Dagblaðið - 25.09.1980, Qupperneq 16
24
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUÐAGUR 25. SEPTEMBER 1980.'
Veðrið
Auatan og auðaustan goia eða
kaidi og sums staöar stinningskaidi
vifl suflurströndina, vifla súld efla
rigning sunnan- og austanlands. BJart
mafl köflum norflanlands í fyrstu, en
vifla rigning í nótt.
Kkikkan sex I morgun var f Raykja-1
vflc norflaustan 3, skýjafl og 9 stig,
Oufuskálar: norflaustan 1, héflskýjafl
og 6 stlg, Qaharvhi: norönorflaustan
2, láttskýjafl og 7 stlg, Akuroyri: sufl-
vastan 1, háhskýjafl og 4 stlg, Raufar-;
hflfn: austan 3, haiflskirt og 6 stig,
Dalatangi: suflauflvestan 6, súld og 8
stlg, Hflfn í Homafirfli: austan 8, rign-
ing og 9 stlg og Stórhöffli I Vest-
mannaoyjum: ausUuflaustan 7, skúr
á sfðustu klukkustund og 8 stlg.
Þórshflfn I Fœrayjum: háhskýjafl
og 11 stig, Kaupmannahöfn: þoku-
'móöa og 12 stlg, Oaló: lóttskýjofl og
11 stig, Stokkhóimur: Jx>kumófla og
12 stig, London: þokumóða og 12
stig, Hamborg: skýjafl og 11 stig,
Paris: súid ó slflustu klukkustund og
11 stig, Madrld: heiflskirt, þokumófla
og 11 stig, Lissabon: lóttskýjafl og 17
stlg, New York: skýjafl og 14 stlg.
Þórflur Gislason sveitarstjóri er iátinn.
Hann var fæddur aö Fitjakoli á Kjalar-
nesi 24. janúar 1929. Þórður var sonur
hjónanna Gísla Hannessonar garð-
yrkjumanns og gæzlumanns í gömlu
sundlaugunum i Reykjavík og konu
hans Guðrúnar Þórðardóttur kaup-
manns í Reykjavík. Þórður lærði húsa-
smíði og varð siðar meistari i þeirri
grein. Hann fór til Noregs og Englands
í hagræðingarnám. Eftir að Þórður
lauk námi hóf hann störf hjá Alþýðu-
sambandi íslands í nokkur ár. Sveitar-
stjóri á Flateyri var Þórður á árunum
1970—1973 og nú síðustu árin í Garði,
Gerðahreppi. Þórður kvæntist 7.
nóvember 1953 Aldísi .lónsdóttur. Þau
eignuðust einn son, Gísla Jón, og er
hann húsasmiður og atvinnuflugmaður
að mennt.
Magnús Sigurðsson brunavörður lézt
þriðjudaginn 16. seplember. Hann
fæddist í Reykjavík 14. janúar 1931.i
Foreldrar hans voru hjónin Jófríður
Kristjánsdóttir og Sigurður Magnússon
verkamaður. Magnús fór ungur að
vinna fyrir sér hjá Vífilfelli hf. við af-
greiðslu og bílstjórastörf. Árið 1957
gerðist hann brunavörður hjá Slökkvi-
Iiði Reykjavíkur og gegndi hann því
starfi til dauðadags. Eftirlifandi kona
Magnúsar er Edda Filippusdóttir
Bjamasonar brunavarðar. Magnús og
Edda eignuðust fjögur börn. Magnús
verður jarðsunginn frá Neskirkju í dag,
fimmtudaginn 25. september.
Kristín Árnadóttir frá Króki, Húna-
braut 4 Hvammstanga, verður jarð-
sungin frá Viðidalstungu laugardaginn
27. september kl. 14. Ferð verður frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 8.
Sigríður Guðmundsdóttir, Hringbraut
34 Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Þjóðkirkjunni i Hafnarfirði föstu-
daginn 26. september kl. 14.
Jón Ólafsson stórkaupmaður, Freyju-
götu 49 Reykjavík, lézt að heimili sínu
sunnudaginn 21. september. Hann
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 26. september
kl. 13.30.
