Dagblaðið - 25.09.1980, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980.
9
írakar ásælast ekki
olíusvæðin í íran
— íran hefur stöðvað allan olíuútflutning eftir miklar loftárásir á
Khargeyju sem er höfuðútflutningsstöðin
Erlendar
fréttir
- i
Rotterdam:
Engin hreyfing
á olíuverði
í gær varð ekki vart neinna hreyfinga
á olíumarkaði í Rotterdam vegna styrj-
aldarinnar á milli íraks og írans. Bent
er á að vegna mikilla olíubirgða vest-
rænna rikja þurfi ekki að koma til
neinna örþrifaráða strax þótt olíuút-
flutningur þessara tveggja miklu olíu-
útflutningsríkja stöðvist eða dragist
saman. Taliðer að olíubirgðirá Vestur-
löndum samsvari hundrað daga venju-
legri notkun.
Sérfræðingum i Rotterdam ber þó
saman um að vel gæti svo farið að olíu-
verð þar þjóti upp vegna ótta við af-
leiðingar styrjaldarinnar þegar minnst
varir.
Spánn:
Nítján farast í
jámbrautarslysi
Hraðlestin á milli Madrid til
Valencia á Spáni rakst í gær á hægfara
farþegalest á brautarskiptum með þeim
afleiðingum að nítján manns létu lífið.
Varnarmálaráðherra íraks, Adnan
Khairallah Talfah sagði á fundi með
fréttamönnum í Bagdad i gær að
írakar hefðu enga ágimd á olíusvæð-
um innan landamæra írans. >eir
mundu hins vegar halda áfram bar-
dögum í núverandi styrjöld þar til
íranir viðurkenndu rétt þeirra til
ýmissa svæða sem veriö hafa innan
landamæra írans um nokkurt skeið.
írakar hafa skýrt frá hernaðarsigr-
um sínum innan iandamæra írans og
svo virðist sem þeir hafi betur í bar-
dögum til þessa. Tilkynnt var í gær-
kvöldi að þrjátíu og þrjár íranskar
herþotur hefðu verið skotnar niður í
gær, á fjórða degi styrjaldarinnar.
Hefðu þær allar verið skotnar niður
yfir írak — þar af hefðu tólf þeirra
verið yfir oliuhöfninni við Basra.
íranir tilkynntu í gærkvöldi að þeir
réðu enn yfir Abadan en þar eru
mikilvægustu og stærstu olíuhreins-
unarstöðvar heims. >ó var tilkynnt i
Teheran i gærkvöldi að útflutningi á
olíu hefði verið hætt um sinn frá
íran. Var það sagt eftir miklar loftár-
ásir herþotna frá írak á olíubirgða-
stöðina á Khargeyju. Er það mesta
birgðastöA i íran.
Embættismenn i olíuráðuneytinu í
íran iögðu að tveir geymar á Kharg-
eyju stæðu i Ijósum logum en þó
hefði slökkviliðsmönnum tekizt að
ná valdi á eldinum. Engar yfirlýs-
ingar hafa verið gefnar út um hve
lengi útflutningur olíu frá íran muni
liggja niðri.
Áður en til styrjaldarinnar kom fór
mest allur olíuútflutningur írans um
Khargeyju eða 700 þúsund olíuföt á
dag.
Striðsaðilum ber ekki saman um
stöðu mála við Abadan og hafnar-
borgina Khorramshahr. Samkvæmt
heimildum frá Ankara i Tyrklandi
var írönsku varnarliði í Abadan
veittur sex stunda frestur til að gefast
upp en að þeim fresti liðnum hafði
ekkert gerzt. Að sögn frana hafa
herir þeirra við Khorramshahr bætt
stöðu sína en áður höfðu írakar skýrt
frá því að þeir hefðu algjörlega um-
kringt þessa mikilvægustu hafnar-
borg írans.
Vitað er um að minnsta kosti sex
borgir innan landamæra írans sem
flugher íraks gerði loftárásir á í gær.
Mörg skotmarkanna voru herflug-
vellir. Ekki er neitt vitað um tjón af
loftárásunum.
Rafmagn var tekið af Teheran í
gær til að tryggja algjöra myrkvun
borgarinnar. Vopnaðir byltingar-
verðir fóru um götur og höfðu eftirlit
með þeim fáu sem hættu sér út undir
bert loft.
