Dagblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 10
MMBIABa Utgefandi: DagblaÖið fif. Framkvasmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfason. Ritstjóri: Jónas Krtstjánaaon. RitstjómarfuMtrúi: Haukur Halgason. Fréttastjórt: ómar Vaidimarsson. Skrtf stofustjóri rttatjómar: Jóhannas Raykdal. (þróttlr: HaMur Slmonarson. Mannlng: Aflalstalnn Ingólfsson. Aflstoflarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit: Asgrfmur Pálsson. Hönnun: HUmar Karisson. Blaflamann: Anna Bjamason, Atll Rúnar Haldórsson, AtM 8tainarsson, Ásgair Tómasson, Bragi' Slgurflsson, Dóra Stafánsdóttk, EMn Afcartsdóttlr, Ema V. Ingólfsdóttlr, Gunnlaugur A. Jónsson, ólafur Galrsson, 8igurflur 8varrisson. Ljósmyndir: Bjamlaifur Bjamleifsson, Einar ólason, Ragnar Th. Sigurflsson, Sigurflur Þorri Sigurflsson, og Svainn Þormóflason ' Skrtfstofustjórí: ólafur EyjóHsson. Gjaldkari: Þrálnn ÞorlaHsson. Sökistjórl: Ingvar Svainsson. DreHing- arstjórt: Már E.M. HaMdórsson. / Enn eitt Parkinsonsfrumvarpið Enn er verið að smíða fjárlaga- frumvarp og enn er það samið í anda lögmáls Parkinsons. Stjórnendur opinberra stofnana hafa skilað skýrslum um áætlaða fjárþörf þessara stofnana á næsta ári. í þessum áætlunum er mikið um dýrðir. Alls staðar þarf fleiri starfsmenn til að búa til verkefni fyrir þá, sem fyrir eru. Alls staðar er nóg af verkefnum, sem gaman væri að vinna að. Og alltaf hefur alþingi samþykkt lög, sem leiða til nýrra útgjalda á fjárlögum. Ofan á allt þetta bætist svo vissa stjórnenda opinberra stofnana, að áætlanir þeirra verði skornar niður um 10—20%. Þeir gera ráð fyrir niður- skurðinum með því að ofáætla fjárþörf sína, sem þessu nemur. Niðurstaðan verður því samansöfnuð óskhyggja stjórnenda opinberra stofnana og alþingismanna. Þessi samansafnaða óskhyggja er kölluð fjárlaga- frumvarp. Þetta frumvarp er ár eftir ár langt umfram greiðslugetu þjóðarinnar. Til þess að minna beri á þessu tíðkast í vaxandi mæli, að fjárfestingarþættir séu teknir úr hinu venju- lega fjárlagafrumvarpi. Þeir eru settir í annað fjárlaga- frumvarp, sem kallað er lánsfjáráætlun, í sjón- hverfingaskyni. Afleiðingarnar eru margþættar. 15% útflutnings- tekna þjóðarinnar fara í afborganir og vexti af löngum, erlendum lánum. Þetta hlutfall var 13% í fyrra. Jafnframt þyngist skattbyrðin. Á þessu ári hækka beinir skattar um 5 %. Alvarlegast er þó, að útþensla hins opinbera kemur niður á hinum tveimur aðilum þjóðarbúsins, at- vinnuvegum og almenningi. Þeir berjast í vinnudeilum um, hvernig skipta skuli köku, sem ríkið lætur minnka ár eftir ár. Margoft er búið að benda á, að fjárlög má ekki byggja á samansafnaðri óskhyggju. Þau á að smíða á þveröfugan hátt, með því að byrja á niðurstöðu- tölunum og énda á einstökum greiðsluliðum. Alveg eins og launamaðurinn byggir á launaumslaginu. Fyrst þarf að taka pólitíska ákvörðun um, hve mikill eigi að vera hlutur ríkisins af þjóðartekjunum, til dæmis 10%. Síðan þarf að ákveða, hve mikið eigi að fara til rekstrar og hve mikið til fjárfestingar, til dæmis 6% og 4%. Næst þarf að skipta þessum upphæðum milli ráðuneyta. Það þarf ekki endilega að gerast í sömu hlutföllum og árið áður, heldur breyttum. Væri þá tekið tillit til pólitískra forgangsatriða á borð við orkubúskap þjóðarinnar. Einnig þurfa ráðamenn að fá tækifæri til að íhuga, hvort nokkur heil brú sé í að verja 10% fjárlaga til styrkja, uppbóta og niðurgreiðslna í landbúnaði og auka þannig enn framtíðarkostnaðinn af þessu þjóðar- meini. Þegar loksins er búið að brjóta fjárlagafrumvarpið niður í smæstu einingar, sjá menn til dæmis, hve mikið fé þjóðin getur lagt í heimavistarskóla á næsta ári. Þá væru hálftómir Hafralækjarskóli og Stóru-Tjarnaskóli ekki byggðir í senn. Við slíkar aðstæður mundu embættismenn og stjórnmálamenn vanda sig mun betur og gera meira að því að velja og hafna. Þeir gætu jafnvel látið sér detta í hug, að leggja megi niður óþarfar stofnanir til að ná fé til þarfari hluta. Fjárlagafrumvarp