Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 20.09.1980, Qupperneq 5

Dagblaðið - 20.09.1980, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980. 5 Deiíur foreldra og skólastjómar i Grindavík um kennslu Ragnars Ágústssonar Jltmm- Grunnskólinn i Grindavik: „Lausn deilunnar þar fundin en ef til vill ágreiningur um framkvæmd hennar,” segir fræðsiustjórinn á Reykjanesi. DB-mynd: Ragnar Th. OEDULEGAR AÐFARIR AÐ RAGNARI — segir Guðmundur Árnason hjá Landssambandi framhaldsskólakennara ,,Við höfum talsverðar áhyggjur af þessu máli og munum skoða það betur, enda er þarna um að raeða mikið prinsipmál fyrir okkar sam- tök,” sagði Guðmundur Árnason hjá Landssambandi framhaldsskóla- kennara, er hann var inntur eftir við- brögðum sambandsins vegna kenn- aramálsins í Grindavík. Þar í bæ hafa foreldrar barna í einum Bekk staðið fyrir mótmælaaðgerðum gegn Ragn- ari Ágústssyni og krafizt þess að hann víki sem kennari, eins og Dag- blaðið hefur greint frá undanfarna daga. „Okkur var kynnt málið eins og það horfir við kennaranum og rædd- um það, en engar ákvarðanir voru teknar. Samtökunum ber skylda til þess að standa vörð um réttindi félaganna og okkur virðast aðfarirnar að kennar- anum i Grindavík í alla staði óeðli- legar. Hann er settur í kennarastöð- una til eins árs í senn og hafi lians ekki verið óskað í vetur þurfti að til- kynna það fyrir I. júní. Kennarinn hefur því allan rétt til að halda stöð- unni að þvi er virðist.” - ARH Fundur um kennaradeiluna í Grindavík í dag: Krafan um að Ragnar víki óhögguð ,,Ég er sannfærður um að lausn deilunnar er fundin en það er ef til vill ágreiningur um framkvæmd hennar,” sagði Helgi Jónasson, fræðslustjóri í Reykjanesumdæmi, um kennaradeiluna í Grindavik. Þar í bæ verður fundur kl. 14 í dag þar sem mæta skólastjóri, skóla- nefnd, foreldrarnir, sem beita sér fyrir mótmælaaðgerðum gegn Ragn- ari Ágústssyni og ef til vill Helgi Jónasson fræðslustjóri. Helgi vildi ekki ræða i hverju lausn deilunnar væri fólgin og ekki heldur hefur Gunnlaugur Dan skólastjóri í Grindavík viljað gera tillögur sinar um lausn málsins opinberar. Ragnar Ágústsson kennari sagðist í samtali við blaðið vera ókunnugur hug- myndum um lausn málsins, þær hafi ekki verið kynntar sér. Hugmynd Gunnlaugs Dan var upphaflega sú að einn eða fleiri kenn- arar tækju að sér kennslu í 4. bekk A á móti Ragnari, en upphaflega átti Ragnar einn að kenna þeim bekk. Vildu foreldrar barnanna ekki una því að Ragnar kenndi þeim og kröfðust þess að hann viki. Foreldr- arnir fallast ekki heldur á að Ragnar kenni aðeins hluta af timunum og ítreka kröfuna um að hann víki alveg. Eftir því sem Dagblaðið hefur heyrt mun skólastjórinn nú leggja til að Ragnar hætti alveg kennslu í bekknum og annar kennari taki við. - ARH „Forseti ríkis er setur ofar öðru að lifa í friði og viðhalda heimsfriðnum” Vigdís fékk friðarverðlaun — sem kennd eru við Dag Hammerskjöld Vigdís Finnbogadóttir, for- seti íslands, tók fyrir skömmu á móti friðarverðlaunum, sem kennd eru við Dag Hammarskjöld, fyrrum fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Eru verðlaunin veitt árlega þeim, sem samtökin telja að hafi áeinn eða annan hátt ,,lagt sitt af mörkum til heilla mannkynsins — til eflingar friði eða á sviði miíliríkjasamskipta, lista, vísinda, bókmennta, blaðamennsku, læknis- fræði eða allrar fræðslu almennt.” Vigdfs Finnbogadóttir sýndi Dagblaðsmönnum