Dagblaðið - 30.09.1980, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1980.
6
55. skoöanakönnun Dagblaösins: Ert þú fylgjandi eða andvígur ríkisstjórninni?
HVEITIBRAUBSDAGAR RIK-
ISSTJÓRN ARINNAR Á ENDA
— en hún hefur þó fylgi tveggja þriðju þeirra sem taka afstöðu
Ríkisstjórnin hefur ekki þann
óskabyr með þjóðinni sem hún hafði
í byrjun. Hveitibrauðsdagarnir eru á
enda. Rikisstjórnin hefur þó þokka-
legan meðbyr og yftrgnæfandi fylgi
þess fólks sem reiðubúið er að taka
afstöðu með eða á móti henni. Þessi
staða er hagstæð rikisstjórninni
þegar tillit er tekið til þess að hún
hefur aðeins örlítinn þingmeirihluta á
bak við sig.
Þetta eru niðurstöður skoðana-
könnunar sem DB gerði fyrir og um
helgina um afstöðu fólks lil rikis-
stjórnarinnar. Úrtakið voru 600
manns, helmingur karlar og helm-
ingur konur, og var helmingurinn á
Rcykjavikursvæðinu og helmingur
man þess. Könnunin ætti að gefa
nokkuð góða niynd af afstöðu
þjóðarinnar.
Nokkuð yfir fjörutíu af hverjum
hundrað kváðust fylgja stjórninni,
rúmlega tuttugu og fimm af hundraði
sögðust andvígir henni og þrjátíu og
þrir af hundraði treystu sér ekki til að
laka afstöðu.
Séu aðeins teknir þeir sem tóku af-
stöðu styður riflega 61 af hundraði
stjórnina en yfir 38 af hundraði eru
henni andvigir.
Þótt stjórnin hafi þannig mikið
fylgi hefur dregið verulega úr því
síðan DB gerði sams konar könnun í
febrúar siðastliðnum, rétl eflir að
ríkissljórnin var mynduð.
Þá kváðust yftr 70 af hundraði
styðja stjórnina, aðeins átta af
hundraði sögðust andvígir henni og
ríflega 21 af hundraði var óákveðinn.
Þegar þá voru teknir út þeir sem tóku
afstöðu með eða móti, hafði ríkis-
stjórnin fylgi tæplega 90 af hverjum
100 en aðeins ríflega 10 af hundraði
voru henni andvígir.
Hið mikla fylgi ríkisstjómarinnar í
byrjun skýrist vafalaust af þeim létli
sem mönnum var að því að fá loksins
ríkisstjórn eftir stjórnleysi og stjórn-
armyndunarþref um margra mánaða
skeið.
í könnuninni nú reyndist stjórnin
hafa miklu meira yfirburðafyigi úti á
landsbyggðinni en á Reykjavíkur-
svæðinu. Ríkisstjórnin hefur talsvert
meira fylgi meðal karla en kvenna.
Lengst komst stjórnarandstaðan hjá
konum á Reykjavíkursvæðinu þar
'sem ríkisstjórnin rétt marði vinning-
inn.
- HH
V
Ummæli fólks: ^
„EKKIV0L A
ANNARRIBETRI”
,,Ég tel ekki völ á annarri betri og
er því ánægður með þessa rikis-
stjórn,” sagði karl á Reykjavíkur-
svæðinu. „Verður maður ekki að
vera fylgjandi henni? Maður veit
aldrei hvað maður fengi í staðinn,”
sagði kona í Suður-Þingeyjarsýslu.
Hún hefur gert sumt gott en henni
gengur illa með verðbólguna. Ég
fylgi henni vegna þess að ég tel ekki
völ á öðrum kosti skárri,” sagði karl
í Húnavatnssýslu. ,,Mér lízt bara vel
á þessa stjórn. Maður var orðinn
leiður á að hafa landið stjórnlaust,”
sagði karl á Norðurlandi. „Er þetta
ekki eina starfhæfa ríkisstjórnin sem
hægt er að mynda?” sagði kona á
Norðurlandi eystra.
„Fylgi ríkisstjórninni þótt Gunnar
hafi ekki staðið sig sem skyldi,”
sagði karl á Reykjavíkursvæðinu.
