Dagblaðið - 20.09.1980, Page 11

Dagblaðið - 20.09.1980, Page 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980. Síðan þá hafa stjórnvöld í Egypta- landi reynt að komast hjá miklum hækkunum á þeim og gjarnan beitt ýmsum niðurgreiðsluaðferðum. Blöð i Egyptalandi hafa nú hafið mikla herferð gegn kjötkaupmönn- um og kallað þá feit svín sem fitni af því að græða á fátæklingum. Stjórnarandstaðan, sem venjulega hefur hægt um sig í Egyptalandi, hefur einnig hafið andróður gegn verðhækkunum á matvörum. Hvað varð af efndunum á loforði Sadats forseta um hvernig árið 1980 mundi verða, spurði fyrrum mennta- málaráðherra Egyptalands í blaði stjórnarandstöðunnar nýlega. í byrjun þessa mánaðar, áður en bannað var að slátra eða flytja inn kjöt, kostaði kílóið af því 1,45 egypzk pund í hinum ríkisreknu kaupfélögum. Hjá einkakjötverzlun- um var verðið hins vegar ailt að fjögur pund fyrir hvert kíló. lllmögu- Iegt mun hins vegar vera að fá kjöt á hinu lága opinbera verði nema þá skemmt eða úldið. í vikunni birti stjórnin fyrstu hug- myndir sínar að nýju skipulagi á kjöt- sölunni. Kjötkaupmenn í Kairó telja vist að það muni ekki duga. Ætlunin er að auka kjötinnflutning úr 90 þús- und tonnum á ári upp í 120 þúsund tonn. Er það rúmlega þriðjungur af heildarneyzlu Egypta á kjöti. Selja á innflutta kjötið i kaupfélögum en það kjöt sem fengið er innanlands á að selja undir eftirliti í einkaverzlun- um. Kjötkaupmenn segja að engin leið sé að ná valdi á kjötverðinu nema með því að ríkið taki að sér heildsölu á kjöti. Verðákvarðanir hins opin- bera einar sér bjarga engum vanda, segja kaupmenn. Við hækkum verð okkar þegar kjötheildsalar hækka heildsöluverðið. Vilji ríkisstjórnin raunveruiega halda verðinu niðri þá verður hún að taka að sér hlutverk milliliðanna. Vestrænn sendimaður í Kairó segir að svo virðist sem ríkisstjórn Sadats ætli að losa sig út úr þessum vanda vegna kjötverðsins með því að greiða niður verðið á innfluttu kjöti. Hjá efnahagssérfræðingum veldur þessi húgmynd lítilli hrifningu. Egypzka ríkisstjórnin hefur áður gripið til slíkra ráða og á endanum hlýtur niðurgreiðslukerfið að springa. Það hefur ávallt mikla tilhneigingu til að hlaða utan á sig og sifellt verður erfiðara að snúa til baka. 11 Að þora að standa við sannfæringu sína Enn mun flestum jafnaðarmönn- um vera i fersku minni það gjörn- ingaveður, er skall yfir Alþýðuflokk- inn úr herbúðum andstæðinganna, er þingmenn flokksins undu eigi því káki og algeru aðgerðaleysi er ríkti í efnahagsmálum þjóðarinnar — og þvi kameljónshlutverki er maddama Framsókn lék frá upphafi til enda í þessari síðari rikisstjórn Ólafs Jóhannessonar í fullkominni þjónk- un sinni við Alþýðubandalagið. Af þessum sökuni rufu hinir ungu þing- menn Alþýðuflokksins •stjórnarsam- starfið í vetrarbyrjun 1979 og um leið veldi ráðherrastólanna, en létu sam- visku og sannfæringu ráða, þrátt fyrir að samhljóða skoðanakannanir spáðu Alþýðuflokknum fylgishruni. Eigi bætti það úr skák að stjórnarslit jafnaðarmanna þýddu aö alþingis- kosningarnar urðu að fara fram í svartasta skammdeginu. Bæði Framsókn og Alþýðubanda- lagið notuðu líka óspart þetta vopn — og áttu vetrarkosningarnar glöggt að sýna hið slæma innræti krata, þar sem þeir áttu vitandi vits að hafa sigtað út kosningar á þessum árstima i þeim tilgangi að útiloka margt dreif- „Steingrfmur kom með fallega súkkulaðibrosið sitt < á sjónvarps- skerminn og sagði að manngildishug- sjónin væri æðsta boðorð slns flokks — og hinn almenni kjósandi, hvort sem hann var I afdal eða kaupstað, kenndi alvöruþungann sem að baki bjó...” segir greinarhöfundur. býlisfólk frá þvi að neyta kosninga- réltar sins. Slik og þvilík var ntann- vonska kratanna! 