafninu á því.
Jónína Guðmundsdóttir matmóðlr:
Ekki beint í fjallgöngu, ég fór á fjall á
Einhyrningsflatir í Fljótshliðarafrétti.
Pélur Óskarsson, Neskaupstað,
hringdi:
„Þegar fyrsta rigningin að ráði í
langan tíma kom yfir Austfirðina
kom nokkuð alvarlegt í Ijós. Tvö af
nýjustu húsunum á Neskaupstað
láku. Vinur minn kom inn á skrif-
stofu bankastjóra Landsbankans og
sá þar hvar skjóla var á gólfinu til að
taka við vatni. Landsbankahúsið er
tveggja ára gamalt. Sömu sögu er að
segja af nýja sjúkrahúsinu sem
Svavar Gestsson var að taka í notkun
fyrir nokkrum dögum.
Það er grátlegt að sjá hundruða
milljóna hús leka um leið og það er
tekið í notkun. Það er ábyrgðarhluti
Raddir
lesenda
að láta arkitekta teikna svona hús.
Byggingarnefndir, sem yfirleitt eru
skipaðar mönnum úr byggingariðn-
aði, eiga að taka fram fyrir hend-
urnar á arkitektum. Að láta teikn-
ingar af húsum, sem fyrirfram er
vitaðað munileka, fara i gegn er ekk-
ert nema snobb fyrir arkitektum. Flöt
þök eru ekki þaðeina sem valda leka,
heldur einnig alls konar kantar og
bitar sem verða til i hugarheimi arki-
tekta. Reyndir menn í byggingariðn-
aði vita af reynslu hvers konar þök
munu ekki þola íslenzka veðráttu og
það fer að verða spurning hvort ekki.
sé betra að þjóðin notfæri sér kunn-
áttu arkitekta við teiknikennslu smá-
barna á barnaheimilum. Það gæti
hindrað fleiri „18 bala hús” og þau
forkastanlegu vinnubrögð sem siðan
valda tugmilljóna viðgerðakostn-
aði.”
Þakkir til
Böðvars
6273-4515 hringdi:
Mig langar til að koma á framfæri
þakklæti til Böðvars Guðmunds-
sonar vegna sunnudagsþátla hans og
til þess sveitafólks sem hann hefur
tafað við. Þættirnir eru hafsjór af
fróðluk.
Einnig vil ég óska Hilmari Ingólfs-
syni, nýja skólastjóranum i Garða-
bæ, til hamingju með stöðuna og
Ingvari Gíslasyni ráðherra flyt ég
þakklæti mitt fyrir að hafa horft
framhjá allri pólitik.
„Ég er ekkert leikfang,” gæti hún
verið að segja, þessi kisa.
Dýr eru
engin
barna-
leikföng
— heldur við-
kvæmar sálir
Björg P. Tryggvason skrifar:
Laugardaginn 13. september
fannst örlítill kettlingur nær ósjálf-
bjarga í stigagangi í blokk að Suður-
braut 12, Hafnarfirði.
Hvernig stendur á því að fólk lætur
svona andstyggilega við dýr sin?
Siðan segir það eftir á að þvi þyki
vænt um dýrin og hafi svo gaman af
þeim. En sú hræsni!
Fólk ætti að hugsa áður en það
hendir dýrum út því það er heldur
ekki sama hjá hverjum þau lenda.
Dýr eru engin leikföng, þau eru við-
kvæmar sálir og ef fólk ætlar að hafa
dýr barnanna vegna ætti það frekar
að gefa börnunum leikföng, því það
er ábyrgðarleysi að ætla börnum að
hugsa um dýr á eigin spýtur.
SÓLAÐIR OG IMÝIR
HJÓLBARÐAR
A Uar hjólbaröa viógeröir
Snjónaglar of> jafn vœgisstillins•
Sendum sólaöa hjólbaröa í póstkröfu
Opið kl. 7.30 til kl. 19.00
Lauf'ardaf'a kl. 7.30— /6.00
Hjólbarðasólun Hafnarfjarðar
Trönuhrauni 2 — Sími 52222
Margrét Hjaltadóttir kennari: Já, ég
hef það, þó ekki klifið fjöll, en farið í
berjamó
Hansson deildarstjóri: Nei,
það er langt síðan, um 4—5 ár.
Kristinn Hannesson verzlunarmaður:
Nei, það eru um 10 ár síðan ég gerði
það.
Ármann Ólafsson bóndl: Já, það er
stutt síðan. Ég fór á Póristungur.