„Ég styð þessa ríkisstjórn en það er
óvist að ég geri það á þessum tíma á
næsta ári,” sagði karl á Norðurlandi
eystra. ,,Ég hef nú verið fylgjandi
henni en hún mætti vera röggsam-
ari,” sagði karl i Borgarfirði. „Ég
var fylgjandi ríkisstjórninni í upphafi
en mér finnst hún lítið hafa gert — of
lítið. Ég er henni ckki ennþá andvígur
en traustið fer þverrandi,” sagði karl
á Akureyri. „Ég var fylgjandi þessari
rikisstjórn, en mér finnst hún hafa
lent i sama fari og aðrar. Þó vil ég
gefa henni meiri tima og fylgi henni
enn. Ég sé ekki að önnur stjórn geli
tryggt vinnufrið í landinu betur,”
sagði kona á Blönduósi.
„Alveg ráðalaus"
„Ég er hætt að bera virðingu fyrir
rikisstjórninni, en kannski getur eng-
in ríkisstjórn stjórnað okkur,” sagði
kona á Reykjavíkursvæðinu. ,,Rikis-
stjórnin hefur gert heldur litið og því
er ég nú orðin óákveðin í stuðningi
mínum,” sagði kona á Reykjavíkur-
svæðinu.
„Lítill munur á þessari ríkisstjórn
og öðrum,” sagði karl á Reykja-
vikursvæðinu.
„Mér finnst engin ríkisstjórn vera
og ástandið aldrei verið verra,” sagði
kona á Reykjavíkursvæðinu. „Þessi
stjórn er alveg ráðalaus eins og þær
hafa reyndar allar verið, þessar síð-
ustu,” sagði karl á Reykjavíkursvæð-
inu. „Þessari stjóm hefur ekkert
tekizt vegna ráðríkis Alþýðubanda-
lagsins. Því er ég henni andvíg,”
sagði kona á Reykjavíkursvæðinu.
- HH
iður sKoaanakönnunarinnarurSuÞe..-
stjórninni /55 eða 25.8%
stjórninni 198 eóa 33%
tis eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða
öðurnar þessar: bl.4%
istjórninni 38,6%
nanburðar eru Mu*** "“u t”«r
>B frá febrúar síðastliðnum, sko
sstjórnin var mynduð: 7„ 5/6%
distjórninni 8% ,
irstjórninni 21 1/6%
)nir 1
, voru aöeins teknir þeir senr «öku ois.o u
niðurstöðumar þessar. s9,9%
Innflutningsgjaldið hefur áhrif:
Sælgætisgerðir að rétta úr kútnum
— Linda fjölgar starfsfólki
„Þetta er allt í áttina, ég er búinn að
bæta við fólki en fullum bata hefur enn
ekki verið náð,” sagði Eyþór Tómas-
son forstjóri Lindu á Akureyri í samtali
við blm. DB í gær. „Enn eru þó til
miklar birgðir í landinu af erlenda sæl-
gætinu en þetta kemur allt í Ijós i
nóvember eða desember þegar konfekt-
salan fer að aukast,” bætti hann við.
Eyþór sagðist vera óhræddur, þetta
hefði verið dálítið áfall en ástandið
væri að lagast.
Þegar mest var unnu 55 manns í
Lindu en þegar innflutningur sælgætis
var gefinn frjáls fór talan niður í 27
manns en núna starfa þar 40 manns.
Því sem bráðabirgðalögin um
timabundið 32% innflutningsgjald á
sælgæti og kex sem sett voru um
síðustu mánaðamót ætli að hafa
tilætluð áhrif. Þó hafa forráðamenn
reykvískra sælgætisgerða látið hafa
það eftir sér að ráðstafanirnar séu
ófullnægjandi.
Iðnaðarráðuneytið hefur ákveðið i
samvinnu við Félag íslenzkra iðnrek-
enda að veita 20 milljónum til hag-
ræðingar í fyrirtækjum sem framleiða
sælgæti og kex. Er það gert til að fyrir-
tækin verði hæfari til að mæta þeirri
samkeppni sem erlenda sælgætið mun
veita þegar innflutningsgjaldið verður
afnumið en gildistimi þess er 18 mán-
uðir.