0 . . En spyrja mætti nú Steingrím Hermannsson. Hvar eygir á manngildis- hugsjón flokks hans i núverandi stjórnar- samstarfí? Og spyrja mætti helzta forustu- mann Alþýöubandalagsins, Ragnar Arnalds, núverandi íslandsmeistara i skattpíningu, um baráttu flokks hans til verndar hinum fátæku og smáu ...” Bæði Maddaman og Bandalagið gátu vart vatni haldið yfir þessum þorparaskap og fötuðu i flýti margar Leitis-Gróur, er riðu gandreið um sveitir, sem kunngjörðu tíðindin af innblásnum fjálgleik frá Óla Jó. og Lúlla. Að auki var öllum Itinum ntikla blaðakosti andstæðinganna beitt að meginmáli i áróðursherferð gegn jafnaðarmönnum. Jafnvel Dag- blaðið, sem ég og niargir fleiri trúð- unt að væri frjálst og óháð, bergntál- aði níðið. Gegn þessum mikla blaðakosti "höfðu jafnaðarmenn litið og litt út- breitt blað og vissuna um að þeii hefðu svikið sina fyrri kjósendur, ef þeir hefðu haldið áfram stjórnarselu á meðan verðbólgan óð áfram trölla- skrefum. Forystumenn jafnaðarmanna drógu enga dul á það I kosningabar- állunni, að ef leggja ætti út í orruslu við verðbólguna, er bæri jákvæðan árangur, þyrftu allir einhverju að fórna, en þó skyldu þær fórnir axlast eftir efnum og aðstæðum. Fyrir þess- ari stefnu börðust þingmenn Alþýðu- flokksins allan tímann meðan flokkur þeirra átti setu í rikisstjórn — og af þeim sökum voru stjórnarslit óumflýjanleg, vegna andstöðu sam- starfsflokkanna. Og þá er stjórnarslitin voru orðin staðreynd, stóð eigi á ramakveini Al- þýðubandalagsins. Alþýðuflokkur- inn ællaði að arðræna þá, sem verst voru settir í þjóðfélaginu. Formaður Framsóknar, Steingrímur Hermanns- son, kom með fallega súkkulaði- brosið sitt á sjónvarpsskerminn, og sagði að manngildishugsjónin væri æðsta boðorð sins flokks og bak við súkkulaðibrosið kenndi liinn almenni kjósandi, hvorl sem hann bjó í afdal SigurjónJóhannsson eða kaupstað, þann mikla alvöru- þunga, er innra fyrir bjó hjá for- manninum unga. Eftir að dómur kjósenda var fallinn, kom í Ijós að þrátt fyrir að nær öll blaðapressan hamaðist gegn Alþýðuflokknum, ásamt ötulli hjálp Leitisgróa i öllum landshlutum hélt Alþýðuflokkurinn velli, þrált fyrir nokkurt fylgistap. En þakka ber hinum ungu þingmönnum hans.að þeir vildu heldur l'órna þing- mennsku og ráðherrastólum heldur en samvisku sinni og sannfæringu. En spyrja mætti nú Steingrím Her- mannsson: Hvar eygir á manngildis- hugsjón flokks hans i núverandi stjórnarsamstarfi? — Og spyrja mætti einnig lielsta forustumann Al- þýðubandalagsins, Ragnar Arnalds, núverandi íslandsmeistara i skatlpín- ingu, um baráttu flokks lians til verndar hinum fátæku og smáu? Nær hún aðeins til flekafuglanna, er Bandalagið og Maddaman náðu til sin úr Sjálfstæðisflokknum, því að vissulega þarf að fóðra þá Gunnar, Friðjón, Pálma og Haukdal vel, svo þeir l'ari ekki að skrækja á flekanum og reyna að veifa stýfðum vængjum. Allt i lagi með verðbólguna og arð- ránið á meðan unnt er að halda fleka- fuglunuin rólegum. Hið eina og sanna sameiningarlákn Framsóknar og Alþýðubandalagsins. Alveg santa hvað fæðið kostar! Þjóðin borgar! Sigurjón Jóhannsson frá Hlíð, Svarfaöardal. Unglingarnir íReykjavík: „Einhvers staðar verða vondir að vera” Kjallarinn boðavinnu setið og haldið opnum al- menningsklósettum fyrir unglingana langt fram á nætur. Hitt lendir á lög- reglunni, og jafnframt þá það að taka af krökkunum áfengið sem þau því miður eru ansi seig að ná sér í. Fyrir lögreglumenn er þetta bæði vandi og ábyrgðarhluti. Unglingar á þessum aldri eru oft baldnir og allt annað en kurteisir og þægilegir, síst við þá sem þurfa að leika yfirvöld fyrir þá, eins og foreldra, kennara- og lögreglu. Þeir eru milli vita. Svo eru þeir í gífurlegri mótun. Þeir eru að reyna að vera fullorðnir og á leiðinni að verða ábyrgir. Og það skiptir miklu máli, að þeir sem