Dagblaðið - 25.09.1980, Blaðsíða 14
14
i
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
23
D
Hvað sögðu dönsku
blöðin um fyrri leik
Hvidovre og Fram?
Okkur hafa nýlega borizt umsagnir dönsku blað-
anna um fyrri leik Hvidovre og Fram, sem leikinn var
í Kaupmannahöfn fyrir rúmri viku. Siðari leikurinn
fer fram á sunnudag kl. 14 og ættu allir knattspyrnu-
unnendur að fjölmenna á hann. Hér á eftir fara um-
sagnir dönsku blaðanna.
B.T.
Hvidovre fór að visu með sigur af hólmi i leiknum
við FRAM Reykjavík, 1-0, en sannast sagna áttu
þeir sigurinn ekki skilinn. Aðeins Englendingurinn
Leroy Ambrose náði þvi i nokkur skipti að ógna
íslenzka markinu. Hann var eldfljótur og gaf góðar
sendingar á Michael Manniche, Jörgen Kirk og
Henrik Jensen, en þeir voru aftur á móti snillingar í
að klúðra tækifærunum.
Jyllands-Posten
Hvidovre átti tækifæri til að skora a.m.k. 3—4
mörk, en íslenzki markvörðurinn, Guðmundur
Baldursson, átti stórgóðan leik og tókst Hvidovre
aðeins að skora hjá honum úr vitaspyrnu. íslending-
arnir voru tæknilega séð betri en búizt var við og má
Hvidovre búast við erfiðum leik i Reykjavík.
Aktuelt
Fyrir lið FRAM var þetta meira en hálfur sigur.
ísiendingarnir reyndu ekki mikið fyrir sér i sóknar-
leik en biðu rólegir eftir þvi, að leikmenn Hvidovre
kæmu. Greinilega varnartaktík og Framliðið náði
þvi sem það ætlaði sér. Það er spurning, meira að
segja stór spurning, hvort Hvidovre getur haldið
þessu 1-0 forskoti i leiknum i Reykjavík þann 28.
september.
Berlingske Tidende
Það væri skömm fyrir danska knattspyrnu ef eitt
af okkar beztu liðum yrði slegið út af íslenzku liði í
1. umferð alþjóðakeppni í knattspyrnu. Þátttaka
liðsins í Evrópubikarkeppninni gæti orðið sorgar-
saga.
Politiken
Það var annars kraftaverk að koma knettinum
framhjá hinum 20 ára gamla markverði FRAM, sem
var mjög öruggur og bjargaði nokkrum sinnum
meistaralega. Eini möguleikinn að skora hjá honum
var að skora úr vítaspyrnu.
WBA lagði Everton
Everton tapaði óvænt á heimavelli, 1—2 fyrir
WBA i 3. umferð enska deildabikarsins i gærkvöldi.
Arsenal urðu hins vegar ekki á nein mistök í leik
sínum við Stockport, sem Arsenal vann, 3—1. Mörk
liðsins skoruðu John Hollins, Alan Sunderland og
Frank Stapleton, en Les Bradd svaraði fyrir Stock-
port. Úrslit i enska og skozka deildabikarnum í gær-
kvöldi urðu annars þessi.
Enski deildabikarinn 3. umferð
Everton—WBA 1—2
Stockport—Arsenal 1—3
Tottenham—Crystal Palace 0—0
Skozki deildabikarinn 3. umferö (samanlögð úrslit í sviga)
Aberdeen—Rangers 3—1 (3—2)
Ayr—Hearts 4—0(7—2)
Clydebank—Raith 1—0(2—0)
Dundee United—Motherwell 4—2(5—4)
Hibernian—Clyde 2-1 (4-1)
Kilmarnock—Dundee 0—0(0—0)
Dundee vann á vítum
St. Mirren—PartickTh. 0—0 (2—0)
Celtic —Hamilton 4-1 (7-2)
Stuttgart malaði Larnaca
Stuttgart vann öruggan sigur á Pezoporikos
Larnaca frá Kýpur i siðari leik liðanna í UEFA-
keppninni, sem leikin var á Kýpur í gær. Lokatölur
'urðu 4—1, og vann Stuttgarl því samanlagt 10—1.
Mörk liðsins í gær gerðu Tofecki 2, Klotz og
Forster.
