Dagblaðið - 25.09.1980, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980.
11
Fania Fenelon óánægð
með sjónvarpsmyndina
af„Auschwitz-
hljómsveitinni"
Ævisaga
mín er
afskræmd
Siðastliðinn mánudag sögðum við
frá bók eftir Faniu Fenelon um kvenna-
hljómsveitina í Auschwitz. Fania, sem
var hálfur Gyðingur, var sjálf í þessari
hljómsveit, sem nasistar stofnuðu
meðal fanganna. Þetta bjargaði henni
frá að lenda í gasofn unum.
CBS keypti kvikmyndaréttinn að
bókinni og fékk Arthur Miller til að
skrifa handritið, Vanessu Redgrave til
að leika aðalhlutverkið, Faniu sjálfa.
Fania er sáróánægð með þau bæði,
og segist ætla að höfða mál á hendur
kvikmyndafyrirtækinu CBS. „Ég hef
siðferðislegan rétt til þess,” segir hún,
,,því þau hafa afskæmt ævisögu
mína.” Fania býr nú í úthverfi Parisar,
i íbúð, sem er full af minjagripum frá
þeim árum sem hún ferðaðist um heim-
inn og söng, frelsinu fegin eftir fanga-
búðavistina.
Vanessa styður Palestínu-Araba, og
þ'að er Faniu mikill þyrnir í augum.
Hún hefði heldur viljað sjá sjálfa sig
leikna af Jane Fonda (henni var boðið
hlutverkið, en gat ekki tekið því vegna
skuldbindinga annars staðar). „Þá
hefði ég viljað Lizu Minelli,” segir
Fania.
Öll þessi deila verður gífurleg
auglýsing fyrir bók hennar, sem nú
selst í risastóru upplagi.
-IHH.
Eiginkona
Lee Marvins
handtekin:
Stal
peysum
og
brjósta-
haldi
Michelle Triola Marvin eiginkona
Lee Marvins sem er 47 ára að aldri var
handtekin ekki alls fyrir löngu vegna
þjófnaðar. Hún var handtekin i stóru
vöruhúsi í Beverly Hills þar sem hún
hafði stungið á sig þremur peysum og
brjóstahaldara. Verðmæti varningsins
var um 10.000 krónur.
Kevin Keegan
BEZT KLÆDDI
MAÐURINN
Knattspyrnustjaman eftirsóknar-
verða, Kevin Keegan, bætti á sig
einum titlinum til viðbótar um dag-
inn. Þá var hann valinn bezt klæddi
maðurinn á árinu. Kevin sagði við
það tækifæri: „Þaðvarþá kominn
tími til að einn úr sportinu fengi
þennan titil.” Kevin hefur klætt sig
fyrir fimm milljónir á þessu ári og
þykir ekki mikið.
Knattspyrnuhetjan fékk að vonum
miklar hamingjuóskir með þennan
nýja titil. Þessar tvær yngismeyjar
sem báðar eru vel þekktar fyrirsætur
voru með þeim fyrstu sem óskuðu
stjörnunni til hamingju. Þær heita
Sheree Boyland og Tessa Hewitt.
Kevin gengur ævinlega í dökkum
fötum og um það segir hann:
„Dóttur minni Lauru Jane, sem er 22
mánaða, líkar betur við mig í
dökkum fötum, þvi þá sér hún þegar
ég kem með is. Hundunum minum
líkar einnig betur við mig í dökkum
fötum,” segir þessi vel klæddi
maður.
Arthur Hailey á
batavegi
eftir skurðaðgerð
Arthur Hailey höfundur Airporl,
Wheels, Hotel og fleiri vinsælla skáld-
sagna, sem kvikmyndaðar hafa verið,
er nú sem óðast að ná sér eftir alvarlega
skurðaðgerð. Hún fór fram í hjarta-
rannsóknastofnuninni í Texas i Banda-
ríkjunum.