Dagblaðið - 30.09.1980, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1980.
9
Fyrsta verkfallið á
föstudaginn kemur
mótmæla undan-
brögðum við lof-
orðum um kaup-
hækkanir og
blaðaskömmum
um hin nýju
verkalýðsfélög
Hin nýju frjálsu verkalýðssamtök
í Póllandi hafa nú boðað til fyrsta
verkfailsins frá því þau voru opinber-
lega viðurkennd. Á föstudaginn
kemur hefst nokkurs konar
aðvörunarverkfall — hið fyrsta í
þrjátiu og sex ára stjórnartið
kommúnista í landinu. Var ákvörðun
um vinnustöðvunina tekin á fundi
hjá heildarsamtökum verkalýðs-
félaganna en innan þeirra er nú talið
að séu um það bil fjórðungur pólskra
verkamanna.
Með verkfallinu á að leggja
áherzlu á mótmæli gegn ýmsum und-
anbrögðum stjórnvalda við að standa
við loforð um launahækkanir. Einnig
er verið að mótmæla skrifum í
pólskum blöðum, sem sum hver hafa
verið hinum nýju verkalýðssam-
tökum óvinsamleg að því er forustu-
mönnum þeirra finnst.
Verkfallið hefst á hádegi á
föstudaginn. Mun það væntanlega
hafa áhrif á rekstur náma, verk-
smiðja og almenningsfarartækja.
Lech Walesa, helzti leiðtogi verka-
manna í Póllandi, beitti sér gegn
frekari aðgerðum sem stöðvað hefðu
enn frekar atvinnurekstur í landinu.
Walsea, sem stóð fyrir verkföllunum
í Gdansk í ágúst síðastliðnum, sagði
að verkamenn vildu knýja stjórnvöld
til aðgerða en hefðu ekki hug á neinu
sem yrði efnahag Póllands til skaða.
Vegna þessa beitti Walesa sér gegn
því að verkamenn i stáliðnaðinum og
heilbrigðisþjónustu tækju þátt í
verkfallinu.
Hann spáði þvi í gær, að æðstu
stjórnendur Póllands mundu lofa
skjótum úrbótum og því þyrfti verk-
fallið ekki að standa nema skantma
stund.
Vestur-Þýzkaland:
Minnast fórnar-
lamba sprenging-
arinnar
Helmut Schmidt, kanslari Vestur-
Þýzkalands, og Frans Josef Strauss,
forsætisráðherra Bæjaralands, og
kanslaraefni stjórnarandstöðunnar,
munu verða viðstaddir minningarat-
höfn í dag sem verður haldin um
fórnardýr sprengingarinnar sem varð í
Munchen á föstudaginn var. Þá fórust
þar tólf manns í bjórkrá þegar
sprenging varð skyndilega rétt við dyr
hennar.
Lögreglan telur að 21 árs gamall
jarðfræðistúdent hafi komið
sprengjunni fyrir og Iátizt sjálfur i
sprengingunni. Farið hefur verið fram
á það við alla Vestur-Þjóðverja að þeir
leggi niður vinnu í eina mínútu i
virðingarskyni við hina látnu.
Tvö hundruð og þrettán manns
særðust í sprengingunni. Fimmtíu
þeirra voru enn á sjúkrahúsi í gær-
kvöldi.
Trommuleikari
Led Zeppelin
léztísvefni
John Bonham trommuleikari
ensku rokkhljómsveitarinnar Led
Zeppelin er látinn. Dánarorsökin er
talin vera hjartaáfall. Að sögn lækna
var engin ástæða til að telja að rekja
megi dauða hans til ofneyzlu eitur-
lyfjaeðaáfengis.
Það var að morgni 25. september,
sem komið var að Bonham — eða
Bonzo, eins og hann var oft kallaður
— látnum. Hann hafði gist um
nóttina á heimili gítarleikara Leds
Zeppelin, Jimmy Page, I Windsor,
skammt frá London. Hljómsveitin
hafði nýlokið hljómleikaferð um
Evrópu og var að æfa fyrir ferð til
Bandaríkjanna og Kanada.
Bonzo var þekktur fyrir nokkuð
hátt líferni. Hann átti það til að aka
á mótorhjóli um hótelganga til að
halda upp á afmælið sitt. Oft kom það
fyrir að hann lenti i slagsmálum á
miðjum tónleikum Led Zeppelin. —
Hann var 32ja ára gamall er hann
lézt.
Led Zeppelin var stofnuð árið
1969. Sömu menn hafa verið í
hljómsveitinni frá upphafi. Hún er
með tekjuhæstu hljómsveitum í
heimi. Áætlað er að liðsmenn hennar
skipti með sér launum sem nema um
átján milljörðum króna á ári.
Hljómsveitin Led Zeppeiin er með tekjuhæstu hljómsveitum i heimi. Hún var aó
undirbúa hljómleikaferð um Kanada og Bandarikin er John Bonham (annar frá
vinstri á m.vndinni) lézt.
SOLD
Dömur og herrar! Morgun-, dag- og kvöldtímar.
Komið og reynið gæðin. Losnið við vöðvastreitu og fáið brúnan lit i BEL-O-SOL sólbekknum.
Opið alla daga nema sunnudaga.
Pantið tíma strax. Sím'
bolöaosstoran Strondm 21116
Nú geta allir keypt húsgagn!
25% útborgun
(Ath. 1/4 út)
Husgagn
sem markar
þáttaskil
Skála hilluskil-
veggurinn hentar
vel þegar skipta
þarf herbergi.
Skála hilluskil-
veggur gefur
ótrálega mögu-
leika.
íslenzk
hönnun
Veljum
íslenzkt
JB
Fjölbreytt úrval hús-
gagna, t.d.
Sófasett Borðstofusett
Sófaborö Skrifstofuhúsgögn
o.m.fl.
Veggsamstæður í úrvali
Berið saman verð og gæði
Ath. hina hagstæðu greiðsiu-
skilmála.
Á.GUÐMUNDSSON HF
Húsgagnaverksmiðja
Skemmuvegi 4, Kópavogi. Simi 73100.