Norðmenn náðu jöfnu
Norðmenn náðu jafntefli við Rúmena á Bislett-
leikvanginum í Osló í gærkvöldi i leik landanna i 4.
riðli undankeppni HM í knattspyrnu. Lokatölur
urðu 1—1 eftir að Rodion Cametary hafði fært
Rúmenum forystuna á 10. minútu. Aage Hareide
jafnaði metin fyrir Norðmenn á 20. mínútu. Áður
höfðu Englendingar unnið Norðmenn, 4—0 í
þessum riðli. Áhorfendur i gær voru 23.000.
Austurríkl vann 2-0 úti
Áusturriki vann Finnland 2—0 i leik liðanna í 1.
riðli undankeppni HM í knattspyrnu, sem leikinn
var i Helsinki i gærkvöldi. í hálfleik var staðan 1—0
og skoraði Kurt Jara það mark en i þeim síðari bætti
Kurt Welzl, markaskorarinn mikli hjá AZ ’67, öðru
marki við og innsiglaði sigur Austurríkis.
grasvöll félagsins
Þórsarar á Akureyri vígðu á
sunnudag liinn nýja grasvöll félags-
ins, en unnið hefur verið að gerð hans
undanfarin sex ár. Það var 29.
nóvember 1975 sem Haraldur Helga-
son lók fyrstu skóflustunguna að
vellinum, og síðan hefur verið unnið
livert sumar að gerð vallarins.
Vígsluathöfnin á sunnudag hófst
með þvi að safnazt var saman á
Ráðhústorginu og þaðan gengið i
skrúðgöngu inn á nýja völlinn. Þar
tók Haraldur Helgason, fyrrverandi
formaður Þórs, fyrstur til máls og
rakti byggingarsögu vallarins en
síðan flutti Sigurður Oddsson for-
maður ræðu og þakkaði öllum sem
lagt hafa hönd á plóginn. Síðan var
völlurinn formlega vígður, er
Hallfreð Tryggvason
Sigurður Oddsson klippti á borða er
strengdur hafði verið þvert yfir
miðjan völlinn. Þá var danskur eins-
eyringur með ártalinu 1915, stofnári
Þórs, grafinn i völlinn.
Fyrstu spyrnu vallarins tók síðan
Hallfreð Tryggvason, en hann var
„einn af strákunum á eyrinni”, sem
stofnuðu Þór. Fyrsti leikurinn var á
milli liðs Þórs, sem vann sig upp i I.
deild 1976 og liðs Þórs, sem vann sig
upp í 1. deild í sumar. Oft brá fyrir
góðum töktum hjá ,,gömlu mönnun-
um”, en leiknum lauk með jafntefli,
1-1. Þá léku Þór og KA i 5. flokki, og
sigraði Þór 2-0.
Sem fyrr segir var fyrsta skóflu-
stungan að grasvellinum tekin 1975,
en á þeim árum sem liðin eru síðan
hafa um 30 þúsund tonn af jarðvegi
verið flutt til og 1500 m af frá-
rennslislögnum verið lagðar í völlinn.
Hinn 3. júlí sl. hófst síðan tyrfing
vallarins. Hún stóð yfir i 11 daga og
var þá búið að tyrfa 14.400 fermetra.
Alls aðstoðuðu 220 manns við tyrf-
ingu vallarins, en talið er að i hana
hafi farið 2800 vinnustundir.
Samfara þvi að völlurinn var tyrfð-
ur var unnið að gerð áhorfendastæða
vestan grasvallarins og stórir flákar
sunnan og austan vallarins snyrtir.
Nú er búið að sá í þessar spildur og
þær orðnar grænar. Þessa dagana er
verið að snyrta um þriggja hektara
svæði norðan við grasvöllinn og
verður sáð í það síðar í haust.
Nýverið fengust endanleg lóða-
mörk félagssvæðisins samþykkt í
bæjarstjórn og er því hægt að hefja
skipulagningu félagssvæðisins. A
skipulagsuppdrættinum er gert ráð
fyrir malbikuðum velli fyrir hand-
bolta og tennis, nýjum grasvelli og
nýjum malarvelli, sem hægt verður
að nota fyrir skautasvell á veturna,
auk þeirra valla sem fyrir eru. Þá er á
uppdrættinum gert ráð fyrir trjá-
gróðri í kringum svæðið, og síðast en
ekki sízt félagsheimili, en bygging
þess er næsta stórverkefni Þórs.
