Dagblaðið - 20.09.1980, Side 6

Dagblaðið - 20.09.1980, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980. TO YOTA-SALURINN Opið laugardaga kl. 1-5. Nýbýlavegi 8 fí portinu) AUGLÝS/R Toyota Cressido station Toyota Cressida station Toyota Cressida Hardtop sjáffsk. Toyota Cressida 4ra dyra Toyta Cressida 4ra dyra sjáffsk. Toyota Cressida 4ra dyra Toyota Cressida 4ra dyra Toyota Cressida 4ra dyra Toyota Carina 4ra dyra Toyota Carina 4ra dyra Toyota Cressida 4ra dyra Toyota Corona Mark II Toyota High Ace sendibíll Toyota Land Crusier, disil Toyota Starlet 1000 78 84 5.7 78 52 5.8 78 46 6.3 78 56 6.0 77 58 6,0 77 33 5.8 78 93 5.6' 78 46 5,5 77 51 4,5 77 78 4.5 76 65 3.8 77 60 4.6 74 116 2,9 77 92 6J ■80 6 5,7 TOYOTA-SALURINN NÝBÝLAVEGI8, KÓP. SÍMI44144. KVIKMYNDIR 8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur til leigu i mjög miklu úr- vali í stuttum og löngum útgáfum, bæði þöglar og með hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16 mm) og tökuvéla, m.a Gög og Gokke, Chaplin, Walt Disney, Bleiki Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir fullorðna m.a. Jaws, Deep, Grease, Godfather, China Town o.fl. Filmur til sölu og skipta. Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opiðalla daga kl. 1—7. Sími 36521 Smurbrauðstofan BJORNINN NjáEsgötu 49 — Sími 15105 BreiðhoKsbúar Kennslugreinar í Fellahelli verða: ENSKA 1.—4. flokkur. LEIKFIMI LEIRMUNAGERÐ STÆRÐFRÆÐI Á GRUNNSKÓLASTIGI Kennt verður mánudaga og miðvikudaga kl. 1 — 4 síðdegis. Kennslugreinar í Breiðholtsskóla verða: ENSKA 1.—4. flokkur. ÞÝSKA 1. og 2. flokkur. BARNAFATASAUMUR Kennt verður mánudaga og fimmtudaga kl. 19.30—22.30. Innritun í síma 12992 og 14106 mánudag 22. sept. og þriðjudag 23. sept. Leiklist Þetta er nú sjálfsagt vel meint, alveg prýðileg siðaskoðun, allténd ef tekst að gera kenninguna að verki. Það er ekki reynt í leiknum, og kann- ski ekki von. Allténd eins og kollótt- ur endir á þeirri leiksögu, leikrænu frásagnaraðferð sem lögð var upp í fyrrihlutanum: stílfært og skáldlegt raunsæi, veruleikatúlkun fyrri hlut- ans snýst í þeim seinni upp í siðferðis- legt melódrama, borgaralegan real- isma af siðustu«sort. Ljóta lagið hvað leikhúsmenn eru í seinni tíð gefnir fyrir að prakka upp á mann skoðunum sem þeir þykjast hafa á siðferðisefnum, gengur ekki á öðru en leikara-leikritum sem endi- lega vilja „predika móral fyrir al- menningi”, Snjór um daginn, Rommí í vor, Gamaldags kómedía í fyrrahaust. Eiginlega eru samt allir aðrir betur til þess fallnir, eins og Halldór Laxness hefur sagt, að inn- ræta mönnum rétta meðalhegðun í þjóðfélaginu. Ef þess gerist þá yfir- leitt nokkur þörf. Emil Gunnar Guðmundsson og Siguröur Karlsson i hlutverkum sinum sem sonurinn Lúðvik og faðirinn Ottó. Allt fram til kl. tíu Manneskja eða múrari Efnið er sótt í hversdaginn sjálfan, fólkið í leiknum verkamannshjón og sonur þeirra, atburðirnir allt raun- hæfar svipmyndir af leiksviði lífsins sjálfs, málið sem fólkið talar ort úr tungutaki daglegs lifs. Hægt og hægt birtist manni á sviðinu