Björn Jónsson frá Felli, Fálkagötu 19
Reykjavik, lézt fimmtudaginn 18. sept-
ember. Hann verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 26. sept-
ember kl. 15.
Halldór Guðmundsson, Efri-Lækjar-
dal, lézt ' i Héraðshæli Blönduóss
þriðjudaginn 23. september.
Helga Þorkelsdóttir frá Sandprýöi i
Vestmannaeyjum, Staðarvör 8 Grinda-
vík, lézt á Landakotsspítala mánu-
daginn 22. september.
Salvör Ingimundardóttir lézt miðviku-
daginn 24. september.
Maríanna Haligrímsdóttir lézt i Land-
spítalanum miðvikudaginn 24. septem-
ber.
Sólborg Jónsdóttir, Fjölnisvegi 1
Reykjavík, lézt að Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund sunnudaginn 14. sept-
ember. Útför hennar hefur farið fram.
Tilkynningar
iV|j|ii"ti'
; Drög að ge'öheiísufræði
Nýjar bækur
,Ríki mannsins"
— Bók um geðheilsufræði
Út er komin bókin Ríki mannsins, drög að
geöheilsufræði eftir norska lækninn Vibckc
Engclstad. Skúli Magnússon þýddi á islenzku en
Iðunn gefur úl. Bók þcssi kom út i Noregi 1973 og (
hlaut þá verðlaun i norrænni samkeppni um alþýöicg
fræöirit.
Páll Skúlason prófessor i heimspeki skrifar formála
að þýðingunni og segir þar m.a.: „Á siðustu áratugum
hafa orðiö til ýmsar sérfræöigreinar sem hafa ekki
einasta það hlutverk að auka þekkingu manna og
skilning á eigin veröld, heldur cr beinlinis ætlaö að
leysa i raun ýmis brýn lífsvandamál fólks. Engin sór-
fræði getur þó komið i stað heilbrigörar sjálfsbjargar
viðleitni.
Riki mannsins skiptist i fjórtán kafla. Aflasl cru
athugunarefni og spurningar um hvern kafla fyrir sig.
m.a. ætlað til umræðna þar sem bókin er lesin i náms
hópum. — Bókin er 149 bls. Oddi prentaði.
Frá Félagi einstæðra foreldra
Félag einstæðra foreldra hcldur sinn árlega flóaniark
að á næstunni. Óskum eftir öllu hugsanlegu gömlu
dóti sem fólk vill losa sig við. Sækjum. Sírni 32601
cftirkl. 19.
Söfnuðu fyrir
Afríkusöfnunina
Vinkonurnar Hekla Aðalsieinsdóuir og Þórey Iris
Halldórsdóttir héldu hlulaveltu á dögunum. Þar
söfnuðust 4476 krónur. Þær stöllur cru báðar 9 ára
gamlar. Stúlkurnar færðu féð Rauða krossinum í
Afrikusöfnunina.
Albert og Brynhildur
gáfu borginni listaverk
Hjónin Brynhildur H. Jóhannsdóttir og Albcrt
Guðmundsson, alþingismaður, hafa gefið listasafni
Reykjavikurborgar að Kjarvalsstöðum verk eftir
Gerði Helgadóttur, unnið úr steindu gleri og steypu
fráárinu 1953.
Meðfylgjandi Ijósmynd var tekin er Alberl
Guðmundsson afhenti gjöfina stjórn Kjarvalsstaða
19. septembersl.
Talið frá vinstri Albcrt Guðmundsson, Þóra
Kristjánsdóttir, Davíð Oddsson. Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir, Alfreð Guðmui.dsson.Guðrún Helgadótlir og
Jón Reykdal.