í haust er gert ráð fyrir að lokið
verði við, auk sáningarinnar sem
áður var minnzt á, að girða nýja gras-
völlinn af, og ennfremur er búizt við
að þá verði lokið við gerð áhorfenda-
svæða. Þá er gert ráð fyrir að i haust
verði lokið við að setja upp flóðljós á
malarvellinum.
Þór var stofnað, sem fyrr getur,
árið 1915, nánar til tekið 6. júní það
ár. Frá fyrstu tíð hefur félagsstarfið
verið blómlegt og má í því sambandi
minnast þess að fyrstu Íslandsmeist-
ara sína eignaðist félagið 1941, i
handknattleik kvenna. Árið 1976 áttu
Þórsarar fjögur 1. deildarlið, og þar
af varð kvennalið félagsins islands-
meistari í körfuknattleik. Nú í ár
hafa yngri flokkar félagsins staðið sig
vonum framar og meistaraliði Þórs i
knattspyrnu tókst að vinna sig upp í
I. deild á nýjan leik.
Á 65 ára ferli félagsins hefur það
haft fjóra aðsetursstaði. Fyrsta
æfingasvæði félagsins var á eyrinni,
þar sem nú er athafnasvæði Aðal-
geirs og Viðars við Furuvelli. Næst
var útbúinn knattspyrnuvöllur þar
sem Linda hf. stendur nú og var sá
aðalknattspyrnuvöllur Akureyrar
Teitur Þórðarson skoraði markið, sem
innsiglaði sigurinn.
unz íþróttavöllurinn neðan Brekku-
götu var tekinn í notkun.
Árið 1967 var Þór siðan úthlutað
svæði austan Hörgárbrautar, á móts
við ESSO-Nesti. Það svæði reyndist
ekki nýtanlegt sökum þess að þar var
botnlaus mýri, sem ógjörningur var
að þurrka upp. Var félaginu því út-
hlutað félagssvæði norðan Glerár-
skóla tveimur árum síðar og þar
hefur félagið verið síðan. Fljótlega
hófust framkvæmdir við malarvöll
og vorið eftir, eða I970,komst vallar-
gerðin í fullan gang. Sumarið 1975
var malarvöllurinn vígður, en þá átti
félagið60áraafmæli. -GSv/SA
„Stórkostlegt mark”
— sagði Reuter um neglingu Janusar
ísland, sem á litla möguleika á að
vinna sér rétt til þátttöku á HM á Spáni
1982, gerði Wales, Tékkóslóvakíu og
Sovétríkjunum mikinn greiða er það
vann Tyrkland 3-1 í 3. riðli undan-
keppni HM i knaftspyrnu. íslenzka
liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sin-
um 0-4 og 1-2 á heimavelli og með
hinum óvænta sigri i dag gerði það
vonir Tyrkja um þátttöku í HM á
Spáni að engu, segir i fréttaskeyti
Reuters um landsleikinn.
Hinir leiknu leikmenn Tyrklands
sköpuðu sér nokkur marktækifærí en
gátu ekld rekið endahnútinn á sóknir
sinar. tslendingar áttu aftur á móti
mun minna í leiknum úti á vellinum en
langskot þeirra hittu mjög vel og tvö
þannig gáfu íslendingum tveggja
marka forystu eftir kiukkustundar leik.
Fyrsta markið skoraði Janus Guðlaugs-
son og var það stórkostlegt, heldur
Reuter áfram.
Reuter fjallar mjög itarlega um leik-
inn og er augljóst á öllu að úrslit leiks-
ins eru talin mjiig óvænt. í BBC var
einnig fjallað ítarlcga um landsleikinn
og þar var sigri ísiands lýst sem
ákaflega óvæntum.
„Þessi frábæru úrslit undirstrika
aðeins þá þróun sem hefur verið að
verða hjá íslenzka landsliðinu í
undanförnum leikjum og sýna svo ekki
verður um villzt að við erum alltaf á
uppleið,” sagði Helgi Daníelsson, for-
maður landsliðsnefndar, í viðtali við
DB i gærkvöld eftir hinn glæsilega
sigur islenzka landsliðsins gegn Tyrkj-
um i Izmir. ísland sigraði Tyrkina 3—1
þrátt fyrir að leikið væri um miðjan
dag í 25 gráða hita. Þessi úrslit eru tví-
mælalaust þau óvæntustu og jafnframt
þau ánægjulegustu hjá landsliði okkar í
háa herrans tið og jafnast fyllilega á við
þann leik sem allt hefur verið miðað við
sl. 5 ár, sigurinn gegn A-Þjóðverjum á
Laugardalsvellinum. Ekki má gleyma
því að leikið var á útivelli gegn þjóð
sem á sl. ári náði ágætisárangri gegn
mörgum stórþjóðum og vann m.a.