Saudi- Sain.
Arabía Irak Iran lurslad. Kutvail
Bandarikin 1.300 40 18 237
Japan 1.370 560 — 630 1.033
V-Þýzkaland 670 105 2 28 3
Frakkland 900 450 — 210 68
Bretland 345 123 27 58 130
Ffnahagsbl. 2800 900 400 300 600
T'aflan sýnir olúiútflutning frá rikjum við Fersaflóann til nokkurra lielztu iðnríkja
heims. Neðst er útflutningurinn til ríkja Efnahagsbandalagsins sainantalinn. Tðl-
urnar eru i þúsundum oliufata (eitt fat er 159 lítrar).
Reagan kennir
Carter um írak -
íran styrjöld
Ronald Reagan frambjóðandi Repú-
blikanaflokksins til forsetakosning-
anna í Bandaríkjunum ásakaði Jimmy
Carter Bandaríkjaforseta um að eiga
með utanríkisstefnu sinni sök á því að
styrjöld hefur nú brotizt út á milli íraks
og írans.
Sagði Reagan þetta á kosningaferða-
lagi um Texasríki i gær. Fyrr um
daginn sagði forsetaframbjóðandinn
að Carter hefði látið það viðgangast að
hernaðarmáttur Bandaríkjanna hefði
minnkað svo að nú gætu þau engin
áhrif haft á gang mála við Persaflóa og
væru Bandaríkin nú á mörkum þess
að geta varið hendur sínar. Sagði
Reágan að styrjöldin á milli Iran og
írak hefði ekki orðið ef keisarinn hefði
ekki verið hrakinn frá völdum.
íran var í 37 ár gikkurinn á byssunni
sem gætti þess að mál við Persaflóann
væru í jafnvægi, sagði Reagan. Núver-
andi ríkisstjórn Bandarikjanna verður
að teljast ábyrg fyrir því aö allt fór í bál
og brand í fran.
Reagan sagði ennfremur að utan-
ríkisstefna Carters tæki of mikið mið
af mannréttindum í heiminum en ekki
nóg af hagsmunum hins vestræna
heims.
Bandaríkin:
Me/rí komút-
fíutningur ti1
Austur-Evrópu
— vegna kornsölubannsins til
Sovétríkjanna
Ríki Austur-Evrópn hafa aukið
kornkaup sín í1 Bandaríkjunum en
dregið úr þeim í Sovétríkjunum eftir
að stjórnvöld í Washington settu
kornsölubann á Sovétríkin. >að bann
var sett í janúar siðastliðnum í mót-
mælaskyni við innrás sovézka hersins
inn i Afganistan. Var það land-
búnaðarráðherra Bandaríkjanna Bob
Bergland sem upplýsti þetta í gær.
Sagði ráðherrann að meginbreyt-
ingarnar sem orðið hefðu vegna
banns stjórnar Carters Bandaríkja-
forseta á sölu korns til Sovétríkjanna
væru að salan hefði færzt til. „Ýmsir
halda því fram að kornsölubannið
hafi ekki haft nein áhrif á korn-
birgðir Sovétríkjanna,” sagði ráð-
herrann.
,,>etta getur verið rétt en vegna
sölubannsins hafa Sovétmenn neyðzt
til að draga úr kornsölu sinni til
annarra Austur-Evrópuþjóða. Korn-
sala þeirra var samkvæmt fyrir-
skipunum frá Moskvu og með skil-
yrðum sem voru ákveðin þar. Nú
kaupa þessi ríki kornið beint frá
Bandaríkjunum”.
Nú geta a/fír keypt húsgagn!
25% útborgun
(Ath. 1/4 út)
Husgagn
sem markar
þáttaski/
Skúla hilluskil-
veggurinn hentur
vel þegar skipta
þarf herbergi.
Skála hilluskil-
veggur gefur
ótrúlega mögu-
leika.
Fjölbreytt úrval hús-
gagna, t.d.
Sófasett Borðstofusett
Sófaborð Skrifstofuhúsgögn
o.m.fl.
Veggsamstæður í úrvafí
Berið saman verð og gæði
Ath. hina hagstæðu greiðsiu-
skiimála.
íslenzk
hönnun
Veljum
íslenzkt
ÁGUÐMUNDSSON HF
Húsgagnaverksmiðja
Skemmuvegi 4, Kópavogi. Sími 73100.