UM
HELGINA
^
'■
AÐALSTEINN INGÓLFSSON |Ai
Gæfa eða gjörvuleiki á hjólum
í sjónvarpinu í gærkvöldi var aðj
finna þann einkennilega blending
sem stofnunin er á góðri leið með að
sérhæfa sig í. Þegar bezt lætur ber sá
bræðingur vott um skemmtilega sér-
vizku, getur meira að segja komið
grandalausum glápara á óvart. Mynd
um púpur flugna í uppsveitum
Tansaníu snýst allt í einu upp í bar-.
daga upp á líf og dauða í dýraríkinu
— nú, svo vekur þáttur um heilablóð-
fall á sunnudagskvöldi upp spurn-
ingar um eilífðina. Hér hefur áður.
verið minnzt á það hve fréttir eru
.orðnar staðnaðar og undir það
verður maður að taka eftir miðviku-
dagsskammtinn. Æ oftar reiðin. ■
fréttastofan sig á teikningar, kort eða
gamlar fréttamyndir i frásögn-sinni
af erlendum stórfréttum. Og ef flug-
vél Ómars Ragnarssonar væri ekki
við hendina, veit ég varla hvernig
færi fyrir innlendu fréttaefni.
í kjölfar frétta fylgdi 12 ára gömul
mynd um börn og snjó, pvona rétt til
að minna okkur á þann árstíma.
Gæti ekki verið að barnatíminn um
jólin þyrfti að nota slíka mynd? Það
var ekki laust við að sú hugsun
hvarflaði að mér. En þátturinn um
köfun kom manni í opna skjöldu svo
ógæfulegur sem hann virtist af kynn-
ingu að dæma. í góðra vina hópi
viðurkenndi ég einhvern tímann að af
öllum þeim störfum sem til eru á
jarðríki vildi ég einna sízt vera kafari.
Ég held ég standi við þá yfirlýsingu
eftir að hafa séð kafara að störfum í
Norðursjó. Þeir fá jú greiddar u.þ.b.
5—6 milljónir íslenzkra króna á
mánuði, en missa smátt og smátt
bragðskyn, bein hrökkva í sundur í
þeim og önnur likamsstarfsemi aflag-
ast. Ekki er heldur vitað hvaða áhrif
mettunarköfun kemur til með að
hafa á kafarann þegar frá líður. Einn
þeirra sem fram kom í þættinum virt-
ist meira að segja tala með sömu
Mikka-mús röddinni og þeir, sem töl-
uðu frá köfunargeymunum.
Arthur karlinn Hailey er einn
helzti formúluskríbentinn i afþrey-
ingarbransanum. Hann eyðir árum í
hvert verkefni sitt, bílaiðnaðinn,
flugvélaiðnaðinn o.s.frv. og safnar
saman ógrynni upplýsinga.
lnn í allt þetta potar hann ýmiss
konar mannlegum samskiptum svona
sem salti i grautinn. Og vissulega er fá-
vis leikmaður fróðari um bílaiðnað-
inn í Detroit eftir að hafa séð Hjól,
en engu nær er hann um þær dúkku-
lísur sem lifa í þeim heimi. Þó eru
ekki ómerkir skemmtikraftar að
verki, Lee Remick og Rock Hudson.
Á endanum er þetta eins konar Löður
á hjólum eða Gæfa eða gjörvuleiki í
bílabransanum.
Listsýning á
„Ári trésins 1980"
A sl. vori kom fram sú hugmynd á fundi í Iðnaðar-
mannafélaginu i Rvík að efna til sýningar á nytja-
og listmunum i tilefni af „Ári trésins 1980”.
Hugmyndin fékk strax góðar undirtektir, þar sem
vitað var að fjöldi iðnaðarmanna um land a1lt hefði
gert margan fagran grip úr tré, ýmist til nytja eða til
að þjóna sköpunargleöi og listhneigð höfundarins. Þá
gaf það hugmyndinni byr undir vængi hve vel tókst
til með listsýningu á vegum félagsins árið 1977.
Framkvæmdanefnd Iðnaðarmannafélagsins bauð
framkvæmdanefnd um „Ár trésins” lil viöræðna um
þessa sýningarhugmynd, sem henni leizt aðsjálfsögðu
mjög vel á.