Sovétmenn.
Tyrkirnir voru meira með knöttinn
allan leiktímann, ákaft hvattir af
hinum 20.000 áhorfendum sem lögðu
leið sína á völlinn. Þeir notuðu stuttan
samleik og nett spil og hafa eldfljótum
einstaklingum á að skipa. Tækifæri
þeirra voru hins vegar ekki ýkja mörg
og þeir reyndu mikið af hásendingum
fyrir markið þar sem þeir Þorsteinn
Bjarnason í markinu, Sigurður
Halldórsson og Marteinn Geirsson
voru kóngar í ríki sínu og Þorsteinn átti
stórgóðan leik. Þau færi sem Tyrkirnir
Fallegt mark Alberts Guðmundssonar setti Tyrkina út af laginu í síðari hálfleik. | sköpuðu sér runnu flest út í sandinn
vegna slælegrar frammistöðu framherj-
anna.
fsland fékk óskabyrjun í leiknum. Á
12. mínútu fengu íslendingar innkast.
Teitur Þórðarson náði knettinum og
sendi hann til Janusar. Hann fékk
góðan tíma til að leggja knöttinn fyrir
sig og sendi hann síðan með miklum
þrumufleyg í vinkilinn af um 30 metra
færi. Hreinasta gullmark — „specta-
cular goal” eins og Reuter-fréttastofan
orðaði það.
Albert Guðmundsson skoraði annað
mark íslands á 60. mínútu með hörku-
skoti af vítateig og átti tyrkneski mark-
Þórsarar vígðu nýjan
vörðurinn enga möguleika á að ná til
knattarins, 2—0, og þá sló algerri þögn
á áhorfendur á vellinum. „Við, sem
sátum á bekknum fengum ýmislegt
lauslegt í okkur, m.a. tómata,” sagði
Helgi í viðtali við DB.
Síðan fengu Tyrkirnir vítaspyrnu,
sem var hreinasta gjöf til þeirra að sögn
Helga. Marteinn Geirsson brá einum
leikmanna Tyrkjanna, Cem, utan víta-
teigs en Tyrkinn lét sig falla inn í teig-
inn með miklum tilþrifum og fékk
dæmda vítaspymu. „Þetta virðist vera
hrein og bein álög á okkur, að fá alltaf
á okkur vítaspyrnu,” sagði Helgi. Úr
spyrnunni, sem dæmd var á 72.
mínútu, skoraði Fatih en heppnis-
stimpill var á því. Þorsteinn Bjarnason
henti sér í hægra hornið en spyrna
Fatih var gersamlega misheppnuð.
Boltinn skoppaði laust í mitt markið en
þar sem Þorsteinn var úr jafnvægi var
útilokað fyrir hann að ná til knattarins.
„Við bjuggumst því við löngum 18
mínútum því Tyrkirnir hertu sóknina
til mikilla muna eftir þetta,” sagði
|Helgi. Á 81. mín. gerði ísland hins
vegar út um leikinn. Þá fékk íslenzka
liðið aukaspyrnu sem Ásgeir Sigurvins-
son tók. Hún var firnaföst og tyrkneski
markvörðurinn fékk ekki haldið.
skotinu. Knötturinn barst til Teits sem
var fljótari að átta sig en varnarmenn-
irnir og skoraði glæsilega þriðja
markið og sigurinn var í höfn.
Að sögn Helga Dan. var erfitt að tína
einn eða annan út úr liðinu fyrir frá-
bæra frammistöðu en hann taldi þó að
Marteinn hefði vart leikið betur í mörg I
ár og Þorsteinn hefðí varið af snilld
allan leikinn. íslenzka liðið var þannig
skipað í leiknum: Þorsteinn Bjarnason, |
Viðar Halldórsson, Trausti Haralds- I
son, Sigurður Halldórsson, Marteinn
Geirsson, Janus Guðlaugsson, Albert
Guðmundsson, Atli Eðvaldsson, Teitur |
Þórðarson, Ásgeir Sigurvinsson,
Guðmundur Þorbjörnsson (Sigurður
Grétarsson kom inn á í síðari hálfleik
fyrirhann). .sSv.