á að byggjast á þrennu. í fyrsta lagi fastri hlutdeild ríkisbús í þjóðarbúi. í öðru lagi vinnslu frá niðurstöðutölu í átt til einstakra útgjalda- liða. í þriðja lagi, að greiðslur verði ekki að hefð, heldur séu endurmetnar á gagnrýninn hátt á hverju ári. DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980. f Egyptaland: Skemmt kjöt á opinberu verði Á hverjum morgni birtir ríkisút- varpið í Kairó í Egyptalandi lista yfir opinbert verð á graenmeti og ávöxt- um. Flestir Egyptar líta á þessar fregnir eins og hvern annan hallæris- brandara þar sem ekki er nokkur leið að nálgast þessar vörur á auglýstu verði. Fáist þær á þvi eru þær yfirleitt ónýtar. Nýlega hefur verið hafin auglýsing á kjötverði ásamt grænmetinu og ávöxtunum. Kjöt hefur mjög hækk- að i verði í Egyptalandi að undan- förnu og þykir mjög mega ráða frammistöðu ríkisstjórnar Anwar Sadats af því hvernig henni gengur að halda niðri verði á kjöti i nánustu framtið. Vegna verðhækkana hefur kjöt orðið hálfgerð lúxusvara hjá egypzk- um almenningi. Verðhækkanir eru af opinberri hálfu sagðar hafa verið 30% að undanförnu. Fyrr i þessum mánuði tilkynnti Sadat forseti sjálfur að næstu tuttugu og átta dagana væri öll slátrun bönnuð í Egyptalandi og einnig allur innflutningur á kjöti. Landsmenn allir yrðu að sætta sig við kjötleysi á meðan opinber nefnd gengi frá nýju verð-, dreifingar- og birgðakerfi á kjöti. Sadat forseti kenndi ýmsum milli- liðum um að hafa hækkað verð á kjöti upp úr öllu valdi. Skýrði hann frá kjötkaupmanni einum sem hefði grætt svo mikið á kjötviðskiptunum að hann hefði getað keypt sér hús á jafnvirði 500 milljóna islenzkra króna. >ó að matvara sé yfirleitt ódýr í Egyptalandi, mælt á vestrænan mælikvarða, hefur hún hækkað mjög í verði þar að undanförnu. í janúar árið 1977 urðu miklar mót- mælaaðgerðir gegn stjórn Sadats. Stöfuðu þær af óánægju fólks með verðhækkanir á matvörum. — er Anwar Sadat að leiða Egypta ofan í niðurgreiðslugryfjuna? r Skil ekki hvernig fólk getur gleymt unglingsárum sínum — vildi óska þess að ég gæti gleymt árunum milli 15 og 19 — þegar maður æddi á hverju kvöldi niður í bæ og sat á kaffihúsunum er í mína tið voru Hressó og Laugavegur 11 og fannst alltaf að maður væri að missa af ein- hverju og eitthvað stórkostlegt væri í þann veginn að gerast. — Og svo gekk maður rúntinn og hékk á Hressó — og aldrei gerðist nokkur skapaður hlutur! Og nú er ég orðin móðir þriggja unglinga á aldrinum 14 til 22ja sem þjóta út á hverju kvöldi eins og snæljós og geta ekki flýtt sér nóg til að komast út „og skoða lífið.” En hvert geta þau farið? Hvar fá þau aðgang að einhverju skemmtana- lífi? Það er ekki um auðugan garð að gresja. Ekkert samkomuhús í miðbænum býður þeim upp á diskó og kók. Það eru alls staðar áfengis- veitingar, svo þau verða að sanna að þau séu orðin tuttugu ára til að kom- ast í gegnum nálaraugu dyra- varðanna. Sem sagt, frá fermingunni þar sem þau eru að vissu leyti tekin í fullorðinna manna tölu, lfða sex ár þar sem boYgarlifið er takmarkað við göturoggangstéttir. En sautján ára fær maður bílpróf — og hvílíkir möguleikar opnast ekki? Maður fer nú og sýnir sig á kagganum þar sem allir hinir eru — og þeir eru náttúrlega niðri á Hallærisplani!!! Þar er þrennt sem hin lífsþyrstu ungmenni angra samborgarana með. Þau halda vöku fyrir íbúum miðbæjarins með flauti, brjóta rúður fyrir kaupmönnunum á sama stað og pissa og kúka í garöana í kring. Siðasta vandamálið hefur að nokkru verið leyst með þvi að sæmdarhjón i Grjótaþorpi, Laufey Jakobsd. og Magnús Finnbogason hafa í sjálf- Um hverja helgi fyllist miðbærinn af ungu fólki. Sumir ráfa þar um I algeru eirðarleysi og I leit að viðburðum. Margir bera kókblandað brennivin sér I hönd eða bara flösku I beltisstreng. Lögreglan vappar I kring og við hvern atburð verður múg- æsing og mannþyrpingin vill fylgjast með og jafnvel blanda sér I málin. DB-mynd Ragnar Th. Sig.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.