„Ár trésins 1980” hófst með listsýningu i Listasafni
Islands snemma á þessu ári og færi ekki siður vel á þvi,
að undir lok ársins væri haldin sýning af öðrum
toga. Fyrir því samþykkti framkvæmdanefnd „Árs
trésins 1980” að taka boði Iðnaðarmannafélagsins og
standa með þvi að fyirrhugaðri listmunasýningu.
Ráögert er að sýningin geti orðið i byrjun nóvem-
ber. Sýnt verður, hvernig nýta má trjávið til gagns og
yndis, einkanlega i tréskurði.
30 ára afmœlishóf Flug-
björgunarsveitarinnar
Afmælishófið verður haldið að Hótel Loftleiðum
(Kristalsal) laugardaginn 4. október og hefst kl. 18.30.
Við hvetjum alla til að mæta og halda upp á þessi
merku timamót í sögu félagsins.
Aðgöngumiðar verða seldir hjá Gústavi Óskarssyni,
Húsgagnaverzlun Guðmundar, Hagkaupshúsinu,
Skeifunni 15 og hjá Ástvaldi Guðmundssyni, Rakara-
stofunni, Dalbraut I.
Nánari upplýsingar hjá Einari Gunnars., sími
74403, Halldóri Ólafss., s. 76553, ogGústavi Óskarss.,
s. 71416.
Ath. spariklæðnaður.
Nefndin.
Foreldraráðgjöfin
Upplýsingar i sima 11795 (Barnaverndarráð Islands).
Fréttatilkynning
frá Arnarflugi hf.
Vetraráætlun Arnarflugs tók gildi laugardaginn 20.
septembcr. Flogið verður til 10 staða vestín og (
norðanlands, Rifs, Grundarfj., Stykkishólms,
Bildudals, Flateyrar, Suöureyrar, Gjögurs, Hólma-
vikur, Blönduóss og Siglufjarðar. Áætlunin er að
miklu leyti unnin eftir niðurstöðum úr þjónustu
könnun, sem gerö var á áætlunarstöðum félagsins i
sumar.
Fjöldi ferða til einstakra staða er aukinn verulega
og verða nú 9 ferðir i viku til Blönduóss, 7 ferðir til
Siglufjarðar, 6 til Stykkishólms, og Rifs, 5 til Flateyrar
og Suðureyrar, 4 ferðir verða til Bildudals, 3
lil Grundarfjaröar og 2 ferðir verða vikulega til
Hólmavikur í vetur.
Arnarflug hefur reynt að haga brottfarartimum
samkvæmt ósk íbúa á viðkomustööum félagsins en
ekki er hægt um vik alls staðar, þar scm flestir flug-
vellir sem flogið er til eru óupplýstir og verður því að
fljúga meðan dagsbirtu nýtur, sem er aðeins um 5
klst., þegar minnst er. Er það mikiö baráttumál
félagsins að fá lýsingu á flugvelli, svo að sem fleslir
geti nolið þess öryggis sem flugið veitir.
Stöðug aukning er i vöruflutningum félagsins og i
vetur verður sérstakt vöruflug til Bíldudals, Flateyrar
og Suðureyrar. Þá er möguleiki á að fjölga vöruflugi ef
á þarf að halda.
Arsþing BSÍ
Ársþing Borðtennissambands Islands verður haldið
laugardaginn 8. nóvember 1980 i félagsheimili Raf
magnsveitu Reykjavikur og hefst kl. 14.00. Dagskrá
samkvæmt lögum.
Lagabreytingar og tillögur sem sambandsaðilar vilja.
leggja fyrir þingið þurfa að hafa borizt stjórninni eigi
síðaren 18. október.
Fótsnyrting og hárgreiðsla
aldraðra í Langholtssókn
Fótsnyrting aldraðra i Langholtssókn er i safnaðar
heimili Langholtskirkju alla þriðjudaga frá kl. 8—12.
Upplýsingar gefur Guðbjörg alla virka daga kl. 17—
19 í sima 14436.
Hárgreiðsla fyrir aldraða er einnig i safnaðarheimili
Langholtskirkju alla fimmtudaga kl. 13—17. Upplýs-
ingargefurGuðný i sima 71152.