hnitmiðuð mynd mannlegrar einangrunar, lífs- firringar, leiða sem er að verða að neyð. Maðurinn vinnur í bílasmiðju og býr við öll þau harðræði sem verða á slíkum stöðum: fólkinu fækkað, handbrögðum fjölgað og hert á bandinu. Minnsta kosti þeir sem aldrei hafa unnið í verksmiðju eru alveg tilbúnir að trúa því að líf hans þar sé víti sjálft. Á meðan er konan hans heima í litlu laglegu íbúðinni þeirra þar sem allt er til alls, að fága og pússa, stoppa og staga, snúast í búðir og jagast í stráknum. Strákur- inn er nýbúinn í skóla, vill fá að læra múrverk, en foreldrar hans vilja að hann komist á skrifstofu eða i banka. Hann á ekki að þurfa að verða eins og þau. Þeim finnst báðum jafn- óþolandi að hafa strák sífellt yfir sér iðjulausan. Strákurinn segir undir lok leiksins lærdómsrík orð: hann vill ekki bara vera múrari, hann vill verða mann- eskja líka. Honum er að minnsta kosti orðið ljóst hversu ómannlegu lífi foreldrar hans lifa. Og þau bera að sinum hluta sök á því sjálf: halda sjálf uppi þeim sambýlis- og sam- félagsháttum sem gerir líf þeirra eins og það er. Faðir hans líkir lífi sínu og sinna líka við verksmiðjuna: það er kveikt á þeim og slökkt eftir þörfum þeirra sem öllu ráða og allt eiga, og þegar vinnunni sleppir á daginn tekur sjónvarpið við heima á kvöldin. Mórall handa almenningi í lok fyrri hluta bresta taugarnar óg með þeim fjölskylduböndin: strákurinn hrökklast að heiman, maðurinn gengur af göflunum og mölvar sjónvarpið, konunni er um síðir nóg boðið og fer frá honum. Og þá byrjar eiginlega annað leikrit eftir hléð: í stað hins almenna dæmis sem ekki haft hugmynd um það hvað vat að gerast á milli þeirra mínúturnar á undan, það sem fram fer innra með fólkinu i leiknum og það getur sjálfl með engu móti tjáð berum orðum. En eftir hlé er sem sé farið að leika annað leikrit sem er að vísu auðveld- ara i meðförum, en því miður miklu ómerkara, óskemmtilegra en það sem fyrr var fram komið. Tilviks-íslenska og tjaldaballett Og sýningin á að fást við fleiri vandkvæði. Tungutakið í leiknum skiptir áreiðanlega miklu, málfar þess kann að lýsa í hug fólksins sem það getur ekki sjálft látið uppi í orð- um. Á þýðingu Ásthildar Egilson og Vigdísar Finnbogadóttur eru á stöku stað ljótir og óþarfir hnökrar, og um- fram allt hefur hún ríka hneigð til til- viks-íslensku sem svo hefur verið kölluð, alveg merglaust málfar og laust við að auðkenna eða sérkenna fólkið í leiknum á nokkurn hátt. Þar hygg ég að mikils geti verið misst i hlutverkunum. Leikmynd Jóns Þórissonar er út at fyrir sig bráðhaganlegt verk, hvei einstök mynd og búningar leikend- anna, næmlega samin að anda og stefnu leiksins. En á milli hinna ör- stuttu leikatriða þarf sifellt að vera að forfæra leikmyndina, einstaka fleka og hluta hennar, og fylgir þessu fjölmenni, skrölt og fyrirgangur. Alll í einu er maður farinn að horfa á enn eitt leikrit innan í hinu! Hér var áreiðanlega þörf á ailt annarskonar verklagi — leikritið á heima á hring- sviði, sjónvarpi, eða intímu sára-ein- földu sviði með fastri leikmynd. En