gullkeðjuna góðu á skrifstofu for- setaembættisins i gær. Á keðjuna eru grafin latnesku orðin Pax Mundi — Heims- friður. DB-mynd: Einar Ólafsson. Nei takk.. ég er á bflnunt- Ákveðið var að veita Vigdísi Finnbogadóttur verðlaunin að þessu sinni: „sem fyrstu konu sem kjörin er forseti ríkis er setur öðru ofar að lifa í friði og viðhalda heimsfriðnum með fordæmi sínu og samskiptum við er- lend ríki,” eins og segir i rökstuðningi Dag Hammarskjöld-samtakanna fyrir ákvörðunsinni. Forseti Evrópudeildar samtakanna og heiðursforseti þeirra komu til Island i siðustu viku og gengu á fund forsta íslands. Var honum afhent skjal og hálskeðja úr gulli. Eru latnesku orðin Pax Mundi (heimsfriður) grafin á keðjuna. Fjölmargir þjóðhöfðingjar og forystumenn á sviði visinda, lista og menningarmála hafa verið heiðraðir af Dag-Hammarskjöld-samtökunum á þennan hátt. Má þar nefna John F. Kennedy fyrrum Bandaríkjaforseta, Leonard Bernstein hljómsveitarstjóra, Herbert Von Karajan hljómsveitar- stjóra, Werner Von Braun eldflaugna- sérfræðing, George Simenon rithöfund, Aristoteles Onassis, gríska auðkýfinginn, Haile Selassie fyrrum Eþíópíukeisara, Milfred Scheel forseta- frú í Vestur-Þýzkalandi og Sadat Egyptalandsforseta, sem verðlaunin hlaut á síðasta ári. -ARH. Sundlaug af sömu gerd og sú sem John Lewis, Dagblaðiö og fleiri söfnuðu fyrir á sinum tima. Rúm tvö ár frá sundlaugasöfnun Johns Lewis plötusnúðs fyrir Kópavogshælið: Laugin var seld—þótti ekkinógugóð ,,Það var byrjað að grafa á miðvikudag og viö vonumst til að sundlaugin verði komin i gagnið um áramótin,” sagði Símon Steingríms- son hjá Rikisspítulum i samtali við DB. Sundlaug við Kópavogshæli, hefur verið blaðamál allt frá því í febrúar 1978. Þá hóf John Lewis þá- verandi plötusnúður I Óðali fjársöfn- un til slyrktar sundlaug fyrir Kópa- vogshælið. Mörg fyrirtæki, þar á meðal Dagblaðið, og einstaklingar lögðu fram fé í söfnunina og var m.a. lagt upp í Keflavikurgöngu í þeim tilgangi að safna fé fyrir hvern kíló- metra sem genginn var. Á stjórnarfundi rikisspitalanna í marz '78 vr • ái:veðið að taka við sundlauginni en þá hafði tekizt að safna nægj: ilefu fé. Laugin sem safnararnir keyptu var plastlaug 6 metrar á breidd, 12 metrar á lengd, og 1,2 m á dýpt. Ári síðar skýrir Dag- blaðið frá því að laugin sé enn I pakkhúsinu hjá Gunnari Ásgeirssyni og þá lágu tillöguteikningar ennþá á borðinu á skrifstofu rikisspítalanna. Var þá talið að sundlaugin kæmi ekki að notum nema hún væri yfirbyggð. Núna, tveimur og hálfu ári eftir að söfnunin stóð yfir, er loks byrjað að grafa, en þá var sú sundlaug sem safnað var fyrir og keypt á sinum tímackki nothæf. „Það var alveg Ijóst að við gátum ekki notað plastlaugina. Hvort við steypum laug er ekki fullljóst ennþá. Plastlaugin hentaði okkur alls ekki til sjúkraþjálfunar og þess vegna seldum við hana, en það er leyndar- mál,” sagði Símon. „Við viljum engin leiðindi vegna þess. „Söfnunarféð dugði skammt; við þurftum aö grafa niður og ganga frá lögnum. Það þarfbakka fvrirsjúkra- þjálfarann og skýli yfir laugina og það kallar aftur á baðaðstöðu. Það er mjög nauðsynlegt aö hafa skýli yfir lauginni þar sem þelta fólk er mjög viðkvæmt." — Hjálpaði fjársöfjunin ykkur ekki af stað? „Fjársöfnunin gerði það ásamt öðru. Ákveðin uppbygging fyrir þroskahefta undanfarið hcfur komið þessu fyrirtæki í gang. -ELA.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.