Kvenfélag Bústaðasóknar
hyggst halda markað sunnudaginn 5. október nk. i
Safnaðarheimilinu.
Vonazt er til að félagskonur og aðrir íbúar
sóknarinnar leggi eitthvað af mörkum. t.d. kökur,
grænmeti og alls konar basarmuni.
Hafiö samband við Hönnu i sima 32297, Sillu i
sima 86989 og Helgu i sima 38863.
Kvennadeild Rauða kross
íslands
Konur athugið
Okkur vantar sjálfboðaliða til starfa fyrir deildina.
Uppl. i simum 17394. 34703 og 35463.
Barðstrendingafélagið í
Reykjavík
Vetrarstarf bridgedeildarinnar hefst mánudaginn 29.
september kl. 19.30 stundvislega með tvímennings-
keppni. Uppl. í sinia 85762, Kristinn og sima 81904,
Sigurður.
Kosið í framkvœmdastjórn
Sjálfstæðisflokksins
Á fundi miöstjórnar Sjálfstæðisflokksins i síðustu viku
var kosiö i framkvæmdastjórn flokksins og í út-
breiðslu- og fræðslunefndir hans.
Birgir lsl. Gunnarsson borgarfulltrúi var endurkjör-
inn formaður framkvæmdastjórnarinnar, en auk hans
voru kjörin I hana þau Albert Guðmundsson, Bessi
Jóhannsdóttir, Guðmundur Hallvarösson og Jakob
Havsteen. Þeir Guðmundur og Jakob eru nýir í fram
kvæmdastjórninni en hin þrjú hafa átt þar sæti áður.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson framkvæmdastjóri var
kjörinn formaður fræðslunefndarinnar og eiga auk
þéss sæti í nefndinni: Friða Proppé, Hanncs H. Giss-
urarson, Hreinn Loftsson og dr. Jónas Bjarnason.
Formaður útbreiðslunefndar var kjörinn Guð|
mundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur og aðrir i
nefndinni eru: Jónina Michaelsdóttir, Markús örn
Antonsson, Sigurgeir Sigurðsson og Guölaugur Berg-
mann.
AfmæSi
Páll Haukur Kristjónsson bifreiðar-
stjóri hjá OLÍS, Sæviðarsundi 46 í
Reykjavík, er 60 ára í dag, fimmtu-
daginn 25. september. Páll verður að
heiman í dag.
Guðni A. Jónsson úrsmiður, Öldugötu
11 í Reykjavík, er 90ára í dag, fimmtu-
daginn 25. september.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING
Nr. 181. — 23. september 1980
Ferðamanna-
gjaldeyrir
Einingkl. 12.00
1 Ðandarfkjadolar
1 SteHingspund
1 Kanadadollar
100 Danskar krónur
100 Norskar krflnur
100 Sœnskar krflnur
100 Finnsk mörk
100 Franskir frankar
100 Belg. frankar
100 Svissn. frankar
100 GyHini
100 V.-þýzk mörk
100 Lirur
100 Austurr. Sch.
100 Escudos
100 Pesetar
100 Yen
1 írskt pund
1 Sérstflk dráttarréttindi
.-Kaup Sala Sala
518,50 519,60* 571,56*
1245,20 1247,80* 1372,58*
445,95 446,95* 491,65*
9230,50 9250,10* 10175,11*
10635,90 10658,50* 11724135*
12428,95 12455,35* 13700,89*
14155,00 14185,10* 15603,61*
12313,75 12339,85* 13573,84*
1780,85 1784,65* 1963,12*
•31210,50 31276,70* 34404,37*
•26289,10 26344,90* 28979,39*
•28576,95 28837,55* 31501,31*
60,26 60,39* 66,43*
4036,55 4045,15* 4449,67*
1033,40 1035,60* 1139,16*
703,30 704,80* 775,28*
238,95 239,45* 263,40*
1075,50 1077,80* 1185,58*
680,84 682,29*
' Breyting frá síðustu skróningu.
Simsvari vegna gengisskráningar 22190.