samt sem áður, sem sé: fram til klukkan tíu var þetta þrátt fyrir allt ansi ásjáleg, nýstárleg leiksýning í Iðnó. Leikfólag ReykjavBtur: AÐ SJÁ TIL ÞÍN, MAÐURI eftir Franz Xaver Kroetz Þýðing: Asthildur Egilson og Vigdls Finnboga- dóttir Lýsing: Danlel WUIiamsson Leikmynd og búningar: Jón Þórisson Leikstjóri: Hallmar Sigurösson Að sjá til þín, maður! er saman sett úr fjölmörgum, örstuttum leikatriðum, sum eintöl, sum alveg þögul, en öllum þannig háttað að myndin sem augað nemur, fas og svipur, þögn fólksins á sviðinu, skiptir að minnsta kosti jafnmiklu máli og það sem sagt er og gert i leiknum. Þetta er sjálfsagt vandmeð- farið svo vel sé. En fram eftir sýningu Leikfélags Reykjavíkur í fyrrakvöld fannst mér byggjast upp með þessum hætti sérkennilega hrífandi leiksýn- ing og áhrifamikil á köflum. dregið var upp í fyrri hluta er þá tekið að fjalla um sérstök vandamál hjóna- skilnaðarins. í stað almennrar lýs- ingar á sambýlisháttum sem sýkja og spilla, Meier-hjónin eru i alvörunni vænsta fólk og sonur þeirra góður strákur, kemur sérstök saga af heim- ilistýranna sem steypt er af stóli og verður um síðir að vorkennast, alls umkomulaus þegar hann hefur misst frá sér fjölskylduna sem hélt honum á loft. Og þessu lýkur öllu saman með mórölskum spýtubrjóstsykri: Við verðum að læra, sonur sæll, segir móðirin við son sinn í leikslokin — Iíkast til eigum við að læra að verða manneskjur I múrverki hversdagslífs- ins. Þá er von til þess að við náum saman um síðir. En, en, en . . . En það er með köfl- um eins og eftirfylgdina vanti, eins og aldrei sé tekið til fulls á efninu þótt höndin spanni það, aldrei lögð í frá- sögnina, hlutverkin öll sú orka og alúð líkama og sálar sem á þarf að halda. Skrýtilegt dæmi um þetta fannst mér langa þögnin, þrjár mínútur að sögn, undir lok fyrri hlut- ans. Þá heyrði ég ekki betur en hvers- dagsleikinn væri enn farinn að lala sínum myrka og hola rómi á milli hjónanna. En bittinú, það ætlaði höfundur sér að gera sjálfur, seinna, það var allt annað að ske í leiknum. Um siðir reis Margrét Helga öndverð og fór að gera uppreisn á móti Sig- urði, og var svo sem ekki að sjá að hann yrði neitt hissa. Maður hafði þá Talað milli hjóna Hvað um það: að ýmsu leyti er all- vel með efnið farið, þó það sé kollótt, á sýningunni í Iðnó. Að sjá til þin maður! er frumraun Hallmars Sigurðssonar í Reykjavík, og virðist mér hann hafa lagt nosturslega rækt við allan hinn ytri umbúnað og frá- sagnarmátann á leiknum. Emil Gunnar Guðmundsson: Lúðvík.son- urinn, er efnilegur nýliði og hefur mjög gott útlit í hlutverkið, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigurður Karlsson, Marta og Ottó, mjög vax- andi leikarar að undanförnu, og fara líka bæði ágætlega i hlutverkum hjónanna. Stöku Ieikatriði þeirra í milli og einslega fékk í sýningunni eins og rafmagnað líf, neyðarleg og hrópleg tjáning hversdagsleika, veru- leikans. Og alveg fannst mér merki- legt hvað Margrét Helga gat gert sig „þýskulega” í fasi og framgöngu.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.