Dagblaðið - 20.09.1980, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980.
23
Sjónvarp
D
VID EIGUM SAMLEIÐ - útvarp
sunnudag kl. 14,00:
„Auðugur af öllu
öðru en peningum”
— segir Sigfús Halldórsson, tónskáld
„Eg hef alltaf verið blankur af
peningum en auðugur af öllu öðru.”
Þannig meðal annars komst Sigfús
Halldórsson að orði í samtali við
blaðamann DB í tilefni af sextugs-
afmæli hans 7. september síðast-
liðinn.
j útvarpinu á sunnudag verður
endurtekinn dagskrárþáttur, sem Atli
Heimir Sveinsson annaðist á sextugs-
afmæli Sigfúsar Halldórssonar
tónskálds. í þættinum er rætt við
Sigfús, og leikin og sungin lög eftir
hann.
Kunnastur er Sigfús fyrir Litlu
fluguna sina sem allir íslendingar
kunna og lögin hans eru alltaf jafn-
vinsæl. En Sigfúsi er ýmislegt fleira
til lista lagt en að semja lög. Hann
ætlaði að verða leiktjaldamálari en
það þróaðist yfir í málverk, ýmist
olíu- eða vatnsliti. Mest málar hann
hús og borgarumhverfi. Þannig voru
flestar myndirnar á afmælis-
sýningunni á Kjarvalsstöðum úr
gamla miðbænum i Reykjavík.
Sigfús vann i mörg ár á skrif-
stofum, mest í Útvegsbankanum og á
Skattstofunni, en er nú teikni-
kennari. Hann segist aldrei hafa haft.
það betra en núna og er að byggja
vinnustofu við húsið sitt í Kópa-
voginum. „Það hefur mig alltaf
dreymt um en aldrei getað fyrr,”
segir hann.
Þáttur Atla Heimis, „Við eigum
samleið ” dregur nafn sitt af einu
laga Sigfúsar. -GAJ.
Raimonde Ponte, Nottingham Forest, og Glen Hoddle, Tottenham, kljást um
knöttinn.
ÍÞRÓTTIR 0G ENSKA KNATTSPYRNAN
— sjónvarp í dag kl. 16,30 og 18,55:
Markaregn í
knattspymu
Knattspyrnuunnendur ættu ekki að
verða fyrir vonbrigðum með ensku
knattspyrnuna í dag því þeir fá að sjá
^jjs tólf mörk i þremur leikjum. Það
verða heldur engin slorlið, sem leika
listir sínar. Evrópumeistarar Notting-
Tíám Forest mæta Manchester City,
efsta lið 1. deildar Ipswich sækir
Crystal Palace heim og Englands-
meistararnir Liverpool fá West
Bromwich Albion i heimsókn.
í íþróttaþættinum verður aðal-
myndin um tvo mestu afreksmenn
síðari ára, sundkappann bandaríska
Mark Spitz, sem vann sjö gullverðlaun
á ólympiuleikunum i Múnchen, og
langhlauparann finnska Lasse Viren
sem sigraði tvívegis bæði í 5 og 10 km
hlaupi á ólympíuleikum. Einnig verða
sýndar myndir frá ólympíuleikunum i
Moskvu. Sýnt verður frá keppni i
handbolta, blaki, kajakróðri og
siglingum.
-GAJ.
Benz 29 manna
árg. 1961 til sölu, 2ja drifa. Uppl. í síma
97-4217 og 97-4250.
Pípulagningamenn
Óskum eftir að ráða vana pípulagningamenn sem
fyrst. Mikil vinna, gott kaup. Upplýsingar í síma
94-3298 og 94-3802.
RÖRVERK HF.
Isafirði.
Kór Menntaskólans 1 Hamranuo neiur lengio upptðku f heióurssamstök ungra kóra I Evrópu.
VIÐ SKULUM TIL GLEÐINNAR GÁ — sjónvarp sunnudag
M. 20,35:
„Eins og vítamín fyrír sálina”
Þorgerður Ingólfsdóttir hefur
stjórnað mer.ntaskólakórnum i Hamra-
hlíð í rúm þrettán ár og náð svo góðum
árangri að kórinn hefur hlotið upptöku
í heiðurssamtök ungra kór í Evrópu.
Kórinn hefur sungið næstum árlega er-
lendis og lengst komizt til israel.
Kórinn hefur einnig sungið inn á plötu.
Allt ber þetta starfi Þorgerðar
Ingólfsdóttur fagurt vitni og árangur
hennar með kórinn verður að teljast
mjög góður, ekki sízt þegar haft er í
huga, að árlega hverfa margir
nemendur úr skólanum og þar með
kórnum — og nýir og óvanir koma í
staðinn.
Annað kvöld gef-.i íslenzkum sjón-
varpsáhorfendum enn tækilxri til að
hlýða á kórinn i þætti er nefnist Við
skulum til gleðinnar gá.
í samtaii er blaðamaður DB átti við
Þorgerði Ingólfsdóttur í fyrra er hún
hafði hlotið menningarverðlaun Dag-
blaðsins lýsti hún nokkuð æfingum
kórsins:
„Krakkarnir koma á æfingar um
fimmleytið svöng og þreytt eftir að
vera í skólanum frá þvi klukkan átla
um morguninn, flest að deyja úr of
mikilli eða of lítilli ást. Þau leggja frá
sér skólatöskurnar, fara að baksa við
að ná hreinum tón í einhverju litlu lagi
og þá er eins og þú lyftist upp. Söngur
er nefnilega eins og vitamín fyrir
sálina.”
-GAJ.
NYIR ÞÆTTIR UM VEÐURFAR - útvarp M. 10,25
sunnudag:
Hvernig urðu
veðurspár til?
„Hugmyndin er sú að 7 veður-
fræðingar munu flytja erindi um
veðurfræði. Ég mun fjalla um veður-
spá í mínu erindi. Fjallað verður um
veðurspá vítt og breitt og m.a. komið
inn á sögulegan aðdraganda, hvað
veðurspár fela í sér og vandkvæði við
gerð veðurspáa. Ég mun koma víða
við og þó ég komi við í útlöndum,
mun ég að mestu fjalla um okkar
vandamál,” sagði Markús Á. Einars-
son veðurfræðingur í samtali við DB.
Á sunnudagsmorgun kl. 10.25 hefst
fyrsti þáttur af sjö um veðurfar.
Markús var inntur eftir því hvort
þessir þættir væru svipaðir þáttunum
sem voru í sjónvarpinu i fyrravetur,
en hann kvað þá þætti mjög ólíka.
„Það er tvennt ólíkt að starfa við
sjónvarp og hljóðvarp. Sjónvarps-
þættirnir i fyrravetur voru fræðslu-
þættir þar sem notað var myndefnið.
Þessir þættir eru meira almennt yfir-
lit,” sagði Markús. -ELA.
ÐANSE
Innritun er hafin
Kenns/ustaðir:
Reykjavík:
Ingólfskaffi,
Þróttheimar,
Seljabraut 54
(Kjöt og fiskur),
Bústaðir.
Mosfellssveit:
Hlégarður
Hafnarfjörður
Sjálfstæðishúsið
Akranes
Rein
\nor
itunarS
'vcfl&'-
50
29505
53158
66469
K\.
K\.
\0-
\0-
K\-
K\.
1.30-
Takið eftír
Kenndir verða allir nýjustu diskö- og rokkdansarnir.
Dömur, 20 ára og eldri: Allir nýjustu beat-dansarnir.
Þ^kaiandi ^ Fjörug °g skemmtíleg sp°r í rokki t