„Hermenn voru alls staðar”
fyrirliði islenzka landsliösins, í rabbi
við DB eftir leikinn.
„Leikurinn sjálfur var mjög góður
af okkar hálfu og fyrsta markið kom
eins og köld vatnsgusa framan í Tyrk-
ina. Það var ekki erfitt að eiga við þá í
vörninni, það voru aðeins tveir eða þrír
hávaxnir menn í liðinu og Þorsteinn
hirti alla bolta sem komu fyrir markið,
eða þá að þeir voru skallaðir burtu.
Vitið var tóm þvæla. Maðurinn var
svona metra fyrir utan þegar ég brá
honum og dómarinn dæmdi fyrst frí-
spark en breytti því síðan í víti. Tyrkinn
skaut beint á markið i vítinu en Þor-
steinn tók „sjensinn” og henti sér í
hægra horniö.
Við áttum góð marktækifæri úndir
lok leiksins og tyrkneski markmaður-
inn varði vel frá Janusi og Teiti.
Áður en leikurinn hófst var sagt að
það væri aðeins spurning um hvað
Tyrkir myndu vinna með miklum mun,
end Tyrkir sterkir á heimavelli. Þeir
— sagði Marteinn Geirsson fyrirliði um viðbúnað
Tyrkjahers á vellinum
„Það voru um 200—300 hermenn í
kringum völlinn og fyrir ofan áhorf-
endastæðin og þegar við gengum inn á
völlinn þurftum við að ganga framhjá
byssuhlaupunum. En að öðru leyti
fundum við.lítið fyrir byltingunni og
hún virtist ekki hafa nein áhrif á tyrk-
neska liðiö,” sagði Marteinn Geirsson,
unnu Walesbúa og gerðu jafntefli við
Þjóðverja í fyrra. En okkur var mjög
vel fagnað af áhorfendum eftir að
leiknum lauk og þeir klöppuðu mikið
Janus skoraði stórbrotið mark af 30
metra færi og það gaf liðinu byr
undir báða vængi.
fyrir okkur þegar við fórum frá vellin-
um á hótelið,” sagði Marteinn Geirs-
son. * - SA
H0TUÐU AÐ BERA
hótað því að hann yrði borinn af leik-
velli, ef hann reyndi aö gefa okkur vatn
við hliöarlínuna.
Við höfðum áhorfendur á móti
okkur i fyrstu en undir lokin voru þeir
farnir að klappa fyrir okkur. Tyrkirnir
voru mun teknískari en við og sneggri
en ekki betri en við. Við áttum engan
súperleik en þetta var ágætur leikur hjá
okkur,” sagði Teitur Þórðarson að
lokum. -SA
NUDDARANN AF VELLI
„Fyrstu mörkin tvö voru stórglæsi-
leg, en mitt var ekki alveg eins gott.
Það kom upp úr aukaspyrnu sem
Ásgeir tók, okkur ber ekki alveg saman
um það hvort boltinn hafi farið i vegg-
inn eða markmanninn, en hann hrökk
til mín og ég sendi hann i netið,” sagði
Teitur Þórðarson i spjaili við DB i gær.
„Þetta var dálítið erfiður leikur, það
var mikill hiti og okkur var bannað að
fá að drekka vatn. Einari nuddara var
Marteinn Geirsson.
Handknattleikssamband íslands
ÍSLAND—NOREGUR
Tvoir 1AMDSMIKIR
í laugardalshOlunni
Laugardaginn 27. SEPT. kl. 15
Sunnudaginn 28. sept. kl. 20
Markmiðið er
SIGUR
Áfram
ÍSLAND
H. S. í.
Garðar Gíslason hf.
Hverfisgötu 4 — 6 Sími 11500
Polar — Sjávarafurðir
Grófin 1
IVIiðaverð: Sæti kr. 4.000.-
Stæði kr. 3.000.
Börn kr. 1.000.-
ÞRIÚ STÓRKOSTLEG MÖRK FÆRDU
ISLANDISIGUR GEGN TYRKJUM
— Janus, Albert og Teitur skoruðu mörkin í 3-1 sigri íslands í Izmir í gærdag. Þrátt fyrir að leikið væri í 25 stiga
hita fékk ekkert bitið á íslenzku strákana