hafa með þá að gera komi fram við þá af öryggi, mannviti og festu. Sumir fullorönir verða tauga- óstyrkir gagnvart unglingum. Þeir grípa til þess að skamma þá og jafn- vel leggja á þá hendur. Maður getur svo sem vel skilið að ýmsir lögreglu- menn séu alls ekki undir það búnir að fást við þetta vandamál. Það virðist oft á tíðum fljótlegra að þrífa krakka sem eru með uppsteyt, stinga þeim í salatfatið og fleygja þeim inn í læsta fangaklefa, heldur en reyna að ræða ^ .. Fyrir lögreglumenn er þetta bæði vandi og ábyrgöarhluti. Unglingar á þess- um aldri eru oft baldnir og allt annað en kur- teisir og þægilegir, sízt við þá, sem þurfa að leika yfirvöld fyrir þá, eins og foreldra, kenn- ara — og lögreglu. Þeir eru milli vita. Jafn- framt eru þeir í gffurlegri mótun. Þeir eru að reyna að vera fullorðnir og á leiðinni að verða ábyrgir. Og það skiptir miklu máli, að þeir sem hafa með þá að gera komi fram við þá af öryggi, mannviti og festu...” við þá, og fá þá með góðu til að hegða sér prúðmannlega og sýna öðrum sömu tillitssemi og þeir krefjast sjálfum sér til handa. Inga Huld Hákonardóttir En fljótlega lausnin hefur bara þann galla, að hún byggir á því að hræða til hlýðni. Jafnframt því sem hún vekur hjá unglingunum óbeit, jafnvel hatur, á vörðum laganna, þá er hún sýnikennsla í ofbeldi. Hún kennir þeim að hnefarétturinn sé lög- mæt lausn. Og annað verra, eftir þeim sögum, sem unglingarnir segja mér þá er refsingunum oftast beitt harðast gegn krökkum sem eru jafn- vægislausir og koma úr umhverfi, þar sem þeim er illa, jafnvel ekkert sinnt. Mér er sagt, að krakkar, sem leiðst hafa út á afbrotabrautir, og eins þau sem fyrir munaðarleysi eða nöturleg örlög hafa lent á uppeldis- hælum, eigi undir högg að sækja hjá lögreglunni. Lögreglubílarnir, sem aka um bæinn, geri sér að leik að kippa upp slíkum unglingum, ef þeir sjá þá á götu, keyra þá á afvikna staði í útjaðri bæjarins og fleygja þeim þar út með formælingum, ef ekki barsmíðum. Sérstaklega séu þeir harðhentir við krakka, sem ekki eiga foreldra, sem geta varið þá. Það er ófagur og ójafn leikur, ef satt er. En svona eru ekki allir lög- regluþjónar. Ég veit um mjög nýlegt dæmi þess, að nokkrir krakkar voru í barnaskap að kveikja í öskutunnum um hánótt. Lögreglan kom að, tók krakkana niður á stöð, ræddi við þau í rólegheitum og keyrði þau síðan heim. Það er áreiðanlegt, að ekkert af þeim börnum fékk andúð á lög- reglunni og þau misstu gjörsamlega áhugann fyrir vafasömum nætur- ævintýrum. Þarna sýndu lögreglumennirnir sömu mannþekkingu og Júlíus Haf- stein á Húsavík. Unglingspiltar höfðu gengið með grjót og brotið ljósin í götuluktum bæjarins. Júlíus kallaði þá fyrir sig og þeir ætluðu að hníga niður í gólfið af skelfingu við hið borðalagða yfirvald. Þá dró sýslumaðurinn upp appelsínur og gaf þeim að lokinni áminningu og þarf ekki að orðlengja, að ljósaperur þorpsins fengu að skina í friði eftir það. En foreldrar og kennarar verða líka að brýna fyrir krökkunum að virða almennar umgengnisvenjur, þegar þau eru að þvælast niðri í bæ á fögrum kvöldum. Og æskilegt væri, að í miðbænum væri þokkalegt vínlaust diskótek fyrir þau. Gæti ekki æskulýðsráð fengið gamla Sjálf- stæðishúsiö? Til dæmis. Loks geri ég það að tillögu minni, að kaupmenn fái bætt þau rúðubrot, sem þeir verða fyrir. Ég er ekki viss um, að það séu eintómir unglingar, sem brjóta þær rúður. En ég hef heyrt að þegar vín er gert upptækt af næturhröfnum, yngri og eldri, í miðbænum, skuli eigandi vínsins greiða tuttugu þúsund króna sekt. Gæti ekki þetta sektarfé runnið til að bæta það tjón, sem ölóðir menn valda á rúðum, grindverkum og görðum kringum hið segulmagnaða Hallærisplan? Inga Huld Hákonardóttir

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.